
#29 - Þorbjörg Ásbjörnsdóttir
Shownotes
Í þættinum í dag er gestur minn Þorbjörg Ásbjörnsdóttir, betur þekkt sem Obba.
Leiðin austur tók á sig óvænta mynd hjá Obbu og fjölskyldu hennar. Síðan þá hefur lífið snúist um búskap, fjölskyldu og ýmis verkefni sem hafa smám saman þróast í eitthvað meira. Obba hefur farið sínar eigin leiðir og ekki alltaf vitað fyrirfram hvert þær myndu liggja.
Í samtalinu kynnumst við líka persónulegri hlið á lífi hennar þegar hún segir frá reynslunni af því að vera fósturforeldri, áhrifunum á fjölskyldulífið og því sem börnin hafa kennt henni. Við förum einnig yfir hvernig það er að byggja upp litla matvælaframleiðslu, læra nýtt handverk og takast á við þær áskoranir sem því fylgja.
Við ræðum meðal annars:
Flutninginn austur og hvernig fjölskyldan fann sinn stað.
Geitabúskapinn og leiðina inn í ostagerð og mjólkurvinnslu.
Reynsluna af því að vera fósturforeldri og hvað hún hefur lært af börnunum.
Áskoranir smáframleiðenda, reglugerðir og aðstöðuna sem þarf til matvælaframleiðslu.
Samfélagið, samstarf og mikilvægi þess að styðja við það sem er framleitt í heimabyggð.
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Þátturinn er í boði VÍS, Hjá Línu, M Fitness og Austurfréttar.