
RÁÐGÁTAN #5 - Mæði, megurð og bruni án báls
Shownotes
RÁÐGÁTAN er nýtt hlaðvarp frá SPOR um klíníska rökleiðslu. Í hverjum þætti glíma þrír læknar við óþekkt sjúkratilfelli, byggja upp mismunagreiningu og reyna að komast á sporið og leysa ráðgátuna – skref fyrir skref.
41 árs maður glímir við langvarandi mæði, þreytu og óútskýrt þyngdartap. Í fimmta þætti RÁÐGÁTUNNAR glímir hópurinn við dularfullt tilfelli þar sem frekari rannsóknir leiða í ljós að meira býr undir en virðist við fyrstu sýn.
🎙️ Þáttastjórnendur eru Berglind Bergmann, sérnámslæknir í lyflækningum, Teitur Ari Theodórsson, sérnámslæknir í lyflækningum, og Hildur Jónsdóttir, lyflæknir og kennslustjóri sérnáms í lyflækningum. Með þeim í hverjum þætti er gestalæknir sem að þessu sinni er Kristján Bjarki Halldórsson, sérnámslæknir í lyflækningum.
RÁÐGÁTAN er hlaðvarp frá SPOR um klíníska rökleiðslu. RÁÐGÁTAN er ætluð til fræðslu og skemmtunar og kemur ekki í stað ráðgjafar læknis. Sjúkratilfelli eru gerð ópersónugreinanleg og einstökum atriðum kann að hafa verið breytt til að tryggja persónuvernd. Skoðanir sem koma fram í þættinum eru skoðanir þátttakenda og endurspegla ekki endilega afstöðu vinnustaða þeirra eða annarra stofnana.
Lagið heitir Viper's Drag er er frá 1934, samið af Thomas Wright Waller og flutt af Fats Waller.