
Lokaðu hringnum er leyndarmálið á bakvið framúrskarandi viðskiptavinaupplifun (CX)
Notas do episódio
Hvers vegna eru sum fyrirtæki mun betri en önnur í að halda í viðskiptavini sína?
Í þessum þætti ræði ég við Kára Þór Rúnarsson, stofnanda og framkvæmdastjóra Brilliant, um upplifun viðskiptavina á fyrirtækjamarkaði (B2B) og hvers vegna hún er orðin einn mikilvægasti samkeppnisþáttur fyrirtækja sem vilja vera í fremstu röð.
Við ræðum meðal annars:
- Hvers vegna fyrirtækjamarkaður og neytendamarkaður krefjast ólíkrar nálgunar
- Af hverju NPS segir of aðeins hluta sögunnar
- Hvernig fyrirtæki geta minnkað brottfall viðskiptavina
- Customer Lifetime Value og aðra lykilmælikvarða sem skipa máli
- Hvers vegna flest fyrirtæki safna gögnum án þess að nýta þau
- Hvað felst hugtakinu "Closing the Loop"
- Hvernig gervigreind getur stutt við betri viðskiptavinaupplifun
- Stöðu viðskiptavinaupplifunar á Íslandi samkvæmt nýjustu rannsóknum
Kári deilir einnig hagnýtum ráðum um hvernig fyrirtæki geta byggt upp markvissa stefnu í upplifun viðskiptavina og tengt hana beint við tekjur, tryggð og langtímaárangur.
Þáttur fyrir stjórnendur, markaðsfólk, sölufólk og alla sem vilja byggja upp sterkari og arðbærari viðskiptasambönd.