
Skurðvarpið//Elsa Valsdóttir
Shownotes
Velkomin í fyrsta þátt Skurðvarpsins sem er hlaðvarp á vegum Félags Áhugamanna um Skurðlækningar. Í hlaðvarpinu fáum við til okkar sérfræðinga til að ræða fjölbreytt og hagnýt klínísk viðfangsefni með áherslu á skurðlækningar og perioperative ferlið.
Stofnendur þáttarins eru Luis Gísli Rabelo, sérnámsgrunnslæknir, og Viktor Ásbjörnsson, 6. árs læknanemi.
Í þessum þætti ræðum við akút abdomen og peritonitis út frá klínísku tilfelli með Elsu Valsdóttur, kviðarholsskurðlækni. Við förum yfir hvernig á að nálgast sjúkling með kviðverki, hvað skiptir máli í sögu og skoðun, fyrstu skref í meðferð og uppvinnslu, og hvenær skurðaðgerð kemur til greina. Hlaðvarpið er aðallega hugsað fyrir klíníska læknanema en eflaust hafa fleiri gagn og gaman að því.
Skurðvarpið er hlaðvarp Félags áhugamanna um skurðlækningar (FÁS). Við fáum til okkar skurðlækna úr öllum greinum skurðlæknisfræðinnar og ræðum við þau um klínísk tilfelli, uppvinnslu og meðferð. Við reynum að gera þáttinn skemmtilegann með því að tengja viðfangsefnið við tilfelli. Þátturinn er hugsaður aðallega fyrir klíníska læknanema.