
Fjármál og ADHD, Stefán og ættfræðigrúsk og vísindaspjall um svefn kóngulóa
Notas do episódio
Hvert fóru peningarnir? Þessi spurning er yfirskrift erindis sem Valdís Hrönn Berg fjárhagsmarkþjálfi heldur á málþingi ADHD samtakanna á föstudaginn. Þar talar hún um margvíslegar áskoranir þess að vera með ADHD og hvernig það hefur áhrif á það hvernig við notum peninga og líður í kringum þá. Þar getur hvatvísi, gleymska, forðun og óöryggi spilað stórt hlutverk. Valdís kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá þessu. Hverra manna ert þú? …