
3. Þáttur, Logi og Brynja og áhrif hreyfingar á minni
Shownotes
Í þætti vikunnar heyrum við í Loga Úlfarssyni og Brynju Vermundsdóttur, en Logi greindist með Alzheimer sjúkdóminn fyrir tveimur árum síðan. Við heyrum af skellinum þegar eftirlaunaplönin breytast, áhyggjunum af því að verða byrði á fólkinu sínu, undrinu sem gerist í Seiglunni og því að eignast óvænt nýja vini. Og af ótalmörgu öðru. Við erum þakklátar fyrir traustið sem þau hjónin sýna okkur með því að segja söguna sína og vonum að þið verðið jafn snortin og við. Í heilahreystihorninu fræðumst við um áhrif hreyfingar á hippocampus og minni.