Pular para o conteúdo
Þetta helst
PodcastIS

Þetta helst

Episódio 1Aska látinnar konu grafin upp í skjóli nætur21 de agosto de 2026 · 16 min
Episódios
782
Formato
Série – ouça desde o começo
Último episódio
13 nov 2026

Sobre o podcast

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Episódios 782

  1. Sérstök endalok Hamborgarafabrikkunnar

    16 minEpisódio 782

    Lokun Hamborgafabrikkunnar í Katrínartúni vakti talsverða athygli á miðvikudaginn. Skatturinn og lögreglan mættu á veitingastaðinn og innsigluðu hann. Almennt séð fara skatturinn og lögreglan ekki í slíkar …

    Notas do episódio
    Lokun Hamborgafabrikkunnar í Katrínartúni vakti talsverða athygli á miðvikudaginn. Skatturinn og lögreglan mættu á veitingastaðinn og innsigluðu hann. Almennt séð fara skatturinn og lögreglan ekki í slíkar aðgerðir gegn veitingahúsum og öðrum fyrirtækjum nema að þau skuldi skatta eða opinber gjöld, Hvað gerðist eiginlega hjá Hamborgarafabrikkunni og af hverju lokaði staðurinn? Athygli vekur að fyrri eigendur veitingastaðarins seldu hann til nýrra eigenda í mars eftir að hafa skilað tapi árið á undan og eftir að hafa reynt að selja staðinn um hríð. Nýi eigandi staðarins var sjávarútvegsfyrirtæki með enga reynslu á veitingamarkaði og hætti framkvæmdastjóri nýju eigenda Hamborgarafabrikkunnar hjá staðnum í byrjun júní. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  2. Farsímasamband ekki öryggiskerfi almennings

    19 minEpisódio 781

    Íbúar í dreifbýli segja farsímasamband hafa versnað verulega eftir að slökkt var á 2G og 3G kerfunum í júní. Sambandsleysið hefur áhrif á öryggi fólks, atvinnurekstur og daglegt líf. Fjarskiptastofa viðurkennir …

    Notas do episódio
    Íbúar í dreifbýli segja farsímasamband hafa versnað verulega eftir að slökkt var á 2G og 3G kerfunum í júní. Sambandsleysið hefur áhrif á öryggi fólks, atvinnurekstur og daglegt líf. Fjarskiptastofa viðurkennir að samband gæti hafa versnað sumstaðar en batnað annarstaðar. Stofnunin hefur takmarkaðar heimildir til inngripa. Niðurstöður umfangsmikilla mælinga á útbreiðslu farsímasambands liggja fyrir í byrjun desember.
  3. Samherjagátan 2019-2025

    19 minEpisódio 780

    Skattgreiðslur til íslenska ríkisins vegna viðskipta Baldvins Þorsteinssonar og systur hans Kötlu Þorsteinsdóttur með hlutabréf í útgerðarfélaginu Samherja á árunum 2019 til 2025 nema samtals um 7,2 milljörðum …

    Notas do episódio
    Skattgreiðslur til íslenska ríkisins vegna viðskipta Baldvins Þorsteinssonar og systur hans Kötlu Þorsteinsdóttur með hlutabréf í útgerðarfélaginu Samherja á árunum 2019 til 2025 nema samtals um 7,2 milljörðum króna. Baldvin Þorsteinsson, forstjóri og annar stærsti hluthafa Samherja, svarar spurningum fréttastofu um þessi viðskipti og skattgreiðslur vegna þeirra. Um miðjan maí vorið 2020 var sagt frá því að Katla og Baldvin væru orðin stærstu hluthafar Samherja. Mikið var fjallað um þessi viðskipti í fjölmiðlum á þeim tíma og hafa verið sagðar margar framhaldsfréttir um þau síðastliðin ár. Helsti kjarninn í umræðunni um viðskiptin árið 2020 var að þau snérust um kvóta og kvótakerfið og hvernig fyrirtæki sem ráða yfir þessari sameign þjóðarinnar fara á milli kynslóða. Viðskiptin hafa farið fram í nokkrum liðum í gegnum árin og er hér reynt að kortleggja heildarumfang þeirra. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  4. Bankarnir hagnast vel á meðan deilt er um bankaskatt

    15 minEpisódio 779

    Stóru viðskiptabankarnir þrír - Íslandsbanki, Arion banki og Landsbankinn - birtu um mánaðarmótin uppgjör fyrir fyrstu níu mánuði ársins. Kvika banki fylgdi síðan í síðustu viku. Þegar litið er til stóru …

    Notas do episódio
    Stóru viðskiptabankarnir þrír - Íslandsbanki, Arion banki og Landsbankinn - birtu um mánaðarmótin uppgjör fyrir fyrstu níu mánuði ársins. Kvika banki fylgdi síðan í síðustu viku. Þegar litið er til stóru bankanna þriggja sést að þeir skiluðu samanlagt um 79 milljörðum króna í hagnað á fyrstu níu mánuðum ársins. Í þætti dagsins er sjónum beint að stöðu og hagnaði bankanna - og deilum um bankaskatt. Rætt er við Snorra Jakobsson, hagfræðing, og Breka Karlsson, formann Neytendasamtakanna. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
  5. Umræðan um sölu ríkiseignar í Laugarási

    11 minEpisódio 778

    Íslenska ríkið hafði til skoðunar að selja tilteknum lækni 370 fermetra íbúðarhús í Laugarási í Bláskógabyggð með sérstakri heimild sem óskað var eftir með breytingum á fjárlögum í fyrra. Beiðnin um söluna á …

    Notas do episódio
    Íslenska ríkið hafði til skoðunar að selja tilteknum lækni 370 fermetra íbúðarhús í Laugarási í Bláskógabyggð með sérstakri heimild sem óskað var eftir með breytingum á fjárlögum í fyrra. Beiðnin um söluna á húsinu kom frá heilbrigðisráðuneytinu, Það sem er óvenjulegt við málið er að til stóð að ríkið seldi þetta einbýlishús beint til læknisins án auglýsingar á opnum markaði. Sveitarstjórinn í Bláskógabyggð segir að það sé óvenjulegt fyrirkomulag að til standi að selja ríkiseign beint til einstaklings með þessum hætti og að talsvert hafi verið rætt um málið í sveitarfélaginu. Lækninnn og forstjóri Ríkiseigna segja að ekkert verði af sölu hússins með þessum hætti og að á endanum standi til að selja það með opnum hætti á markaði. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  6. Það sem kom í ljós í viðskiptum Ólafs í Samskipum

    19 minEpisódio 777

    Salan á skipafyrirtækinu Samskipum til spænsks fyrirtækis vakti mikla athygli í síðustu viku. Með þessari sölu lýkur rúmlega 30 ára eignarhaldi Ólafs Ólafssonar fjárfestis í þessu skipafyrirtæki sem hann hefur …

    Notas do episódio
    Salan á skipafyrirtækinu Samskipum til spænsks fyrirtækis vakti mikla athygli í síðustu viku. Með þessari sölu lýkur rúmlega 30 ára eignarhaldi Ólafs Ólafssonar fjárfestis í þessu skipafyrirtæki sem hann hefur verið kenndur við í áratugi. Sonur Ólafs og nafni, Ólafur Örn Ólafsson, heldur hins vegar áfram sem forstjóri Samskipa eftir kaup spænska fyrirtækisins. Fjallað er um sögu eignarhalds Ólafs Ólafssonar í Samskipum á skipafélaginu síðastliðna þrjá áratugi. Upphaflega var Samskip skipadeildin í rekstri Sambands íslenskra samvinnufélaga en fyrirtækið var gert að sérstöku hlutafélagi árið 1991. Eitt af því sem hefur ítrekað komið upp á viðskiptaferli Ólafs Ólafssonar, eftir að hann eignaðist Samskip til að byrja með í gegnum þetta þýska fyrirtæki, eru ítrekuð dæmi um leynd yfir viðskiptum sem hann tengist með eða í gegnum erlenda aðila. Þetta kom meðal upp í viðskiptum hans með Samskip, Búnaðarbankann og í Al Thani-viðskiptunum svokölluðu árið 2008. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  7. Aflandsreikningar forsætisráðherrans

    18 minEpisódio 776

    Þó mest athygli hafi farið í bókaförgun og ritskoðun í tengslum við útgáfu Thorsarabókarinnar fyrir tuttugu árum, var sjálft efni bókarinnar mun eldfimara. Upplýsingar um falið fé og eignir Kveldúlfsbræðra. Það …

    Notas do episódio
    Þó mest athygli hafi farið í bókaförgun og ritskoðun í tengslum við útgáfu Thorsarabókarinnar fyrir tuttugu árum, var sjálft efni bókarinnar mun eldfimara. Upplýsingar um falið fé og eignir Kveldúlfsbræðra. Það átti ekki síst við um þann þeirra sem var forsætisráðherra og hafði þvertekið fyrir að hann eða fjölskyldan ættu ólöglegar peningaeignir erlendis. 150 árum eftir að ungur danskur innanbúðardrengur steig á land á Borðeyri við Hrútafjörð og sá þar tækifæri sem fáir aðrir sáu, gætir enn áhrifa Thors og veldis hans á Íslandi. Umsjón: Helgi Seljan
  8. Týndi kafli Thorsaranna

    16 minEpisódio 775

    Fyrir tuttugu árum var heilu upplagi af bók Guðmundar Magnússonar sagnfræðings um Thorsaranna, fargað og ný og breytt útgáfa prentuð. Útgefandi bókarinnar vildi ekki að fjallað yrði um fyrrverandi eiginmanni …

    Notas do episódio
    Fyrir tuttugu árum var heilu upplagi af bók Guðmundar Magnússonar sagnfræðings um Thorsaranna, fargað og ný og breytt útgáfa prentuð. Útgefandi bókarinnar vildi ekki að fjallað yrði um fyrrverandi eiginmanni konu sinnar en óskaði í staðinn eftir umfjöllun um sig og son sinn. Þannig breytt kom bókin út. Guðmundur Magnússon hefur nú gefið bókina út í sínu upprunalegi handriti. En hvað var svona viðkvæmt; hver var þessi fyrrverandi eiginmaður, og af hverju var hann myrtur á leið heim til sín eftir klór?
  9. Ríkið leigir hjúkrunarrými fyrir níu milljarða í Urriðahvarfi

    16 minEpisódio 774

    Íslenska ríkið gerði 20 ára óuppsegjanlegan leigusamning við eigendur fasteignar í Urðarhvarfi 16 þar sem í dag er rekið hjúkrunarheimili. Samningurinn var gerður þann 9. september árið 2024, rúmum einum mánuði …

    Notas do episódio
    Íslenska ríkið gerði 20 ára óuppsegjanlegan leigusamning við eigendur fasteignar í Urðarhvarfi 16 þar sem í dag er rekið hjúkrunarheimili. Samningurinn var gerður þann 9. september árið 2024, rúmum einum mánuði áður en boðað var til þingkosninga um haustið 2024. Eigendur hússins eru að hluta til þeir sömu og þeir sem eiga einkarekna heilbrigðisfyrirtækið Heilsuvernd sem svo gerði annan samning við ríkið um rekstur á hjúkrunarrýmunum. Leigusamningurinn hljóðar upp á tæplega 39 milljóna króna á mánuði fyrir rúmlega 10 þúsund fermetra eða samtals rúmlega 9 milljarða króna á næstu tuttugu árum miðað við verðlag dagsins í dag Hvernig kom það til að þessi leigusamningur var gerður á þessum tíma? Rætt er Teit Guðmundsson, framkvæmdastjóra Heilsuverndar og eiginmann eins eiganda hússins í Urðarhvarfi, um þennan leigusamning og rekstur hjúkrunarrýmanna. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  10. Heimsókn utanríkisráðherra til Kína

    16 minEpisódio 773

    Í þætti dagsins ræðum við aukin samskipti og viðskipti Kína og Íslands, og afstöðu íslenskra stjórnvalda til Taívan. Utanríkisráðherra fundaði í lok síðustu viku með Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, í Beijing …

    Notas do episódio
    Í þætti dagsins ræðum við aukin samskipti og viðskipti Kína og Íslands, og afstöðu íslenskra stjórnvalda til Taívan. Utanríkisráðherra fundaði í lok síðustu viku með Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, í Beijing, þar sem hún var í opinberum erindagjörðum í vikunni. Rætt er við Geir Sigurðsson, prófessor í kínverskum fræðum við Háskóla Íslands.
  11. Menn með dóma fyrir glæpi sem starfa við barnavernd

    18 minEpisódio 772

    Í Noregi og Svíþjóð hafa komið upp mál þar sem einstaklingar með tengsl við undiheimana og glæpasamtök hafa unnið hjá og jafnvel stýrt einkareknum fyrirtækjum sem sinna barnavernd og börnum með fjölþættan …

    Notas do episódio
    Í Noregi og Svíþjóð hafa komið upp mál þar sem einstaklingar með tengsl við undiheimana og glæpasamtök hafa unnið hjá og jafnvel stýrt einkareknum fyrirtækjum sem sinna barnavernd og börnum með fjölþættan vanda. Í Noregi í lok ágúst sögðu fjölmiðlar frá því að einstaklingar með tengsl við glæpaheiminn í landinu ynnu hjá eða stýrðu sextán barnaverndarfyrirtækjum á tilteknu svæði í Noregi. Norska efnahagsbrotalögreglan Ökokrim er nú að gera rannsókn á þessu í öllu landinu. Þetta segir Ida Wangberg sem er einn af blaðamönnum norska blaðsins Klassekampen sem opinberaði þetta mál í lok ágúst. Þessar fréttir frá Noregi tala inn í umræðu um einkarekin barnaverndarúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda sem nú á sér stað í íslensku samfélagi eftir að fréttaskýringaþátturinn Kveikur birti fréttaskýringu um þess konar fyrirtæki nú á þriðjudaginn. Er algengt að menn með fortíð úr undirheimunum starfi við barnavernd á Íslandi? Rætt er um þetta við framkvæmdastjóra barnaverndar Reykjavíkur, Þyrí Höllu Steingrímsdóttur. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  12. Líður landsbyggðin fyrir fækkun lögregluembætta?

    16 minEpisódio 771

    Áform dómsmálaráðherra um sameiningu lögregluembætta hafa farið hátt undanfarið og ljóst er að skoðanir eru skiptar. Hún leggur til að níu lögregluumdæmi verði að þremur, sem hefur fallið í grýttan farveg í …

    Notas do episódio
    Áform dómsmálaráðherra um sameiningu lögregluembætta hafa farið hátt undanfarið og ljóst er að skoðanir eru skiptar. Hún leggur til að níu lögregluumdæmi verði að þremur, sem hefur fallið í grýttan farveg í dreifðari byggðum landsins. Þar hefur fólk áhyggjur af samþjöppun valds og að ákvarðanir um þeirra heimahaga verði teknar af lögreglustjórum í mörg hundruð kílómetra fjarlægð. Lögreglustjórar sjá þó margir kosti við sameiningarnar og telja að ef rétt verði farið að geti breytingarnar orðið landsmönnum öllum til góða. Í þætti dagsins verður rætt við dómsmálaráðherra, lögreglumenn og lögreglustjóra og við veltum því upp hvort breytingin feli í sér aukið samstarf og skilvirkni – og hvort hætt sé við að landsbyggðin líði fyrir breytinguna. Umsjónarmaður: Ólöf Rún Erlendsdóttir
  13. Tíðindamikil byrjun nýja meirihlutans i Reykjavík

    17 minEpisódio 770

    Nýi meirihlutinn í borgarstjórn hefur hafið störf af miklum krafti síðustu mánuði. Uppsagnir á fjölda starfsfólks, niðurskurður á þjónustu á Borgarbókasafninu, fyrirhuguð einkavæðing Ljósleiðarans og umræður um …

    Notas do episódio
    Nýi meirihlutinn í borgarstjórn hefur hafið störf af miklum krafti síðustu mánuði. Uppsagnir á fjölda starfsfólks, niðurskurður á þjónustu á Borgarbókasafninu, fyrirhuguð einkavæðing Ljósleiðarans og umræður um einkarekstrarvæðingu á Fjölskyldu- og húsdýragarðinum er meðal þeirra mála sem ratað hafa í fréttir á síðustu vikum. Rætt er um þessa byrjun nýja meirihlutans við prófessorinn Evu Heiðu Önnudóttir sem segir að hún þurfi ekki að koma á óvart og að meirihlutinn þurfi að marka sér stefnu eftir áratuga valdasetu sósíaldemókratískra afla í Reykjavík. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  14. Tíðindaleysi á þingi

    15 minEpisódio 769

    Óvenju lítið hefur verið að frétta af störfum Alþingis það sem af er þingvetri. Rætt er við Ólaf Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, um stöðu mála.

  15. Sjö ára baráttu lauk í Hæstarétti

    17 minEpisódio 768

    Um miðjan mánuðinn féll dómur Hæstarétti Íslands í máli sem Elva Björk Haraldsdóttir höfðaði Gegn tryggingafélaginu Verði. Málið getur haft fordæmisgildi fyrir námsmenn og efnaminna fólk sem lendir í slysum og …

    Notas do episódio
    Um miðjan mánuðinn féll dómur Hæstarétti Íslands í máli sem Elva Björk Haraldsdóttir höfðaði Gegn tryggingafélaginu Verði. Málið getur haft fordæmisgildi fyrir námsmenn og efnaminna fólk sem lendir í slysum og þarf að fá vinnu- og tekjutap sitt bætt vegna örorku. Með þessum dómi lýkur sjö ára ferli í lífi Elvu Bjarkar sem hófst eftir að hún hafði lent í bílslysi í Reykjavík. Ágreiningurinn í máli snerist um það hvort reikna ætti skaðabæturnar út frá lágmarkslaunum eða meðaltekjum tanntækna en Elva Björk var í því námi þegar slysið átti sér stað. Nítján lögmenn hafa sent erindi um dóminn til dómsmálaráðherra þar sem þeir fara fara fram á að skaðabótalögum verði breytt i ljósi hans. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  16. Tekjur rithöfunda rýrna

    18 minEpisódio 767

    Bókaútgáfa hefur gjörbreyst á síðustu árum og áratugum og sala á pappírsbókum dregist saman. Internetið, samfélagsmiðlar og hljóðbækur hófu innreið sína en skila ekki tekjum í sama mæli og prentuð eintök …

    Notas do episódio
    Bókaútgáfa hefur gjörbreyst á síðustu árum og áratugum og sala á pappírsbókum dregist saman. Internetið, samfélagsmiðlar og hljóðbækur hófu innreið sína en skila ekki tekjum í sama mæli og prentuð eintök. Tekjur höfunda hafa rýrnað, hvort sem þær eru vegna bóksölu, listamannalauna, útlána á bókasöfnum eða annarra verkefna.
  17. Rifrildið um jarðir og laxveiðiár Jim Ratcliffes

    21 minEpisódio 766

    Í byrjun vikunnar kom upp umræðu um enska fjárfestinn Jim Ratcliffe og umsvif hans á Íslandi sem landeiganda og leigutaka laxveiðiáa. Þetta var eftir að lögfræðingurinn og fyrrverandi forsetaframbjóðandinn …

    Notas do episódio
    Í byrjun vikunnar kom upp umræðu um enska fjárfestinn Jim Ratcliffe og umsvif hans á Íslandi sem landeiganda og leigutaka laxveiðiáa. Þetta var eftir að lögfræðingurinn og fyrrverandi forsetaframbjóðandinn Herdís Þorgeirsdóttir tjáði sig um hann í færslu á Facebook. Þar talaði hún meðal annars um hvað Ratcliffe væri stór jarðaeigandi á Íslandi. Bubbi Morthens tónlistarmaður blandaði sér í þessa umræðu og hefur hann sterkar skoðanir á Ratcliffe um hvernig eigi að minnka eða stöðva umsvif hans á Íslandi. Rætt er við Bubba og Gísla Ásgeirsson, talsmann Ratcliffes á Íslandi og framkvæmdastjóra fyrirtækisins Six Rivers, sem hefur allt aðra sýn en Bubbi. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  18. Gagnrýni á viðvaranakerfi Veðurstofunnar

    17 minEpisódio 765

    Djúp haustlægð gekk yfir landið í síðustu viku. Hvellurinn á Siglufirði reyndist meiri en búist var við og töluvert tjón varð á húsum, bílum og lausamunum í bænum. Í kjölfar veðursins voru lagðar á borð …

    Notas do episódio
    Djúp haustlægð gekk yfir landið í síðustu viku. Hvellurinn á Siglufirði reyndist meiri en búist var við og töluvert tjón varð á húsum, bílum og lausamunum í bænum. Í kjölfar veðursins voru lagðar á borð áleitnar spurningar um viðbragð og viðvaranir - þeirra á meðal hvort Veðurstofan ætti að gefa út fleiri staðbundnar litakvarðaðar viðvaranir. Rætt er við Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðing, Jóhann K. Jóhannsson, slökkviliðsstjóra í Fjallabyggð, og Hildigunni H. H. Thorsteinsson, veðurstofustjóra. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
  19. Sveitarstjórinn á Laugum í viðskiptum við skreiðarfyrirtæki

    19 minEpisódio 764

    Sveitarstjórinn í Þingeyjarsveit, Katrín Sigurjónsdóttir, er eigandi fyrirtækis sem selur Samherja skreiðarpoka og þurrkgrindur fyrir skreiðarþurrkun útgerðarfyrirtækisins á Laugum í sveitarfélaginu …

    Notas do episódio
    Sveitarstjórinn í Þingeyjarsveit, Katrín Sigurjónsdóttir, er eigandi fyrirtækis sem selur Samherja skreiðarpoka og þurrkgrindur fyrir skreiðarþurrkun útgerðarfyrirtækisins á Laugum í sveitarfélaginu. Fiskþurrkun Samherja er stærsti einkarekni atvinnurekandinn á Laugum með um 20 starfsmenn. Viðskipti fyrirtækis Katrínar, sem heitir Samleið ehf., við Samherja hafa staðið yfir í mörg ár, líka þegar hún var sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar. Samherji rekur einnig skreiðarþurrkun á Dalvík. Katrín á fyrirtækið á móti eiginmanni sínum. Ástæðan fyrir því að þessi viðskiptatengsl fyrirtækis Katrínar koma fram núna er að deilur hafa staðið yfir um starfsemi skreiðarþurrkunar Samherja á Laugum. Hópur íbúa á Laugum hefur beitt sér fyrir því að fiskþurrkun verði hætt þar vegna umhverfisáhrifa starfseminnar. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi starfsleyfi skreiðarþurrkunarinnar úr gildi nú í september. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  20. Mótmæli og óeirðir í Frakklandi

    18 minEpisódio 763

    Í þætti dagsins förum við til Frakklands þar sem ekkert lát er á mótmælum og óeirðum. Rætt er við Torfa Tulinius, prófessor við Háskóla Íslands, og Kristínu Jónsdóttur, sem er búsett í París.

  21. Rígurinn á milli kók og pepsí í ljósi rannsóknar Samkeppniseftirlitsins

    18 minEpisódio 762

    Hvort er betra, kók eða pepsí? Þetta er ein af þessum spurningum sem sjálfsagt margir hafa skoðun á. Rígurinn á milli þessara sykruðu gossrykkja er langvinnur og sögulegur, bæði hér á Íslandi sem og annars …

    Notas do episódio
    Hvort er betra, kók eða pepsí? Þetta er ein af þessum spurningum sem sjálfsagt margir hafa skoðun á. Rígurinn á milli þessara sykruðu gossrykkja er langvinnur og sögulegur, bæði hér á Íslandi sem og annars staðar. Í áratugi hafa íslensku fyrirtækin sem framleiða þessa drykki verið á sitt hvorum pólnum í köldu stríði. Þetta eru Ölgerðin og fyrirtækið sem lengst af hét Vífilfell en heitir nú CCEP. Spurningin um þennan mikla ríg hefur komist óbeint í kastljósið á síðustu dögum eftir að Samkeppniseftirlitið réðst í húsleit hjá íslenska Pepsífyrirtækinu Ölgerðinni. Fjallað er um þennan sögulega ríg á milli framleiðanda Coca Cola og Pepsi á Íslandi og rannsókn Samkeppniseftirlisins á Ölgerðinni. Birt eru viðtöl við Andra Þór Guðmundsson, fyrrverandi forstjóra Ölgerðarinnar, Pál Gunnar Pálsson, forstjóra Samkeppniseftirlitsins, og Önnu Regínu Jónsdóttur, forstjóra CCEP. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  22. Samkeppnin á tímum lífeyrissjóðanna

    16 minEpisódio 761

    Einstaka lífeyrissjóðir eru eigendur í fyrirtækjum sem á sama tíma eiga að vera keppinautar á markaði. Undir er matvara, bensín, bankastarfsemi og fjarskiptaþjónusta, svo fátt eitt sé nefnt. Prófessor segir …

    Notas do episódio
    Einstaka lífeyrissjóðir eru eigendur í fyrirtækjum sem á sama tíma eiga að vera keppinautar á markaði. Undir er matvara, bensín, bankastarfsemi og fjarskiptaþjónusta, svo fátt eitt sé nefnt. Prófessor segir þetta áhyggjuefni en framkvæmdastjóri lífeyrissjóðs segir það fela í sér kosti. Lífeyrissjóðir eftirláta öðrum stjórn skráðra fyrirtækja sem þeir eiga stóra hluti í. Óháðar nefndir sjái um að gæta þess að óháðir stjórnarmenn gæti hagsmuna þeirra. En hver skipar óháðu nefndirnar?
  23. Ölgerðin í ÁTVR: „Ríkið í Ríkinu“

    19 minEpisódio 760

    Ölgerðin hefur verið til umfjöllunar í fréttum síðustu daga út af húsleit Samkeppniseftirlitsins hjá fyrirtækinu út af meintri misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Fréttaskýringaþátturinn Kveikur hefur fjallað …

    Notas do episódio
    Ölgerðin hefur verið til umfjöllunar í fréttum síðustu daga út af húsleit Samkeppniseftirlitsins hjá fyrirtækinu út af meintri misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Fréttaskýringaþátturinn Kveikur hefur fjallað ítarlega um þessi meintu brot. Ölgerðin er orðið að risa á drykkjarvöru- og matvörumarkaði á Íslandi. Sala áfengra drykkja frá Ölgerðinni nemur um helmingi af allri sölu áfengis hjá ÁTVR. Þetta kemur fram í sölutölum frá ÁTVR fyrir síðasta ár. 50,3 prósent af öllum seldum áfengiseiningum sem ÁTVR selur og 47 prósent af öllum seldum lítrum koma frá Ölgerðinni. Er viðskiptasamband Ölgerðarinnar og ÁTVR óeðlilegt eða ekki? Rætt er Þorgerði Kristínu Þráinsdóttur forstjóri ÁTVR um þetta. Einnig er rætt við Arnar Sigurðsson, vínkaupmann í Santé, um fyrirferð Ölgerðarinnar á áfengismarkaði og innkaupakerfi ÁTVR. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  24. Sjálfkeyrandi bílar ryðja sér til rúms

    19 minEpisódio 759

    Í dag beinum við sjónum okkar að sjálfkeyrandi bílum. Rætt er við Rósu Guðbjartsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins, Björn Kristjánsson, bílasérfræðing og ráðgjafa hjá FÍB, og Þórhildi Elínu Elínardóttur hjá …

    Notas do episódio
    Í dag beinum við sjónum okkar að sjálfkeyrandi bílum. Rætt er við Rósu Guðbjartsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins, Björn Kristjánsson, bílasérfræðing og ráðgjafa hjá FÍB, og Þórhildi Elínu Elínardóttur hjá Samgöngustofu. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
  25. Tímakaup Wolt-sendla

    16 minEpisódio 758

    Þegar talað er um tímakaup Wolt-sendla á Íslandi er ekki verið að tala um tímakaup í sömu merkingu og flestir leggja í þetta orð. Tímakaup Wolt-sendla er tengt því hversu margar sendingar þeir fá beiðnir um að …

    Notas do episódio
    Þegar talað er um tímakaup Wolt-sendla á Íslandi er ekki verið að tala um tímakaup í sömu merkingu og flestir leggja í þetta orð. Tímakaup Wolt-sendla er tengt því hversu margar sendingar þeir fá beiðnir um að fara og hversu margar þeir samþykkja. Wolt sendlar geta fengið 0 krónur á tímann þrátt fyrir að þeir séu að keyra um merktir Wolt, skráðir inn í kerfið þar sem þeir fá sendingar og bíða eftir því að þeir fá slíkar sendingar. Arnhildur Hálfdánardóttir útvarpskona á Rás 1 fjallar um þetta og veruleika Wolt-sendla á Íslandi í útvarpsþættinum Þetta nútímalíf: Á rúntinum með Wolt-sendli: Allt sem ég lærði á því að vinna fyrir algóriþmann Rætt er við Arnhildi um Wolt í þætti dagsins. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  26. Glæpur og refsing í Manchester City

    20 minEpisódio 757

    Stærð og umfang hneyklisins í kringum fótboltaliðið Manchester City stækkar dag frá degi með nýjum fréttum af málinu. Ólíkar hugmyndir hafa til dæmis komið fram á opinberum vettvangi um hvaða afleiðingar …

    Notas do episódio
    Stærð og umfang hneyklisins í kringum fótboltaliðið Manchester City stækkar dag frá degi með nýjum fréttum af málinu. Ólíkar hugmyndir hafa til dæmis komið fram á opinberum vettvangi um hvaða afleiðingar hneykslið muni hafa fyrir fjárfestingar auðmanna frá Abu Dhabi í Bretlandi. Verður eigandi Manchester City, Sheik Mansour, núna svo fúll að hann muni vilja hætta öllum viðskiptum í Bretlandi eða mun hann vilja halda áfram að fjárfesta þar, meðal annars í Manchester City? Og hverjar eru pólitískar afleiðingar málsins? Andy Burnham forsætisráðherra hefur dregist inn í það með ummælum um að fjárfestarnir frá Abu Dabi séu of stórir til og mikilvægir til að þeir geti yfirgefið Bretland. Önnur lið í deildinni hafa áhyggjur af pólitískum afskiptum af málinu og að rannsóknin og refsing Manchester City verði í skötulíki. Rætt er við Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafa sem er sérstakur áhugamaður um fjármál fótboltafélaga. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  27. Manchester City-hneykslið snýst um miklu meira en fótbolta

    20 minEpisódio 756

    Hneykslið í kringum enska fótboltaliðið Manchester City hefur verið nær stöðugt í fjölmiðlum víða um heim síðastliðna viku. Stærð þessa skandals hefur magnast upp frá því að málið kom fyrst upp í lok september …

    Notas do episódio
    Hneykslið í kringum enska fótboltaliðið Manchester City hefur verið nær stöðugt í fjölmiðlum víða um heim síðastliðna viku. Stærð þessa skandals hefur magnast upp frá því að málið kom fyrst upp í lok september og er nú líka orðið að pólitísku og viðskiptalegu hneyksli sem teygir anga sína frá Englandi til arabíska furstadæmisins Abu Dhabi. Rætt er við Sigrúnu Davíðsdóttur, blaðamann og stjórnmálaskýranda sem hefur verið búsett í London um árabil, og Magnús Þorkel Bernharðsson, sagnfræðiprófessor sem er sérfræðingur í sögu Miðausturland, um þetta fordæmalausa mál. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  28. Nýtt vígbúnaðarkapphlaup þegar afvopnunar er minnst

    16 minEpisódio 755

    Um helgina verða liðin 40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða þar sem skref voru stigin í átt að afvopnun. Þessara tímamóta er nú víða minnst – á sama tíma og útgjöld til varnar- og hernaðarmála eru aukin. Í þætti …

    Notas do episódio
    Um helgina verða liðin 40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða þar sem skref voru stigin í átt að afvopnun. Þessara tímamóta er nú víða minnst – á sama tíma og útgjöld til varnar- og hernaðarmála eru aukin. Í þætti dagsins beinum við sjónum að nýju vígbúnaðarkapphlaupi á tímum þar sem árangur í afvopnun er rifjaður upp. Rætt er við Rósu Magnúsdóttur, prófessor í sagnfræði, og Eirík Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
  29. Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu

    15 minEpisódio 754

    Í þætti dagsins fjöllum við um aðgengi almennings að íslenska dómskerfinu, sér í lagi hjá héraðsdómum á landsbyggðinni. Fréttastofa RÚV og aðrir fjölmiðlar hafa ítrekað orðið að ganga á eftir birtingum dóma og …

    Notas do episódio
    Í þætti dagsins fjöllum við um aðgengi almennings að íslenska dómskerfinu, sér í lagi hjá héraðsdómum á landsbyggðinni. Fréttastofa RÚV og aðrir fjölmiðlar hafa ítrekað orðið að ganga á eftir birtingum dóma og oft gengið erfiðlega að fá upplýsingar um réttarhöld. Héraðsdómur Norðurlands eystra birti tuttugu og níu dóma í sumar, eftir að fréttastofa gerði athugasemd við vinnulag dómstólsins. Sumir dómanna höfðu legið óbirtir mánuðum saman og farið þannig gegn reglum Dómstólasýslunnar. Umsjón: Ólöf Rún Erlendsdóttir
  30. Baráttan um Brasilíu

    16 minEpisódio 753

    Við förum til Brasilíu í þætti dagsins þar sem forsetakosningar fóru fram í gær. Hægrisinnaði öldungadeildarþingmaðurinn Flavio Bolsonaro, sonur fyrrverandi forsetans Jair Bolsonaro, fékk flest atkvæði, rúm 47 …

    Notas do episódio
    Við förum til Brasilíu í þætti dagsins þar sem forsetakosningar fóru fram í gær. Hægrisinnaði öldungadeildarþingmaðurinn Flavio Bolsonaro, sonur fyrrverandi forsetans Jair Bolsonaro, fékk flest atkvæði, rúm 47 prósent gegn rúmum 45 prósentum sitjandi forseta, Luiz Inácio Lula da Silva, leiðtoga Verkamannaflokksins. Hvorugur fékk hreinan meirihluta og þess vegna verður kosið aftur eftir tæpar þrjár vikur. Rætt er við Hólmfríði Garðarsdóttur, prófessor og sérfræðing í málefnum Rómönsku-Ameríku. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Aqui estão os 60 episódios mais recentes de 782. Os mais antigos estão no feed do podcast.

Este podcast é seu?

Confirme com uma entrada no seu feed: você recebe um código aqui, adiciona como podcast:txt no canal do seu feed e nós verificamos. Depois disso, seu podcast aparece como “verificado” no SoundNode.

Configurações

Exibição

Idioma

Define quais estações você vê primeiro na página inicial.

Histórico

As rádios e episódios ouvidos recentemente e suas últimas buscas ficam só neste navegador.

Avisos

Um aviso rápido quando um podcast que você segue tem um episódio novo. Desative podcasts individuais pelo sino na página deles.

Conta

Salve favoritos – no app e no site.

Atalhos de teclado

/
Abrir busca
Espaço
Reproduzir ou pausar
← →
No player: voltar 15 s, avançar 30 s (episódios) · na fileira: próximo bloco
↑ ↓
Na fileira: alvo dentro do bloco
Home / End
Na fileira: primeiro ou último bloco
Esc
Fechar janela ou menu
?
Esta visão geral
Tocando agora

Ir para a estação

A seguir

    Adicione episódios com “A seguir” – eles tocam depois do episódio atual.