
Vegferð ELKO: Frá verðsamkeppni í traustan ráðgjafa
Shownotes
Í þessum þætti fáum við innsýn í vegferð ELKO í átt að metnaðarfullu markmiði:
að eiga ánægðustu viðskiptavinina á raftækjamarkaði - sem náðist á þessu ári með afgerandi hætti.
Ég ræði við Óttar Örn Sigurbergsson, framkvæmdastjóra ELKO, um hvað liggur raunverulega að baki þessum árangri. Við köfum í hvernig ELKO hefur umbreytt stefnu sinni – frá því að keppa fyrst og fremst á verði og úrvali yfir í að verða traustur ráðgjafi fyrir viðskiptavini.
Í þættinum ræðum við meðal annars:
· Hvernig rödd viðskiptavina mótar stefnu
· Gagnadrifna ákvarðanatöku og mælanlegan árangur
· Innleiðingu omnichannel og einstaklingsmiðaða upplifun
· Hlutverk gervigreindar og stafrænnar þróunar
Í lok þáttarins deilir Óttar hagnýtum ráðum fyrir stjórnendur og teymi sem vilja ná lengra.
Þessi þáttur er fyrir alla sem vilja:
· byggja upp sterkari tengsl við viðskiptavini
· taka betri ákvarðanir byggðar á gögnum
· og leiða raunverulega umbreytingu í rekstri
Sérstakar þakkir til Hans Pjetursson fyrir frumsamið stef þáttarins 🎶