
Skilnaðarbörn x Samvinna eftir skilnað
Shownotes
Í þessum þætti fengum við til okkar þær Gyðu og Stefaníu sem standa á bak við verkefnið SES Family. Þær starfa báðar sem ráðgjafar hjá Barna- og fjölskyldustofu, þar sem verkefnið er starfrækt. Við settumst niður með þeim og ræddum skilnað, áhrif hans á börn og hvernig foreldrar geta best stutt við börnin sín þegar fjölskyldan tekur breytingum. Við förum yfir spurningar sem margir foreldrar velta fyrir sér, hvað er mikilvægt að hafa í huga og hvernig við getum hjálpað börnum að komast í gegnum þessar breytingar með sem mest öryggi og stuðning.
Þátturinn er í boði playroom.is, Babybrezza og akkurat.store
5:30 Hvað er efst í huga?
9:50 Gyða og Stefanía
Njótið þáttarins!