
10. María Sigrún Hilmarsdóttir: Það stækkar fólk að lenda í áföllum
Shownotes
María Sigrún Hilmarsdóttir fréttamaður á fréttastofu Rúv. hefur fengið þung verkefni í lífinu. Eitt af því er að eignast fatlað barn. Hún lýsir ferlinu og hvernig hún hafi siglt í gegnum það. Í fyrra slasaðist hún alvarlega í skíðaslysi á Snæfellsjökli en er nú komin á kreik á ný. Í þættinum ræðum við sorgir og sigra og hvernig það hafi stækkað hana að fá snúin verkefni í fangið. Hún er bjartsýn og segist þakklát fyrir ástina og það að vera umvafin góðum vinkonum. Þátturinn er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab í Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5.