
Nágrannaerjur og níðstöng við Esjurætur
Notas do episódio
Í maí 2022 vaknaði Kristjana Þórarinsdóttir upp við að búið var að reisa níðstöng með afhöfðuðum hesti við heimili hennar. Nokkrum árum áður hafði fjölskyldan látið drauminn um að flytja í sveit rætast og sest að á Skrauthólum við Esjurætur. En draumurinn breyttist fljótlega í martröð þar sem andleg málefni, frjálsar ástir, nakið fólk og nágrannaerjur enduðu með ósköpum. Kristjana fer yfir þetta undarlega mál í Eftirmálum.
Komdu í áskrift á eftirmal.is
Samsetning: Adelina Antal
Samstarfsaðilar Eftirmála: 🛒Krónan 🌀Sjóvá 🍬Góa📲Alfreð 🤸🏼♂️ World Class 🚗Go Bílaleiga 🩺 Intuens ✨Húðfegrun
Vertu með okkur á Instagram