Pular para o conteúdo
Geðbrigði
PodcastIS

Geðbrigði

Episódio 1Fyrsti þáttur9 de dezembro de 2022 · 56 min
Episódios
10
Formato
Série – ouça desde o começo
Último episódio
22 dez 2024

Sobre o podcast

Þáttaröð um geðheilbrigðismál. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.

Episódios 10

  1. Notendastýrð þjónusta og skjólshús

    42 minEpisódio 10

    Þáttaröð um geðheilbrigðismál. Geðþjónusta Landspítalans er að innleiða þjónustu við fólk með geðræn veikindi þannig að sjúklingarnir sjálfir meti þörf sína fyrir innlögn á spítalann. Með því á að fyrirbyggja …

    Notas do episódio
    Þáttaröð um geðheilbrigðismál. Geðþjónusta Landspítalans er að innleiða þjónustu við fólk með geðræn veikindi þannig að sjúklingarnir sjálfir meti þörf sína fyrir innlögn á spítalann. Með því á að fyrirbyggja alvarlegri veikindi og fækka komum fólks á bráðamóttöku. Í 10. þætti Geðbrigða er fjallað um þessa nýju þjónustu og skjólshús þar sem áherslan er líka á notendastýrðar lausnir. Viðmælendur eru Grímur Atlason, Margrét Helga Kristjánsdóttir, Nanna Briem, Ragnheiður Eiríksdóttir Bjarman og Svava Arnardóttir. Guðrún Hálfdánardóttir hefur umsjón með þættinum en auk hennar koma Margrét Manda Jónsdóttir og Tómas Hrafn Ágústsson að gerð þáttarins. Tæknimaður er Lydía Grétarsdóttir.
  2. Átraskanir

    51 minEpisódio 9

    Þáttaröð um geðheilbrigðismál. Í níunda þætti er fjallað um átraskanir sem eru alvarlegir langvinnir geðsjúkdómar sem einkennast af miklum truflunum á mataræði. Viðmælendur eru: Angela Haydarly, Elín Vigdís …

    Notas do episódio
    Þáttaröð um geðheilbrigðismál. Í níunda þætti er fjallað um átraskanir sem eru alvarlegir langvinnir geðsjúkdómar sem einkennast af miklum truflunum á mataræði. Viðmælendur eru: Angela Haydarly, Elín Vigdís Guðmundsdóttir, Heiða Rut Guðmundsdóttir og Sigríður Elín Jónsdóttir. Dagskrárgerð: Guðrún Hálfdánardóttir, Margrét Manda Jónsdóttir og Tómas Hrafn Ágústsson. Umsjón og handritsgerð: Guðrún Hálfdánardóttir. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
  3. Jaðarpersónuleikaraskanir

    50 minEpisódio 8

    Þáttaröð um geðheilbrigðismál. Í áttunda þætti er fjallað um jaðarpersónuleikaraskanir. Jaðarpersónuleikaröskun (border line) er geðrænn vandi sem einkennist af slakri tilfinningastjórn, breytilegri sjálfsmynd …

    Notas do episódio
    Þáttaröð um geðheilbrigðismál. Í áttunda þætti er fjallað um jaðarpersónuleikaraskanir. Jaðarpersónuleikaröskun (border line) er geðrænn vandi sem einkennist af slakri tilfinningastjórn, breytilegri sjálfsmynd, hvatvísi og samskiptavanda. Viðmælendur eru: Dröfn Árnadóttir, Hrönn Stefánsdóttir, Inga Wessman og Nína Eck. Dagskrárgerð: Guðrún Hálfdánardóttir, Margrét Manda Jónsdóttir og Tómas Hrafn Ágústsson. Umsjón og handritsgerð: Guðrún Hálfdánardóttir. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
  4. Málefni trans fólks

    53 minEpisódio 7

    Þáttaröð um geðheilbrigðismál. Í sjöunda þætti er fjallað um málefni trans fólks. Þó svo transteymin séu hýst á geðsviði Landspítalans þá er það ekki geðsjúkdómur, eða sjúkdómur yfirleitt, að vera trans eða …

    Notas do episódio
    Þáttaröð um geðheilbrigðismál. Í sjöunda þætti er fjallað um málefni trans fólks. Þó svo transteymin séu hýst á geðsviði Landspítalans þá er það ekki geðsjúkdómur, eða sjúkdómur yfirleitt, að vera trans eða kynsegin og allur vafi var tekinn af um það í lögum um kynrænt sjálfræði. Viðmælendur eru: Alexander Björn Gunnarsson, Björn Hjálmarsson, Marta Jóns Hjördísardóttir, Ólöf Bjarki Antons og Sigríður Eyþórsdóttir. Dagskrárgerð: Guðrún Hálfdánardóttir, Margrét Manda Jónsdóttir og Tómas Hrafn Ágústsson. Umsjón og handritsgerð: Guðrún Hálfdánardóttir. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
  5. Breyttar áherslur í geðheilbrigðiskerfinu

    57 minEpisódio 6

    Í sjötta þætti er fjallað um breyttar áherslur í geðheilbrigðiskerfinu og hverju bæði sérfræðingar og fulltrúar notenda telja mikilvægt að breyta þegar að kemur að þjónustu við fólk sem er með geðsjúkdóma …

    Notas do episódio
    Í sjötta þætti er fjallað um breyttar áherslur í geðheilbrigðiskerfinu og hverju bæði sérfræðingar og fulltrúar notenda telja mikilvægt að breyta þegar að kemur að þjónustu við fólk sem er með geðsjúkdóma. Viðmælendur í þættinum eru Elín Ebba Ásmundsdóttir framkvæmdastjóri Hlutverkaseturs og varaformaður Geðhjálpar, Helga Sif Friðjónsdóttir sérfræðingur í geðhjúkrun, Nanna Briem framkvæmdastjóri geðþjónustu Landspítalans og Nína Eck, fyrrverandi notandi geðþjónustu sem starfar sem jafningi á Landspítalanum. Nína er einnig meistaranemi í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir, Margrét Manda Jónsdóttir og Tómas Hrafn Ágústsson.
  6. Áföll og afleiðingar þeirra

    55 minEpisódio 5

    Í fimmta þætti er fjallað um áföll og afleiðingar þeirra í lífi fólks. Viðmælendur eru Berglind Guðmundsdóttir yfirsálfræðingur á geðsviði Landspítalans, Jokka G. Birnudóttir ráðgjafi, Karl Kristján Davíðsson …

    Notas do episódio
    Í fimmta þætti er fjallað um áföll og afleiðingar þeirra í lífi fólks. Viðmælendur eru Berglind Guðmundsdóttir yfirsálfræðingur á geðsviði Landspítalans, Jokka G. Birnudóttir ráðgjafi, Karl Kristján Davíðsson myndlistarmaður, Sigrún Sigurðardóttir dósent við Háskólann á Akureyri og Vigfús Bjarni Albertsson, forstöðumaður sálgæslu og fjölskylduþjónustu kirkjunnar. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir, Margrét Manda Jónsdóttir og Tómas Hrafn Ágústsson.
  7. Fjórði þáttur

    53 minEpisódio 4

    Í fjórða þætti er fjallað um nauðungarvistanir, bæði frá sjónarhorni þeirra sem starfa á geðdeildum og þeirra sem hafa verið nauðungarvistaðir. Viðmælendur í þættinum eru Elín Atim sem situr í stjórn …

    Notas do episódio
    Í fjórða þætti er fjallað um nauðungarvistanir, bæði frá sjónarhorni þeirra sem starfa á geðdeildum og þeirra sem hafa verið nauðungarvistaðir. Viðmælendur í þættinum eru Elín Atim sem situr í stjórn Geðhjálpar, Guðrún Dóra Bjarnadóttir yfirlæknir á meðferðardeild geðrofssjúkdóma, Jóhanna Þórisdóttir hjúkrunardeildarstjóri á bráðageðdeild og Páll Matthíasson geðlæknir. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir, Margrét Manda Jónsdóttir og Tómas Hrafn Ágústsson.
  8. Þriðji þáttur

    57 minEpisódio 3

    Í þriðja þætti er fjallað um geðrof og geðrofssjúkdóma. Viðmælendur eru Ágústa Ísleifsdóttir sem er með geðrofssjúkdóm, Halldóra Jónsdóttir yfirlæknir á meðferðareiningu geðrofssjúkdóma, Halldóra Víðisdóttir …

    Notas do episódio
    Í þriðja þætti er fjallað um geðrof og geðrofssjúkdóma. Viðmælendur eru Ágústa Ísleifsdóttir sem er með geðrofssjúkdóm, Halldóra Jónsdóttir yfirlæknir á meðferðareiningu geðrofssjúkdóma, Halldóra Víðisdóttir, deildarstjóri göngudeildar geðrofssjúdóma, og Styrkár Hallsson sálfræðingur á geðsviði Landspítalans. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir, Margrét Manda Jónsdóttir og Tómas Hrafn Ágústsson.
  9. Annar þáttur

    53 minEpisódio 2

    Í öðrum þætti er fjallað um þjónustu við aðstandendur þeirra sem fást við geðræn veikindi og hversu mikilvæg hún er fyrir alla aðstandendur, hvort sem er börn eða fullorðna. Viðmælendur eru Eydís …

    Notas do episódio
    Í öðrum þætti er fjallað um þjónustu við aðstandendur þeirra sem fást við geðræn veikindi og hversu mikilvæg hún er fyrir alla aðstandendur, hvort sem er börn eða fullorðna. Viðmælendur eru Eydís Sveinbjarnardóttir, dósent við Háskóla Íslands, Gunnlaug Thorlacius, yfirfélagsráðgjafi á Landspítalanum, Sigríður Gísladóttir framkvæmdastjóri Okkar heims og Sigurveig Sigurjónsdóttir Mýrdal hjúkrunardeildarstjóri á BUGL. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir, Margrét Manda Jónsdóttir og Tómas Hrafn Ágústsson.
  10. Fyrsti þáttur

    56 minEpisódio 1

    Í fyrsta þætti er fjallað um þunglyndi, hvaða meðferðir og úrræði eru í boði og hvaða árangri þau skila. Viðmælendur eru Dagur Bjarnason geðlæknir í geðheilsuteymi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Engilbert …

    Notas do episódio
    Í fyrsta þætti er fjallað um þunglyndi, hvaða meðferðir og úrræði eru í boði og hvaða árangri þau skila. Viðmælendur eru Dagur Bjarnason geðlæknir í geðheilsuteymi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Engilbert Sigurðsson, yfirlæknir geðþjónustu Landspítalans, Erla Björg Birgisdóttir sálfræðingur og teymisstjóri þunglyndis- og kvíðateymis Landspítalans, Guðrún Edda Hauksdóttir deildarstjóri móttökugeðdeildar Landspítalans, Stefán Þór Stefánsson tónlistarmaður og Þórgunnur Ársælsdóttir yfirlæknir bráðateymis geðsviðs Landspítala. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir, Margrét Manda Jónsdóttir og Tómas Hrafn Ágústsson.
Este podcast é seu?

Confirme com uma entrada no seu feed: você recebe um código aqui, adiciona como podcast:txt no canal do seu feed e nós verificamos. Depois disso, seu podcast aparece como “verificado” no SoundNode.

Configurações

Exibição

Idioma

Define quais estações você vê primeiro na página inicial.

Histórico

As rádios e episódios ouvidos recentemente e suas últimas buscas ficam só neste navegador.

Avisos

Um aviso rápido quando um podcast que você segue tem um episódio novo. Desative podcasts individuais pelo sino na página deles.

Conta

Salve favoritos – no app e no site.

Atalhos de teclado

/
Abrir busca
Espaço
Reproduzir ou pausar
← →
No player: voltar 15 s, avançar 30 s (episódios) · na fileira: próximo bloco
↑ ↓
Na fileira: alvo dentro do bloco
Home / End
Na fileira: primeiro ou último bloco
Esc
Fechar janela ou menu
?
Esta visão geral
Tocando agora

Ir para a estação

A seguir

    Adicione episódios com “A seguir” – eles tocam depois do episódio atual.