
Að banna bækur - Viðtal við Guðrúnu Steinþórsdóttur
Shownotes
Nýliðin vika er tileinkuð bókum sem eru bannaðar og í þessum þætti fáum við til okkar frábæran gest til að ræða við um ritskoðun bóka og að banna bækur. Guðrún Steinþórsdóttir, bókmenntafræðingur og kennari, spjallar við okkur um þann sið að banna bækur eða ritskoða þær á þeim skala að þær verða óaðgengilegar, þá sérstaklega barna- og ungmennabækur. Þetta er vandmeðfarið málefni sem er marglaga og flókið og tökum við dæmi bókina Villi Vampíra sem er nánast ekki hægt að nálgast í dag. Við förum yfir hvað okkur finnst persónulega um bókina en einnig ræðum við viðbrögð við bókmenntum sem fjalla um jaðarsetta hópa og erfið málefni eins og ofbeldi. Guðrún segir okkur frá ýmsum rannsóknum sem snúa að þessu viðfangsefni og tekur fram dæmi um mikil og ýkt viðbrögð við íslenskum verkum.
Við förum um víðan völl og var þetta virkilega fróðlegt og skemmtilegt spjall. Við þökkum Guðrúnu kærlega fyrir komuna og hlökkum til að deila með ykkur bókalistanum hennar.
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum:
Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp
Insta: tbrlistinn