Pular para o conteúdo
Allt í lagi með Birni Skúlasyni

Allt í lagi með Birni Skúlasyni

Novo8. Auður og Grétar | Hugarafl2 de setembro de 2026 · 1 h 7 min
Episódios
8
Publicação
quinzenal
Último episódio
2 set 2026

Sobre o podcast

Hlaðvarpið er hluti af árverkniátaki Hugarafls, Allt í lagi, sem hefur það að markmiði að opna umræðu um andlega heilsu og hvetja fólk til að nýta sér úrræði þegar á reynir. Björn Skúlason stýrir hlaðvarpinu. Verkefnið er unnið með stuðning frá Orkusölunni og Sýn. Hægt er að kynna sér starfssemi Hugarafls hér: https://hugarafl.is/

Episódios 8

  1. 8. Auður og Grétar | Hugarafl

    1 h 7 minTemporada 1 · Episódio 8

    Lokaþáttur Allt í lagi með Birni Skúlasyni. Björn fær þau Auði Axelsdóttur framkvæmdastjóra Hugarafls og Grétar Björnsson formann Hugarafls í settið og þau fara yfir þættina í seríunni auk þess sem þau ræða um …

    Notas do episódio

    Lokaþáttur Allt í lagi með Birni Skúlasyni. Björn fær þau Auði Axelsdóttur framkvæmdastjóra Hugarafls og Grétar Björnsson formann Hugarafls í settið og þau fara yfir þættina í seríunni auk þess sem þau ræða um samtökin, eigin reynslu og hvað þurfi að gera til að bæta geðheilbrigði á Íslandi.

  2. Elín Hall - Manneskjan hefur meiri seiglu en við höldum

    52 minTemporada 1 · Episódio 7

    Björn Skúlason sest niður með Elínu Hall í þessum sjöunda þætti. Elín talar á einlægan hátt um leiklistina, tónlistina og lífið í heild sinni. Hún ræðir meðal annars um erfitt tímabil sem spannaði marga mánuði …

    Notas do episódio

    Björn Skúlason sest niður með Elínu Hall í þessum sjöunda þætti. Elín talar á einlægan hátt um leiklistina, tónlistina og lífið í heild sinni. Hún ræðir meðal annars um erfitt tímabil sem spannaði marga mánuði þar sem þar sem taugakerfið festist í spennu í kjölfar þess að hún lék gríðarlega þungt hlutverk í kvikmyndinni Ljósbrot. Hún talar sömuleiðis um lífið með ADHD, hvernig það breyttist algjörlega við þá greiningu, ábyrgðina sem fylgdi því að leika unga Vigdísi Finnbogadóttur í samnefndum þáttum og stressið sem hún upplifði þegar þættirnir voru að koma út.

  3. Jón Jónsson - Hamingjan og gleðin er ákvörðun - og svo þarf að sinna því.

    1 h 3 minTemporada 1 · Episódio 6

    Björn Skúlason og Jón Jónsson taka spjallið þar sem gleðin er allsráðandi. Jón segir frá því hvernig lífið hefur tilhneigingu til að fara vel og hvernig hann nálgast tilveruna með jákvæðni að vopni. Hann talar …

    Notas do episódio

    Björn Skúlason og Jón Jónsson taka spjallið þar sem gleðin er allsráðandi. Jón segir frá því hvernig lífið hefur tilhneigingu til að fara vel og hvernig hann nálgast tilveruna með jákvæðni að vopni. Hann talar um stóra og smáa drauma, um fótboltann, ferilinn, fjölskylduna og hvernig hann velur að nýta sér platformið sem hann hefur til að vera jákvæð fyrirmynd.

  4. Emilíana Torrini - Ber virðingu fyrir fóli sem lifir - þrátt fyrir.

    39 minTemporada 1 · Episódio 5

    Björn Skúlason sest niður með Emiliönu Torrini í þessum fimmta þætti þáttaraðarinnar. Hún ræðir á sinn einlæga hátt m.a. um lífið sem fylgir því að verða landsfræg aðeins 16 ára og hvernig menningarmunurinn …

    Notas do episódio

    Björn Skúlason sest niður með Emiliönu Torrini í þessum fimmta þætti þáttaraðarinnar. Hún ræðir á sinn einlæga hátt m.a. um lífið sem fylgir því að verða landsfræg aðeins 16 ára og hvernig menningarmunurinn birtist henni í uppvextinum verandi hálf ítölsk. Hún ræðir sömuleiðis stöðuna í samfélaginu okkar og furðar sig á hvernig jafn ríkt samfélag og okkar geti brugðist fólkinu sem virkilega þarf á stuðningi að halda.

  5. Páll Óskar - Sjúkdómurinn með stóra S-inu.

    1 h 3 minTemporada 1 · Episódio 4

    Páll Óskar sest í stólinn hjá Birni Skúlasyni og ræðir við hann um allt milli himins og jarðar. Um gerendur og þolendur, um Dr.Love tímann og hinsegin baráttuna. Hann fer inn á stjórnsemina, höfunina, leitina í …

    Notas do episódio

    Páll Óskar sest í stólinn hjá Birni Skúlasyni og ræðir við hann um allt milli himins og jarðar. Um gerendur og þolendur, um Dr.Love tímann og hinsegin baráttuna. Hann fer inn á stjórnsemina, höfunina, leitina í hið ljóta og eilífðarverkefnið- jafnvægið.

  6. Alaska 1867 - Ef lífið væri alltaf gott væri það leiðinlegt.

    55 minTemporada 1 · Episódio 3

    Tónlistarkonan Kolfreyja Sól Bogadóttir eða Alaska1867, sest í stólinn hjá Birni Skúlasyni og ræðir um uppvöxtinn, erfiðleikana við að tilheyra og þykjustuleikina. Hún ræðir alkóhólismann, bataferlið …

    Notas do episódio

    Tónlistarkonan Kolfreyja Sól Bogadóttir eða Alaska1867, sest í stólinn hjá Birni Skúlasyni og ræðir um uppvöxtinn, erfiðleikana við að tilheyra og þykjustuleikina. Hún ræðir alkóhólismann, bataferlið, eftirsjánna og hvað þarf að gerast svo hún haldi sér á réttri braut.

  7. Una Torfa - Skömm, sorg og einmannaleiki

    38 minTemporada 1 · Episódio 2

    Una Torfadóttir tónlistarkona sest í stólinn hjá Birni Skúlasyni. Hún fer yfir víðan völl og ræðir á hispurslausan hátt um þunglyndi, sjálfsmyndina, feimnina, fullkomnunaráráttuna, listina og lífið.„Hugurinn er …

    Notas do episódio

    Una Torfadóttir tónlistarkona sest í stólinn hjá Birni Skúlasyni. Hún fer yfir víðan völl og ræðir á hispurslausan hátt um þunglyndi, sjálfsmyndina, feimnina, fullkomnunaráráttuna, listina og lífið.

    „Hugurinn er gjarn á að sannfæra okkur um að við séum alein um að líða einhvern veginn.”



    www.hugarafl.is


  8. Mugison - Taugaveiklun, oföndun og álag

    1 h 9 minTemporada 1 · Episódio 1

    Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, segir að hann hafi leitað til sálfræðings um aldamótin eftir að hafa glímt við taugaveiklun og oföndun undir álagi. Hann hafi í fyrstu haldið að hann væri að …

    Notas do episódio

    Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, segir að hann hafi leitað til sálfræðings um aldamótin eftir að hafa glímt við taugaveiklun og oföndun undir álagi. Hann hafi í fyrstu haldið að hann væri að verða geðveikur. Þetta kemur fram í fyrsta þætti af nýju hlaðvarpi í umsjón Björn Skúlasonar, forsetamaka.

Este podcast é seu?

Confirme com uma entrada no seu feed: você recebe um código aqui, adiciona como podcast:txt no canal do seu feed e nós verificamos. Depois disso, seu podcast aparece como “verificado” no SoundNode.

Configurações

Exibição

Idioma

Define quais estações você vê primeiro na página inicial.

Histórico

As rádios e episódios ouvidos recentemente e suas últimas buscas ficam só neste navegador.

Avisos

Um aviso rápido quando um podcast que você segue tem um episódio novo. Desative podcasts individuais pelo sino na página deles.

Conta

Salve favoritos – no app e no site.

Atalhos de teclado

/
Abrir busca
Espaço
Reproduzir ou pausar
← →
No player: voltar 15 s, avançar 30 s (episódios) · na fileira: próximo bloco
↑ ↓
Na fileira: alvo dentro do bloco
Home / End
Na fileira: primeiro ou último bloco
Esc
Fechar janela ou menu
?
Esta visão geral
Tocando agora

Ir para a estação

A seguir

    Adicione episódios com “A seguir” – eles tocam depois do episódio atual.