
2 milljónir meðlima: Saga Club stærsti vildarklúbbur Íslands
Shownotes
Í þessum þætti köfum við ofan í einn stærstu vildarklúbb Íslands - Icelandair Saga Club.
Með mér er Magnús Þorlákur Lúðvíksson, forstöðumaður Saga Club, sem gefur okkur innsýn í hvernig vildarkerfi Icelandair hefur þróast frá hefðbundnum flugpunktum yfir í öflugt vistkerfi með yfir 2 milljónir skráðra meðlima og 400.00 þúsund virka notendur.
Við ræðum meðal annars:
- Hvernig tryggðarvegferð Icelandair hófst
- Muninn á flugpunktum og fríðindastigum
- Verðmætustu viðskiptavinina
- Hvernig vildarklúbburinn hefur þróast frá upphafi til dagsins í dag
- Framtíð vildarklúbbsins og leikjavæðing
- Árangur og mælikvarða
- Teymið og hvernig Saga Club er rekið eins og sjálfstæð rekstrareining innan Icelandair
- Og hvað þetta snýst allt raunverulega um
Þetta er þáttur fyrir alla sem hafa áhuga á tryggðarstefnu og vildarklúbbum til að byggja upp sterkari tengsl við viðskiptavini sína.