
X977 - Mín skoðun - 26.þáttur. 16102026
Shownotes
Í þætti dagsins heyri ég í Þórhalli Dan Jóhannssyni og við tölum um íslenska boltann og fleira. Kristinn Kjærnested er svo á línunni um enska boltann, landsliðið okkar og agamál þar á bæ ásamt fleiru. Loks heyri ég í Einari Jónssyni handboltaþjálfara en Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari valdi í dag 20 leikmenn til þátttöku gegn Úkraínu og Eistlandi í undankeppni EM en leikirnir fara fram í byrjun nóvember. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins. Takk POULSEN og LENGJAN.