Zum Inhalt springen

#20 Hvað eru gagnreyndar aðferðir og af hverju/hvernig skipta þær máli - Auður Soffíu Björgvinsdóttir og Margrét Sigmarsdóttir

05.03.2026 · 50 Min.

Shownotes

Undanfarið hefur mikið verið rætt í fjölmiðlum og víðar um líðan og hegðun barna og einnig um lestrarfærni eða skort á henni öllu heldur. Hvað eru við sem samfélag að gera í þessum efnum? Það liggur ekki síður fyrir að spyrja: Hvað erum við sem samfélag að gera rangt? Stundum er sagt að ef við viljum skilja stöðuna, þá er besta leiðin að reyna að breyta henni. Þá er bara spurning hvernig og við gerum til þess.

Í umræðunni kemur fyrir hugtakið gagnreynt eða raunprófað, gagnreyndar aðferðir. En, það virðist vera mismunandi skilningur á hvað gagnreyndar aðferðir eru. Meðal annars hafa verið nýlega umræður á alþingi um barnavernd, sem benda til þess að það gæti verið gagnlegt að skýra hvað þetta hugtak, gagnreynt, merkir. Það virðist vera óljóst þegar fjallað er um aðferðir, hvort eitthvað sé gagnreynt eða ekki.

Til að ræða þetta fékk Námsvarpið til sín Margréti Sigmarsdóttur og Auði Soffíu Björgvinsdóttur sem fjallað hafa um gagnreyndar aðferðir, en ekki frá sama sjónarhóli.

Margrét Sigmarsdóttir er prófessor í sálfræði og rannsóknarleiðtogi menntavísindasviðs HÍ, hún er klínískur sálfræðingur og hefur mikla reynslu og þekkingu á rannsóknum og innleiðingu gagnreyndra aðferða.

Auður Soffíu Björgvinsdóttir er grunnskólakennari, læsisfræðingur og doktor í fræðunum. Í doktorsnáminu kynntist hún og rannsakaði gagnreynda kennsluaðferð í lestri.


Ítarefni:

Education Endowment Foundation. Bresk síða með yfirliti yfir aðferðir sem er mælt með og hvaða rannsóknum það byggir á https://educationendowmentfoundation.org.uk/

What Works Clearinghouse. Bandarísk síða með yfirliti yfir aðferðir sem er mælt með og hvaða rannsóknum það byggir á https://ies.ed.gov/ncee/wwc

Hér er bein slóð á PALS hlutann https://ies.ed.gov/ncee/wwc/Docs/InterventionReports/wwc_pals_060512.pdf

National Center on Improving Literacy. Bandarísk síða um rannsóknir tengdar læsi og lestrarkennslu https://improvingliteracy.org/

Eyberg, S. M., Nelson, M. M., & Boggs, S. R. (2008). Evidence-Based Psychosocial Treatments for Children and Adolescents With Disruptive Behavior. Journal of Clinical Child & Adolescent Psychology, 37(1), 215–237. https://doi.org/10.1080/15374410701820117

Alle Folgen von Námsvarpið – Mál, læsi og líðan

Einstellungen

Darstellung

Sprache

Bestimmt, welche Sender dir auf der Startseite zuerst gezeigt werden.

Verlauf

Zuletzt gehörte Sender und Folgen und deine letzten Suchen liegen nur in diesem Browser.

Hinweise

Ein kurzer Hinweis, wenn ein Podcast, dem du folgst, eine neue Folge hat. Einzelne Podcasts stellst du über die Glocke auf ihrer Seite ab.

Konto

Favoriten speichern – in der App und auf der Website.

Tastenkürzel

/
Suche öffnen
Leertaste
Abspielen oder anhalten
← →
Im Player: 15 s zurück, 30 s vor (Folgen) · im Regal: nächste Kachel
↑ ↓
Im Regal: Ziel innerhalb der Kachel
Pos1 / Ende
Im Regal: erste bzw. letzte Kachel
Esc
Fenster oder Menü schließen
?
Diese Übersicht
Läuft gerade

Zur Senderseite

Als Nächstes

    Folgen mit „Als Nächstes“ vormerken – sie laufen nach der aktuellen Folge.