Pular para o conteúdo

Hverfa og Þrjátíu og sjö skáld í mynd

17 de outubro de 2026 · 52 min

Notas do episódio

Hverfa heitir nýjasta ljóðabók Melkorku Ólafsdóttur sem hefur jöfnum höndum gefið út verk í eigin nafni og með skáldahópnum Svikaskáldum. Síðasta ljóðabók Flagsól var heldur ekki aðeins merkt Melkorku því hún var unnin í samstarfi við myndhöfundinn Hlíf Unu Bárudóttur. En nú stendur Melkorka ljóðskáldið ein frammi fyrir öllu. Viðfangsefni bókarinnar eru djúp og breið, allt frá minnstu einingum og lífverum yfir í plánetur sólkerfisins. Hverfa er um kerfin allt í kringum okkur, hún eru hið lífræna efni, eðlisfræðilögmál og fegurðina í hinu óræða; undrin í því sem við sjáum og heyrum alla daga en „dvelur í þögninni milli vélrænna hendinga samtímans,“ eins og segir í kápulýsingu bókarinnar. Óskar Árni Óskarsson var að senda frá sér úrval myndljóða en á ferlinum hefur myndljóðið átt stóran sess hjá skáldinu. Bókin heitir Þrjátíu og sjö skáld í mynd og kom út hjá Dimmu nýlega. Þar eru skáld, innlend og erlend í fókus. Óskar steig fram sem fullskapað myndljóðskáld árið 1997 í sérriti Bjarts og frú Emelíu: tímariti um bókmenntir og leiklist sem kallaðist Án orða. Þar mátti sjá afrakstur af frumlegri notkunar Óskars á ritvélinni þar sem kommur verða rigning, bíl verður til með þremur bókstöfum, lítið j verður hafmeyja og lítið i er sjálfur maðurinn. Viðmælendur: Melkorka Ólafsdóttir og Óskar Árni Óskarsson. Tónlist: Bragur - Tu Ha? Tu Bjö! / Frailed - Flea

Todos os episódios de Bara bækur

Configurações

Exibição

Idioma

Define quais estações você vê primeiro na página inicial.

Histórico

As rádios e episódios ouvidos recentemente e suas últimas buscas ficam só neste navegador.

Avisos

Um aviso rápido quando um podcast que você segue tem um episódio novo. Desative podcasts individuais pelo sino na página deles.

Conta

Salve favoritos – no app e no site.

Atalhos de teclado

/
Abrir busca
Espaço
Reproduzir ou pausar
← →
No player: voltar 15 s, avançar 30 s (episódios) · na fileira: próximo bloco
↑ ↓
Na fileira: alvo dentro do bloco
Home / End
Na fileira: primeiro ou último bloco
Esc
Fechar janela ou menu
?
Esta visão geral
Tocando agora

Ir para a estação

A seguir

    Adicione episódios com “A seguir” – eles tocam depois do episódio atual.