Pular para o conteúdo
Landspítali hlaðvarp
PodcastIS

Landspítali hlaðvarp

NovoSkurðvarpið // Vökvameðferðir - Martin Ingi Sigurðsson25 de novembro de 2026 · 51 min
Episódios
110
Publicação
mensal
Último episódio
25 nov 2026

Sobre o podcast

Viðtöl um ýmis málefni sem tengjast heilbrigðismálum, starfsemi og mannauði Landspítala

Episódios 110

  1. Skurðvarpið // Vökvameðferðir - Martin Ingi Sigurðsson

    51 minEpisódio 93

    Efni þessa þáttar snýst um vökvameðferðir sjúklinga í bráðum veikindum og í tengslum við skurðaðgerðir. Martin Ingi Sigurðsson yfirlæknir á svæfingu- og gjörgæsludeild Landspítala.Skurðvarpið er hlaðvarp félags …

    Notas do episódio

    Efni þessa þáttar snýst um vökvameðferðir sjúklinga í bráðum veikindum og í tengslum við skurðaðgerðir. Martin Ingi Sigurðsson yfirlæknir á svæfingu- og gjörgæsludeild Landspítala.
    Skurðvarpið er hlaðvarp félags áhugamanna um skurðlækningar. Umsjón með þættinum er í höndum þeirra Viktors Ásbjörnssonar, 6 læknaársnema við HÍ og Luis Gísli Rabelo læknakandídat. Hlaðvarpið er aðallega hugsað fyrir klíníska læknanema en eflaust hafa fleiri gagn og gaman að því.

  2. Skurðvarpið//Elsa Valsdóttir

    58 minEpisódio 92

    Velkomin í fyrsta þátt Skurðvarpsins sem er hlaðvarp á vegum Félags Áhugamanna um Skurðlækningar. Í hlaðvarpinu fáum við til okkar sérfræðinga til að ræða fjölbreytt og hagnýt klínísk viðfangsefni með áherslu á …

    Notas do episódio

    Velkomin í fyrsta þátt Skurðvarpsins sem er hlaðvarp á vegum Félags Áhugamanna um Skurðlækningar. Í hlaðvarpinu fáum við til okkar sérfræðinga til að ræða fjölbreytt og hagnýt klínísk viðfangsefni með áherslu á skurðlækningar og perioperative ferlið. 

    Stofnendur þáttarins eru Luis Gísli Rabelo, sérnámsgrunnslæknir, og Viktor Ásbjörnsson, 6. árs læknanemi.

    Í þessum þætti ræðum við akút abdomen og peritonitis út frá klínísku tilfelli með Elsu Valsdóttur, kviðarholsskurðlækni. Við förum yfir hvernig á að nálgast sjúkling með kviðverki, hvað skiptir máli í sögu og skoðun, fyrstu skref í meðferð og uppvinnslu, og hvenær skurðaðgerð kemur til greina. Hlaðvarpið er aðallega hugsað fyrir klíníska læknanema en eflaust hafa fleiri gagn og gaman að því.

    Skurðvarpið er hlaðvarp Félags áhugamanna um skurðlækningar (FÁS). Við fáum til okkar skurðlækna úr öllum greinum skurðlæknisfræðinnar og ræðum við þau um klínísk tilfelli, uppvinnslu og meðferð. Við reynum að gera þáttinn skemmtilegann með því að tengja viðfangsefnið við tilfelli. Þátturinn er hugsaður aðallega fyrir klíníska læknanema.

  3. Legvarpið // Trans fólk og barneignir með Alexander

    42 minEpisódio 91

    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins að þessu sinni er Alexander Björn Gunnarsson, félagsráðgjafi í Transteymi fullorðinna á …

    Notas do episódio

    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins að þessu sinni er Alexander Björn Gunnarsson, félagsráðgjafi í Transteymi fullorðinna á Landspítala. Alex ræðir við okkur um málefni og upplifun trans- og kynsegin fólks af barneignarferlinu og samskiptum við heilbrigðisstarfsfólk. Þessi hópur mætir ýmsum áskorunum innan heilbrigðiskerfisins, sérstaklega þegar kemur að kynheilsu og frjósemi og heyrum við því góð ráð til að tryggja jafna topp þjónustu fyrir öll. Alex er sjálfur trans og fjölskyldufaðir og heyrum við frá hans upplifun af því að koma út sem trans og stofna síðar fjölskyldu. Komiði með!

  4. LEGVARPIÐ // Anna Eðvaldsdóttir

    1 h 26 minEpisódio 89

    “Ljósmæður líta um öxl” er syrpa sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta eftir starfslok.Gestur þáttarins er Anna Eðvaldsdóttir ljósmóðir með meiru. Hún segir frá …

    Notas do episódio

    “Ljósmæður líta um öxl” er syrpa sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta eftir starfslok.

    Gestur þáttarins er Anna Eðvaldsdóttir ljósmóðir með meiru. Hún segir frá fjölbreyttum starfsferli sem endurspeglar brennandi áhuga á faginu en Anna hefur alltaf tekið nýjungum í starfi fagnandi, enda heyrum við sögur af bókaútgáfu og ráðgjafa-símalínu (sem stundum var misskilin um helgar) Það má með sanni segja að Anna, sem er iðulega kölluð Anna Ljósa, sé ljósmóðir fram í fingurgóma og þykir ekkert sjálfsagðara en að hafa aðstöðu til mæðraverndar á eigin heimili eða að stökkva yfir til nágrannakonu til þess að taka á móti barni í sparikjól milli rétta

    Anna hefur staðið vaktina á Landspítala frá 1994 ásamt því að sinna fjölskyldum á þeirra heimili (oftar en ekki í Hafnarfirði) og geta samstarfskonur sem og skjólstæðingar staðfest að það er aldrei lognmolla þegar Anna Ljósa er á vakt.

  5. LEGVARPIÐ // Tvíburar og sitjandi fæðing með Evu Sigrúnu

    1 h 22 minEpisódio 88

    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Eva Sigrún Guðjónsdóttir hlaðvarpsstjarna og kvenskörungur með meiru og er hún fyrsti …

    Notas do episódio

    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Eva Sigrún Guðjónsdóttir hlaðvarpsstjarna og kvenskörungur með meiru og er hún fyrsti gestur Legvarpsins sem mætir að hljóðnemanum í annað inn. Í fyrri þætti frá 2019 ræddi Eva um "mömmupressuna" en í þetta sinn beinist umræðan að því að ganga með og fæða tvíbura og komast í gegnum fyrstu mánuðina sem tvíburamamma og þriggja barna móðir. Eva segir frá því sem var frábrugðið varðandi líðan og eftirlit á meðgöngunni og fer vel yfir fæðingarsöguna þar sem tvíburi A var í sitjandi stöðu. Við heyrum skemmtilegar sögur að hætti Evu af hennar reynslu og bjargráðum til þess að komast í gegnum daginn með litla tvíbura. Rifinn árshátíðarkjóll, áhrifamikið trúnó í Vesturbæjarlaug, samningaviðræður við iðnaðarmenn í miðri gangsetningu, handsterk afreksíþróttakona og bananakippur á rúmgaflinum. Komiði með!

  6. Dagáll læknanemans // Lungnaháþrýstingur

    60 minEpisódio 87

    Í þessum þætti fræða lungnalæknarnir Sif Hansdóttir og Gunnar Guðmundsson hlustendur um lungnaháþrýsting. Þau Sif og Gunnar leiða okkur í sannleikann um mismunandi orsakir lungnaháþrýstings og lífeðlisfræðina …

    Notas do episódio

    Í þessum þætti fræða lungnalæknarnir Sif Hansdóttir og Gunnar Guðmundsson hlustendur um lungnaháþrýsting. Þau Sif og Gunnar leiða okkur í sannleikann um mismunandi orsakir lungnaháþrýstings og lífeðlisfræðina þar að baki. Hvernig er best að greina sjúkdóminn og hvaða meðferð er í boði? Allt þetta og margt fleira í þætti dagsins.

    Dagáll læknanemans er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson.

  7. Dagáll læknanemans // Lungnakrabbamein

    1 h 5 minEpisódio 86

    Í þessum þætti munu Hrönn Harðardóttir lungnalæknir og Örvar Gunnarsson krabbameinslæknir fræða okkur um lungnakrabbamein. Lungnakrabbamein er með algengustu krabbameinum á Íslandi og það krabbamein sem veldur …

    Notas do episódio

    Í þessum þætti munu Hrönn Harðardóttir lungnalæknir og Örvar Gunnarsson krabbameinslæknir fræða okkur um lungnakrabbamein. Lungnakrabbamein er með algengustu krabbameinum á Íslandi og það krabbamein sem veldur flestum dauðsföllum. Hrönn og Örvar fara yfir mismunandi gerðir lungnakrabbameins, helstu áhættuþætti, greiningaraðferðir, meðferðarmöguleika og þær hröðu framfarir sem hafa orðið á síðustu árum.

    Leggið við hlustir!

    Dagáll læknanemans er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson.

  8. Dagáll læknanemans // Klínísk rökleiðsla - Ungur maður með fyrirferð á hálsi, svitaköst og þyngdartap.

    56 minEpisódio 85

    Það er komið að öðrum þætti af klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Í þessum þætti mun Bára Dís Benediktsdóttir, þá sérnámslæknir, en nú sérfræðingur, kynna tilfelli sem við reynum að leysa í rauntíma …

    Notas do episódio

    Það er komið að öðrum þætti af klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Í þessum þætti mun Bára Dís Benediktsdóttir, þá sérnámslæknir, en nú sérfræðingur, kynna tilfelli sem við reynum að leysa í rauntíma. Leggið við hlustir!

    Dagáll læknanemans er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson.

  9. Dagáll læknanemans // Ofvirkur skjaldkirtiill með Örnu Guðmundsdóttur og Báru Dís Benediktsdóttur

    1 h 2 minEpisódio 84

    Í þessum þætti er ofvirkum skjaldkirtli (e. hyperhyrosis) gerð einkar góð skil. Hvenær á að gruna sjúkdóminn? Hvað er að finna við skoðun og hvernig er uppvinnslu háttað? Þá er farið bæði yfir fyrstu meðferð …

    Notas do episódio

    Í þessum þætti er ofvirkum skjaldkirtli (e. hyperhyrosis) gerð einkar góð skil. Hvenær á að gruna sjúkdóminn? Hvað er að finna við skoðun og hvernig er uppvinnslu háttað? Þá er farið bæði yfir fyrstu meðferð sem og langtímameðferð sjúkdómsins.

    Arna Guðmundsdóttir innkirtlalæknir og Bára Dís Benediktsdóttir, þá sérnámslæknir en nú sérfræðingur í almennum lyflækningum, leiða hlustendur leikandi í gegnum þetta viðfangsefni. Þetta er þáttur sem þú ættir ekki að láta framhjá þér fara!

    Dagáll læknanemans er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson.

  10. Dagáll læknanemans // Lungnatrefjun (e. Pulmonary fibrosis)

    54 minEpisódio 83

    Hvað er lungnatrefjun og af hverju verður hún? Í þessum þætti svarar Gunnar Guðmundsson sérfræðilæknir í lungnalækningum þessum spurningum leikandi ásamt fjölmörgum öðrum. Ef millivefslungnasjúkdómar hafa …

    Notas do episódio

    Hvað er lungnatrefjun og af hverju verður hún? Í þessum þætti svarar Gunnar Guðmundsson sérfræðilæknir í lungnalækningum þessum spurningum leikandi ásamt fjölmörgum öðrum. Ef millivefslungnasjúkdómar hafa vafist fyrir þér hingað til ættir þú klárlega að leggja við hlustir. Umsjón þáttar: Teitur Ari Theodórsson og Sólveig Bjarnadóttir.

  11. LEGVARPIÐ // Áslaug Hauksdóttir

    59 minEpisódio 82

    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæður líta um öxl” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands …

    Notas do episódio
    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæður líta um öxl” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta við starfslok. Gestur dagsins er Áslaug Hauksdóttir, ljósmóðir, baráttukona og kvenskörungur með meiru. Áslaug segir frá fjölbreyttum starfsferli sem endurspeglar forvitni og þörf til að taka þátt í framþróun og breytingum í þágu kvenna. …
  12. LEGVARPIÐ // Ljósmæður líta um öxl - Guðrún Bö og Magga Bjarna ljósmæður

    1 h 20 minEpisódio 82

    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæður líta um öxl” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands …

    Notas do episódio
    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæður líta um öxl” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta við starfslok. Gestir dagsins eru hið órjúfanlega tvíeyki Margrét Ásdís Bjarnadóttir og Guðrún Böðvarsdóttir, betur þekktar sem Magga og Gunna. Ljósmæðraáhugi þeirra beggja kviknaði í sauðburði, enda báðar sveitastúlkur að vestan. …
  13. Legvarp // Guðrún Guðbjartsdóttir ljósmóðir

    56 minEpisódio 80

    Legvörpur hefja árið á nýrri syrpu í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem talað verður við reynslubolta landsins Fyrst á svið er brosmilda hestakonan og Suðurnesjadrottningin Guðrún Guðbjartsdóttir …

    Notas do episódio
    Legvörpur hefja árið á nýrri syrpu í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem talað verður við reynslubolta landsins Fyrst á svið er brosmilda hestakonan og Suðurnesjadrottningin Guðrún Guðbjartsdóttir ljósmóðir sem segir frá reynslu sinni af lífi og ljósmæðrastörfum á Suðurnesjum. Ferill Guðrúnar á Ljósmæðravakt HSS spannar 47 ár og fer hún yfir hápunkta og skemmtilegar sögur í viðtali dagsins. …
  14. Tilfellaráðgáta á Læknadögum 2023

    52 minEpisódio 81

    Sem upphitun fyrir Læknadaga 2024 sem fara fram dagana 15. - 19. janúar, deilum við með ykkur upptöku af tilfellaráðgátu sem fram fór á Læknadögum í fyrra. Berglind Bergmann, sérnámslæknir í lyflækningum …

    Notas do episódio

    Sem upphitun fyrir Læknadaga 2024 sem fara fram dagana 15. - 19. janúar, deilum við með ykkur upptöku af tilfellaráðgátu sem fram fór á Læknadögum í fyrra. Berglind Bergmann, sérnámslæknir í lyflækningum, kynnir tilfellið í bútum og pallborð sérfræðinga greinir tilfellið. Pallborðið skipa þau; Hildur Jónsdóttir, sérfræðingur í almennum lyflækningum, Bára Dís Benediktsdóttir, þá sérnámslæknir í almennum lyflækningum (nú sérfræðingur!), Sigurður Guðmundsson, smitsjúkdómalæknir og Stella Rún Guðmundsdóttir, sérnámslæknir í almennum lyflækningum.

  15. LEGVARPIÐ // Þegar ljósmóðir eignast barn

    1 h 31 minEpisódio 80

    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Í þetta sinn fá Legvörpur ekki til sín gest heldur beinist hljóðneminn að Stefaníu sem leysir frá skjóðunni …

    Notas do episódio
    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Í þetta sinn fá Legvörpur ekki til sín gest heldur beinist hljóðneminn að Stefaníu sem leysir frá skjóðunni. Hún segir sína reynslusögu af því að ganga með og fæða barn sem ljósmóðir. Hvernig er það að upplifa þetta sjálf á eigin skinni eftir að hafa fylgt ótal konum í gegnum ferlið? Hvað kom á óvart? Hvenær var ljósmæðraþekkingin gagnleg.. eða þvældist hún einhverntíman fyrir? …
  16. LEGVARPIÐ // Sitjandi fæðingar

    51 minEpisódio 79

    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Gestur þáttarins er danski fæðingarlæknirinn Kamilla Gerard Nielsen sem fjallar af sinni fagmennsku og …

    Notas do episódio
    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Gestur þáttarins er danski fæðingarlæknirinn Kamilla Gerard Nielsen sem fjallar af sinni fagmennsku og einstöku yfirvegun um sitjandi fæðingar og allskyns fróðleik sem tengist hinni sjaldgæfu sitjandi stöðu. Kamilla fræðir okkur um sérþekkingu sína og reynslu af “Upright breech” eða sitjandi fæðingum í uppréttri stöðu, útkomur, upplifun, fræðslu til foreldra og kennslu starfsfólks. …
  17. LEGVARPIÐ // Kristbjörg Magnúsdóttir ljósmóðir

    1 h 14 minEpisódio 79

    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Gestur þáttarins er Kristbjörg Magnúsdóttir ljósmóðir sem segir frá reynslu sinni af ljósmæðrastörfum með …

    Notas do episódio
    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Gestur þáttarins er Kristbjörg Magnúsdóttir ljósmóðir sem segir frá reynslu sinni af ljósmæðrastörfum með Amish fólki í Lancaster sýslu í Pennsylvania fylki Bandaríkjanna. Kristbjörg dregur upp mynd af lífi Amish fólksins sem einkennist af einfaldleika, sjálfbærni og nægjusemi, allt frá klæðarburði til farartækja. …
  18. GEÐVARP // Steinunn Ingvadóttir og Hrönn Stefánsdóttir

    1 h 1 minEpisódio 78

    Dr. Helga Sif Friðjónsdóttir sérfræðingur í geðhjúkrun ræðir við gesti sína sem eru þær Steinunn Ingvarsdóttir og Hrönn Stefánsdóttir. Steinunn Ingvarsdóttir útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá Háskóla …

    Notas do episódio
    Dr. Helga Sif Friðjónsdóttir sérfræðingur í geðhjúkrun ræðir við gesti sína sem eru þær Steinunn Ingvarsdóttir og Hrönn Stefánsdóttir. Steinunn Ingvarsdóttir útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands árið 2009. Árin eftir útskrift starfaði Steinunn m.a. á bráðamóttöku, hjartagátt og á krabbameinslækningadeild Landspítala. …
  19. Þunglyndi með Engilbert Sigurðssyni og Magnúsi Karli Magnússyni

    1 h 13 minEpisódio 77

    Engilbert Sigurðsson, prófessor og sérfræðingur í geðlækningum, fer yfir þunglyndi í víðum skilningi. Hvað er þunglyndi, hvaða boðefni í heilanum koma við sögu og hverjir eru megin þættir í meðferð. Við ræðum …

    Notas do episódio
    Engilbert Sigurðsson, prófessor og sérfræðingur í geðlækningum, fer yfir þunglyndi í víðum skilningi. Hvað er þunglyndi, hvaða boðefni í heilanum koma við sögu og hverjir eru megin þættir í meðferð. Við ræðum helstu flokka þunglyndislyfja sem eru notuð í dag og einnig nýjungar á borð við segulörvun og psilocybin. Þessi þáttur er unnin í samstarfi við Læknadeild Háskóla Íslands og nýtist við kennnslu læknanema í lyfjafræði á 3. ári og geðlækningum á 5. ári. …
  20. DAGÁLL LÆKNANEMANS // Öndunarbilun með Eric Contant, sérfræðingi í bráðalækningum

    46 minEpisódio 76

    Eric Contant, sérfræðingur í bráðalækningum, ræðir við okkur um bráða öndunarbilun (e. Respiratory failure). Hvernig er bráðveikur sjúklingur metinn? Hvaða súrefnisgjafaleiðir standa til boða og hvenær skal …

    Notas do episódio
    Eric Contant, sérfræðingur í bráðalækningum, ræðir við okkur um bráða öndunarbilun (e. Respiratory failure). Hvernig er bráðveikur sjúklingur metinn? Hvaða súrefnisgjafaleiðir standa til boða og hvenær skal grípa til ytri öndunarvélar (e. Bipap, cpap)? Þá ræðir Eric við okkur um grunnstillingar ytri öndunarvéla og hvernig hægt sé að breyta þeim svari sjúklingur vélinni illa. "Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. …
  21. GEÐVARPIÐ // Eydís og Manda ræða um geðhjúkrun

    50 minEpisódio 75

    Dr. Helga Sif Friðjónsdóttir sérfræðingur í geðhjúkrun ræðir við gesti sína um sögu og þróun geðhjúkrunar ásamt geðhjúkrun á Landspítala. Gestir þáttarins eru þær dr. Eydís Kristín Sveinbjarnardóttir og Manda …

    Notas do episódio
    Dr. Helga Sif Friðjónsdóttir sérfræðingur í geðhjúkrun ræðir við gesti sína um sögu og þróun geðhjúkrunar ásamt geðhjúkrun á Landspítala. Gestir þáttarins eru þær dr. Eydís Kristín Sveinbjarnardóttir og Manda Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri. Eydís er dósent við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands. Hún var lektor við deildina 1991-1994 og klínískur lektor 2011-2016. …
  22. Innöndunarlyf með Gunnari Guðmundssyni, lungnalækni

    54 minEpisódio 74

    Gunnar Guðmundsson sérfræðingur í lungnalækningum ræðir innúðalyf við astma og langvinnri lungnateppu. Grípið andann á lofti því mörgu er svarað - Hvaða eru berkjuvíkkandi lyf? Hvernig gagnast innúðasterar? …

    Notas do episódio
    Gunnar Guðmundsson sérfræðingur í lungnalækningum ræðir innúðalyf við astma og langvinnri lungnateppu. Grípið andann á lofti því mörgu er svarað - Hvaða eru berkjuvíkkandi lyf? Hvernig gagnast innúðasterar? Hvernig á að innleiða meðferð og hver er tröppugangurinn þegar kemur að því að auka meðferð? Þessi þáttur er unnin í samstarfi við Læknadeild Háskóla Íslands og nýtist við kennnslu læknanema í lyfjafræði á 3. ári. …
  23. Klínísk rökleiðsla - 68 ára ferðamaður með skyndilegt rugl og máttleysi

    1 hEpisódio 73

    Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Hildur Jónsdóttir sérfræðingur í almennum lyflækningum leiða okkur í gegnum tilfelli með klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Þátturinn er 4. og …

    Notas do episódio
    Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Hildur Jónsdóttir sérfræðingur í almennum lyflækningum leiða okkur í gegnum tilfelli með klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Þátturinn er 4. og síðasti þátturinn í sérstakri undirsyrpu fyrir Lyflæknaþing sem verður haldið í nóvember 2022. Tilfellið er kynnt í nokkrum bútum og eftir hvern bút eru umræður. Tilfellið er leyst í rauntíma. Hlustandi getur þannig tekið þátt og spreytt sig á tilfellinu með okkur. …
  24. Klínísk rökleiðsla - 62 ára með kviðverk

    60 minEpisódio 72

    Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Hildur Jónsdóttir sérfræðingur í almennum lyflækningum leiða okkur í gegnum tilfelli með klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Þátturinn er þáttur númer …

    Notas do episódio
    Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Hildur Jónsdóttir sérfræðingur í almennum lyflækningum leiða okkur í gegnum tilfelli með klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Þátturinn er þáttur númer 3 í nýrri undirsyrpu fyrir Lyflæknaþing sem verður haldið í nóvember 2022. Munum gefa miða á þingið! Meiri upplýsingar með því að hlusta á þáttinn. Tilfellið er kynnt í nokkrum bútum og eftir hvern bút eru umræður. Tilfellið er leyst í rauntíma. …
  25. Klínísk rökleiðsla - 55 ára með gikkfingur, krónískan niðurgang og brjóstverk

    50 minEpisódio 71

    Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Hildur Jónsdóttir sérfræðingur í almennum lyflækningum leiða okkur í gegnum tilfelli með klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Þátturinn er þáttur númer …

    Notas do episódio
    Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Hildur Jónsdóttir sérfræðingur í almennum lyflækningum leiða okkur í gegnum tilfelli með klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Þátturinn er þáttur númer 2 í nýrri undirsyrpu fyrir Lyflæknaþing sem verður haldið í nóvember 2022. Munum gefa miða á þingið! Meiri upplýsingar með því að hlusta á þáttinn. Tilfellið er kynnt í nokkrum bútum og eftir hvern bút eru umræður. Tilfellið er leyst í rauntíma. …
  26. LEGVARPIÐ // Edythe Mangindin ljósmóðir

    1 h 1 minEpisódio 67

    "Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum þætti …

    Notas do episódio
    "Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum þætti ræða þær við Edythe Mangindin ljósmóður um upplifun erlendra kvenna sem fæða börn hér á landi. Edythe er fædd og uppalin í San Francisco í Kaliforníu en foreldrar hennar komu upphaflega frá Filippseyjum. Hún flutti til Íslands árið 2009. …
  27. DAGÁLL LÆKNANEMANS // Klínísk rökleiðsla - 49 ára með svima, slappleika og mæði

    1 h 11 minEpisódio 70

    Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Hildur Jónsdóttir sérfræðingur í almennum lyflækningum leiða okkur í gegnum tilfelli með klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Þátturinn er sá fyrsti í …

    Notas do episódio
    Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Hildur Jónsdóttir sérfræðingur í almennum lyflækningum leiða okkur í gegnum tilfelli með klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Þátturinn er sá fyrsti í nýrri undirsyrpu fyrir Lyflæknaþing sem verður haldið í nóvember 2022 Tilfellið er kynnt í nokkrum bútum og eftir hvern bút eru umræður. Tilfellið er leyst í rauntíma. Hlustandi getur þannig tekið þátt og spreytt sig á tilfellinu með okkur. …
  28. DAGÁLL LÆKNANEMANS // Æðavirk lyf (e. pressorr) með Martin Inga og Magnúsi Karli

    51 minEpisódio 69

    Martin Ingi Sigurðsson, prófessor og sérfræðingur í svæfinga- og gjörgæslulækningum fer yfir æðavirk lyf. Hvað eru æðavirk lyf, hvernig virka þau og hvernig beitum við þeim? Þessi þáttur er unnin í samstarfi …

    Notas do episódio

    Martin Ingi Sigurðsson, prófessor og sérfræðingur í svæfinga- og gjörgæslulækningum fer yfir æðavirk lyf. Hvað eru æðavirk lyf, hvernig virka þau og hvernig beitum við þeim?

    Þessi þáttur er unnin í samstarfi við Læknadeild Háskóla Íslands og nýtist við kennnslu læknanema í lyfjafræði á 3. ári og svæfinga- og gjörgæslulækningum á 6. ári. Magnús Karl Magnússon, prófessor í lyfjafræði og sérfræðingur í blóðlækningum heldur utan um verkefnið og er jafnframt gestaspyrill í þættinum.

  29. GEÐVARPIÐ // Nína Eck - jafningi á geðsviði

    59 minEpisódio 69

    Nína Eck er Jafningi á Geðsviði. Hún hóf störf á Laugarásnum í desember 2021 en hefur unnið á Kleppi og Hringbraut í sumar. Nína hefur reynslu af geðrænum áskorunum og mörgu sem þeim fylgdi en var útskrifuð úr …

    Notas do episódio
    Nína Eck er Jafningi á Geðsviði. Hún hóf störf á Laugarásnum í desember 2021 en hefur unnið á Kleppi og Hringbraut í sumar. Nína hefur reynslu af geðrænum áskorunum og mörgu sem þeim fylgdi en var útskrifuð úr DAM-teyminu árið 2020. Nú er hún í starfsréttindanámi í félagsráðgjöf og vinnur hart að því að þróa jafningjastarfið og kynna það fyrir öllum sem vilja hlusta.
  30. GEÐVARPIÐ // Arndís Vilhjálmsdóttir geðhjúkrunarfræðingur

    50 minEpisódio 68

    Arndís Vilhjálmsdóttir er geðhjúkrunarfræðingur og lauk B.Sc prófi í hjúkrunarfræði frá HÍ 2009 og meistaragráðu frá Háskólanum á Akureyri 2020. Arndís starfaði lengi á geðþjónustu Landspítala, fyrst á …

    Notas do episódio
    Arndís Vilhjálmsdóttir er geðhjúkrunarfræðingur og lauk B.Sc prófi í hjúkrunarfræði frá HÍ 2009 og meistaragráðu frá Háskólanum á Akureyri 2020. Arndís starfaði lengi á geðþjónustu Landspítala, fyrst á fíknigeðdeild og síðan í samfélagsteymi. Núna starfar Arndís í geðheilsuteymi fangelsa og situr í stjórn Fagdeilda geðhjúkrunarfræðinga innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. …

Aqui estão os 40 episódios mais recentes de 110. Os mais antigos estão no feed do podcast.

Este podcast é seu?

Confirme com uma entrada no seu feed: você recebe um código aqui, adiciona como podcast:txt no canal do seu feed e nós verificamos. Depois disso, seu podcast aparece como “verificado” no SoundNode.

Configurações

Exibição

Idioma

Define quais estações você vê primeiro na página inicial.

Histórico

As rádios e episódios ouvidos recentemente e suas últimas buscas ficam só neste navegador.

Avisos

Um aviso rápido quando um podcast que você segue tem um episódio novo. Desative podcasts individuais pelo sino na página deles.

Conta

Salve favoritos – no app e no site.

Atalhos de teclado

/
Abrir busca
Espaço
Reproduzir ou pausar
← →
No player: voltar 15 s, avançar 30 s (episódios) · na fileira: próximo bloco
↑ ↓
Na fileira: alvo dentro do bloco
Home / End
Na fileira: primeiro ou último bloco
Esc
Fechar janela ou menu
?
Esta visão geral
Tocando agora

Ir para a estação

A seguir

    Adicione episódios com “A seguir” – eles tocam depois do episódio atual.