Pular para o conteúdo
Bíófíklar
PodcastFilme e TVIS

Bíófíklar

NovoWicker (2026)14 de novembro de 2026 · 1 h 22 min
Episódios
168
Publicação
várias vezes por semana
Último episódio
14 nov 2026

Sobre o podcast

Hlaðvarp um bíódellu. Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson, Atli Freyr Bjarnason og Tómas Valgeirsson.

Episódios 168

  1. Wicker (2026)

    1 h 22 min

    Sumir finna ástina, aðrir smíða hana. Þannig hefst premísan að einhverri undarlegustu rómantísku gamanmynd þessa árs, ef svo mætti kalla hana. Wicker gerist í útjaðri þorps við sjóinn og þar býr fiskikona …

    Notas do episódio

    Sumir finna ástina, aðrir smíða hana. Þannig hefst premísan að einhverri undarlegustu rómantísku gamanmynd þessa árs, ef svo mætti kalla hana.

    Wicker gerist í útjaðri þorps við sjóinn og þar býr fiskikona (leikin af eilífðardrottningunni Oliviu Coleman); hún er illa lyktandi, einhleyp og sífellt höfð að athlægi. Dag einn, þegar hún er komin með nóg af þröngsýnum og teprulegum nágrönnum sínum, pantar hún sér eiginmann úr pílviði (leikinn af sænska súkkulaðinu Alexander Skarsgård). Í þessum annars íhaldssama bæ vekur þetta óhefðbundna ástarsamband hneykslan, afbrýðisemi og glundroða.

    Bíófíklar halda áfram góðri samverustund sinni með hjúunum Ragnari og Hildi úr hlaðvarpinu Video rekkinn. Eflaust vaknar þá óhjákvæmilega sú spurning, af markaðsefni myndarinnar og umtali að dæma, hvort um sé að ræða gröðustu kvikmynd ársins - eða hvort það bjóði upp á stærri debat.

    Hvernig er annars þessi stórfurðulega og lúmskt krúttlega (en að sama skapi óhugnanlega...) períódumynd? Er eitthvað til í því að Alexander Skarsgärd sé ekkert nema fallegur búkur og snoppufríður sjarmi eða á hann séns í betri mennina úr fjölskylduhópnum?

    Og er Wicker bíómynd sem er meira stíluð að konum heldur en karlmönnum?

    Svörin liggja í kostulegri og lævísri umræðunni sem fer yfir víðan völl, auk þess að myndist fjörugar umræður um einn vægast sagt óvenjulegan bíóböll. Brjótum nú rúmin, kjósum forvitnina og dúndrum þessu í gang.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - "Konumynd með konuhúmor"

    05:28 - Alexander og fíaskóið á RIFF!

    15:12 - Grimms-ævintýrabúningur...

    21:46 - 'Sjö punkta' kenningin

    37:45 - Klúru málin

    48:38 - Nú skal spilla...

    54:40 - "Að slumma slátrarann..."

    01:00:48 - Yfir í... Tom Cruise (?!)

    01:13:02 - Flóran stóra

  2. Wild Horse Nine (2026)

    54 min

    Leikstjórinn og handritshöfundurinn Martin McDonagh er mörgum kvikmyndaunnendum og ekki síst bíófíklum vel kunnugur, enda hefur filmógrafía mannsins kætt ýmsan með sótsvörtum húmor, prakkaralegu ofbeldi …

    Notas do episódio

    Leikstjórinn og handritshöfundurinn Martin McDonagh er mörgum kvikmyndaunnendum og ekki síst bíófíklum vel kunnugur, enda hefur filmógrafía mannsins kætt ýmsan með sótsvörtum húmor, prakkaralegu ofbeldi, lúmskri persónusköpun og hnífbeittum samtölum. McDonagh hefur að minnsta kosti gert garðinn frægan með titlum á borð við In Bruges, Three Billboards Outside Ebbing, Missouri og The Banshees of Inisherin. Nú er komið að nýjustu viðbótinni í safnið hans; Wild Horse Nine.

    Bíófíklar hóuðu í góðvini sína úr hlaðvarpinu Video rekkinn, skötuhjúin Ragnar og Hildi, til að deila dýnamíkinni við borðið í sannkölluðum McDonagh-stíl. Stefnir allt í einróma álit hvað þessa kvikmynd varðar eða er meiri núans og krítík í boði? Eða einfaldlega bara tómt en frussuskemmtilegt sprell þar sem fagnað er því með prýðum hvað félagarnir Sam Rockwell og John Malkovich eru mikið í essinu sínu. Eins og nú yfirleitt...

    Þegar þessi þáttur er tekinn upp er íslenski nóvemberkuldinn farinn að segja vel til sín, þannig að hlustandi er hvattur til að ylja sér með kompaníi Video-fíkla (e. Bíórekkans?)...


    Efnisyfirlit:

    00:00 - InfinityVision

    17:08 - Að hrista lykla...

    20:13 - Wild Horse Nine

    29:03 - Páskaeyjan

    36:15 - Pælingar með nöfn...

    45:48 - Samantekt


  3. Topp 10: Erlingur Óttar

    1 h 13 min

    Erlingur Óttar Thoroddsen er gífurlegur unnandi hryllingsmynda og hefur verið frá ungum aldri. Þessi ástríða fór heldur betur að skila sér þegar Erlingur gerðist leikstjóri og handritshöfundur, sem hefur …

    Notas do episódio

    Erlingur Óttar Thoroddsen er gífurlegur unnandi hryllingsmynda og hefur verið frá ungum aldri. Þessi ástríða fór heldur betur að skila sér þegar Erlingur gerðist leikstjóri og handritshöfundur, sem hefur sérhæft sig sérstaklega í fjölbreytileika hrollvekja. Hann hefur t.a.m. gert kvikmyndirnar Kuldi, Rökkur, The Piper og Child Eater, en á dögunum fagnaði sú síðastnefnda 10 ára frumsýningarafmæli sínu.

    Erlingur er sestur með Atla Sigurjónssyni og Tomma til að skoða þær 10 horror myndir sem höfðu ákaflega mótandi áhrif á líf gestsins og feril. Að sjálfsögðu fylgja með fáeinar skemmtilegar sögur af setti, sem flokkast annaðhvort undir 'ævintýri' eða 'martröð' á tökustað, veltandi á því hvern þú spyrð.

    Nú skal renna yfir skemmtilega sarpinn, kanna hvað lætur hárin rísa og finna fyrir smá gæsahúð!


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Bíóminningar Erlings

    11:38 - Child Eater

    22:40 - Poltergeist & TCCM

    31:37 - The Shining

    37:15 - Dress to Kill

    39:50 - Don't Look Now

    45:37 - Scream

    49:17 - The Innocents

    54:40 - Alien

    01:01:20 - The Thing

    01:05:31 - A Nightmare on Elm Street


  4. Bound (1996)

    1 h 1 min

    “Hvað ertu að gera?” -“Er það ekki augljóst? Ég er að reyna að draga þig á tálar.”Bound er lesbískur glæpatryllir úr smiðju Wachowski systranna víðfrægu. Þar verður sjóðheit ástarsaga tveggja kvenna að …

    Notas do episódio

    “Hvað ertu að gera?”

    -“Er það ekki augljóst? Ég er að reyna að draga þig á tálar.”

    Bound er lesbískur glæpatryllir úr smiðju Wachowski systranna víðfrægu. Þar verður sjóðheit ástarsaga tveggja kvenna að æsispennandi bardaga upp á líf eða dauða þegar þær reyna að stela peningum af mafíósakærasta annarrar þeirra.

    Þetta var fyrsta mynd þeirra systra og athyglisvert er að sjá stílbrögð í fæðingu sem við þekkjum úr þeirra þekktari verkum, til að mynd Matrix-seríunni. Hún var einstök á sínum tíma af því að hinsegin myndir voru sjaldgæf sjón og hinsegin glæpamynd óhugsandi. En Wachowski systurnar börðust fyrir þeirra sýn og þeim erum við ævinlega þakklát.

    Íris fær Svanhvíti Ödu Sif Björnsdóttur til sín í stúdíóið og þær ræða um þessa mynd frá mörgum vinklum: Hvaða stílbrögð eru það sem einkenna þessa mynd, hvaða máli skiptir að segja lesbískar sögur, hvað einkennir feril Wachowski systranna, er réttlætanlegt að gaslýsa gæja ef hann er í mafíunni og hvor er heitar, Corky eða Violet?

    Best er að njóta þáttarins uppi í sófa eða inni í bíl með góðri “vinkonu”.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Bound á sviði!

    06:18 - Þema og litaskema

    11:21 - Veldi Sesars

    19:19 - Warhammer pælingar

    27:47 - Tilly og Gershon

    34:17 - Matrix-teik Lönu

    48:38 - Ógn mafíunnar

    57:28 - Samantekt

  5. Event Horizon (1997)

    1 h 6 min

    Event Horizon (1997)Þegar Event Horizon leit fyrst dagsins ljós voru viðtökur volgar ef ekki dræmar, þá sérstaklega á meðal gagnrýnenda. Aðsóknin var heldur ekki upp á marga fiska en í gegnum árin hafa …

    Notas do episódio

    Event Horizon (1997)Þegar Event Horizon leit fyrst dagsins ljós voru viðtökur volgar ef ekki dræmar, þá sérstaklega á meðal gagnrýnenda. Aðsóknin var heldur ekki upp á marga fiska en í gegnum árin hafa vinsældir þessarar sci-fi hryllingsmyndar stórlega aukist. Margir vilja jafnvel meina að hún sé besta/skásta myndin frá Paul W.S. Anderson. Þetta veltur reyndar á því hvað viðkomandi finnst um Mortal Kombat myndina hans frá 1995.

    Allavega, á meðal dyggra aðdáenda Event Horizon eru (fasta)gestirnir Einar Michaelsson og Hafsteinn Laxdal. Þeir eru saman sestir niður með Atla (og síðar meir Tomma) til að dásama þessa fullkomlega ófullkomnu og pönkuðu ræmu þar sem meistarar eins og Sam Neill heitinn og Laurence Fishburne leika listir sínar af bestu lyst.

    Myndin hefur líka merkilega sögu að baki í tengslum við skammarlegan mæli af glötuðu myndefni. Sökum þess að filmunegatífurnar glötuðust mun Anderson aldrei geta gefið út upprunalegu sýn sinni á Event Horizon. En meira um það í spjallinu, þannig að...

    Upp með blöðin, brjótið þau saman og hlerið súmmeringu bíófíklana. Athugið að skoðanir verða verulega skiptar!


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Hverjir og hvers vegna?

    03:52 - Költ-risið

    06:06 - "Mjög mikið Alien"

    13:13 - Ónýtt efni

    20:13 - Lúkk og djammlag

    26:48 - "Fullkomna millibilið"

    36:36 - Tími og tölvuleikjamyndir

    47:28 - (Tommi sestur) 'Heitt teik'?

    57:37 - Anderson sarpurinn

  6. The Batman (2022)

    1 h 19 min

    “Gleðilega fokking Hrekkjavöku,” mælir einn önugi lögreglustjórinn við Myrka riddarann okkar.Á þessum tímapunkti mætti léttilega halda að meira eða minna allt hafi verið sagt og gert hvað Leðurblökumanninn á …

    Notas do episódio

    “Gleðilega fokking Hrekkjavöku,” mælir einn önugi lögreglustjórinn við Myrka riddarann okkar.
    Á þessum tímapunkti mætti léttilega halda að meira eða minna allt hafi verið sagt og gert hvað Leðurblökumanninn á hvíta tjaldinu varðar. Að vísu er um að ræða eina vinsælustu hetjuna í sögu dægurmenningar í allri sinni mynd, sem hefur verið sundurtekin, sett saman og tækluð á allan mögulegan máta í myndasögum, sjónvarpsþáttum og tölvuleikjum.

    Hafsjórinn er gífurlegur en nýir vinklar eru alltaf velkomnir. Gömlu túlkanirnar hverfa ekki og það telst til hins besta máls ef eitthvað getur verið í boði fyrir alla, hvort sem áhorfandinn vill sinn LEGO-Batman, ýktari Batman, kjánalegri Batman, stílískari Batman, reiðari Batman í túlkun Zacks Snyder eða raunsærri Batman-sögu í anda Heat, svo dæmi séu nefnd.

    Hér er allavega kvikmynd sem hefur vel unnið fyrir því að vera með greini í titlinum. The Batman er satt að segja fyrsta kvikmyndin um þessa fígúru sem hefur eitthvað fyrir stafni og almennilegt að segja um sjálfan Batman! Ekki bara Bruce Wayne; markmiðið, óttann, sorgina, græjurnar eða illmennin, heldur hvað kryddar mótiveringuna, geðshræringuna, hvað lætur kuldalega einstaklinginn tifa og hvernig Batman sem fígúra er í sjálfu sér flótti hjá tilfinningalega lokuðum Bruce Wayne til að hefna sín á krimmahyski borgarinnar, og þá miskunnarlaust með óttastjórnun sem útrás fyrir áfallið að hafa misst foreldra sína.

    Það er ekkert hetjulegt við Batman á hans upphafsstað í þessari sögu, þrátt fyrir að hafa gegnt markmiði sínu í tvö ár. Innkoma hans í augum andstæðingana og vegfarenda er líkari hryllingsfígúru en hetju með siðgæðisreglurnar eða prinsippin á hreinu.

    Ýmist er til þess að skoða við þessa hundlöngu en stórlega athyglisverðu endurræsingu. Bíófíklarnir Kjartan, Atli og Tommi fengu DC-prófessorinn Magnús Frey Magnússon aftur i stúdíóið til að rannsaka og rökræða betur allt sem Matt Reeves, Robert Pattinson og stærra teymið hafa fram að færa með þessum 'Se7en/Zodiac' vinkli á Batman-sögu.

    Smellum á okkur grímurnar, upp með hafnarboltakylfurnar og blöstum hljóðkerfinu í Batman-bílnum; þetta verður djöfulsins fjör!


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Slasher-Batman!

    17:29 - Pattinson og Bruce

    27:21 - Ráðgátan og spillarnir

    36:24 - Hasar og ofbeldi

    48:44 - "Útskriftarverk"

    56:21 - Hvað veit Riddler?

    01:08:41 - Hvað framundan er...


  7. Clayface (2026)

    1 h 3 min

    Þessar svokölluðu skúrka- eða óþokkamyndir tilheyra eigin undirflokki ofurhetjumynda á þessu stigi. Nýi DC heimurinn tekur hérna stórt skref í áttina að fjölbreyttari nýjungum með bíómynd sem engan afslátt …

    Notas do episódio

    Þessar svokölluðu skúrka- eða óþokkamyndir tilheyra eigin undirflokki ofurhetjumynda á þessu stigi. Nýi DC heimurinn tekur hérna stórt skref í áttina að fjölbreyttari nýjungum með bíómynd sem engan afslátt veitir í sinni ‘body horror’ nálgun. Eða svo deila Bíófíklar um þó allir séu samþykkir því hversu brakandi fersk og kærkomin Clayface er í flóru hasarblaðamynda.

    Í gestasætinu er DC séníið Magnús Freyr Magnússon, mættur með ótæmandi þekkingu á rótum fígúrunnar Clayface ásamt breiðari sagnarheim, stílum og sögu Leðurblökumannsins. Drengirnir komast heldur ekki hjá því að ræða brenndu brýr svonefnda DCEU heimsins undir taumi Zacks Snyders, samanburði við aðrar illmennamyndir (t.a.m. Joker) og að sjálfsögðu hryllingssnilldirnar The Fly og The Substance, sem Clayface hefur sótt töluverðan innblástur í. Að ógleymdri Darkman, vitaskuld.

    Best að hlera spjallið og sjá hvað hnoðast úr þessu öllu.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - DCEU'ið

    14:07 - DCU'ið...

    19:53 - Clayface

    28:48 - Pre-spoiler samantekt

    43:37 - Yfir í spoilera...

    49:12 - Helvítis klúbbasenan!

    55:28 - Hinn heimtufreki Hagen

  8. Street Fighter (2026)

    1 h 3 min

    Hér er hún; Þriðja tilraunin að því að koma leikinni kvikmyndaseríu af stað eftir þekktu slagsmálaleikjunum frá Capcom. Nú er sett allt í botn hvað ‘90s fílinginn varðar og í rauninni alla þvæluna eins og hún …

    Notas do episódio

    Hér er hún; Þriðja tilraunin að því að koma leikinni kvikmyndaseríu af stað eftir þekktu slagsmálaleikjunum frá Capcom. Nú er sett allt í botn hvað ‘90s fílinginn varðar og í rauninni alla þvæluna eins og hún leggur sig. Hefur kannski loksins náðst að gera vel heppnaða Street Fighter mynd?

    Grínistinn, fastagesturinn og poppkúltúrs-sérfræðingurinn Bjarni Gautur er mættur aftur til Bíófíkla þar sem saman velta þeir fyrir sér ástand tölvuleikjamynda, skoða alls konar samanburði og klóra sér jafnframt í kollinum yfir því hvers vegna Hollywood þorir sjaldan að fara alla leið með ‘vitleysuna’ þegar kemur að sumu source material’i.

    Upp með hárið og hafðu eyrun opin. Þetta verður litríkur slagur…!


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Meiri kjánaleika, takk!

    08:47 - Nýja Street Fighter

    16:35 - Lögin, litirnir og vitleysan

    27:05 - Samskonar leikjamyndir

    34:11 - Nálgun leikstjórans

    42:59 - Sækókraftar og Bison-dúkkur

    50:19 - "Góður kapítalismi!"

    56:21 - Samantekt

  9. Súrt og svarað: Besta hótelið í hryllingsmynd

    58 min

    Hver er besta Halloween myndin sem gengur undir titlinum 'Halloween'? Hvaða tónskáld í samtímasögu kvikmynda hafa staðið upp úr og með hvaða leikstjórum? Hvaða fígúra myndi hræða þig mest í svefnherberginu …

    Notas do episódio

    Hver er besta Halloween myndin sem gengur undir titlinum 'Halloween'? Hvaða tónskáld í samtímasögu kvikmynda hafa staðið upp úr og með hvaða leikstjórum? Hvaða fígúra myndi hræða þig mest í svefnherberginu þínu? Hvaða trúður ætti helst ekki að vera í barnaafmæli? Hvað er það sem gerði Digger svona umdeilda og óvinsæla? Og af hverju Kevin?!

    Fyrir utan hentugt og spaugilegt hrekkjavökuþema þá vill svo skemmtilega til að hlustendur og notendur spjallvettvangs Bíófíkla á Facebook sömdu allflestar spurningarnar að sinni. Sumar þeirra mátulega pönnusteiktar og gallsúrar, og þá er það undir mönnunum við míkrafónana komið að svara þeim.

    Í svokallaða heita- og gestasætinu er kvikmyndakeisarinn og reynsluþjarkurinn Þórarinn Þórarinsson, betur þekktur sem Tóti úr hlaðvarpinu Tveir á toppnum. Tóti svarar þarna með prýðum í stúdíó Podcaststöðvarinnar með Atla Frey og Tomma þó vissulega gangi liðurinn út á það að aldrei eru nein rétt eða röng svör; Bara skemmtileg og leiðinleg svör!

    Þú vilt heyra þetta sprell.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Tóm krús og Digger

    06:33 - Hvort er betra kombó?

    09:59 - Þrjár samnefndar...

    14:21 - Kruger eða Klippikrumla

    17:41 - Framúrskarandi og tímalaus

    20:15 - Af hverju Kevin?

    24:45 - Hótelpælingar

    27:17 - Trúðaleg umræða

    29:45 - Gervigreindarmörk

    35:55 - Bregðusenuhopp

    49:20 - Yfirnáttúruleg reynsla

  10. Trick 'r Treat (2007)

    1 h 10 min

    Er kveikt á graskerinu þínu? Ertu ekki alveg örugglega með nammi til þess að gefa öllum krökkunum? Það er eins gott. Annars gætirðu lent í hrekkjavökuandanum Sam.Trick ‘r Treat er safnverkamynd (e. Anthology …

    Notas do episódio

    Er kveikt á graskerinu þínu? Ertu ekki alveg örugglega með nammi til þess að gefa öllum krökkunum? Það er eins gott. Annars gætirðu lent í hrekkjavökuandanum Sam.

    Trick ‘r Treat er safnverkamynd (e. Anthology film) þar sem við fylgjumst með fjórum (eða fimm, ef þú ert Íris) hryllingssögum sem gerast á sömu hrekkjavökunni. Þar fá þau sem brjóta reglur hrekkjavökunnar ill örlög af höndum hrekkjavökuandans eða einhvers þaðan af verra í sönnum teiknimyndasögustíl.

    Íris fær til sín í stúdíóið hryllingsmyndaáhugamanninn og söngfuglinn Jökul Erni Jónsson sem er mikill hrekkjavökumaður. Þau ræða um hrekkjavökuhefðir, hrekkjavökumyndir og kryfja síðan sögurnar sem Trick ‘r Treat fjalla um. Þau ræða um reglur myndarinnar, hvaða saga þeim fannst best, vísanir í aðrar hryllingsmyndir -og þætti og margt fleira.

    Kveikið á kerti, dragið fyrir og njótið. En ekki gleyma að fylgja reglunum.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Hryllingshefðir

    14:53 - Trick 'r Treat/Skólastjórinn

    21:08 - Vinkonurnar fjórar

    39:14 - Draugasöguvæbið

    53:00 - Sælgætisskrímslið



  11. The Guest (2014)

    53 min

    Hver elskar ekki Dan Stevens? Svona í alvörunni… Þennan fáránlega myndarlega og hæfileikaríka mann sem gladdi fyrst ófáu hjörtun með hlutverki sínu í Downton Abbey áður en hann fór að spreyta sig í margs konar …

    Notas do episódio

    Hver elskar ekki Dan Stevens? Svona í alvörunni… Þennan fáránlega myndarlega og hæfileikaríka mann sem gladdi fyrst ófáu hjörtun með hlutverki sínu í Downton Abbey áður en hann fór að spreyta sig í margs konar litríkum rullum. Misgáfulegum kannski, en allavega fjölbreyttum.

    Kómíski hryllingsþrillerinn The Guest markaði gífurleg kaflaskil hjá Stevens þar sem hann þótti ekki lengur vera bara “gæinn úr Downton Abbey,” heldur allur fjandinn. Að sama skapi fór Maika Monroe að rísa hærra upp stjörnuhimininn með þessari næstum-því-óflokkanlegu mynd. Engu að síður er þetta bráðskemmtileg költ-mynd sem tvímælalaust er þess virði að ræða og stúdera aðeins, og þá sérstaklega svona í mánuði Hrekkjavöku.

    Í þessum merkilega ‘gestalausa’ þætti fara Bíófíklar yfir lítt séðu legasíu þessarar hressilegu myndar. Þá koma þeir einnig inn á feril Adams Wingard og þennan umræðuverða ‘þemaþríleik’ sem samanstendur af You’re Next (2011), The Guest og Onslaught (2026).

    Sperrum öll upp eyrun og víkkum út augun fyrir bræðandi og stórhættulegu töfrum fyrrum "Downton Abbey-gæjans" eða hvað hann heitir...


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Kvikmyndaárið 2014

    10:12 - Aðeins um Adam Wingard

    20:39 - Dan fokkin' Stevens!

    30:01 - KPG

    38:52 - Þegar stórt er spurt...

    43:20 - Þegar allt fer til fjandans

    47:56 - Aftur að Wingard

    51:11 - Tillaga...


  12. Street Fighter (1994)

    59 min

    Hvernig getur eitthvað verið svona ofboðslega vont en samt svo skemmtilegt á sama tíma? Hér erum við með JVCD á kókaíni, leiksigur frá Raul Julia í hinstu rullu kappans, heljarinnar haugur af aukapersónum …

    Notas do episódio

    Hvernig getur eitthvað verið svona ofboðslega vont en samt svo skemmtilegt á sama tíma? Hér erum við með JVCD á kókaíni, leiksigur frá Raul Julia í hinstu rullu kappans, heljarinnar haugur af aukapersónum, vitleysu, áróðri, búningum, nefnið það. Þetta er 'næntís' myndin Street Fighter.

    Bíófíklar taka glettilega á móti Bjarna Gauti og Arnóri úr Tölvuleikjaspjallinu. Í sameiningu skulu þeir krafsa í þessari gölnu stúdíómynd sem gerði svo ótrúlega margt rétt og ótrúlega margt kolvitlaust á sama tíma. Þá skal einnig ræða anime viðaukann 'Street Fighter II: The Animated Movie...' (... Arnóri til mikillar gremju)

    Beint í búningana með alla, upp með pósurnar og smellum Martin Luther King á fóninn. Þetta verður gufuruglað!


    Efnisyfirlit:

    00:00 - "70 karakterar í bíómynd"

    08:50 - Kóngurinn 'Húlía'!

    24:00 - Steven De Souza

    33:19 - 'Bisonics'

    38:43 - 'Vei, stríð!'

    42:42 - Street Fighter II: The Anime...

    51:51 - "We Can All Go Home"...

  13. Hedwig and the Angry Inch (2001)

    54 min

    “Ég er nýi Berlínarmúrinn, beibí! Rífðu mig niður!”Hedwig and the Angry Inch er költsöngleikur úr smiðju John Cameron Mitchell og Stephen Trask. Þar er sjálfsmynd, kyngervi og hinseginleiki könnuð í gegnum …

    Notas do episódio

    “Ég er nýi Berlínarmúrinn, beibí! Rífðu mig niður!”

    Hedwig and the Angry Inch er költsöngleikur úr smiðju John Cameron Mitchell og Stephen Trask. Þar er sjálfsmynd, kyngervi og hinseginleiki könnuð í gegnum ærslafull og angurvær rokklög sem oft fylgja teiknaðar senur.

    Myndin er byggð á Off-Broadway söngleik og var gerð af sömu mönnum og skrifuðu söngleikinn. John Cameron Mitchell sem leikur Hedwig leikstýrði henni meira að segja!

    Hún græddi lítið í bíó en þegar á vídjóleigurnar var komið fann hún sinn aðdáendahóp eins og gengur og gerist með költmyndir. Ásamt því hefur söngleikurinn notið meiri vinsælda í gegnum tíðina, sérstaklega eftir að Neil Patrick Harris söng hlutverk Hedwig á Broadway 2014.

    Íris fær Hauk Heiðar Steingrímsson til sín í stúdíóið enn á ný en í þetta skiptið dregur hann eiginmann sinn og rokksöngleikjaáhugamanninn Jón Baldur Bogason með sér. Þar kryfja þau atburðarrás myndarinnar ásamt lögunum. Þar kviknuðu upp margar spurningar:

    Hvaða lag var best? Hvað er kyngervi Hedwig? Er Yitzhak karl eða kona og hvernig á maður að bera fram þetta nafn? Hver er í rétti, Hedwig eða Tommy Gnosis?

    Taktu hárkolluna úr kassanum því nú ætla þau að leiða þig í gegnum þennan grimma, litla bæ.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Þættir og bíóuppeldi

    10:10 - Pönkið í Hedwig

    18:01 - Geggjuð tónlist

    31:22 - Litríkar aukapersónur

    40:10 - Um ákvörðunarrétt

    46:04 - Hvað með þennan endi?

    52:04 - Samantekt

  14. Topp 5: Alex Garland

    1 h 22 min

    Alex Garland er mikill meistari þegar kemur að stórum hugmyndum, mannvonsku, níhilisma og abstrakt hugmyndum og enn fremur vísindaskáldskap. Garland hefur skrifað bækur, kvikmyndahandrit og spreytt sig slatta í …

    Notas do episódio

    Alex Garland er mikill meistari þegar kemur að stórum hugmyndum, mannvonsku, níhilisma og abstrakt hugmyndum og enn fremur vísindaskáldskap. Garland hefur skrifað bækur, kvikmyndahandrit og spreytt sig slatta í leikstjórasætinu en þess vegna liggur hann nú undir smásjá Bíófíkla.

    Gestur er Þorsteinn Valdimarsson og slæst í för þremenningana um að bera saman gerólíka lista, mismunandi kríteríur og einna helst hvort sjónvarpsserían Devs fái að fljóta með?

    Svarið er já.

    En þá er enn haugur af safaríkari spurningum eftir og misskýrum svörum, pælingum eða umræðupunktum, sem ætti að vera í ágætum stíl við Garland sjálfan.

    Efnisyfirlit:

    00:00 - Af hverju Garland?

    12:09 - Þungbær breyskleiki…

    30:01 - Ólíkir listar

    33:45 - Warfare

    38:20 - MEN

    40:45 - Annihilation

    43:21 - 28 Years Later

    47:41 - Dredd

    51:04 - Devs

    55:34 - 28 Days Later ofl.

  15. Coyote vs. Acme (2026)

    1 h 7 min

    Fæðingin var erfið en myndin loksins skilaði sér. Eftir að stórrisarnir hjá Warner Bros. ákváðu svo eftirminnilega að hætta við útgáfu og dreifingu myndarinnar Coyote vs. Acme voru komnar vangaveltur um hvort …

    Notas do episódio

    Fæðingin var erfið en myndin loksins skilaði sér. Eftir að stórrisarnir hjá Warner Bros. ákváðu svo eftirminnilega að hætta við útgáfu og dreifingu myndarinnar Coyote vs. Acme voru komnar vangaveltur um hvort myndin ætti nokkurn tímann eftir að líta dagsins ljós (enda munum við hvernig fór fyrir aflýstu Batgirl myndinni...). Nokkrum árum síðar kom framleiðslufyrirtækið Ketchup til að bjarga öllum málum og þar af leiðandi gefa myndinni tækifæri til þess að eiga eitthvað líf eða í það minnsta skila sér til áhorfenda.

    Coyote vs. Acme tekur frumlegan vinkil á dómsmálaþriller í hálfgerðum '90s stíl og sýnir hvað tæki við ef hinn góðkunni Wylie E. Coyote myndi loksins ákveða að lögsækja stórrisana hjá Acme kompaníinu eftir síendurteknar bilanir á græjunum þeirra. Eftir taumlausar feilaðar tilraunir til að klófesta Road Runner-fuglinn er komið að hörðu baráttunni, en það lögsækir enginn stórfyrirtæki eins og Acme án afleiðinga og mögulegra ormagryfja. En ætli þá sléttúlfurinn komist þá nokkuð nær stóra draumnum að ná þessum blessaða fugli eða er stærri hugsjónarbarátta tekin yfir?

    Bíófíklar fengu brellumeistarann og trausta fastagestinn Fannar Traustason til að veita örlitla innsýn á bak við gerð þessarar myndar. Upp koma líka stærri spurningar, eins og hvort þetta gæti sennilega verið langbesta 'Looney Tunes' myndin, eða í það minnsta sú snjallasta. Fannar vekur einnig upp spurninguna um hvort myndin gæti líklega verið *of* snjöll ef ekki fullorðinsleg fyrir yngri hópana.

    Og talandi um það, ætli einhver fjórmenninganna í stúdíóinu hafi horft á hana með íslensku tali?

    Ein leið er til að komast að þessu, og það er að skella sér í sparifötin, setjast í dómsalinn, sperra upp eyrun og hlera drengina kveða upp úrskurðinn um ágæti (eða ofmat...) þessarar leiknu- og teiknuðu bræðingarmyndar. Hlaupum af stað og könnum málið.


    *Meep meep!*


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Aðkoma Fannars að myndinni

    07:48 - Langt ferðalag útgáfunnar

    19:03 - Looney Tunes minningar

    27:30 - Meira um brelluvinnu

    40:03 - Bíófíklar vs. Acme

    48:48 - Ný hlið fígúranna

    51:06 - Spillar og sprell

    01:00:56 - Í samanburði við…

  16. Clue (1985)

    55 min

    Sex gestir. Einn herragarður. Eitt stórt morðmál. Þegar gestgjafinn er myrtur breytist kvöldverðurinn í brjálaðan 'whodunit' leik þar sem enginn er saklaus og lík halda áfram að skjóta upp kollinum! Skemmst er …

    Notas do episódio

    Sex gestir. Einn herragarður. Eitt stórt morðmál. Þegar gestgjafinn er myrtur breytist kvöldverðurinn í brjálaðan 'whodunit' leik þar sem enginn er saklaus og lík halda áfram að skjóta upp kollinum! Skemmst er frá því að segja að Clue er stálhress blanda af ruglaðri spennu, háði og '80s húmor, en eins og nafnið eða lýsingin gefur til kynna er myndin byggð á borðspilinu stórfræga. Upphaflega gefið út undir nafninu 'Cluedo'.

    En vissir þú að nafnið Cluedo væri samblanda af Clue+Ludo? og að það hafi alltaf verið upprunalegt nafn spilsins en breytt fyrir amerískan markað? Og eigum við að ræða hvað frammistaðan og hlaupagangurinn hjá Tim Curry* í þessari mynd er mikil frussandi snilld?!

    Íris, Tommi og Auður Svavars eru sest við matarborðið til að finna út hvernig í ósköpunum þessi mynd fúnkerar svona vel og hvað dræma aðsókn hennar á sínum tíma hefur rænt frá okkur heilu flóruna sem við hefðum getað fengið af flippuðum borðspilsförsum.


    En... Upp með vopnin og í gang með fókusinn. Nú þarf að leysa eina galna ráðgátu...


    *Og hvíl í friði, elsku Tim! Bíófíklar eru þér ómælanlega þakklátir fyrir allar yfirdrifnu minningarnar og ekki síst hláturinn.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - ‘Gistipartímynd’

    07:53 - Ólíku endarnir

    12:45 - Karaktersúpusnilld

    21:41 - Borðspilsmyndir

    31:28 - Í andstæðulitum

    36:36 - Íslenskt Clue

    48:07 - Samantekt


  17. Primetime (2026)

    1 h 1 min

    Það er ekkert lítið sem Robert Pattinson hefur verið að safna að sér þvílíkum leiksigrum þetta árið. Fyrst var það The Drama, síðan The Odyssey og má sjálfsagt vænta þess að hann geri eitthvað gúrme við rulluna …

    Notas do episódio

    Það er ekkert lítið sem Robert Pattinson hefur verið að safna að sér þvílíkum leiksigrum þetta árið. Fyrst var það The Drama, síðan The Odyssey og má sjálfsagt vænta þess að hann geri eitthvað gúrme við rulluna sína í hinni væntanlegu Dune: Part Three. Þá komum við að Primetime, þar sem Pattinson gjörsamlega hverfur inn í hlutverk sitt sem hinn alræmdi og heimsfrægi Chris Hansen.

    Mynd þessi er algjörlega gerð án samþykki Hansens og fjallar um áhugavert tímabil í bandarískri sjónvarpssögu þar sem þættirnir To Catch a Predator hófu göngu sína áður en allt framleiðsluferlið varð að hreinræktaðri katastrófu.

    Bíófíklar buðu Gabríel Jean-Sage De-Fontenay aftur velkomnum í stúdíó Podcaststöðvarinnar þar sem margbrotið umræðuefni er til umfjöllunar. Drengirnir við míkrafónanna stúdera stílbrögð, narratífu og almennan árangur þessarar bíómyndar auk þess að kafa aðeins út í ‘TCAP’ bóluna, áhrif hennar og eftirleiki.

    Hlustandi er hvattur til að fá sér sæti og láta vel (en ekki of vel…) um sig fara, því nú hefst óþægilega samtalið.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Skandalar í brennidepli

    07:17 - To Catch a Predator

    13:23 - Peningar, frægð og status

    20:03 - Lance Oppenheim er…

    32:02 - Ósamþykki Hansens

    37:13 - Um dekruð börn…

    41:15 - Fávitar og spillar

    49:51 - (Sjálfs)blekkingarleikir

  18. Resident Evil (2002-2017)

    1 h

    Resident Evil serían úr smiðju hins umdeilda Paul W.S. Anderson þykir vægast sagt… tja… umdeild. Það er ekki hægt að þverneita fyrir hæfileikum Millu Jovovich til að pósa í slow-mo skotum, og myndirnar …

    Notas do episódio

    Resident Evil serían úr smiðju hins umdeilda Paul W.S. Anderson þykir vægast sagt… tja… umdeild. Það er ekki hægt að þverneita fyrir hæfileikum Millu Jovovich til að pósa í slow-mo skotum, og myndirnar vissulega mokuðu inn sérdeilis hlass af seðlum, þó aðdáendur tölvuleikjanna sátu ekki glaðir með úrvinnsluna.

    Til að viðra með Bíófíklum hinar ýmsu vangaveltur varðandi þessa seríu er Gabríel Jean-Sage De-Fontenay stiginn inn í stúdíóið. Skemmst er frá því að segja að Gabríel er mikill unnandi leikjanna.

    Merkilegt nokk þá sammælast mennirnir við mækana ekki um hver er besta eða skásta myndin í þessari bíóseríu, en hvað með verstu?

    Dúndrum okkur í leðrið og leggjumst í sameiningu öll á kaf inn í þennan viðbjóð.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Um tölvuleikina…

    06:51 - Resident Evil

    17:02 - Apocalypse

    24:40 - Extinction

    32:14 - Afterlife

    42:07 - Retribution

    47:12 - The Final Chapter ofl.

  19. Resident Evil (2026)

    1 h 4 min

    Resident Evil vörumerkið hefur tekið á sig ýmsu umdeildu formin og sérstaklega í tengslum við bíómyndirnar. Nú hefur undraaflið Zach Cregger, maðurinn á bak við Barbarian og Weapons, fengið að sitja við …

    Notas do episódio

    Resident Evil vörumerkið hefur tekið á sig ýmsu umdeildu formin og sérstaklega í tengslum við bíómyndirnar. Nú hefur undraaflið Zach Cregger, maðurinn á bak við Barbarian og Weapons, fengið að sitja við stjórnvölinn með tótal endurræsingu og þeysireið sem margir netverjar segja að gæti verið best heppnaða ‘tölvuleikjamyndin’ til þessa. Sumir hafa jafnvel gengið svo langt með að kalla hana ‘Fury Road leikjamyndanna.’

    Viktor Árni Júlíusson fastagestur er dyggur aðdáandi Resident Evil tölvuleikjanna og gekk hæstánægður út af þessari mynd. Bíófíklar tóku honum og alls konar umræðum um Cregger, hinar bíómyndirnar og vörumerkið sama og fagnandi. Ekki eru allir á sömu skoðun við borðið um óheflaða hæpið eða ótvíræðu gæði þessarar Resident Evil myndar, en það er heldur betur nóg til að róta í hvað varðar framsetningu, stíl og endalausu páskaegg myndarinnar.

    Upp með byssurnar, hunsið hengilásin og tökumst á við þessa bölvuðu blóðugu vitleysu saman.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Páskaegg Creggers
    08:45 - Röfl um lúxussali ofl.
    19:47 - Samantekt án spilla
    26:55 - Spillar hefjast…
    33:19 - Bregður og viðbjóður
    40:14 - Austin power’ið
    52:25 - Meira svona?

  20. The Invite (2026)

    56 min

    Matarboð nokkuð hefst á óvenjulegu nótunum og þróast síðan út í enn óvenjulegri áttir í kómíska dramanu The Invite. Þetta er þriðja myndin sem Olivia Wilde leikstýrir en á skjánum snýr hún bökum saman við Seth …

    Notas do episódio

    Matarboð nokkuð hefst á óvenjulegu nótunum og þróast síðan út í enn óvenjulegri áttir í kómíska dramanu The Invite. Þetta er þriðja myndin sem Olivia Wilde leikstýrir en á skjánum snýr hún bökum saman við Seth Rogen, Penelope Cruz og Edward Norton.

    Íris Árnadóttir leiðir samnörda sína í þessu umræðuboði þar sem The Invite er krufin sundur saman, þar af leiðandi með alls konar spillum.

    Upp með glösin, niður með buxurnar og leggjumst öll á gott trúnó um stórskemmtilega mynd.


    Efnisyfirlit:
    00:00 - Boð og boð
    13:35 - Þras eða ró
    24:02 - Ræða Nortons
    32:02 - Að njóta eður ei
    44:20 - Endirinn…

  21. Súrt og svarað: Kokkurinn eða mannætan?

    1 h 16 min

    Hvort myndirðu frekar vilja að kokkurinn úr The Menu myndi elda handa þér máltíð eða Hannibal Lecter? Hvaða fræga bíómynd myndi svínvirka sem Broadway-söngleikur? Hvaða ‘nepo baby’ leikari er skemmtilegastur? …

    Notas do episódio

    Hvort myndirðu frekar vilja að kokkurinn úr The Menu myndi elda handa þér máltíð eða Hannibal Lecter? Hvaða fræga bíómynd myndi svínvirka sem Broadway-söngleikur? Hvaða ‘nepo baby’ leikari er skemmtilegastur?

    Nú er Bjarni Gautur mættur aftur í stúdíó Bíófíkla en nú í fyrsta sinn að spreyta sig í gallsúra spurningarleiknum þar sem engin svör eru röng. Þetta er meira spurning um að vera réttara en annað.

    Íris Árnadóttir samdi megnið af spurningunum, en þá er bara að hlera herlegheitin, og í senn spyrja sig hvernig í ósköpunum fimm manns eru í þættinum þegar míkrafónarnir eru bara fjórir…


    Efnisyfirlit:
    00:00 - ‘Öðruvísi teik’
    08:12 - Óþægilegur bangsi
    12:04 - Kokkurinn eða mannætan?
    15:09 - Flokkaskipti
    24:42 - Erlent rímeik
    28:40 - Þrenna og söngleikir
    41:06 - Frændsemisbarn…
    49:01 - “Ha…??!’ mynd
    59:14 - Horror-klisjur
    01:05:05 - Rom-com klisjur

  22. Ghost World (2001)

    59 min

    Þetta er sagan af þeim Enid og Rebeccu eftir að þær klára miðskóla. Þær eiga báðar í erfiðleikum með að tengjast fólki og eyða tíma sínum í að slæpast og að stríða þeim sem þeim finnast óspennandi. Þegar þær …

    Notas do episódio

    Þetta er sagan af þeim Enid og Rebeccu eftir að þær klára miðskóla. Þær eiga báðar í erfiðleikum með að tengjast fólki og eyða tíma sínum í að slæpast og að stríða þeim sem þeim finnast óspennandi. Þegar þær kynnast Seymour, sem er utangarðs og elskar að safna gömlum 78 snúninga hljómplötum, þá breytist líf Enid til frambúðar.

    Atli Sigurjónsson kvikmyndagerðarmaður er mættur í stúdóið til Bíófíkla með samnefndu myndasöguna og hefjast þá ýmsar umræður um muninn á kvikmyndinni og smásögunum, vanmetna leiksigurinn hjá Steve Buscemi og jafnframt hinni viðkunnanlegu Thoru Birch - sem lítið hefur til sést á undanförnum árum. Hið sama á reyndar við um leikstjóra myndarinnar líka.

    Setjið nú sígildu og fágætu vínylplötuna á fóninn, dressið ykkur upp eftir þörfum og skottist með í þetta sérkennilega ferðalag um líf og langanir minnisstæðra sérvitringa.

    (Beðist er velvirðingar á því hvað nokkrir við míkrafónana eru slapparalegir til hljóms, en þar er vesalings haustpestin að verki...)


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Sorgarfregnir úr mannaheimum

    13:52 - Draugaveröld

    20:56 - List eða ekki list

    31:07 - Enid + Seymour

    38:28 - Thora Birch

    44:55 - Scarlet Johansson

    48:52 - ‘Wowsville’...

    53:11 - Samantekt

  23. Grease (1978) & Grease 2 (1982)

    1 h 16 min

    Grease er svo sannarlega orðið. Að minnsta kosti akkúrat þessa stundina. Kvikmyndagerðarþjarkurinn Salvör Bergmann hikaði ekki við að rétta upp hönd þegar Bíófíklar sýndu því áhuga að kafa djúpt í báðar …

    Notas do episódio

    Grease er svo sannarlega orðið. Að minnsta kosti akkúrat þessa stundina. Kvikmyndagerðarþjarkurinn Salvör Bergmann hikaði ekki við að rétta upp hönd þegar Bíófíklar sýndu því áhuga að kafa djúpt í báðar myndirnar sem fjalla um skólaklíkur, rómantík, bíladellu og alls konar fjölskylduvæna greddu.

    Fyrri myndin er hugsanlega ein vinsælasta og þekktasta söngva- og dansmynd fyrr sem síðar og er hvergi skortur á heilum kynslóðunum sem þekkja allflest lögin úr þeirri mynd. Þar að auki var þetta bíómyndin sem skaut John Travolta (og Oliviu Newton-John í einhverjum mæli) hraðar upp stjörnuhimininn.

    Grease 2 er önnur saga; sú mynd hefur verið stuttlega rædd annað slagið í hlaðvarpinu en aldrei til fulls… fyrr en núna!

    Það er vægt til orða tekið að fullyrða að Grease 2 er óvinsælli myndin af þeim tveimur; fæstir úr upprunalegu myndinni snéru aftur (en persónurnar voru svo sem löngu búnar að útskrifast…) og lögin þótti alls ekki jafn grípandi að mati áhorfenda og gagnrýnenda. Að vísu er erfitt að neita því að Michelle Pfeiffer átti þarna massasvala innkomu og gladdi fáeinan einstaklinginn með sóló-söngnum ‘Cool Rider’, en listinn yfir kosti þessarar mynda ná sjaldnast lengra en það.

    Þá að sjálfsögðu er einn ónefndur Bíófíkill sem hefur í áraraðir tekið upp mótorhjólahanskann fyrir hinni veraldlega hötuðu Grease 2. Hvers vegna? Það veit enginn, nema jú, hlustandi góður sem kýs að ganga í klíkuna og hlera þetta djúsí spjall um myndirnar tvær.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Minningar af Koppafeiti

    17:05 - Kynjapólitíkin

    24:45 - Litrík flóra persóna

    29:52 - Dans- og bílakeppni

    36:58 - ‘Fimm-söngleikja-reglan’

    45:47 - Grease 2…

    54:01 - Umdeildari lög

    58:00 - Dólgslæti persóna

    01:07:22 - Týnda sjónvarpsserían…

  24. Topp 5: John Waters

    1 h 59 min

    Bíófíklar elska svo sannarlega flinka, fjölhæfa og fjöruga furðufugla, hvort sem þeir eru fyrir framan eða aftan kvikmyndatökuvélarnar.Hinn elskulegi, groddaralegi, drullufyndni og einkennilegi John Waters á …

    Notas do episódio

    Bíófíklar elska svo sannarlega flinka, fjölhæfa og fjöruga furðufugla, hvort sem þeir eru fyrir framan eða aftan kvikmyndatökuvélarnar.

    Hinn elskulegi, groddaralegi, drullufyndni og einkennilegi John Waters á fullkomlega erindi í þennan hóp og nú gefst hlustanda kost á því að fræðast og skyggnast inn í hugarheim mannsins sem færði heiminum Pink Flamingos, Mondo Trasho, Polyester, Hairspray og Cry Baby, svo aðeins nokkur dæmi séu nefnd. Má þá líka gjarnan færa þau rök að Waters hafi kynnt heiminum fyrir óviðjafnanlega skemmtikraftinum Divine.

    Íris Árnadóttir heldur utan um taum þessa innslags og í stúdíóið með henni eru mættir þeir Ormur Guðjónsson og Haukur Heiðar Steingrímsson. Saman velja þau sínar uppáhalds myndir eftir þennan snilldarlega sérvitring - sem er svo sannarlega ekki allra - og skoða þau ýmsu mynstur sem hafa fylgt honum í áratugaraðir. En aðdáendahópar Waters eru dyggir, mjög svo utangarðs í ýmsum samfélögum og e.t.v. prakkaralegir, líkt og heilinn á bak við titlaflóruna.

    Hér verður allsvakalega gramsað, rökstutt og róterað í alls konar gúrme skít í tengslum við þessa óvenjulegu filmógrafíu frá enn óvenjulegri kvikmyndagerðarmanni.

    Ríðum á vaðið, pössum upp á kjúklinginn og höfnum öllum samfélagslegum normum. Hláturtaugar verða sennilega kitlaðar.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Testum nú Waters

    07:03 - Fyrsta upplifunin

    14:49 - Uppáhalds leikari

    17:35 - Divine legasían

    24:27 - Cameo’in og einkennin

    38:47 - Cry Baby

    49:42 - Hairspray

    58:56 - Polyester

    01:15:27 - Serial Mom

    01:26:56 - Female Trouble

    01:42:23 - Pink Flamingos

  25. Deadpool (2016-2024)

    1 h 6 min

    Uppreisnargjarna andhetjan með lækningarmáttinn og sorakjaftinn hefur glatt pöpulinn í þrígang með geysivinsælum grínmyndum og ekki síður tilþrifunum frá Ryan Reynolds undir grímunni. Í Deadpool-myndunum er …

    Notas do episódio

    Uppreisnargjarna andhetjan með lækningarmáttinn og sorakjaftinn hefur glatt pöpulinn í þrígang með geysivinsælum grínmyndum og ekki síður tilþrifunum frá Ryan Reynolds undir grímunni. Í Deadpool-myndunum er fjórði veggurinn reglulega mölvaður og endalaust gert grín að bæði Marvel-sarpinum og stærri formúlum ofurhetjumynda.

    Leið þessarar fígúru að hvíta tjaldinu er jafn skemmtileg og hún var löng og á tíðum kolólögleg, þegar stærsti aflgjafinn var svonefnt ‘test reel’ lak með undraverðum hætti á internetið við ómælanlegan fögnuð netverja og áhorfenda. Á þeim tíma voru margir enn með óbragðið í munninum eftir að Deadpool karakterinn fékk hlægilega ef ekki móðgandi meðhöndlun í sorpmyndinni X-Men Origins: Wolverine.

    En talandi um Wolverine! Þá hefur Jarfinn sjálfur oft verið hluti af Deadpool-seríunni, beint eða óbeint, og leiddi það á endanum til þess að þeir sameinuðust með ógleymanlegum hætti í þriðju Deadpool-myndinni. Engu að síður vakna þarna upp ýmis konar spurningar, eins og: Eru vinsældir þessara mynda sjálfkrafa ávísun á gæði? Hversu vel eldast þær eiginlega eða eru þær jafnvel bara ákveðin búbbla síns samtíma? Og þá að sjálfsögðu líka, að öllu sögðu: Hver er besta Deadpool myndin af þessum þremur?

    Bíófíklar leggja í það að svara þessum og miklu, miklu fleiri spurningum með óforskammaðri greiningu á myndasyrpunni þar sem engu er tilsparað varðandi slettur og blótsyrði. Nú er lagt í subbulegt ferðalag skoðana og sturlaðra staðreynda.

    Beint í búningana með alla, smellum fáeinum [RITSKOÐAÐ]-línum í nasirnar og bölvum út í allar áttir, því nú skal hefja fjörið. Þess að auki er hlustandi jafnframt hvattur til að hlaða í eina eða tvær Chimichanga-rúllur á meðan hlustun stendur.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Forsagan og Fox-fíaskóið

    07:27 - X-Men Origins: Wolverine

    14:38 - Deadpool

    31:43 - Deadpool 2

    52:03 - Deadpool & Wolverine

  26. The End of Oak Street (2026)

    1 h 5 min

    Ef það eru risaeðlur í myndinni, þá eru góðar líkur að myndlistarmaðurinn og Jurassic-sérfræðingurinn Arnar Steinn Pálsson vilji vera með í umræðunum. Þannig varð akkúrat tilurð þessarar þáttar, er hann stakk …

    Notas do episódio

    Ef það eru risaeðlur í myndinni, þá eru góðar líkur að myndlistarmaðurinn og Jurassic-sérfræðingurinn Arnar Steinn Pálsson vilji vera með í umræðunum. Þannig varð akkúrat tilurð þessarar þáttar, er hann stakk upp á því við Bíófíkla að fjalla um kvikmyndina þar sem þeir J.J. Abrams og David Robert Mitchell (It Follows ofl.) snúa saman bökum með vonir um að kæta og hrella bíógesti um allan heim.

    The End of Oak Street er ráðgáta, skrímslamynd og sci-fi spennutryllir sem gerist á níunda áratugnum. Eftir að dularfullt yfirnáttúruafl flytur Eikargötu - og allt hverfið eins og það leggur sig - á óþekktan stað (og mögulega í óþekktan tíma…), uppgötvar fjölskylda fljótlega að tilvera hennar veltur á því að þau standi saman á meðan þau reyna að átta sig á því sem gerðist.

    Arnar og Bíófíklar leggjast nú saman í ferðalag um að meta og kanna ágæti þessa ferðalags sem þau Anne Hathaway, Ewan McGregor og fleiri prýða svo hressilega. Er þetta drekkhlaðið stuð, innantómt fjör eða hreinlega allt bara innantómt gól? Lifir hundurinn þetta af? Hvað með kettina?

    Og hvað segir risaeðluséníið í stúdíóinu?

    Flytjum okkur nú á slóðir út fyrir endimörkin þar sem tími og rúm er komið í algjört rugl, og metum afþreyingargildi þessa rugls. Athugið að búast má við öskrum. Og spillum.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Hemmi Gunn og 4DX

    14:41 - Hvert fór JJ Abrams?

    20:30 - Eikarstæti án spilla

    30:26 - Risaeðlupælingar

    38:17 - Yfir í spoilera…

    50:13 - Klappað í salnum

  27. Mighty Morphin Power Rangers (1995)

    1 h 8 min

    Eitt vinsælasta ofurgengi í sögu (bæði japanskrar og bandarískrar) dægurmenningu flaug fyrst á hvíta tjaldið árið 1995 við miklar vinsældir markhóps síns. Hið svonefnda Power Rangers teymi, í öllum sínum …

    Notas do episódio

    Eitt vinsælasta ofurgengi í sögu (bæði japanskrar og bandarískrar) dægurmenningu flaug fyrst á hvíta tjaldið árið 1995 við miklar vinsældir markhóps síns. Hið svonefnda Power Rangers teymi, í öllum sínum útfærslum, formum, litum og myndum, hefur aldrei verið gífurlegur hluti af íslenskum kúltúr en víða um heim hefur þetta vörumerki haldið stjórnlausri göngu í áraraðir og séð sinn skerf af lægðum og hæðum. En vissulega skulu fullorðnir ekki gera kröfur um hágæðaefni þegar umrædda vörumerkið hófst með því að ‘stela’ óbeint frá annarri þáttaröð, og sérstaklega þegar hugmyndin gengur út á að kæta sykuróða krakkalinga og selja þeim gommur af leikföngum.

    Bíófíklar buðu Vilmundi Erni Gunnarssyni aftur í stúdíó Podcaststöðvarinnar en hann átti hugmyndina að grandskoða mátt og mistök tveggja þekktustu Power Rangers-bíómyndanna, með áherslu á legasíu batterísins eins og það leggur sig. Í brennidepli er það sum sé Mighty Morphin Power Rangers: The Movie frá ’95, með léttri skimun á hundaskítinn frá 1997 sem kallast ’Turbo: A Power Rangers Movie. Vilmundur og vinir eru heldur ekki sparsamir á steiktar og sturlaðar staðreyndir um Power Rangers í gegnum árin, harmsögur af leikurum þáttanna og - að sjálfsögðu - græðgina og nískuna í spottatogaranum Haim Saban. Þá er einnig spreytt sig í stóru málunum, eins og hvers vegna foringinn Zordon vill eingöngu safna til sín liðum unglinga og af hverju hann ákvað að búa til taugaveiklað vélmenni til að aðstoða sig í höfuðstöðvum sínum...

    Fjórmenningarnir í settinu koma sér í stellingar, kalla út nöfn á risaeðlum með háfleygum hætti og rýna í umfjöllunarefni þar sem einn við míkrafóninn spyr réttilega að eftirfarandi spurningu; Er þetta nördalegasti þáttur Bíófíkla til þessa?

    Og hvernig í heitasta helvítinu ná drengirnir að þræða Glæstar vonir og Leiðarljós inn í þetta umfjöllunarefni?


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Klám og græðgi

    11:44 - Frá sjónarhorni barns

    19:46 - Ríbútt, Twitch og ‘special’inn’

    35:50 - “Notist í neyð”

    45:12 - Skósveinar úr leir

    51:11 - Sambærileg ofurgengi

    01:00:11 - Glæstar vonir og Leiðarljós…

  28. Spider-Man: Brand New Day (2026)

    1 h 48 min

    Nú er Peter Parker orðinn niðurlútur, enda liðin fáein ár síðan allir hans nánustu gleymdu honum og þýðir þá ekkert annað fyrir hann að sökkva sér dýpra í hlutverk vingjarnlegu hverfishetjuna í New York …

    Notas do episódio

    Nú er Peter Parker orðinn niðurlútur, enda liðin fáein ár síðan allir hans nánustu gleymdu honum og þýðir þá ekkert annað fyrir hann að sökkva sér dýpra í hlutverk vingjarnlegu hverfishetjuna í New York. Spider-Man: Brand New Day er fjórða kvikmyndin með Tom Holland í burðarhlutverkinu og má fastlega reikna með að um sé að ræða eina af langstærstu myndum ársins.

    Bíófíklar tóku á móti fastagestinum Siggu Clausen, sem oft hefur verið útnefnd sérfræðingur hlaðvarpsins í Marvel málum. Nóg er til að ræða í tengslum við vegferð Hollands sem Köngulóarmaðurinn þar sem nú eru heil tíu ár liðin síðan hann skaut fyrst upp kollinum í Captain America: Civil War.

    Farið er grimmt í gegnum Home-þríleikinn svokallaða og fjórðu myndina, með spillum og án þeirra. Það hefur sjálfsagt ekki farið fram hjá mörgum netverjum og aðdáendum MCU-mynda að mikil leynd hefur hvílt yfir myndinni. En að sama skapi komast bíófíklar ekki yfir að kanna stærri spurningar Spider-Man myndanna; þá varðandi réttindamál og ekki síst: Hvar í ósköpunum geymir Peter Parker snjallsímann sinn þegar hann er í búningnum?

    Þá er bara að smella á sér grímurnar og skoða sveiflurnar á milli gæða.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Lúsmý í Hveragerði

    11:50 - Tom Holland slær metið

    26:56 - Home-þríleikurinn

    57:00 - Brand New Day án spilla

    01:11:00 - Spoiler-umræða

    01:33:35 - Atli Freyr sveiflast inn


  29. The Warriors (1979)

    1 h 27 min

    Walter Hill vissi stundum vel hvað hann söng og þegar hann afhjúpaði The Warriors á sínum tima fylgdi útgáfunni heilmikið vesen. Visssulega hitti ræman alveg í mark hjá ungu fólki en var ítrekað gagnrýnd fyrir …

    Notas do episódio

    Walter Hill vissi stundum vel hvað hann söng og þegar hann afhjúpaði The Warriors á sínum tima fylgdi útgáfunni heilmikið vesen. Visssulega hitti ræman alveg í mark hjá ungu fólki en var ítrekað gagnrýnd fyrir að vera áhrifagjörn og hreinlega bara stórhættuleg. Þetta var líka fyrsta Hollywood-myndin sem fjallaði um gengi án þess að það fjalla um slíkt sem rót alls hins versta. Hill tók mjög pönkaða afstöðu í staðinn og legasía myndarinnar skýrir sig sjálfa.

    Ekki nema þú hafir aldrei heyrt um þessa mynd… En þá er ekkert minna tilefni til að hlusta á innilega krufningu Bíófíkla á The Warriors og sögunum á bak við gerð hennar. Í stuttu máli gerist hún í ‘myndasögulegri’ dystópíu þar sem gengi ráða ríkjum. Þegar Warriors-glæpagengið er ranglega sakað um morð, þurfa allir sem einn að slást við óvinahópa sem hundelta þá úr öllum áttum.

    Hugmyndin að þessari úttekt skrifast á góðkunnan gest, en það er plötu- og kanilsnúðurinn Atli Viðar Þorsteinsson (e. ‘Atli Kanill’). Atli á sér sterkar tengingar við kvikmyndina, söguna og tónlistarsöguna. Þá færir hann líka rök fyrir því að þetta gæti verið ein af þessum myndum sem FULLT af fólki hefur heyrt vísanir í, án þess að hafa séð myndina eða þekkja til hennar.

    Komið nú út að leika og verið öll með í eltingarleiknum því nóg er um bransasögur og fróðleiksmola.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Algjör steypustöð

    14:40 - The Warriors

    25:21 - Eltingarleikur

    41:17 - Skrítin kúrekamynd

    57:00 - New York-mynd

    01:10:05 - Áhrif og eftirhermur

    01:21:10 - “Alltof sætt tyggjó”

  30. The Rules of Attraction (2002)

    1 h 1 min

    Hefur þú heyrt um vanmetnu ’systkinamynd’ hinnar geggjuðu American Psycho? Nei? Já? Hvílíka lukkulega tilviljunin, því nú skal ítarlega leggjast yfir kolsvörtu unglingamyndina sem (því miður) of fáir hafa séð …

    Notas do episódio

    Hefur þú heyrt um vanmetnu ’systkinamynd’ hinnar geggjuðu American Psycho?

    Nei? Já? Hvílíka lukkulega tilviljunin, því nú skal ítarlega leggjast yfir kolsvörtu unglingamyndina sem (því miður) of fáir hafa séð. Þetta er The Rules of Attraction, sem fjallar meðal annars um ónytjunginn Sean (bróður Patricks…) Bateman og sveittu ævintýri nokkurra ólíkra háskólanema; ástir þeirra og örlög með smá sukki.

    Hér fara James Van Der Beek, Shannyn Sossamon, Ian Somerhalder, Eric Stoltz og Clifton Collins Jr. með lúmskan leiksigur. Útkoman er ekki allra, en algjört partí engu að síður!

    (Kannski ekkert sérstaklega gott partí, og bersýnilega fráhrindandi satt að segja, en án efa brjálæðislega áhugavert innlit.)

    Auður Svavars er mætt aftur í Podcaststöðina til að ræða þessa óvenjulegu kvikmynd úr smiðju Rogers Avary og byggð á samnefndri skáldsögu eftir Bret Easton Ellis.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Spice World & Rules...

    07:49 - Ógagnkvæm hrifning

    11:24 - Ferðalag og fávitaskapur

    19:51 - 'NC-17 útgáfa'

    28:28 - Roger Avary

    45:12 - Endir og byrjun

    55:14 - Pjúra óskhyggja?

Aqui estão os 40 episódios mais recentes de 168. Os mais antigos estão no feed do podcast.

Este podcast é seu?

Confirme com uma entrada no seu feed: você recebe um código aqui, adiciona como podcast:txt no canal do seu feed e nós verificamos. Depois disso, seu podcast aparece como “verificado” no SoundNode.

Configurações

Exibição

Idioma

Define quais estações você vê primeiro na página inicial.

Histórico

As rádios e episódios ouvidos recentemente e suas últimas buscas ficam só neste navegador.

Avisos

Um aviso rápido quando um podcast que você segue tem um episódio novo. Desative podcasts individuais pelo sino na página deles.

Conta

Salve favoritos – no app e no site.

Atalhos de teclado

/
Abrir busca
Espaço
Reproduzir ou pausar
← →
No player: voltar 15 s, avançar 30 s (episódios) · na fileira: próximo bloco
↑ ↓
Na fileira: alvo dentro do bloco
Home / End
Na fileira: primeiro ou último bloco
Esc
Fechar janela ou menu
?
Esta visão geral
Tocando agora

Ir para a estação

A seguir

    Adicione episódios com “A seguir” – eles tocam depois do episódio atual.