
Lýsislampar & næturverðir
Shownotes
Í þættinum er ráfað á milli þess gamla og nýja með hjálp gamalla hljóðbrota úr safnkistu Ríkisútvarpsins. Rætt er við samtímafólk þegar hægt er eða einhvern sem tengist upptökunum með einum eða öðrum hætti.
„En í sama mund og glaðir borgarar sveiflast um í dansi eftir dillandi hljómsveit eru aðrir að hverfa til starfa.“ Svo hefst þáttur Sveins Skorra Höskuldssonar árið 1959 þar sem hann kynnir sér starf næturvarðar í byggingu Landsbankans í Austurstræti. Að gefnu tilefni berum við saman reynslu næturvarða fortíðarinnar og næturvarða nútímans. Einnig heyrum við brot úr gömlu viðtali við mann fæddan árið 1869, Gísla Jónsson fyrrverandi bónda á Hofi í Svarfaðardal, sem var níræður þegar upptakan var gerð. Gísli rifjar upp fyrstu minningar sínar og þær gríðarmiklu samfélags-, samgöngu- og tæknibreytingar sem hann varð vitni að á lífsleiðinni.
Við sögu koma lýsislampar, þúsund ára afmæli Íslandsbyggðar 1874, vofur og draugagangur, kvöldvökur nítjándu aldar og ýmislegt fleira. Myrkrið er óvæntur þráður sem læðist á milli þessara ólíku hljóðbrota fortíðarinnar. Vinnsla þáttar fór fram 2020. Rætt var við Stefán Elinbergsson, öryggisvörð og Ágúst Ólaf Georgsson, þjóðháttafræðing.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.