Pular para o conteúdo

Viðtal við Ocean Vuong, Haustsöngvar og Síðasta sumar Klingsors

24 de outubro de 2026 · 55 min

Notas do episódio

Bandarísk-víetnamska ljóðskáldið og rithöfundinn Ocean Vuong var sérstakur gestur á viðburði Reykjavík Poetics í Mengi fyrr í mánuðinum. Þar lásu nokkur skáld, meðal annars nýjasti Nóbelshafinn Anne Carson. Síðasta áratuginn hefur Ocean Vuong skipað sér í fremstu röð í bandarískum samtímabókmenntum, bæði sem ljóðskáld og skáldsagnahöfundur. Hann hefur myndað sterk tengsl við Ísland og dvalið hér við skrif sín og átt í góðu listrænu vinasambandi við Björk. Ocean Vuong verður gestur þáttarins. Sölvi Björn Sigurðsson segir frá ljóðaúrvalinu Haustsöngvar með þýðingum sínum á skáldskap franska skáldsins og symbólistans Pauls Verlaine. Verlaine var eitt af höfuðskáldum sinnar tíðar í Frakklandi. Örfá kvæði eftir Verlaine hafa verið þýdd áður en Sölvi fyllir vel upp í myndina af þessu merkilega skáldi í nýja safninu sem var að koma út hjá Dimmu og hann segir betur frá. Síðustu dagar Klingsors, nóvella Nóbelsskáldsins Hermanns Hesse frá 1919, var að koma út í íslenskri þýðingu Jóns Bjarna Atlasonar. Sagan er að mörgu leyti viðbragð við breyttri heimsmynd eftir fyrri heimsstyrjöld, expressjónískt verk um tilgang lífsins og listarinnar og er skýrt dæmi um prósasnilld og sköpunargleði Hesse. Viðmælendur: Ocean Vuong, Sölvi Björn Sigurðsson og Jón Bjarni Atlason.

Todos os episódios de Bara bækur

Configurações

Exibição

Idioma

Define quais estações você vê primeiro na página inicial.

Histórico

As rádios e episódios ouvidos recentemente e suas últimas buscas ficam só neste navegador.

Avisos

Um aviso rápido quando um podcast que você segue tem um episódio novo. Desative podcasts individuais pelo sino na página deles.

Conta

Salve favoritos – no app e no site.

Atalhos de teclado

/
Abrir busca
Espaço
Reproduzir ou pausar
← →
No player: voltar 15 s, avançar 30 s (episódios) · na fileira: próximo bloco
↑ ↓
Na fileira: alvo dentro do bloco
Home / End
Na fileira: primeiro ou último bloco
Esc
Fechar janela ou menu
?
Esta visão geral
Tocando agora

Ir para a estação

A seguir

    Adicione episódios com “A seguir” – eles tocam depois do episódio atual.