
7. þáttur Freyja Eilíf og Mandelshtam
Shownotes
Viðmælandi Gunnars Þorra Péturssonar í sjöunda þætti RÚS er Freyja Eilíf sem segir frá þýðingum sínum úr rússnesku og dvöl sinni í Rússlandi sem skiptinemi. Lesari ásamt Gunnari Þorra Péturssyni umsjónarmanni er Anita Briem. Guðni Tómasson veitti aðstoð við dagskrárgerð og samsetningu. Rús - þættir um þjóð og menningu á krossgötum Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra. Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.
Alle Folgen von Rús – þættir um þjóð og menningu á krossgötum