
Bókaborðið - 8. þáttur: Myndhöfundar barnabóka
Notas do episódio
Þriðjudagur 3. nóvember Bókaborðið - 8. þáttur: Myndhöfundar barnabóka Hvað eru myndhöfundar að bralla? Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir og Linda Ólafsdóttir segja Maríu Hjálmtýsdóttur frá starfinu, mikilvæginu, harkinu og pólitíkinni. Það er nefnilega pólitík í öllu ef vel er að gáð. Meira segja í barnabókabransanum. Er hægt að verða rík af því að teikna barnabækur á Íslandi? Eru íslenskir myndhöfundar í stanslausri samkeppni hver við annan eða eru þau vinir? Eru þau kannski í keppni við gervigreindina?