Pular para o conteúdo
Hjartans mál

Hjartans mál

Episódio 1Eldflaugaförin 1. þáttur: Vandræðabarn frá byrjun7 de junho de 2024 · 39 min
Episódios
29
Formato
Série – ouça desde o começo
Último episódio
14 nov 2026

Sobre o podcast

Ólöf Gerður Sigfúsdóttir leggur upp í leiðangur um hjartað sem líffæri og menningarsögulegt fyrirbæri eftir að hafa sjálf upplifað skyndileg hjartveikindi. Hún rekur táknræna merkingu hjartans frá fornu fari til samtímans og fær til sín fjölmarga viðmælendur til að varpa ljósi á ólíkar birtingarmyndir hjartans, sem hún fléttar saman við eigin reynslu.

Fyrri þættir og þáttaraðir í þessu safnvarpi:

Eldflaugaförin

Bein

Mundi

Ljóslæknirinn

Land og sonur

Vinur minn Germani

Hold

Í upphafi var myndin

Geðveik mamma

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Episódios 29

  1. Hjartans mál 3/3: Í hjartastað

    36 minTemporada 10 · Episódio 3

    Í þessum þætti er fjallað um hjartað út frá sjónarhóli dulspekinnar og það sett í samhengi við breytilegar heimsmyndir ólíkra tíma. Einnig er hjartastöðin skoðuð með augum jógafræðanna. Viðmælendur: Guðmundur …

    Notas do episódio
    Í þessum þætti er fjallað um hjartað út frá sjónarhóli dulspekinnar og það sett í samhengi við breytilegar heimsmyndir ólíkra tíma. Einnig er hjartastöðin skoðuð með augum jógafræðanna. Viðmælendur: Guðmundur Ingi Markússon og Ingibjörg Stefánsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  2. Hjartans mál 2/3: Af öllu hjarta

    40 minTemporada 10 · Episódio 2

    Í þessum þætti er fjallað um hjartað sem líffæri og hlutverk þess skoðað með augum læknisfræðinnar. Einnig er kafað ofan í hjartað sem miðlægt tákn í kristinni trú. Viðmælendur: Karl Andersen og Sigríður …

    Notas do episódio
    Í þessum þætti er fjallað um hjartað sem líffæri og hlutverk þess skoðað með augum læknisfræðinnar. Einnig er kafað ofan í hjartað sem miðlægt tákn í kristinni trú. Viðmælendur: Karl Andersen og Sigríður Guðmarsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  3. Hjartans mál 1/3: Hjartalag

    41 minTemporada 10 · Episódio 1

    Í þessum þætti er fallað um hjartað út frá læknahugvísindalegu sjónarhorni og táknrænar rætur þess raktar til Egyptalands til forna, kínverskrar heimspeki og evrópskra miðalda. Viðmælendur: Sif Ríkharðsdóttir …

    Notas do episódio
    Í þessum þætti er fallað um hjartað út frá læknahugvísindalegu sjónarhorni og táknrænar rætur þess raktar til Egyptalands til forna, kínverskrar heimspeki og evrópskra miðalda. Viðmælendur: Sif Ríkharðsdóttir og Geir Sigurðsson.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  4. Geðveik mamma 3/3

    31 minTemporada 9 · Episódio 3

    Hvernig höldum við að geðveikar mæður séu? Í þessum þriðja og síðasta þætti veltir Hera fyrir sér hugmyndum um góðar og slæmar mæður. Hún heldur áfram leitinni að rödd langömmu sinnar og við heyrum fleiri sögur …

    Notas do episódio

    Hvernig höldum við að geðveikar mæður séu?


    Í þessum þriðja og síðasta þætti veltir Hera fyrir sér hugmyndum um góðar og slæmar mæður. Hún heldur áfram leitinni að rödd langömmu sinnar og við heyrum fleiri sögur mæðra úr samtímanum: Sögur um fordóma og ótta en líka hreinskilni og von. Geta nýjar raddir breytt gömlum viðhorfum?

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  5. Geðveik mamma 2/3

    29 minTemporada 9 · Episódio 2

    Hvernig tölum við um veikindi sem við viljum helst ekki tala um?Í þessum þætti skoðar Hera hvernig þagnir, orð og fordómar móta skilning okkar á geðsjúkdómum.Við heyrum sögur annarra geðveikra mæðra og Hera …

    Notas do episódio

    Hvernig tölum við um veikindi sem við viljum helst ekki tala um?


    Í þessum þætti skoðar Hera hvernig þagnir, orð og fordómar móta skilning okkar á geðsjúkdómum.


    Við heyrum sögur annarra geðveikra mæðra og Hera heldur áfram að reyna að fylla í eyðurnar í sögu langömmu sinnar.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  6. Geðveik mamma 1/3

    29 minTemporada 9 · Episódio 1

    Líf lítillar fjölskyldu á Akureyri umturnaðist einn daginn þegar ung móðir var send suður – suður á Klepp.Þegar langamma Heru var send suður á Klepp árið 1946 var amma hennar bara fjögurra ára. 80 árum síðar …

    Notas do episódio

    Líf lítillar fjölskyldu á Akureyri umturnaðist einn daginn þegar ung móðir var send suður – suður á Klepp.


    Þegar langamma Heru var send suður á Klepp árið 1946 var amma hennar bara fjögurra ára. 80 árum síðar reyna þær í sameiningu að skilja hvað gerðist og hvers vegna enginn talaði um þetta. Í þessum fyrsta þætti tvinnast saman fjölskyldusaga, eigin reynsla Heru og spurningar um hvaða merkingu Kleppur hefur í samtímanum.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  7. Í upphafi var myndin 4/4: Kunnugleg kona á bókarkápu

    41 minTemporada 8 · Episódio 4

    Hver var danska konan sem var um tíma gift þeim sem af mörgum er talinn merkasti myndlistarmaður íslensku þjóðarinnar? Áður en þau fluttu til Íslands hafði hún haslað sér völl sem rithöfundur í Danmörku. Eftir …

    Notas do episódio
    Hver var danska konan sem var um tíma gift þeim sem af mörgum er talinn merkasti myndlistarmaður íslensku þjóðarinnar? Áður en þau fluttu til Íslands hafði hún haslað sér völl sem rithöfundur í Danmörku. Eftir að þau skildu flutti hún frá Íslandi, ferðaðist víða um lönd, varð fyrirmynd þekktrar skáldsagnapersónu, lenti í málaferlum vegna skottulækninga og átti umfangsmikinn feril á ritlistarsviðinu. Viðmælandi í þættinum er Kolbrún Kjarval, listakona.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  8. Í upphafi var myndin 3/4: Maðurinn með hauskúpuna

    43 minTemporada 8 · Episódio 3

    Hvernig var hægt að finna út hver var pípureykjandi maðurinn sem geymdi mannabein í herberginu sínu? Sögð er saga af reykvískum strák úr Skólastræti sem menntaðist í læknisfræði og tungumálum og gerðist …

    Notas do episódio
    Hvernig var hægt að finna út hver var pípureykjandi maðurinn sem geymdi mannabein í herberginu sínu? Sögð er saga af reykvískum strák úr Skólastræti sem menntaðist í læknisfræði og tungumálum og gerðist héraðslæknir í Vestur-Indíum. Viðmælandi í þættinum er Inga Lára Baldvinsdóttir, sagnfræðingur.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  9. Í upphafi var myndin 2/4: Ljósmóðirin og listamennirnir

    42 minTemporada 8 · Episódio 2

    Hvers vegna fór ung kona úr Vesturbænum, sem starfaði við bókhald hjá heildverslun, skyndilega til Kaupmannahafnar sumarið 1917? Hver urðu örlög hennar og hvers vegna fluttu tveir danskir listamenn til Íslands …

    Notas do episódio
    Hvers vegna fór ung kona úr Vesturbænum, sem starfaði við bókhald hjá heildverslun, skyndilega til Kaupmannahafnar sumarið 1917? Hver urðu örlög hennar og hvers vegna fluttu tveir danskir listamenn til Íslands skömmu eftir seinni heimsstyrjöld? Viðmælandi í þættinum er Ari Karlsson, lögfræðingur.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  10. Í upphafi var myndin 1/4: Dæmd í vændishús

    44 minTemporada 8 · Episódio 1

    Rakin er saga hótelstjóradóttur sem fæddist í Hafnarstrætinu í Reykjavík. Á unglingsárum sigldi hún til Kaupmannahafnar og lenti þar á refilstigum í strætum sem mörgum þóttu býsna vafasöm. Frá Danmörku flakkaði …

    Notas do episódio
    Rakin er saga hótelstjóradóttur sem fæddist í Hafnarstrætinu í Reykjavík. Á unglingsárum sigldi hún til Kaupmannahafnar og lenti þar á refilstigum í strætum sem mörgum þóttu býsna vafasöm. Frá Danmörku flakkaði hún til fleiri landa, tókst á við leynilegt verkefni og komst ítrekað í kast við lögin. Viðmælandi í þættinum er Kristín Svava Tómasdóttir, sagnfræðingur.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  11. Hold 3/3

    40 minTemporada 7 · Episódio 3

    Í þriðja þættinum af Holdi skoðar Brynhildur nokkrar auglýsingar um offitulausnir og ræðir við sérfræðinga með ólík sjónarhorn, þær Erlu Gerði Sveinsdóttur, sérfræðilækni í offitumeðferð, Töru Margréti …

    Notas do episódio

    Í þriðja þættinum af Holdi skoðar Brynhildur nokkrar auglýsingar um offitulausnir og ræðir við sérfræðinga með ólík sjónarhorn, þær Erlu Gerði Sveinsdóttur, sérfræðilækni í offitumeðferð, Töru Margréti Vilhjálmsdóttur félagsráðgjafa og líkamsvirðingarsinna og Elínu Vigdísi Guðmundsdóttur, formann SÁTTar, samtaka um átröskun og aðrar tengdar raskanir.


    Lesari í þættinum er Ævar Örn Jósepsson.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  12. Hold 2/3

    42 minTemporada 7 · Episódio 2

    Sápan FatOff og megrunarkaramellurnar AYDS eru meðal umfjöllunarefna í öðrum þætti af Holdi. Brynhildur ræðir líka við þær Lindu Guðmundsdóttur og Ósk Gunnlaugsdóttur um reynslu þeirra af þyngdartapslyfjum og …

    Notas do episódio

    Sápan FatOff og megrunarkaramellurnar AYDS eru meðal umfjöllunarefna í öðrum þætti af Holdi. Brynhildur ræðir líka við þær Lindu Guðmundsdóttur og Ósk Gunnlaugsdóttur um reynslu þeirra af þyngdartapslyfjum og - aðgerðum. Ennfremur er fjallað um fitufordóma.


    ATH að í þættinum er komið inn á ýmislegt sem gæti reynst flókið fyrir þau sem hafa glímt við átröskun.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  13. Hold 1/3

    39 minTemporada 7 · Episódio 1

    Brynhildur tekur stöðuna á nútíma holdafarsumræðu og segir sögu sína í nokkrum megrunarkúrum. Í framhaldi af því veltir hún fyrir sér hvort hún eigi að nýta sér þær aðferðir sem læknavísindin bjóða upp á í …

    Notas do episódio

    Brynhildur tekur stöðuna á nútíma holdafarsumræðu og segir sögu sína í nokkrum megrunarkúrum. Í framhaldi af því veltir hún fyrir sér hvort hún eigi að nýta sér þær aðferðir sem læknavísindin bjóða upp á í baráttunni við ofþyngd og leitar ráða hjá konu með reynslu.


    Rætt er við Ragnheiði Bjarman Eiríksdóttur og lesari í þættinum er Helgi Seljan.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  14. Vinur minn Germani

    44 minTemporada 6 · Episódio 1

    Þegar Jón Magni Ólafsson var ungur maður kolféll hann af einhverjum ástæðum, fyrir orgeltónlist og töfrum hennar sem minnti hann á gilin og fossana í sveitinni í Mýrdalnum. Hann hélt sérstaklega upp á plötu sem …

    Notas do episódio

    Þegar Jón Magni Ólafsson var ungur maður kolféll hann af einhverjum ástæðum, fyrir orgeltónlist og töfrum hennar sem minnti hann á gilin og fossana í sveitinni í Mýrdalnum. Hann hélt sérstaklega upp á plötu sem hann eignaðist 17 ára gamall með Fernando Germani, sem var organisti Péturskirkjunnar í Róm á tímum Píusar páfa (1939-1958). Þegar Germani heimsótti Ísland á áttunda áratugnum, tókst með þeim Magna óvænt, en djúpstæð vinátta sem entist allt þar til Germani lést.


    Þeir skrifuðust á í 25 ár um lífið, listina, mennina, illskuna, ástina og Guð.


    Umsjón: Ólafur Páll Gunnarsson

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  15. Land og sonur 3/3: Svo mælir Svarthöfði

    46 minTemporada 5 · Episódio 3

    Indriði G. Þorsteinsson var ekki aðeins rithöfundur. Hann starfaði lengi sem blaðamaður og ritstjóri og tók virkan þátt í þjóðmálaumræðunni, beitti sér í fyrirtækjarekstri og framleiðslu kvikmynda og var einn …

    Notas do episódio
    Indriði G. Þorsteinsson var ekki aðeins rithöfundur. Hann starfaði lengi sem blaðamaður og ritstjóri og tók virkan þátt í þjóðmálaumræðunni, beitti sér í fyrirtækjarekstri og framleiðslu kvikmynda og var einn helsti skipuleggjandi hátíðarhaldanna í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar 1974. Umdeildastur var hann þó sem pistlahöfundurinn Svathöfði.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  16. Land og sonur 2/3: Norðan við stríð

    48 minTemporada 5 · Episódio 2

    Skáldsögur Indriða G. Þorsteinssonar gerast í samfélagi þar sem hið gamla víkur fyrir nýjum vonum og nýjum siðum. Indriða voru þessar miklu breytingar á íslensku þjóðfélagi um miðja 20. öld hugleiknar og hann …

    Notas do episódio
    Skáldsögur Indriða G. Þorsteinssonar gerast í samfélagi þar sem hið gamla víkur fyrir nýjum vonum og nýjum siðum. Indriða voru þessar miklu breytingar á íslensku þjóðfélagi um miðja 20. öld hugleiknar og hann speglaði þær iðulega í því samfélagi sem hann hafði sjálfur kynnst á yngri árum, sveitasamfélaginu. En hann benti líka stöðugt á að margt var bogið við það og að þrátt fyrir fegurð og yndisleika voru þjófar á ferð í paradís.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  17. Land og sonur 1/3: Vegir liggja til allra átta

    49 minTemporada 5 · Episódio 1

    Indriði G. Þorsteinsson hóf feril sinn sem rithöfundur og blaðamaður rétt upp úr tvítugu. Hann sagði frá sveitalífinu sem hann hafði kynnst í Skagafirði og bæjarbragnum á Akureyri í Reykjavík. Æska hans og …

    Notas do episódio
    Indriði G. Þorsteinsson hóf feril sinn sem rithöfundur og blaðamaður rétt upp úr tvítugu. Hann sagði frá sveitalífinu sem hann hafði kynnst í Skagafirði og bæjarbragnum á Akureyri í Reykjavík. Æska hans og unglingsár voru mörkuð af sífelldum flutningum, mögnuðum ættingjum, hersetu og nýju lífi mölinni.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  18. Ljóslæknirinn 1/1: Hinn íslenski Nóbelshafinn

    49 minTemporada 4

    Árið 1903 hlaut Niels Ryberg Finsen Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir sínar á ljósmeðhöndlun við hörundsberklum og öðrum sjúkdómum. Hann var fyrsti danski handhafi Nóbelsverðlaunanna sem þá voru nýtilkomin og …

    Notas do episódio

    Árið 1903 hlaut Niels Ryberg Finsen Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir sínar á ljósmeðhöndlun við hörundsberklum og öðrum sjúkdómum. Hann var fyrsti danski handhafi Nóbelsverðlaunanna sem þá voru nýtilkomin og vegna sérsviðs síns var hann gjarnan kallaður ljóslæknirinn. Uppruni Finsens teygir sig þó líka til Færeyja, þar sem hann fæddist, og til Íslands en á hann rætur að rekja til Íslands í föðurætt auk þess sem hann bjó hér um nokkurt skeið og lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum sem þá hét.


    Í aðalbyggingu Menntaskólans í Reykjavík er enn minnisvarði um námsár Finsens. Þrátt fyrir það er hann mörgum Íslendingum gleymdur og í þessum þætti verður hans minnst, fjallað um tengslin við Ísland, námsárin og afrekin á sviði læknavísinda.


    Umsjón: Jóhannes Ólafsson

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  19. Mundi: Seinni þáttur

    59 minTemporada 3 · Episódio 2

    Guðmundur Arnfinnsson var bráðkvaddur bíðandi eftir strætó í Hamraborginni með poka fullan af bókum sem hann hafði keypt í Bónus. Örfáum mínútum áður hafði hann verið í viðtali hjá umsjónarmanni Lestarinnar á …

    Notas do episódio

    Guðmundur Arnfinnsson var bráðkvaddur bíðandi eftir strætó í Hamraborginni með poka fullan af bókum sem hann hafði keypt í Bónus. Örfáum mínútum áður hafði hann verið í viðtali hjá umsjónarmanni Lestarinnar á Rás 1 sem var að ræða við farþega í strætó.

    Þessi ótrúlega tilviljun er upphafið að ferðalagi þar sem Kristján Guðjónsson reynir að kynnast Munda, fyrrum sakarskrárritara, sérstæðum og hlédrægum hæfileikamanni sem skilur eftir sig mikinn fjölda kvæða og gríðarlegt bókasafn.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  20. Mundi: Fyrri þáttur

    52 minTemporada 3 · Episódio 1

    Umsjónarmenn Lestarinnar vörðu heilum föstudegi í desember 2023 um borð í leið 4, strætó sem keyrir úr Mjódd niður á Hlemm um Breiðholtið. Í þættinum heyrast sögur fólks sem ferðaðist með vagninum þann daginn …

    Notas do episódio

    Umsjónarmenn Lestarinnar vörðu heilum föstudegi í desember 2023 um borð í leið 4, strætó sem keyrir úr Mjódd niður á Hlemm um Breiðholtið. Í þættinum heyrast sögur fólks sem ferðaðist með vagninum þann daginn. Strákur á leið að fá sér drekatattú, venesúelskur söngvari á leið til sálfræðings, danskur kökuskreytingameistari og hagmælti bókasafnarinn Mundi.


    Á páskadag fór í loftið nýr útvarpsþáttur á Rás 1 um ævi eins viðmælandans Guðmundar Arnfinnssonar og var strætóþátturinn endurfluttur að því tilefni.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  21. Bein 3/3: Um kærleikann í beinunum

    41 minTemporada 2 · Episódio 3

    Í miðri leit að uppruna lærleggjanna, berast Sigrúnu nýjar upplýsingar um uppruna sinn. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  22. Bein 2/3: ...nema ekki fyrir mömmu

    40 minTemporada 2 · Episódio 2

    Allt leitar yfirborðsins. Lærleggirnir una sér ekki í moldu og sögur úr æsku systkinanna af Lækjarbakka brjótast fram. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  23. Bein 1/3: Lærleggurinn verndar okkur...

    39 minTemporada 2 · Episódio 1

    Hafrún býr á Vestri Loftsstöðum með Sigurði manninum sínum, fimm af sjö börnum þeirra, hundinum Tarfi og lærlegg úr 400 ára gömlum galdramanni. En hvaðan kom þetta bein, þessi saga, og er einhver leið að …

    Notas do episódio
    Hafrún býr á Vestri Loftsstöðum með Sigurði manninum sínum, fimm af sjö börnum þeirra, hundinum Tarfi og lærlegg úr 400 ára gömlum galdramanni. En hvaðan kom þetta bein, þessi saga, og er einhver leið að rannsaka það með tilkomu nútíma tækni?

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  24. Aukaþáttur: Tollararnir

    40 minTemporada 1Bônus

    Guðrún Hálfdánardóttir ræðir við Brynjólf Karlsson og Jónas Hall sem kynntust þegar þeir voru 12 ára og störfuðu sem tollverðir um árabil.Tónlist: Stolin stef - Gunnar GunnarssonSpeak softly - Haukur Heiðar …

    Notas do episódio

    Guðrún Hálfdánardóttir ræðir við Brynjólf Karlsson og Jónas Hall sem kynntust þegar þeir voru 12 ára og störfuðu sem tollverðir um árabil.


    Tónlist: Stolin stef - Gunnar Gunnarsson

    Speak softly - Haukur Heiðar Ingólfsson

    Catching Lightning - Alex Mastronardi.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  25. Eldflaugaförin 5. þáttur: Komu aldrei til hafnar

    41 minTemporada 1 · Episódio 5

    Birgir Þór Helgason var boðaður á fund í höfuðstöðvum bandaríska varnarmálaráðuneytisins haustið 1986 og fenginn til að stýra leiðangri hringinn í kringum jörðina; leynilegum siglingarleiðangri sem tók á annað …

    Notas do episódio

    Birgir Þór Helgason var boðaður á fund í höfuðstöðvum bandaríska varnarmálaráðuneytisins haustið 1986 og fenginn til að stýra leiðangri hringinn í kringum jörðina; leynilegum siglingarleiðangri sem tók á annað ár í þeim tilgangi að flytja mikilvægan farm. Þessi farmur kom aldrei til hafnar samkvæmt opinberum gögnum. Samt, átti hann eftir að setja mark sitt á hernaðarsögu heimsins.  

    Viðmælendur í þættinum eru: Albert Jónsson, Birgir Þór Helgason og Jón Ingi Þórarinsson. 

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  26. Eldflaugaförin 4. þáttur: Út í óvissuna

    40 minTemporada 1 · Episódio 4

    Haustið 1986 tók Birgir Þór Helgason vélstjóri að sér verkefni án þess að vita hvað það fól í sér. Næstu misserin sigldi hann, ásamt áhöfn, gömlu smyglskipi heimsálfa á milli. Það var ekki fyrr en seint og um …

    Notas do episódio

    Haustið 1986 tók Birgir Þór Helgason vélstjóri að sér verkefni án þess að vita hvað það fól í sér. Næstu misserin sigldi hann, ásamt áhöfn, gömlu smyglskipi heimsálfa á milli. Það var ekki fyrr en seint og um síðir að upplýst var um hver förinni var heitið og hvað biði þeirra þar.



    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  27. Eldflaugaförin 3. þáttur: Baráttan við Bakkus

    40 minTemporada 1 · Episódio 3

    Íslenski vélstjórinn Birgir Þór Helgason hefur tekist á við ýmislegt á sinni löngu ævi. Meðal annars leyniför hringinn í kringum jörðina. Baráttan við Bakkus er aldrei langt undan í fjölskyldu Birgis og sú …

    Notas do episódio

    Íslenski vélstjórinn Birgir Þór Helgason hefur tekist á við ýmislegt á sinni löngu ævi. Meðal annars leyniför hringinn í kringum jörðina. Baráttan við Bakkus er aldrei langt undan í fjölskyldu Birgis og sú barátta tekur toll sem enginn vill þurfa að greiða.

    Viðmælendur í þættinum eru Birgir Þór Helgason og Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra og sérfræðingum í alþjóðamálum.


    Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.

    Framleiðandi: Gígja Hólmgeirsdóttir.

    Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  28. Eldflaugaförin 2. þáttur: Framtíðin ráðin

    41 minTemporada 1 · Episódio 2

    Birgir Þór Helgason vélstjóri var boðaður á leynilegan fund haustið 1986. Fund sem markaði upphaf háskafarar um heimsins höf. Birgir hefur reynt ýmislegt um ævina og í þessum þætti heyrum við meðal annars af …

    Notas do episódio

    Birgir Þór Helgason vélstjóri var boðaður á leynilegan fund haustið 1986. Fund sem markaði upphaf háskafarar um heimsins höf. Birgir hefur reynt ýmislegt um ævina og í þessum þætti heyrum við meðal annars af smygli og sjóskaða.


    Viðmælendur í þættinum eru Birgir Þór Helgason, Brynjólfur Karlsson og Jónas Hall.


    Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.

    Framleiðandi: Gígja Hólmgeirsdóttir. 

    Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  29. Eldflaugaförin 1. þáttur: Vandræðabarn frá byrjun

    39 minTemporada 1 · Episódio 1

    Haustið 1986 var íslenski vélstjórinn Birgir Þór Helgason boðaður á leynilegan fund. Það var upphafið að mikilli háskaför hinum megin á hnettinum. En hver er þessi Birgir?Í þessum þætti fáum við að kynnast …

    Notas do episódio

    Haustið 1986 var íslenski vélstjórinn Birgir Þór Helgason boðaður á leynilegan fund. Það var upphafið að mikilli háskaför hinum megin á hnettinum. En hver er þessi Birgir?


    Í þessum þætti fáum við að kynnast bakgrunni hans og hvað gerði hann að þeim manni sem hann er nú.


    Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.

    Framleiðandi: Gígja Hólmgeirsdóttir. 

    Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Este podcast é seu?

Confirme com uma entrada no seu feed: você recebe um código aqui, adiciona como podcast:txt no canal do seu feed e nós verificamos. Depois disso, seu podcast aparece como “verificado” no SoundNode.

Configurações

Exibição

Idioma

Define quais estações você vê primeiro na página inicial.

Histórico

As rádios e episódios ouvidos recentemente e suas últimas buscas ficam só neste navegador.

Avisos

Um aviso rápido quando um podcast que você segue tem um episódio novo. Desative podcasts individuais pelo sino na página deles.

Conta

Salve favoritos – no app e no site.

Atalhos de teclado

/
Abrir busca
Espaço
Reproduzir ou pausar
← →
No player: voltar 15 s, avançar 30 s (episódios) · na fileira: próximo bloco
↑ ↓
Na fileira: alvo dentro do bloco
Home / End
Na fileira: primeiro ou último bloco
Esc
Fechar janela ou menu
?
Esta visão geral
Tocando agora

Ir para a estação

A seguir

    Adicione episódios com “A seguir” – eles tocam depois do episódio atual.