Pular para o conteúdo
Íþróttanæring með Nutreleat
PodcastEsportesIS

Íþróttanæring með Nutreleat

Novo26. Kolvetnainntaka við þjálfun, er hún komin útí öfgar?19 de outubro de 2026 · 58 min
Episódios
27
Publicação
quinzenal
Último episódio
19 out 2026

Sobre o podcast

Hlaðvarp þar sem farið er yfir hin ýmsu málefni í tengslum við íþróttanæringu, íþróttir og þjálfun.

Episódios 27

  1. 26. Kolvetnainntaka við þjálfun, er hún komin útí öfgar?

    58 min

    Í þessum þætti spyrjum við einfaldrar en mikilvægrar spurningar: er kolvetnainntaka við þjálfun komin út í öfgar?Hingað til hafa opinberar ráðleggingar legið á bilinu 30-90 g kolvetni á klukkustund. Í dag …

    Notas do episódio

    Í þessum þætti spyrjum við einfaldrar en mikilvægrar spurningar: er kolvetnainntaka við þjálfun komin út í öfgar?

    Hingað til hafa opinberar ráðleggingar legið á bilinu 30-90 g kolvetni á klukkustund. Í dag heyrum við af íþróttafólki sem tekur inn 120 g og jafnvel 150-200 g á klukkustund.

    Til að svara spurningunni förum við yfir nýja yfirlitsgrein, „From Metabolism to Medals“ eftir Morton og félaga, sem birtist í The Journal of Nutrition árið 2026. Við skoðum hvað núverandi ráðleggingar segja, sem eru allt að 90 g á klukkustund, og hvort efri mörkin gætu verið nær 120 g á klukkustund, að minnsta kosti hjá vel þjálfuðu íþróttafólki.

    Svo spyrjum við hvort hæstu tölurnar sem sjást í dag eigi stoð í rannsóknum eða séu meira trend en vísindi. Við ræðum líka hvaða máli blanda glúkósa og frúktósa skiptir, hvort betra sé að nota drykki, gel eða annað, og hvernig hægt er að þjálfa meltingarveginn til að þola meira.

    Mikilvæg hlustun fyrir iðkendur á öllum aldri, foreldra og þjálfara sem vilja vita hvort þeir eigi að elta tölurnar sem sjást hjá atvinnufólkinu, eða hvað hentar í raun.

    Hlekk á Nutreleat appið er að finna hér en þú getur sótt það og prófað frítt án nokkurrar skuldbindingar:

    https://www.nutreleat.is/app

    Við minnum á að stofnmeðlimakjörin okkar sem gefa þér 28% afslátt af báðum áskriftarleiðum hjá okkur gilda til miðnættis 1. nóvember.

    Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn, við viljum endilega heyra hvað þér finnst!

    Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) eða TikTok ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður.

    Vonum að þú njótir.

    -Nutreleat teymið.

  2. 25. Sigríður Björnsdóttir, innkirtla- & efnaskiptalæknir: Beinmeiðsli, næring og hormón

    1 h 1 min

    Í þessum þætti fáum við til okkar hana Sigríði Björnsdóttur, innkirtla- og efnaskiptalækni hjá Heilsuklasanum. Sigríður starfaði um árabil sem sérfræðingur á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi og hefur unnið …

    Notas do episódio

    Í þessum þætti fáum við til okkar hana Sigríði Björnsdóttur, innkirtla- og efnaskiptalækni hjá Heilsuklasanum. Sigríður starfaði um árabil sem sérfræðingur á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi og hefur unnið með fjölda einstaklinga með beinþynningu. Hún stofnaði jafnframt vefinn beinheilsa.is, sem hefur það að markmiði að gera fræðslu um beinheilsu aðgengilega á íslensku.

    Í þættinum ræðir Sigríður um beinmeiðsli meðal íþróttafólks, en slíkum tilfellum hefur farið fjölgandi á hennar borði. Hún útskýrir hvernig beinin bregðast við þjálfun og álagi, hvað getur legið að baki þegar þau gefa sig og hvers vegna skiptir máli að bregðast við í tæka tíð.

    Þá fer Sigríður yfir hvernig næring og æfingaálag hafa áhrif á hormónakerfið okkar, og hvernig það samspil getur ýmist styrkt beinin eða veikt þau, bæði til skemmri og lengri tíma.

    Virkilega fræðandi þáttur og mikilvæg hlustun fyrir iðkendur á öllum aldri, foreldra og þjálfara.

    Nutreleat appið er loksins komið út og er akkúrat núna hægt að hlaða því niður og prófa frítt í 30 daga. En það hjálpar þér að innleiða og viðhalda tímabilaskiptri næringu samhliða þinni þjálfun: https://www.nutreleat.is/app

    Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn – við viljum endilega heyra hvað þér finnst!

    Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) eða TikTok ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður.

    Vonum að þú njótir,

    -Nutreleat teymið.

  3. 24. Tímabilaskipt næring fyrir íþróttafólk

    53 min

    Í þessum þætti fjöllum við um tímabilaskiptar áherslur í næringu fyrir íþróttafólk, í hverju þær raunverulega felast, hversu breytilegir æfingadagar geta verið með tilliti til orku- og orkuefnaþarfar og hvaða …

    Notas do episódio

    Í þessum þætti fjöllum við um tímabilaskiptar áherslur í næringu fyrir íþróttafólk, í hverju þær raunverulega felast, hversu breytilegir æfingadagar geta verið með tilliti til orku- og orkuefnaþarfar og hvaða praktísku atriði þarf að hafa í huga.

    Við förum yfir hvernig hvíldardagar, miðlungserfiðir dagar og erfiðir æfingadagar kalla á ólíka nálgun í næringu, og hvernig hægt er að skipuleggja næringarinntöku útfrá æfingaálagi til að hámarka orku, afköst og endurheimt. Við ræðum líka hvernig fyrirsjáanleiki og skipulag í næringu getur sparað tíma og dregið úr óvissu hjá íþróttafólki sem er að reyna að ná betri árangri.

    Í þættinum snertum við einnig á eiginleikum í Nutreleat appinu og hvernig hægt er að nýta þá til að fá sem mest útúr íþróttanæringunni.

    Mikilvæg hlustun fyrir iðkendur á öllum aldri, foreldra og þjálfara sem vilja skilja betur hvernig næring og æfingaálag spila saman.

    Hlekk á appið er að finna hér en þú getur sótt það og prófað frítt án nokkurrar skuldbindingar:

    https://www.nutreleat.is/app

    Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega heyra hvað þér finnst!

    Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) eða TikTok ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður.

    Vonum að þú njótir.

    -Nutreleat teymið

  4. 23. Anton Sveinn McKee, fjórfaldur Ólympíufari í sundi

    1 h 20 min

    Í þessum þætti fáum við til okkar hann Anton Svein McKee, fyrrverandi landsliðsmann Íslands í sundi og fjórfaldan Ólympíufara. Anton ræðir af einlægni um sundferilinn, sem spannaði yfir áratug á …

    Notas do episódio

    Í þessum þætti fáum við til okkar hann Anton Svein McKee, fyrrverandi landsliðsmann Íslands í sundi og fjórfaldan Ólympíufara. Anton ræðir af einlægni um sundferilinn, sem spannaði yfir áratug á heimsmælikvarða, og flutninginn til Bandaríkjanna þar sem hann hóf nám og æfingar við Alabama-háskóla árið 2013.

    Hann segir frá reynslu sinni af atvinnumannalífinu úti, þeim áskorunum og tækifærum sem fylgdu því að æfa og keppa fjarri heimahögunum, og hvernig hann byggði upp þann feril sem gerði hann að einum farsælasta sundmanni Íslandssögunnar.

    Þá fer Anton yfir undirbúninginn fyrir Ólympíuleikana, andlegan og líkamlegan ásamt því að deila sinni nálgun á næringu og hvernig hún studdi við æfingaálagið á hverju tímabili fyrir sig.

    Mikilvæg hlustun fyrir iðkendur á öllum aldri og foreldra.

    Nutreleat appið er LOKSINS komið út og er því hægt að hlaða því niður og prófa frítt í 30 daga. Það hjálpar þér að innleiða og viðhalda tímabilaskiptri næringu samhliða þinni þjálfun:

    https://www.nutreleat.is/app

    Hlekk á 6 vikna netnámskeiðið okkar er að finna hér, og við minnum á afsláttarkóðann Nutreleat15 sem veitir 15% afslátt við skráningu:
    ⁠https://www.nutreleat.is/leggdu-grunninn-ad-thinni-ithrottanaeringu⁠

    Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega heyra hvað þér finnst!

    Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) eða TikTok ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður.

    Vonum að þú njótir.

    -Nutreleat teymið

  5. 22. Heilaskaði í íþróttum & næringartengdar áherslur

    56 min

    Í þessum þætti fjöllum við um heilaskaða í íþróttum, viðfangsefni sem á sannarlega erindi við allt íþróttafólk, foreldra og þjálfara óháð aldri og getustigi.Við förum yfir hvaða áhrif heilaskaði hefur á heilann …

    Notas do episódio

    Í þessum þætti fjöllum við um heilaskaða í íþróttum, viðfangsefni sem á sannarlega erindi við allt íþróttafólk, foreldra og þjálfara óháð aldri og getustigi.

    Við förum yfir hvaða áhrif heilaskaði hefur á heilann og starfsemi hans, og hvaða áhrif þessar breytingar geta haft á næringartengdar áherslur í fræðilegu samhengi. Við skoðum einnig hvar þekkingu skortir enn í dag og hvað þarf að rannsaka betur þegar kemur að samspili heilaskaða og næringar.

    Hlekk á 6 vikna netnámskeiðið okkar er að finna hér, og við minnum á afsláttarkóðann Nutreleat15 sem veitir 15% afslátt við skráningu:
    ⁠https://www.nutreleat.is/leggdu-grunninn-ad-thinni-ithrottanaeringu⁠⁠

    Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega heyra hvað þér finnst!

    Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) eða TikTok ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður.

    Vonum að þú njótir.

    -Nutreleat teymið

  6. 21. Þegar aginn verður að þráhyggju: Átraskanir í íþróttum

    59 min

    Í þessum þætti fjöllum við um átraskanir í íþróttum, efni sem stendur okkur sérstaklega nærri, þar sem Lilja glímdi sjálf við raskaðar fæðuvenjur og óheilbrigt samband við mat á sínum dansferli og er þátturinn …

    Notas do episódio

    Í þessum þætti fjöllum við um átraskanir í íþróttum, efni sem stendur okkur sérstaklega nærri, þar sem Lilja glímdi sjálf við raskaðar fæðuvenjur og óheilbrigt samband við mat á sínum dansferli og er þátturinn því á persónulegri nótunum en oft áður.

    Við förum yfir hvort ástæðurnar á bakvið átröskun hjá íþróttafólki séu í eðli sínu ólíkar þeim sem liggja að baki átröskunum hjá almenningi. Við förum einnig yfir mismunandi tegundir átraskana og ræðum hvað er hægt að gera - bæði þegar kemur að forvörnum, en einnig til að búa til styðjandi umhverfi fyrir þau sem eru að glíma við raskaðar fæðuvenjur og jafnvel átraskanir.

    Mikilvæg hlustun fyrir iðkendur á öllum aldri, foreldra og þjálfara.

    Hlekk á 6 vikna netnámskeiðið okkar er að finna hér, og við minnum á afsláttarkóðann Nutreleat15 sem veitir 15% afslátt við skráningu:

    https://www.nutreleat.is/leggdu-grunninn-ad-thinni-ithrottanaeringu⁠

    Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega heyra hvað þér finnst!

    Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) eða TikTok ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður.

    Vonum að þú njótir.

    -Nutreleat teymið

  7. 20. Kolvetnaneysla & beinheilsa, rannsóknar deep-dive

    1 h 2 min

    Við tölum oft um kolvetni eingöngu út frá orku og afköstum; eldsneytið sem heldur okkur gangandi á erfiðu eða löngu æfingunum. En það er hlið á kolvetnaneyslu sem fær sjaldnar athygli - tengslin við beinheilsu …

    Notas do episódio

    Við tölum oft um kolvetni eingöngu út frá orku og afköstum; eldsneytið sem heldur okkur gangandi á erfiðu eða löngu æfingunum. En það er hlið á kolvetnaneyslu sem fær sjaldnar athygli - tengslin við beinheilsu. Og þar leynist ýmislegt sem kemur á óvart.

    Í þessum þætti förum við á dýpið í rannsókn sem skoðar akkúrat þetta: Beineyðingu og beinmyndun, markera sem tengjast þessum þáttum og hvað þetta þýðir allt saman. Einnig skoðum við þetta í samhengi við æfingar og næringu - og þá sérstaklega í tengslum við kolvetnainntöku.

    Fyrir áhugasama er greinina að finna hér:

    https://pmc.ncbi.nlm.nih.gov/articles/PMC11569010/

    Hlekkinn á 6 vikna netnámskeiðið okkar má finna hér (og við minnum á kóðann Nutreleat15 fyrir 15% afslátt við skráningu):

    https://www.nutreleat.is/leggdu-grunninn-ad-thinni-ithrottanaeringu

    Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega heyra hvað þér finnst!

    Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður.

    Vonum að þú njótir.

    - Nutreleat teymið

  8. 19. Birna Kristín Kristjánsdóttir, landsliðskona í frjálsum: Áskoranir, sigrar & allt þar á milli

    60 min

    Í þessum þætti fáum við til okkar Birnu Kristínu Kristjánsdóttur, landsliðskonu í frjálsum íþróttum. Birna ræðir af einlægni um óheilbrigt samband við mat og líkamsímynd, ásamt öðrum áskorunum sem hún hefur …

    Notas do episódio

    Í þessum þætti fáum við til okkar Birnu Kristínu Kristjánsdóttur, landsliðskonu í frjálsum íþróttum. Birna ræðir af einlægni um óheilbrigt samband við mat og líkamsímynd, ásamt öðrum áskorunum sem hún hefur mætt á ferlinum.

    Hún segir frá reynslu sinni af atvinnumannalífinu á Ítalíu og sigrinum á Smáþjóðaleikunum, sem hún vann aðeins 22 ára gömul. Þá deilir hún því hvernig henni tókst að færa hugarfarið frá þeirri hugmynd að hún þyrfti að vera grennri yfir í að nærast í takt við æfingaálag og setja frammistöðu í forgang fram yfir útlit. Birna fer einnig yfir undirbúningsrútínuna sína fyrir keppnir og gefur öðru íþróttafólki dýrmæt ráð.

    Mikilvæg hlustun fyrir iðkendur á öllum aldri og foreldra.

    Hlekk á 6 vikna netnámskeiðið okkar er að finna hér, og við minnum á afsláttarkóðann Nutreleat15 sem veitir 15% afslátt við skráningu:

    https://www.nutreleat.is/leggdu-grunninn-ad-thinni-ithrottanaeringu

    Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega heyra hvað þér finnst!

    Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) eða TikTok ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður.

    Vonum að þú njótir.

    - Nutreleat teymið

  9. 18. Aukið æfingaálag & breyttar áherslur - er næringin að sitja á hakanum?

    55 min

    Sumarið er loksins komið og með því hellist hreyfigleðin yfirmarga sem ætla heldur betur að rífa sig í gang. En þótt margt sé jákvætt við það er líka að ýmsu að huga í þessu samhengi.Í þessum þætti förum yfir …

    Notas do episódio

    Sumarið er loksins komið og með því hellist hreyfigleðin yfirmarga sem ætla heldur betur að rífa sig í gang. En þótt margt sé jákvætt við það er líka að ýmsu að huga í þessu samhengi.

    Í þessum þætti förum yfir algengustu mistökin sem fólk gerirþegar fólk fer úr því að æfa lítið (eða jafnvel kyrrsetu) og yfir í meira æfingaálag: vanmeta eigið form, elta þá bestu, leita skyndilausna í fæðubótarefnum, óttast kolvetni að óþörfu, og mæta í maraþon án þess að hafa nokkurn tíma prófað orkugel. Við ræðum einnig ofþjálfunarheilkenni og REDs, hvernigá að þekkja einkennin og hvað næringin hefur með málið að gera.

    Hlekkinn á 6 vikna netnámskeiðið okkar má finna hér (og viðminnum á kóðann Nutreleat15 fyrir 15% afslátt af skráningargjaldi):

    https://www.nutreleat.is/leggdu-grunninn-ad-thinni-ithrottanaeringu

    Grafið sem við förum yfir þegar fer að líða á seinni hlutaþáttarins má finna hér:

    https://www.mysportscience.com/post/2015/04/10/higher-carbohydrate-intake-reduces-overtraining-symptoms

    Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eðagefa einkunn - við viljum endilega heyra hvað þér finnst!

    Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður.

    Vonum að þú njótir.

    - Nutreleat teymið

  10. 17. Peptíð: Kraftaverk eða markaðshype?

    48 minTemporada 2 · Episódio 2

    Peptíð eru úti um allt þessa dagana, í snyrtivörum, fæðubótarefnum og á samfélagsmiðlum þar sem þau eru sögð gera ýmislegt - allt frá því að byggja upp vöðva og að því að snúa við öldrun. En hvað eru peptíð í …

    Notas do episódio

    Peptíð eru úti um allt þessa dagana, í snyrtivörum, fæðubótarefnum og á samfélagsmiðlum þar sem þau eru sögð gera ýmislegt - allt frá því að byggja upp vöðva og að því að snúa við öldrun. En hvað eru peptíð í raun og veru, og standast loforðin?

    Í þessum þætti köfum við ofan í hvað peptíð eru, hvernig þau virka í líkamanum og hvort þau séu örugg til inntöku. Við skoðum þau líka sérstaklega í samhengi við íþróttir og íþróttafólk, hvað vísindin segja og hvar mörkin liggja.

    Nú er heldur betur farið að styttast í útgáfu á appinu sem hefur verið í þróun á bak við tjöldin. Það er sérstaklega hannað fyrir íþróttafólk sem vill tryggja að það sé að nærast í takt við þarfir til að hámarka frammistöðu. Við viljum gefa hlustendum hlaðvarpsins forskot á sæluna og tækifæri til að gerast stofnmeðlimir þegar appið kemur út. Allir stofnmeðlimir geta nælt sér í aðgang á okkar bestu kjörum með því að skrá sig á póstlistann okkar:

    https://www.nutreleat.is/ntrlt-postlisti

    Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn – við viljum endilega heyra hvað þér finnst! Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður. Vonum að þú njótir.

    - Nutreleat teymið

  11. 16. Hvað gerðist? Síðustu mánuðir, hlaðvarpslægð & appróun

    46 minTemporada 2 · Episódio 1

    Í þessum þætti förum við yfir af hverju við höfum ekki gefið út hlaðvarpsþátt í að verða ár, hvað við erum búin að vera að gera og hvað er framundan í þessari hlaðvarpsseríu. Einnig förum við aðeins yfir …

    Notas do episódio
    Í þessum þætti förum við yfir af hverju við höfum ekki gefið út hlaðvarpsþátt í að verða ár, hvað við erum búin að vera að gera og hvað er framundan í þessari hlaðvarpsseríu. Einnig förum við aðeins yfir appþróun sem er búin að vera í gangi síðustu árin, erfiðleika sem hafa komið upp í ferlinu og eiginleika sem verða til staðar í appinu. …
  12. 15. Gæði rannsókna & pseudoscience

    1 h 9 min

    Í þessum þætti tökum við fyrir gæði rannsókna og pseudoscience. Eins komum við inná mýtur sem hafa orðið til útfrá rangri túlkun á rannsóknum. Við vonum að hann hjálpi þér að öðlast betra vísinda- og …

    Notas do episódio
    Í þessum þætti tökum við fyrir gæði rannsókna og pseudoscience. Eins komum við inná mýtur sem hafa orðið til útfrá rangri túlkun á rannsóknum. Við vonum að hann hjálpi þér að öðlast betra vísinda- og næringarlæsi, ásamt því að átta þig betur hvaða upplýsingar um (íþrótta)næringu eru traustvekjandi og hvers konar upplýsingar ber að varast. Hér eru hlekkir á hlutina sem við ræddum í þættinum: Instagram reikningur dr. …
  13. 14. Doping áhættur í íþróttum & leiðir til að minnka líkur á þeim

    52 min

    Í þessum þætti tökum við fyrir doping áhættur í íþróttum, hvað þær fela í sér og hvaða afleiðingar þær geta haft. Þá ætlum við einnig að fara yfir hvernig hægt sé að minnka líkur á því að fremja slík brot. Við …

    Notas do episódio
    Í þessum þætti tökum við fyrir doping áhættur í íþróttum, hvað þær fela í sér og hvaða afleiðingar þær geta haft. Þá ætlum við einnig að fara yfir hvernig hægt sé að minnka líkur á því að fremja slík brot. Við vekjum athygli á því að eftir smá bið erum við loksins búin að opna aftur fyrir skráningar á grunnnámskeiðið okkar ‘Leggðu grunninn að þinni íþróttanæringu’. Næsti hópur fer af stað 11. Júní og verður þetta jafnframt SÍÐASTI hópur þessa árs. …
  14. 13. Algeng & dýrkeypt næringartengd mistök sem við sjáum íþróttafólk gera

    51 min

    Í þessum þætti tökum við fyrir algeng mistök sem við sjáum íþróttafólk gera og hvaða afleiðingar þau geta haft í för með sér. Við fengum líka álit frá sérfræðingum erlendis varðandi mistök sem þau sjá oft í …

    Notas do episódio
    Í þessum þætti tökum við fyrir algeng mistök sem við sjáum íþróttafólk gera og hvaða afleiðingar þau geta haft í för með sér. Við fengum líka álit frá sérfræðingum erlendis varðandi mistök sem þau sjá oft í sinni vinnu. Við erum því miður búin að loka fyrir skráningar í einstaklingsmiðaða íþróttanæringarráðgjöf fram til júní og mögulega fram til næsta hausts. …
  15. 12. Örþáttur: Beta alanín - hvernig virkar það, hvað sýna rannsóknir & fyrir hverja er það?

    20 min

    Í þessum örþætti tökum við fyrir efni sem færri kannast e.t.v. við, samanborið við kreatín - en það er afkastaaukandi fæðubótarefnið beta alanin. Í þættinum fer Arnar Sölvi yfir virkni þess í líkamanum, í hvaða …

    Notas do episódio
    Í þessum örþætti tökum við fyrir efni sem færri kannast e.t.v. við, samanborið við kreatín - en það er afkastaaukandi fæðubótarefnið beta alanin. Í þættinum fer Arnar Sölvi yfir virkni þess í líkamanum, í hvaða aðstæðum það gæti gagnast, hvað rannsóknir sýna þegar kemur að áhrifum og hvort það sér öruggt til inntöku. …
  16. 11. Birna Varðardóttir: Hlutfallslegur orkuskortur í íþróttum & áhrif á frammistöðu og heilsu íþróttafólks

    60 min

    Í þessum þætti fengum við hana Birnu Varðardóttur, doktor í íþrótta- & heilsufræðum, til okkar til að ræða um hlutfallslegan orkuskort í íþróttum, hvaða áhrif hann getur haft á frammistöðu og heilsu …

    Notas do episódio
    Í þessum þætti fengum við hana Birnu Varðardóttur, doktor í íþrótta- & heilsufræðum, til okkar til að ræða um hlutfallslegan orkuskort í íþróttum, hvaða áhrif hann getur haft á frammistöðu og heilsu íþróttafólks, rauð flögg sem iðkendur, þjálfarar og fagaðilar sem vinna með íþróttafólki þurfa að vera meðvitaðir um og hvaða skref er hægt að taka til að leiðrétta ástandið. …
  17. 10. Intra nutrition (næring við þjálfun) - hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að inntöku, tegund og magni?

    44 min

    Í þessum þætti tökum við fyrir næringu við þjálfun eða intra nutrition - og skoðum hvernig það getur haft áhrif á frammistöðu, hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að inntöku og nokkrar mýtur í tengslum við …

    Notas do episódio
    Í þessum þætti tökum við fyrir næringu við þjálfun eða intra nutrition - og skoðum hvernig það getur haft áhrif á frammistöðu, hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að inntöku og nokkrar mýtur í tengslum við þetta viðfangsefni. Ef þú stundar þína íþrótt af kappi og ert tilbúin/n/ð til að taka þína íþróttanæringu uppá næsta level geturðu lesið meira um okkar þjónustu inná www.nutreleat.is Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega fá þitt…
  18. 09. Örþáttur: Kreatín - hvernig virkar það, hvað sýna rannsóknir & er það öruggt til inntöku?

    22 min

    Í þessum örþætti tökum við fyrir efni sem mörg eru farin að kannast við - en það er einmitt afkastaaukandi fæðubótarefnið kreatín. Í þættinum fer Arnar Sölvi yfir virkni þess í líkamanum, í hvaða aðstæðum það …

    Notas do episódio
    Í þessum örþætti tökum við fyrir efni sem mörg eru farin að kannast við - en það er einmitt afkastaaukandi fæðubótarefnið kreatín. Í þættinum fer Arnar Sölvi yfir virkni þess í líkamanum, í hvaða aðstæðum það gæti gagnast, hvað rannsóknir sýna þegar kemur að áhrifum og hvort það sér öruggt til inntöku. En þetta eru einmitt spurningar sem brenna á mörgum og við fáum oft spurningar varðandi. …
  19. 08. Hafrún Rakel Halldórsdóttir, landsliðs- & atvinnukona í knattspyrnu

    55 min

    Í þessum þætti tökum við skemmtilegt og einlægt spjall við Hafrúnu Rakel Halldórsdóttur, landsliðs- og atvinnukonu í fótbolta, þar sem við förum aðeins yfir boltann og lífið, hvernig það var að skipta úr …

    Notas do episódio
    Í þessum þætti tökum við skemmtilegt og einlægt spjall við Hafrúnu Rakel Halldórsdóttur, landsliðs- og atvinnukonu í fótbolta, þar sem við förum aðeins yfir boltann og lífið, hvernig það var að skipta úr uppeldisfélaginu, fá kallið inní landsliðið og flytja milli landa þegar hún fór yfir til Brøndby. Hún deilir einnig með hlustendum hvernig hún undirbýr sig fyrir leik og fer þar m.a. yfir næringuna og hugarfarið ásamt því að gefa yngri iðkendum nokkur ráð. …
  20. 07. Þarf íþróttafólk fæðubótarefni eða er matur nóg?

    43 min

    Í þessum þætti tökum við fyrir viðfangsefni sem snýr að fæðubótarefnum fyrir íþróttafólk - hvort að það sé eitthvað sem íþróttafólk þarf að huga að almennt eða hvort matur sé einfaldlega nóg. En þetta er …

    Notas do episódio
    Í þessum þætti tökum við fyrir viðfangsefni sem snýr að fæðubótarefnum fyrir íþróttafólk - hvort að það sé eitthvað sem íþróttafólk þarf að huga að almennt eða hvort matur sé einfaldlega nóg. En þetta er einmitt viðfangsefni sem brennur á mörgum og við fáum oft spurningar varðandi. …
  21. 06. Örþáttur: Næring ungmenna í íþróttum

    18 min

    Viðfangsefnið sem við tökum fyrir í þessum þætti er íþróttanæring ungmenna, hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að þessum hópi og hvað foreldrar, þjálfarar og samfélagið í heild sinni getur gert til að styðja …

    Notas do episódio
    Viðfangsefnið sem við tökum fyrir í þessum þætti er íþróttanæring ungmenna, hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að þessum hópi og hvað foreldrar, þjálfarar og samfélagið í heild sinni getur gert til að styðja sem best við okkar upprennandi íþróttafólk. Ef þú stundar þína íþrótt af kappi og ert tilbúin/n/ð til að taka þína íþróttanæringu uppá næsta level geturðu lesið meira um okkar þjónustu inná www.nutreleat.is Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við…
  22. 05. Orku- & kolvetnainntaka, glýkógenbirgðir, frammistaða & bati frá meiðslum

    48 min

    Í þessum þætti förum við um víðan völl en rauði þráðurinn í gegnum þáttinn verður orku- og kolvetnainntaka með áherslu á hvernig það skilar sér í frammistöðu, bæði það sem við sjáum í praktík og það sem við …

    Notas do episódio
    Í þessum þætti förum við um víðan völl en rauði þráðurinn í gegnum þáttinn verður orku- og kolvetnainntaka með áherslu á hvernig það skilar sér í frammistöðu, bæði það sem við sjáum í praktík og það sem við sjáum í rannsóknum. En við munum einmitt fara yfir nokkrar vel valdar rannsóknir sem skoða þessa þætti - slóðina á þær finnurðu hér: https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC7891450/pdf/TJP-599-771.pdf https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/31034244/ https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/24458224/…
  23. 04. Calories in vs. calories out - skiptir það máli í tengslum við fitutap?

    1 h 5 min

    Í þessum þætti fjöllum við um grundvallaratriðin í tengslum við 'calories in vs. calories out' og af hverju þessi jafna er ekki eins einföld og mörg virðast halda. Við förum yfir þá margvíslegu þætti sem hafa …

    Notas do episódio
    Í þessum þætti fjöllum við um grundvallaratriðin í tengslum við 'calories in vs. calories out' og af hverju þessi jafna er ekki eins einföld og mörg virðast halda. Við förum yfir þá margvíslegu þætti sem hafa áhrif á þetta jafnvægi, á borð við innri homeostatic drivera sem og ytri áhrif. Mörg vanmeta hvernig þessir þættir hafa áhrif á þetta jafnvægi. …
  24. 03. Líkamssamsetning íþróttafólks & frammistaða

    44 min

    Í viðræðum við íþróttafólk, þjálfara og bara almennt í samfélagslegri umræðu verður maður oft var við þungan sem settur er á líkamssamsetningu og þá sérstaklega fituprósentu íþróttafólks. Í þessum þætti ætlum …

    Notas do episódio
    Í viðræðum við íþróttafólk, þjálfara og bara almennt í samfélagslegri umræðu verður maður oft var við þungan sem settur er á líkamssamsetningu og þá sérstaklega fituprósentu íþróttafólks. Í þessum þætti ætlum við að velta upp þeirri spurningu hvort það sé til eitthvað ideal viðmið þegar kemur að likamssamsetningu, fituprósentu eða þyngd íþróttafólks. …
  25. 02. Periodized nutrition & þjálfunaraðlögun

    46 min

    Aðlögun í kjölfar æfinga eða þjálfunar ákvarðast af blöndu mismunandi þátta, en þar má nefna lengd, ákefð og tegund æfinga ásamt því hversu oft við æfum. En mikilvægur þáttur sem spilar þarna inní jöfnuna er …

    Notas do episódio
    Aðlögun í kjölfar æfinga eða þjálfunar ákvarðast af blöndu mismunandi þátta, en þar má nefna lengd, ákefð og tegund æfinga ásamt því hversu oft við æfum. En mikilvægur þáttur sem spilar þarna inní jöfnuna er magn og gæði næringar. Með aukinni tilkomu rannsókna á sviði íþróttanæringar er alltaf að koma betur í ljós hversu mikil áhrif næringarinntaka getur haft á þjálfunaraðlögun – og þá annaðhvort aukið hana eða dregið úr henni. …
  26. 01. Enski draumurinn & íþróttanæringarfræðingar

    46 min

    Í þessum þætti förum við aðeins yfir okkar bakgrunn, reynslu og menntun ásamt því að skyggnast aðeins inní strúktúrinn í kringum íþróttafólk erlendis, og þá kannski sérstaklega í Englandi. Einnig förum við …

    Notas do episódio
    Í þessum þætti förum við aðeins yfir okkar bakgrunn, reynslu og menntun ásamt því að skyggnast aðeins inní strúktúrinn í kringum íþróttafólk erlendis, og þá kannski sérstaklega í Englandi. Einnig förum við aðeins yfir hlutverk íþróttanæringarfræðinga, hvernig við vinnum, markmið okkar með starfinu og okkar stóra mission hér heima þegar kemur að íþróttanæringu. …
  27. Pilot þáttur - Kolvetnahræðsla & íþróttafólk

    18 min

    Undanfarin ár hefur borið mikið á kolvetnaumræðu í tengslum við íþróttir og þjálfun. Í okkar starfi sem íþróttanæringarfræðingar höfum við nefnilega orðið vör við hvað þessi umræða hefur haft mikil áhrif á það …

    Notas do episódio
    Undanfarin ár hefur borið mikið á kolvetnaumræðu í tengslum við íþróttir og þjálfun. Í okkar starfi sem íþróttanæringarfræðingar höfum við nefnilega orðið vör við hvað þessi umræða hefur haft mikil áhrif á það íþróttafólk sem kemur til okkar og skapað mikla hræðslu í tengslum við kolvetnarík matvæli. …
Este podcast é seu?

Confirme com uma entrada no seu feed: você recebe um código aqui, adiciona como podcast:txt no canal do seu feed e nós verificamos. Depois disso, seu podcast aparece como “verificado” no SoundNode.

Configurações

Exibição

Idioma

Define quais estações você vê primeiro na página inicial.

Histórico

As rádios e episódios ouvidos recentemente e suas últimas buscas ficam só neste navegador.

Avisos

Um aviso rápido quando um podcast que você segue tem um episódio novo. Desative podcasts individuais pelo sino na página deles.

Conta

Salve favoritos – no app e no site.

Atalhos de teclado

/
Abrir busca
Espaço
Reproduzir ou pausar
← →
No player: voltar 15 s, avançar 30 s (episódios) · na fileira: próximo bloco
↑ ↓
Na fileira: alvo dentro do bloco
Home / End
Na fileira: primeiro ou último bloco
Esc
Fechar janela ou menu
?
Esta visão geral
Tocando agora

Ir para a estação

A seguir

    Adicione episódios com “A seguir” – eles tocam depois do episódio atual.