
Álhatturinn
- Episódios
- 72
- Publicação
- diária
- Último episódio
- 11 set 2026
Sobre o podcast
Þrír vinir með enga sérfræðiþekkingu ræða samsæriskenningar á vitrænum og glórulausum nótum.
Kostar aðeins 1290 kr. á mánuði og þú færð aðgengi að +50 þáttum af hreinni samsæriskenninga snilld 💥
➡️ Áskriftarhlekkurinn:
https://pardus.is/alhatturinn
Episódios 72
Avril Lavigne er dáin eða horfin og staðgengill hennar er loddari
Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón, Haukur Ísbjörn og Ómar þá umdeildu en jafnframt áhugaverðu kenningu að kanadíska tónlistarkonan Avril Lavigne sé dáin eða horfin og í stað hennar sé komin staðgengill …
Notas do episódio
Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón, Haukur Ísbjörn og Ómar þá umdeildu en jafnframt áhugaverðu kenningu að kanadíska tónlistarkonan Avril Lavigne sé dáin eða horfin og í stað hennar sé komin staðgengill eða jafnvel klón.
Sérstakur málsmetandi gestur þáttarins er stjórnmálafræðingurinn Viktor Orri Valgarðsson sem gefur sitt álit á kenningunni.
Fólk skiptist í fylkingar. Sumir segja kenninguna algjört kjaftæði en fjölmargir aðdáendur um allan heim segjast sjá miklar breytingar á Avril síðan hún kom fyrst fram á sjónarsviðið og þetta hreinlega sé ekki sama manneskjan.
Er hin raunverulega Avril enn á lífi? Eða hefur henni verið skipt út fyrir klón/tvífara? Er hún fangi í dýflissu níðinga eða lést hún kannski í bílslysi? Af hverju myndi einhver skipta henni út og hvar væri á bakvið slíkan óverknað?
Strákarnir gefa einkunn á skalanum 1-10 í byrjun þáttarins sem og í lok þáttarins og kemur þá í ljós hversu mikið eða lítið þeir hafa breytt um skoðun í afstöðu sinni til kenningarinnar.
Hér má finna ítarefni sem minnst er á í þættinum:
Raunverulega Avril - https://www.youtube.com/watch?v=5vCRFCLdvkQ
Loddara Avril - https://www.youtube.com/watch?v=zCecV_hg1FM
Raunverulega Avril - https://www.youtube.com/watch?v=9pqRQlpkdWE
Loddara Avril - https://www.youtube.com/watch?v=LiaYDPRedWQ
Heimildarmyndin hans Guðjóns - https://www.bitchute.com/video/4Ivy8v4sXWZw/?fbclid=IwAR1sCn8dlKJZ2fhJuBJ9un616OodO8wRxe7MKby_aqDJQU-_n7eDta3Obt0UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.P1: Geimverur hafa heimsótt jörðina og yfirvöld hylma yfir tilvist þeirra | Hluti 1
Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón Heiðar, Haukur ísbjörn og Ómar hvort geimverur hafi heimsótt jörðina og yfirvöld hilmi yfir tilvist þeirra.Öll höfum við horft uppí stjörnubjartan næturhiminn og velt …
Notas do episódio
Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón Heiðar, Haukur ísbjörn og Ómar hvort geimverur hafi heimsótt jörðina og yfirvöld hilmi yfir tilvist þeirra.
Öll höfum við horft uppí stjörnubjartan næturhiminn og velt fyrir okkur hvort við séum ein í þessu sólkerfi, þessari vetrarbraut, þessum alheim.
Eru geimverur til? Eru þær greindar eða bara einfaldar örverur? Hafa þær heimsótt jörðina? Ef svo er, hvar eru sönnunargögnin og af hverju eru ekki allir að tala um þetta?
Til eru endalausar sögur af geimverum að heimsækja jörðina, vitnisburður við misgáfulegt fólk sem segist hafa verið brottnumið og mörg okkar hafa séð myndefni af fljúgandi furðuhlutum í misgóðum gæðum.
En hvað er til í þessu?
Gæti verið að yfirvöld séu vísvitandi að láta okkur halda að þær hafi heimsótt okkur af annarlegum ástæðum til þess að dreifa athygli fólks frá mikilvægari málum?
Eru þetta falsfréttir og hugarburður ruglaðra einstaklinga með mikilmennsku brjálæði? Eru þetta einfaldlega fake og photoshoppuð video? Ef aðeins ein af þessum sögum, vitnisburðum eða myndefni er raunverulegt - þá myndi það kollvarpa heimsýn okkar sem jarðarbúar.
Þetta og margt fleira munu þeir félagar tækla í þessum þætti sem sem tekur á kenningu margir vilja meina að sé ein mikilvægasta samsæriskenningin af þeim öllum.
Þátturinn er tekinn upp og birtur í júlí / ágúst 2023.
Áhugavert ítarefni:
Gimball fljúgandi furðuhluturinn frá Pentagon
https://www.youtube.com/watch?v=QKHg-vnTFsM
Margskonar video af fljúgandi furðuhlutum
https://www.youtube.com/watch?v=HW7wfetKAU0
Nýlegur vitnisburður fyrir þinginu í BNA
https://www.youtube.com/watch?v=7ZDZGLaWEak
Viðtal við fólkið sem sá fljúgandi furðuhlut í skólanum í Ástralíu
https://www.youtube.com/watch?v=sPHVvg-dXOs
Viðtal við Buzz Aldrin, geimfara
https://www.youtube.com/watch?v=ZNkmhY_ju8o
Unacknowledged heimildamyndin
https://youtube.com/watch?v=iXxeGUcmGFs&feature=share
Sirius heimildamyndin
https://youtu.be/5C_-HLD21hA
Egyptar og geimverur
https://www.youtube.com/watch?v=sPHVvg-dXOs
Gömul málverk og geimverur
https://www.youtube.com/watch?v=39hMIgshgSo
https://www.youtube.com/watch?v=l-yNxkCLGjw&pp=ygUWcGFpbnRpbmdzIGV2aWRlbmNlIHVmbw%3D%3D
https://www.youtube.com/watch?v=vBLKYhfwyc4
Viðtalið við Bob Lazaar sem segist hafa unnið á area 51
https://open.spotify.com/episode/7Gg4Qi578G5SXoEtaLVVpx?si=25f24c69b43a41cf
https://www.youtube.com/watch?v=2GRjgBVw9Pk
Útskýring á Project Blue Beam - Yfirvöld eru að blekkja okkur
https://www.youtube.com/watch?v=wLZTaCL4yA0
Viðtalið við Travis Walton sem segist hafa verið brottnuminn
https://open.spotify.com/episode/0mCfpeY0Ga4meTanFzOkkL?si=81281143aef647c6
Viðtalið við Ryan Graves, orrustuflugmann í BNA hernum
https://open.spotify.com/episode/68t6BZRHenCslyLLaviW1H?si=cb499f7fcc724b
Grein um litlu geimveruna sem fannst í Chile
https://edition.cnn.com/2018/03/22/health/atacama-skeleton-mystery/index.htmlUM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Titanic var grandað vísvitandi af klíku auðjöfra sem svífast einskis
Hver kannast ekki við söguna um Titanic? Stærsta og glæsilegasta skipi sögunnar sem sigldi á ísjaka og sökk í sinni jómfrúarsiglingu frá Southampton í England til New York í Ameríku? En er sagan sönn? Í þessari …
Notas do episódio
Hver kannast ekki við söguna um Titanic? Stærsta og glæsilegasta skipi sögunnar sem sigldi á ísjaka og sökk í sinni jómfrúarsiglingu frá Southampton í England til New York í Ameríku? En er sagan sönn?
Í þessari viku ræða félagarnir í Álhattinum lítt þekkta og ef til vill umdeilda samsæriskenningu um afdrif og örlög Titanic.
Getur verið að Titanic hafi í raun aldrei farist og að um annað skip hafi verið að ræða? Eða var Titanic grandað vísvitandi til þess að taka af lífi óþægilega einstaklinga sem stóðu í vegi J.P Morgan og viðskiptafélaga hans?
Hvort var Titanic ótrúlega óheppilegt slys eða þaulskipulagt tryggingasvik? Hvað hefur þetta með seðlabanka Bandaríkjanna að gera? Hvernig blandast Hersey súkkulaði inn í málið og hvað varð um systurskipin Olympic og Brittanic eftir atvikið hörmulega?
Málsmetandi aðilli þáttarins er Bjarni Jónsson tónlistar spekúlant, frumkvöðull og athafnamaður sem hefur m.a komið að skipulagi tónlistarhátíða á borð við secret solstice og komið á fót nikotínpúða fyrirtæki sem framleiðir cbd nikótípúða.UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Leynireglan Illuminati er raunveruleg og stjórnar heiminum á bakvið tjöldin ▲
Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón, Haukur Ísbjörn og Ómar það sem sumir kalla samsæriskenningu allra samsæriskenninga, er leynireglan Illuminati til og stjórnar hún heiminum?Til eru hin ýmsu leynifélög …
Notas do episódio
Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón, Haukur Ísbjörn og Ómar það sem sumir kalla samsæriskenningu allra samsæriskenninga, er leynireglan Illuminati til og stjórnar hún heiminum?
Til eru hin ýmsu leynifélög og reglur um allan heim með misjafnlega göfug eða yfirlýst markmið. Næstum öll höfum við einhverntímann heyrt talað um félög einsog Skulls & Bones, templarana, frímúrara ofl. En þekktast þeirra allra, af undanskildum Frímúrurum kannski, er þó eflaust fyrirbærið Illuminati. Hulduhópurinn og meinta valdaklíkan sem samsærissinnum og Álhöttum um víða veröld er svo tíðrætt um.
En þó flest okkar hafi kannski einhverntímann heyrt um Illuminati einhversstaðar á veraldarvefnum eða í sjónvarpsþáttum & kvikmyndum, þá gera sér kannski færri grein fyrir því nákvæmlega hvað Illuminati er. Hvaða fólk er þetta sem stjórnar heiminum bakvið tjöldin líkt og brúðuleikhússtjórar og hvert er endanlegt markmið þeirra? Hvernig er hægt að ganga til liðs við Illuminati og hvernig er ákvarðanatöku og valdastrúktur háttað innan svona leynireglna? Hversu stórir fundir eru þetta og hversu reglulega eru þeir haldnir.
Í þessum þætti af Álhattinum fjalla Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór um þá vinsælu og víðförlu samsæriskenningu að heiminum sé leynilega og skipulega stjórnað bakvið tjöldin, af valdagráðugu fólki sem tilheyrir leynireglunni Illuminati.
Strákarnir ræða m.a um furðuleg og afar óræðin fyrirbæri einsog World Economic Forum, Trilateral Commission, Club of Rome, Bilderberg Group, Bohemian Grove ofl hópa sem virðast allir hafa sameiginleg eða mjög sambærileg markmið.
Afhverju er allt þetta stjórnmalafólk í sífellu að funda með einhverjum vafasömum miljarðamæringum og jakkafatakakkalökkum í reykfylltum bakherbergjum bakvið luktar dyr? Snýst þetta í alvöru eingöngu um tengslamyndun og að auðvelda samskipti eða viðskipti milli landa eða býr eitthvað mun dekkra og alvarleg að baki? Afhverju þarf elítan eiginlega öll þessi mismunandi samtök og félög ef þau ganga í raun öll út á það sama? Hversu mikið og oft er hægt að ræða um alþjóðavæðingu, sjálfbærni og framtíðarskipan efnahagsmála án þess að tala einfaldlega í hringi?
Eru aukin alþjóðleg viðskipti og sjálfbærni kannski af hinu góða og hver veit nema þessir fundir snúist eingöngu um það að gera heiminn að betri stað fyrir alla með aukinni sjálfbærni, hagvexti og alþjóðahyggju? Eða er þetta alltsaman blekking og gildra til þess að hreppa almenning í hlekki? Er raunverulega verið að blekkja okkur öll eða er þetta bara einhver endemis vitleysa og þvæla?
Þetta og margt fleira í nýjasta þættinum af Álhattinum.UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Díana prinsessa var ráðin af dögum að undirlagi Bresku konungsfjölskyldunnar
Diana Frances Spencer, betur þekkt sem Díana prinsessa af Wales, var ein þekktasta og dáðasta kona veraldar seint á síðustu öld. Hún giftist Karli, þá bretaprinsi og nú konungi, í júlí 1981 og naut hún strax …
Notas do episódio
Diana Frances Spencer, betur þekkt sem Díana prinsessa af Wales, var ein þekktasta og dáðasta kona veraldar seint á síðustu öld. Hún giftist Karli, þá bretaprinsi og nú konungi, í júlí 1981 og naut hún strax mikilla vinsælda á Bretlandseyjum og víðar. Hjá að er virtist öllum nema konungsfjölskyldunni.
Samband hennar og Karls var strax frá upphafi mjög óhamingjusamt og stormasamt og fljótt fóru að hvíslast út sögur um ótryggð og framhjáhald þeirra hjóna. En það var ekki bara stormasamt sambandið sem Díana vakti athygli fyrir. Því auk þess að þykja einstaklega vel gefin og máli farin þá þótti hún einnig einkar glæsileg og var hún talin ein fegursta kona Bretlands.
Eftir nokkur hræðilega erfið og óhamingjusöm ár í hjónabandi skyldu Karl og Díana að borði og sæng árið 1992 þó lögformlegum skilnaði hafi ekki lokið fyrr en 1996.
Eftir það voru bæði Karl og Díana mikið á milli tannana á fólki og stöðugt fjallað um þau í breskum götublöðum og fjölmiðlum.
Það var svo að kvöldi 31.ágúst 1997 sem Díana og elskhugi hennar Dodi Fayed létust í árekstri ásamt bílstjóra sínum, Henri Paul, í Pont de Alma göngunum í París. Upphaflega var talið að um slys vegna háskaaksturs væri að ræða, sem skrifa mætti á glæfralegan eltilingarleik undan ágengum blaðaljósmyndurum en síðar breyttist skýringin og skuldinni skelt á bílstjórann, sem var sagður hafa verið dauðadrukkinn og sótölvaður.
En hvað ef að ekki var um slys að ræða? Getur verið að áreksturinn hafi verið planaður af konungsfjölskyldunni til þess að taka Díönnu og Dodi úr umferð?
Var samband Díönnu og Dodi í óþökk fjölskyldunnar eða getur verið að pólitísk barátta Díönnu, td barátta hennar gegn jarðsprengjum, hafi verið það sem kom henni í koll?
Þetta og margt fleira í nýjasta þættinum af Álhattinum.UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Háþróuðum örbylgjuvopnum var beitt til að kveikja skógareldana á Maui
Í nýjasta þætti Álhattarins velta Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór fyrir sér þeirri glænýju og afar áhugaverðu samsæriskenningu að háþróuðum örbylgjuvopnum hafi verið beitt til þess að kveikja …
Notas do episódio
Í nýjasta þætti Álhattarins velta Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór fyrir sér þeirri glænýju og afar áhugaverðu samsæriskenningu að háþróuðum örbylgjuvopnum hafi verið beitt til þess að kveikja skógareldana á Maui og þá hvers vegna?
Skógareldarnir á Maui, Hawaii, sem áttu sér stað síðsumars og í haust 2023 eru sagðir vera umfangsmestu skógareldar í sögu Hawaii og mestu náttúruhamfarir sem átt hafa sér stað í Bandaríkjunum á síðustu hundrað árum.
En voru þetta raunverulegar og óumflýjanlegar náttúruhamfarir líkt og stjórnvöld og opinbera skýringin vilja meina? Eða getur verið að eitthvað mun dekkra búi að baki? Er möguleiki að eldarnir hafi verið kveiktir viljandi og þá hvers vegna?
Einnig ræða þeir undarlegar ákvarðanatökur lögreglu og annara viðbragðsaðila sem virðast um það bil allir hafa tekið eintómar rangar ákvarðanir auk þess að ræða það einfaldlega hvað í veröldinni háþróuð örbylgjuvopn séu.
Orkuveita Hawaii og eignarhald hennar ber einnig á góma og þeirri spurningu velt upp hvernig eldur geti kviknað út frá rafmagnslínum löngu eftir að rafmagnið hefur verið rofið af línunum.
Strákarnir spá einnig í það hvers vegna yfirvöld skrúfuðu fyrir vatnið í miðjum björgunaraðgerðum og takmörkuðu þannig möguleika slökkviliðsins til þess að berjast við eldana og hvað bjó að baki þeim ákvörðunum að loka öllum vegum út af meintu hamfarasvæðinu?
Getur verið að hús með bláum þökkum brenni síður en önnur hús og hvernig í veröldinni þetta eiginlega lögreglustjórum á Hawaii og hans fortíð?
Og hvað hafa Oprah Winfrey og Dwayne “The Rock” Johnson með málið að gera. Blackrock, Vanguard, Lockheed Martin og aðrir reglulegir vinir þáttarins eru að sjálfsögðu til umræðu auk John Podesta "uppáhalds" miljarðarmæringi Guðjóns Heiðars.
Þetta og margt meira í nýjasta þætti Álhattarins.
LINKAR Á VIDEO Í ÞÆTTINUM:- https://rumble.com/v3gel61-maui-directed-energy-weapon-documentary-dew-.html
- https://www.youtube.com/watch?v=acNRX80azMo
- https://www.youtube.com/shorts/G1DVip6WEDw
- https://www.youtube.com/watch?v=Prf06UIPoEM
- https://www.youtube.com/watch?v=eKpB_CY9zts
- https://www.youtube.com/watch?v=2prmks-6Xq4&pp=ygUVbWF1aSBmaXJlICtDT05TUElSQUNZ
- https://www.youtube.com/watch?v=xVID8jENuzQ
- https://www.youtube.com/watch?v=dIAGYwtPvjE
- https://www.youtube.com/watch?v=gG_ZWu6NoK8
- https://www.youtube.com/watch?v=vx414-uS3qY
- https://www.youtube.com/watch?v=o-qLg7g_iuo
- https://www.youtube.com/shorts/vbDwShFIGKk
- https://www.youtube.com/watch?v=NCz4vwn70xk
- https://www.youtube.com/watch?v=tg8dDoxJyeA&pp=ygUVbWF1aSBmaXJlcyBjb25zcGlyYWN5
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Handritshöfundar The Simpsons eru með dulda vitneskju um atburði framtíðarinnar, sem þau setja í þættina sína
Sjónvarpsþættirnir um Simpsons fjölskylduna eru einhverjir farsælustu þættir allra tíma og lang langlífustu þættir sem sýndir eru í dag. Í rúm 30 ár hefur þessi gula og skondna vísitölufjölskylda og aðrir …
Notas do episódio
Sjónvarpsþættirnir um Simpsons fjölskylduna eru einhverjir farsælustu þættir allra tíma og lang langlífustu þættir sem sýndir eru í dag.
Í rúm 30 ár hefur þessi gula og skondna vísitölufjölskylda og aðrir bæjarbúar Springfield skemmt áhorfendum með alls vitleysu og uppátækjum og mótað skopskyn fleiri kynslóða.
Út um allt á internetinu má finna greinar og myndbönd um allskonar atburði sem höfundar Simpsons fjölskyldunnar eiga að hafa spáð fyrir um.
Málsmetandi aðili þáttarins er Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata í borgarstjórn Reykjavíkur, fyrrverandi forseti borgarstjórnar og einn fremsti Simpsons sérfræðingur landsins.
Spádómar ræddir í hlaðvarpinu- Apple Watch og skjásímar
- Hestakjöti blandað í máltíðir
- Snjallsímar og auto-correct
- FIFA spilling
- Grikkland er til sölu á ebay
- Disney kaupir 20 Century Fox
- Lady Gaga á Super Bow
- Sigfried og Roy tígrisdýra árás
Top 4 spádómar
- Donald Trump er forseti USA
- Boson guðeindin og formúlan
- The Simpsons sýna hringborð ræða plott um að sleppa Zika Virus á almenning
- Spádómur um 11 september 2001
Hlekkir á annað ítarefni sem er nefnt í þættinum:
- Listi yfir allar spár í Simpsons
- 25 atriði sem Simpsons hafa spáð
- Sjónarhorn Sviss (hlutlausa fólksins)
- Hvernig fókus þáttana færist frá prakkaranum Bart yfir til “vitleysingsins” Hómer
- Góð yfirferð þar sem spádómarnir eru útskýrðir frá sjónarhorni efahyggjufólks
- Kenningin rifin í sig af efasemdarfólkinu á snopes.com
- Reuters með áreiðanleika athugun á fullyrðingunni og spádómunum
- Hvað er forvirk samfélagsforritun og hvernig virkar hún?
- Matt groening ferðast með lolita express
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Eigendur Manchester City hafa óeðlileg áhrif á dómgæslu ensku úrvalsdeildarinnar í krafti auðæfa sinna
Hvort sem fólk hefur áhuga á knattspyrnu eður ei, þá höfum við líklega flest heyrt um spillinguna og það bilaðslega magn peninga sem flæðir innan knattspyrnu hreyfingarinnar. Löngum hefur verið rætt um að …
Notas do episódio
Hvort sem fólk hefur áhuga á knattspyrnu eður ei, þá höfum við líklega flest heyrt um spillinguna og það bilaðslega magn peninga sem flæðir innan knattspyrnu hreyfingarinnar.
Löngum hefur verið rætt um að peningar séu að eyðileggja íþróttina og að leikmenn séu á allt of háum launum sem séu úr takt við allan raunveruleika. En þó líklega aldrei eins mikið og eftir að olíufurstar og fjárfestingarsjóðir heilu þjóðríkjanna fóru að eignast knattspyrnufélög.
Áður höfðu kaup Roman Abramovich á Chelsea vissulega vakið efasemdir einhverra stuðningsmanna annara liða og einhverjir kváðu oft við þegar Real Madrid og Barcelona kepptust við að slá metin yfir dýrustu leikmenn sögunnar á sínumtíma. En sú gagnrýni var ekkert í líkingu við þá gagnrýni sem komið hefur fram eftir kaup olíusjóðs sameinuðu arabísku furstadæmanna á Manchester City í ensku úrvalsdeildinni.
En hvað hefur þetta eiginlega að gera með Álhatta og samsæri kann einhver að spyrja? Er möguleiki á að eigendur Manchester City séu það auðugir og valdamiklir í krafti auðjöfra sinna að það sé farið að hafa áhrif á dómara og dómgæslu í úrvalsdeildinni almennt?
Í nýjasta þættinum af Álhattinum ræða þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór þá skemmtilegu samsæriskenningu að Manchester City séu ekki bara skekkja leikinn og kaupa titla með kaupum á öllum dýrustu og bestu leikmönnum á markaðnum heldur séu þeir einnig að hafa óeðlileg áhrif á dómara í ensku úrvalsdeildinni.
Hlekkir á efni rætt í þættinum:- Man City boosted its finances through creative plays, documents show
- Why Haven't Man City Been Punished Yet?
- Heimildarmynd um spillingu City
- Vörn City stuðningsmanna
- GAGNRÝNIR ÞAÐ AÐ DÓMARI FRÁ MANCHESTER DÆMI MAN CITY - LIVERPOOL
- The issues with multi-club ownership
- City Football Group. A Brand Of Its Own
Hvaða úrvalsdeildarlið græða mest á VAR?
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Tungllending Bandaríkjamanna árið 1969 var sviðsett
Tungllending Bandaríkjamanna árið 1969 er að margra mati eitt stærsta afrek mannkynssögunnar eða í það minnsta mesta tækniundur 20.aldarinnar. En einnig eru til þeir einstaklingar sem einfaldlega kaupa ekki …
Notas do episódio
Tungllending Bandaríkjamanna árið 1969 er að margra mati eitt stærsta afrek mannkynssögunnar eða í það minnsta mesta tækniundur 20.aldarinnar. En einnig eru til þeir einstaklingar sem einfaldlega kaupa ekki opinberu skýringuna og hreinlega neita því að mannfólk hafi nokkurn tíma stigið fæti á tunglið.
Í huga þessara Álhatta var einungis um einn allsherjar blekkingarleik og sjónarspil í boði Hollywood að ræða og Neil Armstrong Buzz Aldrin og Michael Collins ekki aðeins fóru aldrei til tunglsins heldur yfirgáfu þeir hreinlega aldrei gufuhvolf jarðar.
Hvernig stóð til dæmis á því að bandaríski fáninn gat gefið frá sér skugga í margar mismunandi áttir líkt og ljós kæmi úr mörgum áttum, þegar eina ljóstíran kom frá sólu? Voru tunglfararnir kannski með kvikmyndaljós með sér í ferðinni? Hversvegna blakti fáninn líkt og í rammíslenskri sunnanátt ef hann var í raun í þyngdarleysi á tunglinu
Hvernig gat eiginlega Neil Armstrong skilið eftir sig djúp fótspor í tunglinu ef tunglfarið sjálft, sem var töluvert stærra og þyngra, skildi enga djúpa gíga eftir sig? Hvernig í veröldinni þoldu hinir meintu tunglfarar allan þann bilaðslega kulda og gífurlega hita sem myndast getur á tunglinu og afhverju sjást engar stjörnur á himninum á neinum af þeim ljósmyndum sem þeir tóku í ferð sinni? Ættu stjörnurnar einmitt ekki að sjást betur úti í geimnum.
Hvað hafa heimsóknir tunglfaranna til Íslands árin 1965 og 1967 með þetta að gera, hvað í veröldinni er eiginlega þetta Van Allen belti og hvernig tengist þetta allt kvikmynda leikstjóranum Stanley Kubrick?
Er jörðin raunverulega hnöttótt eða er hún kannski kartöflulaga og hvernig stendur þá á því að allar myndir frá NASA sýna jörðina hnöttótta? Getur verið NASA séu að blekkja okkur?
Var um raunverulegt einstakt og stórkostlegt tækniundur og mannlegan sigur að ræða sem sameinaði heimsbyggðina alla? Eða voru bandarísk yfirvöld hreinlegar orðin þreytt á því að tapa geimkapphlaupinu fyrir Sovétríkjunum svo þeir settu á svið einn allsherjar leikþátt með hjálp Hollywood og kvikmyndatækni.
Þetta og svo margt, margt fleira í nýjasta þættinum af Álhattinum þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn oh Ómar Þór ræða eina þekktustu og klassískustu samsæriskenningu fyrr og síðar. Sjálfa tungllendingu Bandaríkjamanna.Hlekkir á ítarefni sem er til umræðu í þættinum:
- Apollo 13 - Trailer
- NASA Apollo 11 moon landing with Walter Cronkite
- Why files skoðar tungllendinguna
- MythBusters “tækla” samsærið
- A funny thing happened on the way to the moon
- Speglar á tunglinu?
- Neil Armstrong's Son Explains the Origins
- The Moon Landing: Stanley Kubrick's Greatest Film
- THE SHINING fake moon landing theory
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Hamskiptandi eðlufólk er meðal vor og gegnir áhrifastöðum í öllum krókum og kimum samfélagsins
Hvað eiga Katy Perry, Karl Breta konungur, Justin Bieber, George Bush og Bill Clinton sameiginlegt? Þau eru öll eðlufólk ef eitthvað er að marka David Icke og fylgjendur hans. En hvað er eiginlega eðlufólk og …
Notas do episódio
Hvað eiga Katy Perry, Karl Breta konungur, Justin Bieber, George Bush og Bill Clinton sameiginlegt? Þau eru öll eðlufólk ef eitthvað er að marka David Icke og fylgjendur hans.
En hvað er eiginlega eðlufólk og hvaðan kemur það? Hvernig getum við aðgreint þau frá öðru fólki og hvað gengur þeim eiginlega til?
Kenningin um eðlufólkið, sem stundum er kallað geimeðlur, er líklega ein af furðulegri samsæriskenningum sem til eru en lifir þó góðu lífi og á sér merkilega marga fylgjendur. Svo marga fylgjendur að sjónvarpsstöðvar framleiða heilu þáttaraðirnar um kenninguna og fylgjendur hennar og reglulega er vísað í kenninguna í bíómyndum og annari dægurmenningu.
En er eitthvað sem raunverulega styður við kenninguna eða er þetta bara glórulaust en fyndið þvaður misvitra einstaklinga? Hvað hefur þetta td með blóðflokka að gera(ef eitthvað) og hversvegna fæðist sumt fólk með skott? Eru þau kannski afkomendur eðla? Tengist þetta jafnvel á einhvern hátt fornri menningu Egyptalands eða Mesopotamiu? Eða er þetta kannski bara eitt stórt peningaplokk og svikamylla og David Icke og félagar eru einungis að ganga erinda hulduaflanna og í raun gagngert og skipulega að reyna að kasta rýrð á samsæriskenningar og fylgjendur þeirra? Svo eru þau til sem segja kenninguna ekkert annað en dulbúið gyðingahatur.
Hvort sem að eðlufólk er til og hversu valdamikil sem þau eru í raun verður amk að viðurkennast að kenningin er í það minnsta áhugaverð þó sumt fólk kunni að kalla hana gjörsamlega galna.
Þetta er einmitt umfjöllunarefni nýjasta þáttarins af Álhattinum þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór reyna að ræða á eins vitrænan en jafnframt glórulausan hátt og á annað borð er hægt um þá kenningu að einhverskonar eðlufólk gangi á meðal vor og sé búið að koma sér fyrir í öllum krókum og kimum samfélagsins þar sem þau stjórna í raun öllu bakvið tjöldin. Allt frá stjórnmálum til skemmtanaiðnaðarins.
Hlekkir á ítarefni sem er til umræðu í þættinum:- THEY LIVE Clip - Obey (1988)
- Species (1995) | Official Trailer
- David Icke claims that he's the "Son of God"
- David Icke talks conspiracy theories - BBC News
- David Icke: Conspiracy of the Lizard Illuminati (Part 1/2)
- David Icke Animated Video - The Spider, The Cult & The Pyramid
- Ancient Aliens: The Hollow Earth Theory (Season 10) | History
- Richard E. Byrd's second trip to the Antarctic, 1935
- Louis C.K. Asks Donald Rumsfeld If He Is A Lizard
- Crab people....crab people
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.WEF stefna á hinu stóru endurræsingu (e. Great Reset) á fölskum forsendum
Til eru fjölmörg samtök fyrir ríka, fræga og fína til þess að hittast, ræða málin fá sér einn til tvo kokteila og mynda tengsl. En þekktust og alræmdust slíkra samtaka eru líklega WEF (World Economic …
Notas do episódio
Til eru fjölmörg samtök fyrir ríka, fræga og fína til þess að hittast, ræða málin fá sér einn til tvo kokteila og mynda tengsl. En þekktust og alræmdust slíkra samtaka eru líklega WEF (World Economic Forum).
Yfirlýst markmið þessara samtaka er iðulega að auka samvinnu, sjálfbærni og draga úr alls kyns hindrunum sem mögulega gætu staðið í vegi fyrir frekari þróun mannkyns. Það þarf að tryggja efnahagslegan vöxt án þess að ganga á náttúruna eða að vöxturinn bitni á framtíðar kynslóðum. Það þarf að tryggja sjálfbæra þróun.
Trilateral Comission, Club of Rome og Council On Foreign relations eru allt samtök sem gefa sig öll út fyrir þessi sömu óræðu markmið og hafa tekið upp teygjanleg og túlkandi tískuorð sem sín einkunnarorð og gildi.
En WEF er enmitt umfjöllunarefni nýjasta þáttarins af Álhattarinum. Þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta því fyrir sér hvort að það geti verið að WEF starfi undir fölsku flaggi? Hvað ef þetta snýst ekkert um aukna sjálfbærni eða jafnræði heldur um aukin völd og enn frekari söfnun auðs á fárra hendur.
Þetta og svo margt margt fleira í nýjasta þættinum af Álhattinum, þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða hin stórmerkilegu en jafnframt furðulegu samtök WEF og velta því fyrir sér hvað felist eiginlega í hinni miklu endurræsingu
HLEKKIR Á ÍTAREFNI- Frá WEF í Davos - COVID-19: The Great Reset
- Viðtal við Klaus Schwab
- What is the Great Reset? í orðum WEF
- The Great Reset auglýsing
- You will own nothing be happy auglýsing
- World Economic Forum's "8 Predictions for the World in 2030"
- Karl Bretakonungur talar um The Great Reset
- Can you rent everything you need in life?
- How we'll live in 2030?
- Warnings of ‘Orwellian’ Great Reset
- How we can stop them from stealing everything from us
- King Charles | We have no alternative
- How To Prepare For The GREAT RESET (It's Happening)
- What is "The Great Reset" | Economics Explained
- WEF Davos Ræða frá Yuval Noah Harari
- Yuval - The Great Reset
- Yuval | Drugs & Video Games
- Dutch banker exposes religion of the elite & who they worship
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Tæknin til að klóna fólk er raunveruleg og stjörnum & stjórnmálafólki hefur verið skipt út
Árið 1996 var kindin Dolly klónuð fyrst allra dýra. Í kjölfarið vöknuðu allskyns siðferðis og álita spurningar um klónanir og afskipti og íhlutanir mannsins af náttúrunni almennt. Stuttu síðar var klónun manna …
Notas do episódio
Árið 1996 var kindin Dolly klónuð fyrst allra dýra. Í kjölfarið vöknuðu allskyns siðferðis og álita spurningar um klónanir og afskipti og íhlutanir mannsins af náttúrunni almennt. Stuttu síðar var klónun manna bönnuð í Bandaríkjunum og í kjölfarið fylgdu flestar aðrar þjóðir heims í fóstbor þeirra.
En getur verið að þrátt fyrir blátt bann við klónun manna hafi fólk samt verið klónað? Hvað ef að frægum og valdamiklum einstaklingum hefur jafnvel verið skipt út fyrir klóna, sem láta auðveldlega af stjórn, og gera allt sem þeim er sagt þegjandi og hljóðalaust, líkt og strengjabrúður? Ef svo er, hvar eru þessir klónar geymdir á meðan þeir alast upp og vaxa úr grasi eða fæðast þeir kannski fullvaxta? Hver er það sem er að klóna þessa einstaklinga, hvernig og hversvegna? Hverra hagur er að það að skipta þessum aðillum út?
Í þessum nýjasta þætti af Álhattinum velta þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór því fyrir sér hvort það sé mögulega búið að klóna fólk og þagað sé yfir því og skoða strákarnir líka hvort frægum og áhrifamiklum einstaklingum hafi jafnvel verið skipt út fyrir undirgefna klóna sem fylgja fyrirskipunum að ofan í blindni.
Strákarnir kynna sér líka hvað í veröldinni hönnunarbörn(e: designer babies) séu og hvernig yfirstéttarfólk á vesturlöndum sækir í auknu mæli í glasafrjóvganir í Kína og öðrum löndum, hvar þau geta “hannað sín eigin börn” með því að velja t.d hárlit, augnlit og önnur útlitseinkenni algjörlega eftir eigin höfði og smekk.
Gæti yfirstéttin og hulduöflin gert sjálf sig að ofurmanneskjum sem eru ónæm fyrir allskyns sjúkdómum sem munu herja á almenning í framtíðini? Verða krabbamein sykursýki og aðrir kvillar eingöngu áhyggjuefni okkar pöpulsins í framtíðinni á meðan valdaklíkan og fína fólkið lifir áhyggjulausu lífi laust við alla erfðagalla og hættulega sjúkdóma?
Þetta og svo margt margt fleira áhugavert í nýjasta þættinum Álhattinum.
HLEKKIR Á ÍTAREFNI:
- Rappers Who Have Been CLONED (Kodak Black, Eminem, Gucci Mane And MORE!)
- Actor Jamie Foxx speaks out about his mysterious medical issue that landed him in the hospital
- Designer Babies
- South Korea’s Dog Cloning Industry
- Kid Buu Exposes Clone Theory
- Clonaid Claims First Cloned Human Baby (2002)
- Doctor Claims He Cloned Human Embryos
- Eminem ESPN Interview - Notre Dame vs. Michigan Halftime 2013 MMLP2
- Britney Spears glitch
- Gene Editing: How CRISPR Will Change EVERYTHING & Create Designer Babies
- Anderson Cooper mocks Al Roker's frozen pose
- 10 Famous People Who Look EXACTLY The Same
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Aaron Swartz stofnanda Reddit var komið fyrir kattarnef af andstæðingum málfrelsis
Aaron Swartz einn stofnanda Reddit var sínum tíma, af mörgum talinn, einn fremsti forritari og hugsjónamaður heims, sem barðist af fullum þunga fyrir auknu tjáningarfrelsi, frjálsara interneti og betri …
Notas do episódio
Aaron Swartz einn stofnanda Reddit var sínum tíma, af mörgum talinn, einn fremsti forritari og hugsjónamaður heims, sem barðist af fullum þunga fyrir auknu tjáningarfrelsi, frjálsara interneti og betri veröld.
Ungur að árum vakti hann athygli fyrir gífurlegar gáfur og forritunar hæfileika og sem dæmi má nefna að strax á unglingsaldri átti hann þátt í að þróa RSS staðalinn og seinna var hann m.a hluti af teyminu sem kom á Creative Commons.
Þekktastur er hann þó eflaust fyrir baráttu sína gegn frumvörpunum SOPA og PIPA sem voru frumvörp sem hefðu takmarkað verulega athafnar og tjáningarfrelsi fólks á netinu. En þökk sé baráttu Aaron og fleiri þá tókst almenningi að stöðva frumvörpin ógurlegu.
Auk þess að brjótast inn í MIT háskólann og fela þar fartölvu sem hann hafði forritað sérstaklega til þess að stela gífurlegu magni af gögnum á ógnarhraða.
Fyrir þetta sóttu Bandarísk yfirvöld fast á hælar honum og hugðust draga Aaron fyrir alríkisdóm og skella honum í margra áratuga fangelsi. En á meðan Aaron beið réttarhalda sinna fremur hann öllum á óvörum sjálfvíg í búð sinni. Eða svo segir amk opinbera sagan sem yfirvöld vilja að við trúum.
En ekki eru allir sem kaupa þessa sögu yfirvalda og telja afar ólíklegt að Aaron hafi fallið fyrir eigin hendi. Getur kannski verið að Aaron hafi fundið eða séð eitthvað af gögnum sem ekki máttu líta dagsins ljós eða komast í hendur almennings? Hvernig tengist þetta hinum títtnefndu og margumræddu hulduöflum og hvað í veröldinni hefur Epstein góðvinur þáttarins með málið að gera?
Hversvegna valdi Aaron að brjótast inn í MIT en ekki einhvern annan háskóla og hvernig tengist þetta hinum gífurlega metnaðarfullu "góðgerðarverkefni" One Laptop Per Child?
Þetta, Julian Assange, Alexei Navalny og svo margt margt fleira í þessum nýjasta þætti af Álhattinum.
HLEKKIR Á ÍTAREFNI:- The Internet's Own Boy: The Story of Aaron Swartz | full movie (2014)
- 'The Murder of Aaron Swartz' - Rumble
- Dad_ The govt. killed my son, Reddit co-founder
- President Joe Biden Boasted About Using A Billion-Dollar Loan Agreement With Ukraine As Leverage
- Aaron Swartz_ How We Stopped SOPA
- What Is Reddit_ How Reddit became the front page of the internet
- Hunter Biden on _Beautiful Things_ and his struggles with substance abuse
- How Downloading Too Much Destroyed Reddit's Founder
- One Laptop Per Child
- Top MIT Official Resigns Over Epstein Donations
- Cornyn Questions Holder Over Death of Aaron Swartz
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Samráð milli plötufyrirtækja & einkarekinna fangelsa í BNA ýtti vísvitandi undir vinsældir bófarapps (e. Gangsta Rap)
Bófarapp (e. Gangsta Rap) naut mikilla vinsælda á 10.áratug síðustu aldar og þá sér í lagi undir lok áratugarins. Menn einsog 2pac, Biggie Smalls og Coolio nutu mikilla vinsælda og sveitir á borð við Wu Tang …
Notas do episódio
Bófarapp (e. Gangsta Rap) naut mikilla vinsælda á 10.áratug síðustu aldar og þá sér í lagi undir lok áratugarins. Menn einsog 2pac, Biggie Smalls og Coolio nutu mikilla vinsælda og sveitir á borð við Wu Tang Clan og Cypress Hill ómuðu á öldum ljósvakans.
Líf og lífstíll glæponsins sem síslaði með ýmis eiturlyf og aðra glæpi og hreykti sér svo af því í textum sínum þótti eftirsóknarvert og kvikmyndir og sjónvarpsefni sem lofsamaði þennan lífsstíl voru framleiddar í hrönnum og víðar buxur, gullkeðjur og aðrar vörur sem tengdar eru við gengja lífsstíl seldust eins og heitar lummur.En hvað olli þessum skyndilegu og óvæntu vinsældum bófarappsins? Hversvegna fóru plötufyrirtæki allt í einu og að því er virðist upp úr þurru að leggja höfuðáherslu á tónlist og dægurmenningu sem lofsamar eiturlyfjasölu, morð og aðra glæpi? Hvað hefur þetta allt saman með menningarstríð austurstrandarinnar og vesturstrandarinnar að gera og hvers vegna var annað tónlistarfólk í öðrum geirum ekki jafn iðið við glæpastarfsemi?
Hvað hvatti þessar stóru útgáfur til þess að ýta undir samfélagsmein eins og morð og fíkniefnaneyslu? Getur verið að plötuútgefendur hafi mögulega haft hagsmuni af því að halda glæpatíðni hárri? Hvað hefur þetta með einkarekin fangelsi að gera og getur verið að eigendur fangelsanna tengist eigendum plötufyrirtækja á einhvern hátt?
Þetta, stríðið gegn fíkniefnum, deilurnar milli oasis og blur, nýjustu vendingar í rappstríðinu í Chicago og svo margt, margt fleira áhugavert í nýjasta þættinum af Álhattinum.
Þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá áhugaverðu kenningu að eigendur plötufyrirtækja og einkarekinna fangelsa í Bandaríkjunum hafi vísvitandi ýtt undir vinsældir bófarapps á 10.áratug síðustu aldar til þess að fylla fangelsin.HLEKKIR Á ÍTAREFNI:
- Ice Cube Admits 90's Gangster Rap was a Government Psyop
- ÁTRÚNAÐARGOÐIN - Tungumálarar
- Blondie - Rapture
- Coolio - Gangsta's Paradise
- Chief Keef - I Don't Like f/ Lil Reese
- Scapegoat
- Fbg Duck - Dead Bitches Official Video
- King Von "Crazy Story"
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Stórfótur (e. Bigfoot) er til
Hver kannast ekki við að hafa heyrt eða lesið sögur um stórfót hinn ógurlega, eða sambærilega veru?Einhverskonar risavaxinn og kafloðinn mannapa sem gengur uppréttur og virðist ráfa um mannheima hrellandi fólk …
Notas do episódio
Hver kannast ekki við að hafa heyrt eða lesið sögur um stórfót hinn ógurlega, eða sambærilega veru?
Einhverskonar risavaxinn og kafloðinn mannapa sem gengur uppréttur og virðist ráfa um mannheima hrellandi fólk og ýmsan búfénað á afskekktum svæðum? Til eru mýmargar sögur víðvsvegar um heiminn af fjöldanum öllum af stórfótum allt frá Bandaríkjunum og Kanada til Ástralíu, Namibíu og Braselíu og víðar.
Mannaparnir eða stórfótarnir eru sumir hverjir ógnar stórir en aðrir smærri, allt eftir því frá hvaða menningarheimi sögurnar eru.
En þrátt fyrir fjöldan allan af þjóðsögum og munnmælum um þessar gríðarstóru verur þá hefur engum tengist að sanna tilvist þeirra. Engar beinagrindur, hauskúpur eða ummerki um verurnar hafa fundist og ekki svo mikið sem ein hárlufsa, sem tekist hefur að sanna að tilheyri stórfæti eða einhverskonar risavöxnum mannapa.
Þá virðist líka allt myndefni af verunum vera frá sjötta eða sjöunda áratug tuttugustu aldar og af einhverjum ástæðum hefur enginn stórfótur náðst á mynd eftir tilkomu myndavélasímanna. Er það vegna þess að stórfætur eru raunverulega ekki til eða er það vegna þess að stjórnvöld um allan heim og vísindasamfélagið þegja og hylma yfir tilvist þeirra?
Búa þessar verur mögulega yfir einhverskonar hæfileikum til þess að gera sig ósýnilegar mönnum og tekst þeim sífellt að fela sig fyrir okkur? Mögulega er bara um þjóðsögu eða skáldskap að ræða en hvernig útskýrum við þá allan þennan fjölda vitnisburða og sambærilegra munnmæla frá jafn ólíkum menningarheimum og löndum?
Þetta og svo margt margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar sem félagarnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá skemmtilegu samsæriskenningu að stórfótur hinn ógurlegi sé til.HLEKKIR Á ÍTAREFNI:
- A Flash of Beauty: Bigfoot Revealed (The Official Documentary)
- Bigfoot and Wildboy Theme
- Bigfoot Patterson film hoax solved 2005
- Shocking New Bigfoot Documentary!
- Is Big Foot an Inter-dimensional Creature?
- OVER 1 HOUR OF BIGFOOT ENCOUNTERS
- Bigfoot Chasing Car in Colorado
- The Proof Is Out There: The Man Who Killed Bigfoot
- Is this Sasquatch? He was spotted near Washington mountain passes
- The UnXplained: Bigfoot Sighting BAFFLES Researchers
- Top 10 Concerning Bigfoot Evidence The Government Is Hiding From Us
- Big Foot Sighting " Hi Deff "
- ‘Bigfoot’ sighting in Colorado?
- BIGFOOT SIGHTINGS BY MONTH
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Valdarán á Seðlabanka Bandaríkjanna leiddi af sér algjöra stjórn á landinu
Seðlabanki Bandaríkja Norður-Ameríku (e. federal reserve) hefur löngum verið umdeild stofnun sem mikið hefur verið karpað um. Sú staðreynd að bankinn sé í einkaeigu fremur en ríkiseigu þykir afar sérstakt og …
Notas do episódio
Seðlabanki Bandaríkja Norður-Ameríku (e. federal reserve) hefur löngum verið umdeild stofnun sem mikið hefur verið karpað um. Sú staðreynd að bankinn sé í einkaeigu fremur en ríkiseigu þykir afar sérstakt og hefur margur álhatturinn bent á að slíkt hljóti að teljast í hæsta máta óeðlilegt.
Hversvegna ættu einkaaðillar að fá að stjórna magni og flæði peninga í hagkerfinu fremur en ríkið sjálft og hversvegna fá þessir einkaaðillar að prenta peninga af vild án þess að ríkisvaldið hafi eitthvað að segja um það? Eru einkaaðillar kannski betur til þess fallnir að taka vaxtaákvarðanir og sjá um stjórn hagkerfisins, fremur en að setja valdið í hendur dittótra og sérlundaðra atvinnu-pólitíkussa sem stjórnast eingöngu af eiginhagsmunum og eigin metnaðargirni
JP-Morgan, Rothschild og félagar hans myndu færa fyrir því rök að það væri óráð og hálfgalið að setja slíkar ákvarðanir í hendur stjórnmálamanna enda getur slíkt leitt til óreið og glundroða í hvert sinn sem skipt er um ríkisstjórn eða seðlabankastjóra? Stjórnmálamenn eltast við vinsældir almennings og gætu tekið glórulausar og efnahagslega hættulegar ákvarðanir í tilraun sinni til atkvæðaveiða, með tilheyrandi efnahagslegri áhættu og auknum líkum á sveiflukenndu hagkerfi, á meðan einkaaðillar þurfa ekki að reiða sig á atkvæði eða vinsældir hjá almenningi og eru því líklegri til þess að taka réttar ákvarðanir sem þjóna hagkerfinu öllu, ekki satt
Eða getur verið að um eitt allsherjar samsæri og plott örfárra ríkra fjölskyldna til að stjórna heiminum sé að ræða, í krafti auðs og fjármagns?
Þetta og svo margt margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem félgarnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá skemmtilegu samsæriskenningu að valdarán hafi verið framið á seðlabanka bandríkjanna og hafi leitt af sér algjöra stjórn á landinu.
HLEKKIR Á ÍTAREFNI:- Money for nothing heimildamynd um federal reserve
- Money Masters heimildarmynd
- Century of Enslavement: The History of the Federal Reserve"
- NPR podcast um leynifundinn á bakvið federal reserve
- Money, Banking, and the Federal Reserve
- Escaping the Rat Race: What School Failed to Teach You About Money.
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Jörðin er flöt
Getur í raun verið að jörðin sé ekki hnöttur og að geimvísindastofnanir Bandaríkjanna og Evrópu og vísindasamfélagið í heild sinni sé vísvitandi að blekkja okkur? Hvað ef að geimurinn er hreinlega ekki til og …
Notas do episódio
Getur í raun verið að jörðin sé ekki hnöttur og að geimvísindastofnanir Bandaríkjanna og Evrópu og vísindasamfélagið í heild sinni sé vísvitandi að blekkja okkur? Hvað ef að geimurinn er hreinlega ekki til og þetta er allt saman eitt stórt sjónarspil og svikamylla fégráðugra einstaklinga?
Ef eitthvað er að marka flatneskjufræðinga og ákveðna Álhatta á borð við Eric Dubay, Mark Sargent og Patricia Steere þá hafa geimvísindamenn og stofnanir verið að ljúga að okkur, ekki bara í nokkra áratugi heldur í fleiri fleiri aldir og eru ekkert að fara að hætta því í bráð.
Allt sem okkur verið kennt um sólina, tunglið, sólkerfið og alheiminn er eitt stórt platgabb og allar meintar geimferðir manna(og hunda) hvort sem er til Tunglsins eða eitthvað annað eru ekkert annað en hugarburður og skáldskapur einhverra brjálaðra spunameistara á vegum ríkisins og hagsmunaðilla.
Getur verið að ríkiskassar um allan heim séu mergsognir og blóðmjólkaðir af gráðugum peningaplokkurum, sem hafa selt heiminum einhver falsvísindi um hnöttótta jörð, himingeim og aðrar plánetur þegar staðreyndin er sú að jörðin er flöt og að við búum öll undir einhverskonar glerhjúp? Svífast þessir hnattlingar einskis?
Kenningin um að jörðin sé flöt er alls ekki ný af nálinni og einsog við þekkjum af sögubókunum er sú skýring mun eldri en allar hugmyndir manna um að jörðin sé einhverskonar hnöttur eða kúla. Hvað ef að fólk hafði rétt fyrir sér í upphafi en var síðar blekkt? Hvað höfum við raunverulega fyrir okkur í því að jörðin sé hnöttur?
Kenningin um að jörðin sé flöt er eldgömul og lífseig og varla lifði svona lengi í gömlum glóðum þessarar kenningar, ef ekki væri nokkur fótur fyrir kenningunni, eða hvað? V
Í þessum nýjasta þætti Álhattarins ræða vinirnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór einstaklega skemmtilegu og áhugaverða kenningu sem notið hefur gífurlegra vinsælda á samféalgsmiðlu og veraldarvefnum á undanförnum árum, þá skemmtilegu og afskaplega áhugaverðu kenningu að jörðin sé í raun og veru flöt.
Hlekkir á ítarefni:
- BEHIND THE CURVE movie trailer
- Convex Earth - The Documentary - The Flat Earth Scientific Proof
- LEVEL (Flat Earth Film) 2021
- Jimmy Kimmel Asks Shaq if He Really Thinks the Earth is Flat
- Joe Rogan - Neil deGrasse Tyson on Eric Dubay & Flat Earth
- https://www.youtube.com/@truthavision
- https://www.youtube.com/@flateartheric
- https://www.youtube.com/@markksargent
- Phillip Is Absolutely Baffled by the Men Who Believe the Earth Is Flat | This Morning
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Nýlenduherrar létu granda flugvél Dag Hammarskjöld, framkvæmdastjóra Sameinuðu Þjóðanna
Dag Hammerskjöld, framkvæmdarstjóri sameinuðu þjóðanna, lést er flugvél hans og fylgdarmanna hans, fórst á leið til friðarviðræðna í Kongó 18.September 1961. Upphaflega var talið að mistök flugmansins eða …
Notas do episódio
Dag Hammerskjöld, framkvæmdarstjóri sameinuðu þjóðanna, lést er flugvél hans og fylgdarmanna hans, fórst á leið til friðarviðræðna í Kongó 18.September 1961. Upphaflega var talið að mistök flugmansins eða veðuraðstæður leitt til þess að flugvélin brotlenti, en fljótlega fóru að renna tvær grímur á fólk og ýmsa fór að gruna að ekki væri allt með felldu og mögulega væri þarna eitthvert óreint mjöl í pokahorninu.
En hver var Dag Hammerskjöld eiginlega, hvernig hlaut hann þessa stöðu hjá sameinuðu þjóðunum og hví ætti einhver að vilja hann feigann??
Getur verið að yfirlýsingaglaður og skoðanagjarn Dag hafi aflað sér það mikillar óvildar innan sameinuðu þjóðanna með gengdarlausri baráttu sinni fyrir því sem hann taldi réttlátari og betri heim? Er möguleiki á að nýlenduherrar á borð við Belgar og/eða Bretar hafi hreinlega fengið nóg af þessum óþreytandi réttlætisriddara sem hætti ekki að tjá sig um arðrán og þjófnað vesturveldanna í Afríku og látið koma honum fyrir kattarnef?
Hver er The Lone Ranger og hvernig tengist málið belgískum námufélögum og Suður-Afrísku hafrannsóknarstofnunni?
Þetta og svo margt margt fleira í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem félagarnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta fyrir sér þeirri áhugaverðu en kannski lítt þekktu samsæriakenningu að nýlendunherrarnir hafi látið granda vél Dag Hammerskjöld framkvæmdastjóra sameinuðu þjóðanna.
HLEKKIR Á ÍTAREFNI:- Cold Case Hammarskjöld | Documentary
- Dag Hammarskjold: The Man Who Built the United Nations
- The Mysterious Death of a UN Secretary-General
- Nýjustu fréttir og skjöl í rannsóknum á Hammarskjold
- UN extends investigation into mysterious death of its former Secretary-general Dag Hammarskjöld in 1961
- JFK Patrice Lumumba Dag Hammarskjöld CIA Allen Dulles
- Hammarskjold the Movie
- Cold Case Hammarskjöld - Exclusive Clip - Hammarskjöld the Flaming Idealist
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Paul McCartney lést í bílslysi árið 1966 og var skipt út fyrir loddara
Flest könnumst við eflaust við Bítlana, eina vinsælustu og sigursælustu hljómsveit allra tíma, sem fór sigurför um heiminn um miðbik síðustu aldar. Þeir félagarnir George, John, Paul og Ringo, stofnuðu …
Notas do episódio
Flest könnumst við eflaust við Bítlana, eina vinsælustu og sigursælustu hljómsveit allra tíma, sem fór sigurför um heiminn um miðbik síðustu aldar.
Þeir félagarnir George, John, Paul og Ringo, stofnuðu hljómsveitina í Liverpool á Englandi árið 1960 og voru nánast í Guðalíki á tímabili og þá sér í lagi hjá unga fólkinu. Plötur þeirra seldust í bílförmum og hvert sem þeir fóru voru þeir eltir á röndum af æstum aðdáendum og enn þann dag í dag njóta plötur þeirra og lög gífurlegra vinsælda.Færri, en þó einhverjir, kannast þó við áhugaverða samsæriskenningu um að einn Bítlanna, Paul Mccartney, hafi látiast í bílslysi árið 1966 og verið skipt út fyrir tvífara sinn og loddara. Í upphafi var bara um einhverskonar flippkattar flökkusögu að ræða, sem virðist aðallega hafa verið rædd í hipstera partýjum og reykfylltum herbergjum á háskóla heimavistum.
Það breyttist haustið 1969 þegar háskólablaðið Drake Times-Delphic í Iowa birtir grein með fyrirsögninni Paul is dead þar sem sú kenning að Paul Mccartney hafi látist í bílslysi er reifuð. Í október sama ár vekur hinn goðsagnakenndi útvarpsmaður Russ Gibb athygli á málinu í útvarpsþætti sínum, eftir að diggur hlustandi og aðdáandi þáttarins hafði hringt inn í þáttinn og vakið athygli Russ á kenningunni. Eftir það var kötturinn kominn úr tunnunni og sagan dreifðist hratt um heiminn líkt og eldur í sinu.
Bítlaaðdáendur sem og aðrir lögðust yfir myndir, texta og annað efni frá Bítlunum og reyndu að lesa í meint falið dulmál eða myndmál, sem kenningarsmiðir vildu meina að Bítlarnir hefðu skilið eftir á framhliðum platna eða í textum laga sinna. Þá voru einnig einhverjir sem vildu meina að með því að spila ákveðin lög Bítlanna afturábak mætti finna enn frekari leynd og dulúðleg skilaboð. En er einhver fótur fyrir þessum kenningum?
Lést Paul McCartney raunverulega í slysi á léttbifhjóli sínu árið 1966 eða er bara um reykmettaðar pælingar einhverra misvitra hippa, með kannski aðeins of mikinn frítíma eða örlítið of óhindrað aðgengi að hinum ýmsu ofskynjunarefnum og vímuefnum að ræða?
Er eitthvað til í þessari flökkusögu og samsæriskenningu eða er fyrst og fremst um fyndnar og skemmtilegar pælingar rammskakkra háskólanema að ræða?
Þetta og svo margt, margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem félagarnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá langlífu, stórskemmtilegu en mögulega örlítið fjarstæðukenndu samsæriskenningu að Paul McCartney úr Bítlunum hafi látist af slysförum árið 1966 og verið skipt út fyrir loddarann Faul.
HLEKKIR Á ÍTAREFNI
- Paul McCartney vs Billy Shears - voice comparison - Yesterday 1965 vs 1973. Very different voices.
- The Beatles - Revolution 9 (vinyl LP - first 40 seconds backwards)
- Strawberry Fields Forever - I Buried Paul - TURN UP VOLUME AND LISTEN CAREFULLY!
- Paul McCartney Recalls The Beatles' 1964 U.S. TV Debut | Letterman
- The Bizarre Fan Theory Claiming Paul McCartney Is Dead
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Efnarákum (e.chemtrails) er spreyjað í andrúmsloftið án vitneskju almennings, með annarleg markmið að leiðarljósi
Hvaða rákir eru þetta sem standa aftan úr þotum og flugvélar, sem þekja himininn? Er þetta einfaldlega saklaust samanþjappað loft og raki eða eru einhverjir illa innrættir fantar og fúlmenni, með annarlegar …
Notas do episódio
Hvaða rákir eru þetta sem standa aftan úr þotum og flugvélar, sem þekja himininn?
Er þetta einfaldlega saklaust samanþjappað loft og raki eða eru einhverjir illa innrættir fantar og fúlmenni, með annarlegar hvatir, mögulega að dreifa einhverjum hroðbjóði í andrúmsloftið? Ef svo er, hverju er verið að spreyja og hversvegna?Ganga þessir aðilar erinda lyfjarisa og tryggingafélaga, sem hagnast verulega af veikindum almennings, eða eru þetta mögulega brjálaðir vísindamenn sem vilja stjórna veðrinu og drottna yfir náttúrunni?
Samsæriskenningin um efnarákir(chemtrails) er síður en svo ný af nálinni og kenningin nýtur merkilega mikils stuðnings víðsvegar um heiminn. Svo virðist vera sem rákirnar megi finna á himnum í svo til hverju einasta sveitafélagi, fylki eða borg í hverju einasta landi varaldar.
Ef um samsæri er að ræða, þá er væntanlega um eitt stærsta og umfangsmesta samsæri veraldar að ræða. Hversu margir eru með í ráðum? Allir flugmenn, flugumferðarstjórar, hleðslu fólk á jörðu niðri? Eða er kannski samsærið falið fyrir þeim öllum líka? Og leynilegum eiturefnum blandað í flugvélabensínið?Hvað í veröldinni voru Project Cirrus, Project Cumulus eða Project Skyfire? Hvers vegna myndu stjórnvöld og vísindamenn vilja stjórna veðrinu og hverra hagsmuna er þá verið að gæta? Opinberu skýringarnar eru þær að mögulega megi koma í veg fyrir þurrka og uppskerubrest og þannig hugsanlega einnig koma í veg fyrir kreppur og ef til vill afstýra byltingum og óeirðum. Hvað ef þau eru ekki bara að reyna stjórna veðrinu? Geta þau kannski stjórnað hugsunum okkar og gjörðum með þessum efnum?
Hverju eru þau að spreyja og hvaða heilsufarsleg áhrif hefur það á fólk, plöntur og dýr? Eru ál, baríum og brennisteinn í snefilmagni raunverulega skaðleg og ástæða þess að svo gífurleg aukning hefur orðið í tilfellum krabbameina og alzheimers í heiminum? Eða hefur það kannski meira með hækkandi aldur og auknar lífslíkur fólks að gera?Hvað í veröldinni er skýja sáning(e.cloud seeding)? Hver eru Council of foreign relations og hvers vegna í veröldinni vilja þau samtök dimma himininn? Getur verið að hér sé hugsanleg lausn á loftslagsvánni og hamfarahlýnun? Eða eru hér á ferðinni gífurlega valdamikil hagsmunasamtök sem bera einungis eigin hag í húfi?
Þetta og svo margt, margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, sem er sneisafullur af bitastæðu efni, þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá stórkostlega skemmtilegu og áhugaverðu kenningu að efnarákum(chemtrails) sé skipulega úðað í andrúmsloftið með annarleg markmið að leiðarljósi.
Hlekkir á ítarefni:
- The dimming, climate engineering documentary
- Holes in Heaven? HAARP and Advances in Tesla Technology" (1998)
- Frankenskies
- What in the World Are They Spraying
- Why in the World Are They Spraying
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Dularfullt andlát Kurt Cobain var ekki sjálfsvíg, heldur skipulagt morð
Ef þú ólst seint á síðustu öld þá manstu eflaust eftir söngvaranum Kurt Cobain og hljómsveit hans Nirvana. Fáar, ef einhverjar, hljómsveitir höfðu jafn mikil áhrif á tónlistarsmekk tíunda áratugarins og …
Notas do episódio
Ef þú ólst seint á síðustu öld þá manstu eflaust eftir söngvaranum Kurt Cobain og hljómsveit hans Nirvana. Fáar, ef einhverjar, hljómsveitir höfðu jafn mikil áhrif á tónlistarsmekk tíunda áratugarins og meðlimir sveitarinnar voru dýrkaðir og dáðir af síðhærðum unglingum í snjáðum gallabuxum um allan heim.
Gruggið(e.grunge rock) tröllreið gjörsamlega öllu á tímabili og þar fóru Nirvana svo sannarlega í fararbroddi.
En frægðin og áreitið sem fylgdi í kjölfarið fór misvel í meðlimi sveitarinnar og fljótt fór að bera á orðrómum um mikla vímuefnaneyslu meðlima og þá sérstaklega söngvarns Kurt Cobain. Hann átti I stormasömu sambandi við Courtney Love sem var söngkona grugg sveitarinnar Hole og saman áttu þau eina dóttur að nafni Frances Bean Cobain. Að endingu gekk neyslan það langt að hann sá sér ekkert annað fært en að skrá sig í meðferð á Exodus meðferðarheimilið í Kaliforníu. En einungis degi síðar gengur Kurt út af meðferðarheimilinu og fer heim í bíl með æsku vini sínum sem hafði komið að sækja hann.
Nokkrum dögum síðar finnst Kurt látinn í gróðurhúsi á heimili sínu, þar sem talið er að hann hafi fyrirfarið sér með hagglabyssu. Fljótlega runnu þó tvær grímur á fólk sem töldu afar ólíklegt að Kurt hafi þar sjálfur verið að verki. Benti fólk á þá staðreynd að gífurlega mikið magn af heróíni hafi mælst í blóði Kurt og að afskaplega ólíklegt þætti að hann hefði haft mátt í líkamanum til þess að hleypa af byssunni. Þá eru víst afar fátítt að fólk í heróín vímu skjóti sig og vilja einverjir álhattar jafnvel meina að Kurt sé eini maðurinn í sögunni sem hefur skotið sig í hausinn með hagglabyssu í heróín vímu.Þá hafa einnig stigið fram einstaklingar sem hafa sagt að Courtney hafi boðið þeim peninga fyrir að myrða Kurt en þessir einstaklingar fundust svo afhausaðir á lestarteinum stuttu síðar.
Sviplegur og óvæntur dauði Kristen Pfaff, bassaleikara Hole, berst einnig í tal og því velt fyrir sér hvort Courtney hafi mögulega einnig haft eitthvað með hann að gera, enda voru Kristen og Kurt milir og góðir vinir og neyslufélagar. Sem gæti hafa valdið öfund eða afbrýðissemi hjá Courtney.
Þetta og margt margt fleira í þessum nýjasta þætti Álhattarins þar sem félagarnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta fyrir sér þeirri lífseigu og afar áhugaverðu samsæriskeningu að Kurt Cobain hafi ekki framið sjálfsmorð árið 1994 heldur hafi hann verið myrtur.
HLEKKIR Á ÍTAREFNI- Soaked in Bleach - Kurt Cobain Murdered Documentary
- The Last 48 Hours of Kurt Cobain
- Kurt & Courtney heimildarmynd frá 1998
- what Actually Happened To Kurt Cobain?
- Did Allen Wrench Kill Kurt Cobain?
- Did Courtney Love Kill Kurt Cobain? What Happened During His Final Days?
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Mandela áhrifin eru raunveruleg, og eru ekki afleiðing sameiginlegra falsminninga
Manstu þú eftir því þegar Nelson Mandela dó í fangelsi? Eða eftir myndinni Shazaam með Sinbad? Ef svo er þá ert þú ertu mögulega víddaflakkari eða einfaldlega eitthvað að misminna. Þó að mörg hver okkar munum …
Notas do episódio
Manstu þú eftir því þegar Nelson Mandela dó í fangelsi? Eða eftir myndinni Shazaam með Sinbad? Ef svo er þá ert þú ertu mögulega víddaflakkari eða einfaldlega eitthvað að misminna.
Þó að mörg hver okkar munum kannski ekki eftir dauða Nelson Mandela í fangelsi eða myndinni Shazaam með Sinbad þá er til fólk sem á mjög sterkar og ljóslifandi minningar af þessum hlutum og fjölmörgum öðrum hlutum sem eiga sér hugsanlega enga stoð í raunveruleikanum.
Eða eru þau mögulega þau einu sem muna eftir hinum sanna raunveruleika og við hin erum eitthvað að misskilja eða í sýndarveruleika? Hér er um að ræða mjög sambærilega hluti og þeim sem finnast í hinum ruleikanum, bara örlítið frábrugðna. Eða eru mögulega til fleiri en einn veruleiki? Og er kannski hægt að flakka um þessa veruleika eða víddir, bæði óvart og jafnvel vísvitandi?Þessi meinti misskilningur, eða fölsku minningar, sem einhver vilja meina að sé staðfesting á tilvist víddaflakks hafa verið kölluð Mandela áhrifin og eru nefnd eftir þeirri algengu falsminningu eða misskilningi að Nelson Mandela fyrrverandi forseti Suður Afríku hafi látist í fangelsi og aldrei orðið forseti.
Til eru fjölmörg dæmi um bækur, bíómyndir, teiknimyndir og jafnvel heimsþekkt vörumerki sem fólk er sannfært um að haf eitt sinn verið á einn veg en séu nú á annan veg. Næstum því eins, en samt ekki. Líkt og heimur okkar sé farinn að skarast eða renna saman við annan heim eða aðra vídd sem sé svo ótrúlega lík okkar veröld að erfitt sé að átta sig á muninum.
En hvernig gæti þetta hafa gerst? Hvenær byrjuðu heimarnir að renna saman og fólk að upplifa þessar fölsku minningar og hvað veldur þessu? Er um einn alsherjar misskilning að ræða eða er einhver að rugla í okkur til að skapa sundrungu og óeiningu innan samfélagsins?
Hvað græðir nokkur maður á því að rugla í minningum fólks og valda misskilningi okkar á milli? Er þetta bara gert til þess að fá fólk til að þræta um ómerkilega hluti frekar en einbeita sér að því sem raunverulegu máli skiptir?Þetta og um það bil allt það sem þú vildir vita um Mandela áhrifin og meira til í þessum nýjasta þætti Álhattarins, þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða um tilvist hinna skemmtilegu og áhugaverðu Mandela áhrifa og hvað geti mögulega búið að baki þeim.
Hlekkir á ítarefni:
- The Mandela Effect Phenomenon
- Mandela Melodies Starter Pack | Countdown List of Mandela Effect'd Music
- Gotthard Base Tunnel opening ceremony
- The Contestant (2023 film)
- The Empire Strikes Back "No, I am your father"
- Zurich's Burning Snowman Festival | Sechseläuten
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Dauði Adolf Hitler var sviðsettur, hann lifði af og flúði til Argentínu
Adolf Hitler er líklega eitt þekktasta illmenni og fauti mannkynssögunnar. Framganga hans og nasista sveita hans í seinni heimsstyrjöldinni var ekki beint til fyrirmyndar og hvorki þeim né neinum öðrum til …
Notas do episódio
Adolf Hitler er líklega eitt þekktasta illmenni og fauti mannkynssögunnar. Framganga hans og nasista sveita hans í seinni heimsstyrjöldinni var ekki beint til fyrirmyndar og hvorki þeim né neinum öðrum til framdráttar. Milljónir saklausra borgara létu lífið að ósekju vegna galinna ranghugmynda Hitlers og fylgisveina hans, sem vildu draga fólk í dilka eftir kynþætti og útrýma þeim sem þeir álitu óæðri. Hvort sem það var vegna trúar, litarhafts, fötlunar eða einhvers annars. Áður en langt um leið höfðu þessi fúlmenni og keyrt öfgastefnu sína fram af slíku offorsi að þeim hafði tekist að murkað lífið úr miljónum manna og leggja hálfa heimsálfuna í rúst og gott betur en það.
Að lokum tókst Bandamönnum og Sovétmönnum þó blessunarlega að þjarma nóg að nasistunum svo Hitler og kumpánar gáfust upp og Hitler flúði ofan í neðanjarðarbyrgi sitt, þar sem hann ákvað að binda endi á þetta allt saman og taka bæði inn blásýru og skjóta sig. Eða hvað? Er möguleiki í að Hitler hafi ekki látist í neðanjarðarbyrgi sínu 30.Apríl 1945 og komist lífs af til Argentínu?
Lengi hafa verið til sagnfræðingar sem efast hafa um söguskýringuna og bent hafa á að það sé örlítið varasamt að fara að treysta orðum Sovétmanna, sem segjast hafa komið á vettvang eftir að líkið hafði verið brennt og flutt öskuna í burtu og grafið á leynilegum stað.
Það myndi eflaust henta þeim afar vel að stjórna söguskýringunni og koma út einsog einhverskonar sigurvegarar og frelsarar Evrópu. Svo hefur fundist fjöldinn allur af neðanjarðarbyrgjum og leynigöngum í allar áttir, sem staðfest hefur verið, að notuð voru af öðrum háttsettum nasistum, sem síðar dúkkuðu upp í Argentínu og víðar í S-Ameríku.
Þá eru það allir sjónarvottarnir hingað og þangað um heiminn sem eru sannfærð um að þau hafi séð Hitler á vappi, sprelllifandi og kampakátann. Allt frá Danmörku og Noregi til Spánar, Portúgal og jafnvel Kólumbíu, Brasilíu og einmitt Argentínu. Allskonar fólk sem er alveg 100% sannfært um að það hafi séð Hitler sprækan einhversstaðar á stangli. Meira að segja er til fólk sem fullyrðir að þau hafi aðstoðað við að koma Hitler undan huldu höfði.
Eru þetta bara glórulausar staðhæfingar einhverra vitfirringa í óráði eða er eitthvað mögulega til í þessum staðhæfingum? Hvers vegna eyddi Bandaríska alríkislögreglan(FBI) tíma og orku í að rannsaka málið ef ekki er arða af sannindum til í kenningunni? Hvernig stendur þá á því að Josef Stalin, og Dwight D Eisenhower stóðu í þeirri trú að Hitler hafi komist undan? Við erum vissulega með framburð fjölda vitna úr neðanjarðarbyrginu sem segjast öll hafa séð Hitler skjóta sig en þau voru öll nánir samstarfsmenn Hitlers og yfirlýstir nasistar, af hverju ættum við að treysta þeim? Gætu þau ekki allt eins hafa verið með í ráðum?Þetta og svo margt, margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór, ræða þá áhugaverðu samsæriskenningu að Adolf Hitler hafi ekki látist í neðanjarðarbyrgi sínu, heldur komist lífs af og flúið til Argentínu, þar sem hann lifði til gamals aldurs.
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Hollywood og Netflix eru heilaþvottavélar hulduaflanna
Kvikmyndir og sjónvarpsþættir eru gífurlega vinsælt afþreyingarefni og líklega eftirsóttasta dægurmenning samfélagsins. Iðnaðurinn veltir gífurlegum fjárhæðum og 5 stærstu kvikmyndaverin í Hollywood hafa …
Notas do episódio
Kvikmyndir og sjónvarpsþættir eru gífurlega vinsælt afþreyingarefni og líklega eftirsóttasta dægurmenning samfélagsins. Iðnaðurinn veltir gífurlegum fjárhæðum og 5 stærstu kvikmyndaverin í Hollywood hafa ótrúlega mikil tök á samfélaginu öllu og ráða að stærstum hluta hvaða efni á upp á pallborð og erindi við almenning og hvað ekki.
Almenningur drekkur í sig þessa afþreyingu og hámhorfir af áfergju á nánast allt sem að streymisveiturnar og stóru stúdíóin senda frá sér. Enda fínasta dægrardvöl og oft á tíðum jafnvel fræðandi í leiðinni.
En getur verið að þessi dægurmenning sé ekki einunigs saklaust afþreyingarefni hannað til að stytta fólki stundir og okkur til yndisauka? Hvað ef Hollywood stúdíóin og streymisveiturnar eru að lauma duldum skilaboðum og jafnvel heilaþvotti í afþreyinguna til þess að ganga erinda eiganda sinna eða hulduaflanna?
Eru moldríku jakkafatakakkalakkarnir í Hollywood með stór plön og annarleg markmið um að stýra heiminum og umræðunni í ákveðna átt, svo þeir geti grætt enn meiri pening eða komið sínu fólki að í stjórnmálum?
Eða snýst þetta kannski bara um að reyna að gera gott bíó og þjóna almenningi með því að færa fólki það sem það vill?Stýra fjölmiðlar samfélaginu eða endurspegla þeir einfaldlega samfélagið hverju sinni? Eða eru hin margumræddu hulduöfl allt í öllu í kvikmynda og skemmtanaiðnaðinum og ekki verður komist hjá því að lenda í heilaþvottavélum iðnaðarins?
Hverjir eiga í alvörunni þessar streymisveitur og kvikmyndaver og hversu mikil raunveruleg afskipti hafa þessir aðilar af efnistökum afþreyingarinnar? Ef einhver? Hittast oligarkarnir og peningapúkarnir reglulega í reykfylltum bakherbergjum og ræða hvaða woke málefni skuli sett á oddinn næst og hvaða hræðsluáróður skuli næst notaður til að stjórna fólki?
Þetta er einmitt umræðuefni nýjasta þáttarins af Álhattinum hvar þeir kumpánar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá áhugaverðu samsæriskenningu að Netflix og stóru Hollywood kvikmyndaverin séu heilaþvottavélar fyrir hulduöflin í samfélaginu.
HLEKKIR Á ÍTAREFNI:
- Brainwashed America: The Secret Of Subliminal Messaging | Absolute Documentaries
- How Hollywood Sells Us War
- Bill Clinton's Favorite Movie: CNN "High Noon" Interview With Harvey Weinstein
- Harvey Weinstein gave inaugural Advocate for Change Award to former President Bill Clinton p.1
- George Harrison talking about taking LSD with John Lennon .. "the notorious wonder drug" (1971)
- KGB defector Yuri Bezmenov's warning to America (1984)
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Valdastéttin mótar menntakerfið til að framleiða undirgefna borgara
Stundum er sagt að mennt sé máttur og góð menntun sé lykillinn að árangursríku og góðu lífi. Nám erv vinna og vinnan göfgar manninn, ekki satt? En hvaðan kemur menntakerfi okkar og á hvaða grunni eða …
Notas do episódio
Stundum er sagt að mennt sé máttur og góð menntun sé lykillinn að árangursríku og góðu lífi. Nám erv vinna og vinnan göfgar manninn, ekki satt? En hvaðan kemur menntakerfi okkar og á hvaða grunni eða hugmyndafræði er það byggt? Er markmið yfirvalda að undirbúa okkur öll sem best fyrir lífið svo við höfum sem mesta möguleika opna á vinnumarkaði og tilgangurinn að tryggja sem flestum velgengni eða gefa sem flestum tækifæri?
Eða búa aðrar og annarlegar ástæður að baki? Hvað ræður því hvaða fögum er gert hátt undir höfði og hvaða fögum ekki? Hvaða fólk er þetta sem tekur þessar ákvarðanir og í hvaða tilgangi? Skiptir kannski engu sérstöku máli hvað er á námskrá og hvað ekki? Eða er þetta alltsaman þaulskipulagt og vel undirbúið ráðabrugg illa innrætts fólks með myrkar hvatir?Dæmi eru um það í mannkynssögunni að hin ýmsu yfirvöld hafi beitt menntakerfinu markvisst til þess að gera ákveðinni hugmyndafræði hátt undir höfði eða bæla aðrar hugmyndirniður, m.a til þess að tryggja sjálfum sér enn frekari eða áframhaldandi völd eða koma í veg fyrir einhverskonar uppreisn eða mótmæli borgaranna.
Ef menntakerfið getur aukið þekkingu og færni á ákveðnum sviðum með áherslubreytingum, gætu stjórnvöld þá ekki allt eins ákveðið að halda aftur af ákveðnum fögum eða þekkingu og letja fólk til þess að sækja sér ákveðna þekkingu eða færni í stað þess að hvetja?
Mao í Kína og Nasistarnir í Þýskalandi nýttu menntakerfið grimmt til að heilaþvo þjóðir sínar og ota sínum tota til að selha fólkinu hugmyndafræði sína og dæmi eru um samfélög þar sem yfirvöld hafa keyrt í gegn gífurlegar endurbætur á menntakerfi sínu til þess að ná fram auknum lífsgæðum og velmegun td með aukinni áherslu á hátækni, vísindi eða verkfræði. Önnur samfélög hafa jafnvel lagt ofur áherslu menntun lækna og heilbrigðisstarfsfólks svo hægt sé að koma á heilbrigðiskerfi á heimsmælikvarða.
Það er staðreynd en ekki kenning eða samsæri að stjórnvöld hafa margoft í gegnum tíðina gert róttækar breytingar á menntakerfum og grunn menntastefnu landa sinna og oft með góðum árangri. Hvað er því þá til fyrirstöðu að ákveðin stjórnvöld nýti sér menntakerfið til eigin hagsmuna eða til lýðsstjórnunnar?
Eru yfirvöld raunverulega að undirbúa okkur af kostgæfni fyrir lífið eða eru þau einfaldlega að reyna að gera okkur háð þeirra kerfi og hlekkja okkur í einhverskonar hugmyndafræðilegan þrældóm svo auðveldara sér að stjórna okkur eftir hentugleika?
Þetta og svo margt, margt fleira er snýr að menntakerfi heimsins í þessum nýjasta þætti Álhattarins þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá skemmtilegu samsæriskenningu að Valdastéttin nýti menntakerfið til þess að framleiða undirgefna borgara.
HLEKKIR Á ÍTAREFNI
https://www.youtube.com/watch?v=6TLo4Z_LWu4 Þessi í heild bara 40 sek
https://www.youtube.com/watch?v=8QBylIs_lXI 00,00-00:19
https://www.youtube.com/watch?v=ICx9wOdtZJE Öll klippan
https://www.youtube.com/watch?v=YNQDp3v-VGE 2:20-4:44
https://www.youtube.com/watch?v=1lgeKD-VGtM YES!
https://www.youtube.com/watch?v=YNQDp3v-VGEUM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Sirhan Sirhan, sem skaut Robert Kennedy, var dáleiddur af CIA til að fremja morðið, Zoolander style
-> Special Guest appearance: Fulltrúar allra stjórnmálaflokka fyrir alþingskosningar 2024 (fyrir utan Vinstri Græn) gefa sína skoðun á JFK og RFK morðunum.Robert Kennedy, einnig þekktur sem Bobby Kennedy var …
Notas do episódio
-> Special Guest appearance: Fulltrúar allra stjórnmálaflokka fyrir alþingskosningar 2024 (fyrir utan Vinstri Græn) gefa sína skoðun á JFK og RFK morðunum.
Robert Kennedy, einnig þekktur sem Bobby Kennedy var einhver mesta vonarstjarna bandarískra stjórnmála á sjöunda áratug síðustu aldar. Hann var bróðir John F Kennedy, fyrrum forseta sem hafði verið myrtur, og hafði jafnframt setið í ríkisstjórn bróður síns. Árið 1968 ákveður Bobby Kennedy nokkuð óvænt að bjóða sig fram gegn sitjandi forseta Lyndon B Johnson í forvali demókrata og sigrar fyrsta forvalið í New Hampshire nokkuð örugglega og stuttu seinna sigrar hann í Kaliforníu.Allt leit út fyrir að Bobby yrði næsta forsetaefni Demókrata og miklar líkur voru taldar á að hann yrði næsti forseti Bandaríkjanna. Vinsældir hans voru svo gífurlegar, þvert á alla þjóðfélagshópa. Hann virðist hafa verið dáður af öllum. Algjörlega óháð kyni, kynþætti eða efnahag.
Það var því mikið reiðarslag fyrir bandarískt samfélag þegar hann var myrtur af Sirhan Sirhan á Ambassador hótelinu í Los Angeles eftir að hafa sigrað í forvali Demókrata í Kaliforníu sama kvöld. Sirhan Sirhan, ungur maður af Palestínskum uppruna, vatt sér þá að Bobby nokkuð auðveldlega og óhindrað og skaut hann fjórum sinnum með 22 kalibera byssu. Sirhan var snögglega yfirbugaður af nærstöddum og færður í varðhald.Upphaflega játaði Sirhan morðið og lýsti því yfir að stuðningur Bobby við Ísrael væri ástæða voðaverksins. Í dagbókum Sirhan fundust blaðsíður fullar af setningunni RFK must die og fjölmörg vitni voru að því þegar Sirhan Sirhan skaut bobby inni í eldhúsi á hótelinu svo þetta ætti að vera nokkuð borðliggjandi mál ekki satt?
Margt er loðið við atburðinn og Robert F Kennedy Jr, sonur Bobby Kennedy, efast um opinberu skýringuna og lýst því yfir að Sirhan Sirhan eigi að fá reynslulausn. Sirhan hefur ítrekað sjálfur lýst því yfir að hann muni ekkert eftir verknaðnum og hefur fólk velt því fyrir sér hvort hann hafi jafnvel verið dáleiddur eða heilaþveginn á einhvern hátt til verksins. Jafnvel af háttsettum aðilum innan bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, sem var í nöp við Bobby Kennedy.
Þetta og svo margt, margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar sem þeir félagar Guuðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá áhugaverðu kenningu að "Sirhan Sirhan, sem skaut Robert Kennedy, hafi verið dáleiddurt af CIA til verksins, Zoolander oolander style"
HLEKKIR Á ÍTAREFNI
- RFK Must die
- Bobby kennedy for president miniseries
- Who killed Robert Kennedy?
- RFK: America's Lost President
- MK ULTRA style dáleiðsla?
- RFK jr telur að annar skotmaður hafi verið að verki
- Project Artichok
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Úrslitum í handbolta er reglulega hagrætt með vitneskju og samþykki Alþjóða Sambandsins
Í Janúar á hverju ári fyllist íslenska þjóðin af miklum eldmóð og fær skyndilega brennandi áhuga á handknattleik. Fólk flykkist erlendis til þess að styðja við bakið á “strákunum okkar” og við sannfærumst öll …
Notas do episódio
Í Janúar á hverju ári fyllist íslenska þjóðin af miklum eldmóð og fær skyndilega brennandi áhuga á handknattleik. Fólk flykkist erlendis til þess að styðja við bakið á “strákunum okkar” og við sannfærumst öll um að nú sé stundin loks runninn upp og að gullið sé okkar. En svo kemur slæmi kaflinn, besti maðurinn okkar meiðist og dómararnir dæma okkur út úr mótinu.
Alltaf sama óheppnin og þjóðin bölvar og ragnar þjálfaranum og liðinu. En getur verið að þetta hafi ekkert með liðið, þjálfarann óheppni eða meiðsli að gera? Hvað ef það er verið að svindla á okkur? Getur verið að einhver eða einhverjir hafi mútað dómurunum? Eða að úrslitin séu hreinlega ákveðin fyrirfram og að íslenska liðið hafi í raun aldrei átt séns gegn því gjörspillta ofurefli sem evrópska og alþjóða handknattleikssamböndin eru?
Í þessum þætti af Álhattinum kynna þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór sér skuggahliðar íþrótta og þá sérstaklega handknattleiks velt upp þeirri spurningu hvort úrslitum á stórmótum í handbolta sé ítrekað og skipulega hagrætt með vitneskju og samþykki alþjóða sambandanna.HLEKKIR Á ÍTAREFNI
- https://www.playthegame.org/news/match-fixing-in-handball-a-reminder-of-the-need-for-a-world-anti-corruption-agency/
- https://www.mbl.is/sport/hm_handbolta/2023/01/15/domarar_a_hm_grunadir_um_thatttoku_i_vedmalasvindli/
- https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2023-01-15-domarar-a-hm-bendladir-vid-vedmalasvindl
- https://www.visir.is/g/20242517516d/em-i-dag-thetta-var-gjorsamlega-otholandi
- https://www.mbl.is/sport/handbolti/2023/12/12/domari_i_thriggja_ara_bann/
- https://www.visir.is/g/20242625291d/serbarnir-fa-aldrei-aftur-ad-daema
- https://www.france24.com/en/20121001-montpellier-handball-players-admit-betting-deny-game-fixing-france-gambling-cheating
- https://www.handball-planet.com/fines-for-brothers-karabatic-and-five-more-players-for-betting-scandal/
- https://www.france24.com/en/20121001-montpellier-handball-players-admit-betting-deny-game-fixing-france-gambling-cheating
- https://www.bbc.com/news/world-middle-east-31031852
- https://play.tv2.dk/serie/mistaenkeligt-spil-tv2
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Risa drónarnir sem svífa um Bandaríkin eru leynivopn hulduafla til að blekkja og stjórna okkur 🚀
Risastór hátæknileg og afar hljóðlát flýgildi(drónar) hafa sést á vappi um Bandaríkin og víðar að undanförnu og vakið undran margra. Hvaðan koma þessir drónadónar og hvað vilja þeir upp á dekk?Eru geimverurnar …
Notas do episódio
Risastór hátæknileg og afar hljóðlát flýgildi(drónar) hafa sést á vappi um Bandaríkin og víðar að undanförnu og vakið undran margra. Hvaðan koma þessir drónadónar og hvað vilja þeir upp á dekk?
Eru geimverurnar loksins mættar til þess að fylgjast með okkur og gera á okkur umfangsmiklar tilraunir? Eða eru Kínverjar og aðrar óvinveittar þjóðir að prakkarast og grallarast með því að njósna um Bandaríkin til þess að komast yfir hernaðarleyndarmál og hávísindalega framtíðar tækni?Drónarnir hafa flestir sést í og við bandarískar herstöðvar og orkuver sem gæti bent til þess að drónarnir séu að fylgjast sérstaklega með herstöðvum og leita uppi hernaðarleg gögn eða leynilega tækni sem bandaríkin vinna að.
En gætu þessi ógnarstóru fljúgandi fyrirbæri átt heima á herstöðvunum og verið á vegum bandarískra yfirvalda? Hvað ef flýgildin eru hönnuð til þess að fylgjast með almenningi? Þá hefur heyrst að bandarísk yfirvöld hafi tekið að sér að varðveita úkraínskan kjarnaodd en síðar týnt honum og drónadónarnir séu á sveimi í leit að þessum kjarnaoddi.Önnur skýring er að þarna séu kínverskir njósna drónar á ferð og hefur það verið rökstutt með því að drónarnir sjást oft á sveimi nálægt bóndabýlum og ræktarlandi í eigu kínverskra fyrirtækja. Einhverjir vilja meina að drónarnir komi upp úr sjónum og að á hafsbotni séu risastórar og hátæknilegar herstöðvar kínverja.
Aðrir trúa nokkurnvegin því sama nema segja herstöðvarnar og drónadónana vera á vegum Írana eða jafnvel Rússa. Hvað sem því líður og hvaðan sem þessi flýgildi og drónadónar koma þá er morgunljóst að eitthvað verulega bogið er við þetta mál. Drónadónarnir eru svo margir og svo mikið á víð og dreif um heiminn að það er eiginlega ekki hægt að útsskýra þá.
Jafnvel þó allir miðaldra karlmenn í heiminum hefðu ákveðið að fá drónaæði á sama tíma gætum við ekki útskýrt þessa dróna fjölgun. Enda eru þessir drónadónar langtum stærri en hefðbundnir drónar sem eru aðgengilegir almenningi á almennum markaði og töluvert hljóðlátari en nokkuð sem sést hefur áður. Jafnvel stærstu iðnaðar dónar sem Amazon og fleiri nota til þess að afhenda vörur eru ekki svo stórir. Hver er skýringin?
Þetta er einmitt viðfangsefni nýjasta þáttarins af Álhattinum, hvar þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta fyrir sér þeirri áhugaverðu samsæriskenningu að „Risa drónarnir sem svífa um Bandaríkin og víðar séu leynivopn hulduafla til að blekkja og stjórna okkur.“
HLEKKIR Á ÍTAREFNI- https://rumble.com/v2yiy06-how-a-ufo-shuts-down-nuclear-warheads.html
- https://www.youtube.com/watch?v=VgziDyPSUog
- https://www.youtube.com/watch?v=Ag44dRO8LEA
- https://www.youtube.com/watch?v=_iBH9LKOKy0
- https://www.youtube.com/watch?v=xglaXVtQcis
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Dauði Elvis Presley var sviðsettur
Elvis Aaron Presley er einn merkasti tónlistarmaður allra tíma og að margra mati óumdeildur konungur rokksins. Með sínum mjaðmahnykkjum og einstakri sviðsframkomu og söng náði hann að heilla heimsbyggðina og …
Notas do episódio
Elvis Aaron Presley er einn merkasti tónlistarmaður allra tíma og að margra mati óumdeildur konungur rokksins. Með sínum mjaðmahnykkjum og einstakri sviðsframkomu og söng náði hann að heilla heimsbyggðina og verða að ótrúlegri stórstjörnu sem naut hylli allra. En rétt einsog með aðrar stórstjörnur þá var stutt í sukkkið og smám saman fór að síga á ógæfu hliðina.
Elvis sökk djúpt í fen óreglu og fíknar og endaði sem offitusjúklingur og lyfjafíkill sem lést af völdum hjartaáfalls langt fyrir aldur fram. Eða svo segir sagan. En getur verið að Elvis eða einhverjri aðrir á hans vegum hafi hreinlega sviðsett dauða hans?
Var þetta ein allsherjar blekking skipulögð af Elvis og útgáfurisunum til þess að græða meiri peninga? Eða fór Elvis í vitnavernd og felur eftir að hafa borið vitni gegn svikahrappi fyrir rétti? Eða getur verið að mafían og aðrir eigendur spilavídda í Vegas hafi haft eitthvað með málið að gera?
Hvað með vini allra álhatta í FBI? Eða vildu Elvis og fjölskylda kannski fá frið frá öllu sviðsljósinu og um leið skapa mystík í kringum andlát hans til þess að geta markaðssett búgarð hans og heimili Graceland sem stórfenglegan ferðamannastað um ókomna tíð og gera plötur hans vinsælli?
Lengi hefur fólk karpað um það hvort Elvis hafi raunverulega látist 16.Ágúst 1977 eða hreinlega farið í felur. Ef Elvis væri enn á lífi væri hann orðinn níræður sem verður að teljast afar ólíklegt í ljósi óheilbrigðra lifnaðarhátta hans og rokkstjörnu lífernis.
Hann var í mikilli yfirþyngd og bruddi allskyns lyfseðilsskyld lyf af mikilli áfergju, slíkt getur hæglega dregið mann til dauða. En kannski er það bara yfirklór frá FBI, mafíósum til þess að fela sannleika? Heyrst hefur að maður að nafninu John Burroughs, sme var þekkt dulnefni Elvisar, hafi keypt flug frá Menphis til Argentínu sama dag og Elvis lést, en það hefur ekki fengið staðfest auk þess er ekkert beint flug var frá Memphis til Argentínu á þessum tíma.
Hvers vegna var nafnið hans rangt skrifað á dánarvottorðið og legsteininn? Hvað raunverulega varð um Elvis, hvort hann lést 16.ágúst 1977 eða mörgum árum síðar eða lifir jafnvel enn góðu lífi á einhverri sólarströnd, hefur löngum verið mörgum aðdáendum tónlistarmannsins og Álhöttum um veröld alla mikil ráðgáta.
En þetta er einmitt umræðuefni nýjasta þáttarins af Álhattinum þar sem þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta fyrir sér þeirri langlífu og mjög svo áhugaverðu samsæriskenningu að dauði Elvis Presley hafi verið sviðsettur og eitt stórt sjónarspil. Yfirgaf Elvis í raun bygginguna sem vér köllum Hótel Jörð eða er hann etv enn í byggingunni og á meðal vor?
HLEKKIR Á ÍTAREFNI- https://youtu.be/rtiIkgfHnWQ?si=2s_V1v-XNC2d9WGvV
- https://youtu.be/szH-VfhXejQ?si=X9NhZYh6k8r_Fcy-
- https://www.youtube.com/watch?v=EDTbURuSPp4
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.Blackrock og Vanguard stjórna heiminum í gegnum krosseignarhald
Fjárfestingasjóðirnir BlackRock & Vanguard ættu að vera flestum Álhöttum og samsærissmiðum vel kunnugir. Enda eru þessir sjóðir oftar en ekki nefndir á nafn þegar samsæri og eitthvað vafasamt ber á góma. En …
Notas do episódio
Fjárfestingasjóðirnir BlackRock & Vanguard ættu að vera flestum Álhöttum og samsærissmiðum vel kunnugir.
Enda eru þessir sjóðir oftar en ekki nefndir á nafn þegar samsæri og eitthvað vafasamt ber á góma. En hvaða sjóðir eru þetta? Hverjir eiga þá og hverra erinda gegna þeir? Samanlagt eiga þessir tveir sjóðir og litli bróðir þeirra State street uþb 22% allra hlutabréfa í veröldinni og sitja þeir saman eins og ormur á gulli á tæplega 5% heildar auðs heimsins.
Auk þess er þessir sjóðir eiga stóran hlut í uþb 89% af fyrirtækjunum sem skráð eru á SPP500 hlutabréfavísitöluna. Í öllum þessum fyrirtækjum eiga sjóðirnir stjórnarmenn sem ganga erinda þeirra og kjósa eftir þeirra höfði. Það má því með sanni segja að sjóðirnir fari með völd og ráði yfir allflestum fyrirtækjum á bandarískum hlutabréfamarkaði og jafnvel víðar. Sjóðirnir eiga til að mynda hlut í íslenskum fyrirtækjum á borð við Marel og Össur auk þess að erfitt er að finna það alþjóðlega fyrirtæki sem þeir eiga ekki hlut í.
Getur verið að þessir sjóðir hafi t.d áhrif á efnisval sjónvarpsstöðva eða streymisveita í þeirra eigu? Hvaðan kemur þessi krafa um svokallaðar sjálfbærnis og jafnréttis vottanir og eru þær smfélaginu í raun til góða eða búa annarlegar og afkáralegar hvatir að baki? Getur verið að illa innrætt fólk vilji knésetja fjölskyldueininguna og útrýma öllum þjóðlegum eða persónulegum gildum? Til þess að við missum sjónar af sjálfum okkur og því sem raun skiptir máli. Vilja stjórnvöld að við upplifum okkur útundan og ein svo auðveldara sé að selja okkur lygina og stjórna okkur? Hvað og hverjir ráða því í hvaða fyrirtækjum sé fjárfest og hvaða fyrirtækjum ekki?
Og til hvers eru eiginlega allar þessar tilgerðarlegu og tilbúnu vottanir sem þýða í raun ekkert þar sem þær ganga hvort sem er kaupum og sölum á almennum markaði? Allt tal um lífrænar vottanir, kolefnisfótspor og jafnlauna vottanir er í raun tilgangslaust hjal og merkingarlaust þvaður þegar vottanirnar eru keyptar og seldar á markaði og seldar hæstbjóðanda. Snúast þessar vottanir þá fyrst og fremst um peninga en ekki umhverfisvernd?
Þurfa fyrirtæki þá að þóknast þessum sjóðum og ákveðnum stjórnmálamönnum til þess að eiga séns á að lifa af, fremur en að fara eftir þar til gerðum umhverfis reglum? Snýst þetta bara allt um ofsagróða hinna fáu og ríku fremur en hagsmuni náttúrunnar og almennings? Og hvernig stendur eiginlega á því að sömu þrír sjóðirnir fái að eiga svo stóra hluti í svo gott sem öllum fyrirtækjum á markaði.
Hverra erinda ganga þeir og hversvegna? Snýst þetta einungis um að tryggja sjálfbærni og velferð mannkyns eða eru annarlegar og vofeiginlegar ástæður að baki. Þetta og svo margt, margt fleira skemmtilegt í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar sem félagarni Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta því fyrir sér hvort að BlackRock og Vanguard stjórni heiminum í gegnum krosseignarhald.
HLEKKIR Á ÍTAREFNI
- https://www.youtube.com/watch?v=iCa4L22Fle4
- https://www.youtube.com/watch?v=k1gG0twZIEs
- https://www.youtube.com/watch?v=Mvh4o6x3-GQ
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Aqui estão os 40 episódios mais recentes de 72. Os mais antigos estão no feed do podcast.
Podcasts parecidos
Mais podcasts de Artes







Este podcast é seu?
Confirme com uma entrada no seu feed: você recebe um código aqui, adiciona como podcast:txt no canal do seu feed e nós verificamos. Depois disso, seu podcast aparece como “verificado” no SoundNode.