Pular para o conteúdo
Vikulokin
PodcastIS

Vikulokin

Episódio 1Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, Jón Pétur Zimsen og Dagbjört Hákonardóttir15 de novembro de 2025 · 58 min
Episódios
52
Formato
Série – ouça desde o começo
Último episódio
7 nov 2026

Sobre o podcast

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur. Nálgast má Vikulokin í mynd í beinni útsendingu á ruv.is á laugardagsmorgnum, og í sjónvarps spilara RÚV.

Episódios 52

  1. Verslunarrekstur, virkjanir og stjórnmálin

    57 minEpisódio 52

    Verslunarrekstur, virkjanir og staðan í stjórnmálunum verða rædd í Vikulokum dagsins. Viðskiptaumhverfið og verslunarrekstur hér á landi verður til umræðu í fyrsta hluta Vikulokanna. Gísli Þór Sigurbergsson …

    Notas do episódio
    Verslunarrekstur, virkjanir og staðan í stjórnmálunum verða rædd í Vikulokum dagsins. Viðskiptaumhverfið og verslunarrekstur hér á landi verður til umræðu í fyrsta hluta Vikulokanna. Gísli Þór Sigurbergsson, eigandi Fjarðarkaupa og Guðrún Jóhannesdóttir, eigandi Kokku ræða Ingvar Þór Björnsson. Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, og Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, ræða raforkuframleiðslu og virkjunarkosti í öðrum hluta þáttarins. Í lokin mæta Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í Reykjavík, og Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar og fara yfir stöðuna í stjórnmálunum.
  2. Uppsagnir í Reykjavík, álögur á Suðurlandi og hótanir gegn lögreglufólki

    57 minEpisódio 51

    Aðhaldsaðgerðir og uppsagnir hjá Reykjavíkurborg eru til umræðu í Vikulokunum í dag. Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi og formaður hagræðingarhóps meirihlutans og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, mætast …

    Notas do episódio
    Aðhaldsaðgerðir og uppsagnir hjá Reykjavíkurborg eru til umræðu í Vikulokunum í dag. Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi og formaður hagræðingarhóps meirihlutans og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, mætast í fyrsta hluta þáttarins. Í öðrum hluta þáttarsins mæta Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og Haraldur Þór Jónsson, sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps, til að ræða um auknar álögur á atvinnulíf á Suðurlandi og breytingar á loftbrú. Í síðasta hlutanum ræða Guðmundur Fylkisson lögreglumaður og Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna um hótanir og ofbeldi í garð lögreglumanna, nýja löggæsluáætlun og sameiningu embætta.
  3. Mótmæli í Evrópu, menntamál og tíðindi af þingi

    57 minEpisódio 50

    Mótmælin í Evrópu, PHP-málið, hugmyndir um breytingar á rekstri bókasafna og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, menntamál og tíðindaleysi á þingi er meðal þess sem er til umræðu í vikulokunum í dag. Gestir í …

    Notas do episódio
    Mótmælin í Evrópu, PHP-málið, hugmyndir um breytingar á rekstri bókasafna og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, menntamál og tíðindaleysi á þingi er meðal þess sem er til umræðu í vikulokunum í dag. Gestir í fyrsta hluta eru Björn Jón Bragason, kennari við Verzlunarskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík, Jökull Sólberg Auðunsson, frumkvöðull, og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, framkvæmdastjóri BSRB. Í öðrum hluta er rætt við Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, um nýja aðgerðaáætlun í menntamálum og breytingar á einkunnakerfi. Í þriðja hluta ræða þingmennirnir Sigurður Örn Hilmarsson, Sjálfstæðisflokki, og Víðir Reynisson, Samfylkingu, um tíðindaleysi á þingi, menntamál og Litla spítalann.
  4. Samkeppnismál, staðan í stjórnmálunum og aðferðir Seðlabankans

    57 minEpisódio 49

    Umfjöllun Kveiks um meinta markaðsmisnotkun Ölgerðarinnar, ummæli varaseðlabankastjóra um aðgerðir til að auka atvinnuleysi og úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar eru meðal þess sem verður í brennidepli …

    Notas do episódio
    Umfjöllun Kveiks um meinta markaðsmisnotkun Ölgerðarinnar, ummæli varaseðlabankastjóra um aðgerðir til að auka atvinnuleysi og úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar eru meðal þess sem verður í brennidepli í Vikulokunum. Rætt verður við Mána Pétursson, umboðsmann og stjórnarmann KSÍ, Svandísi Svavarsdóttur, ritstjóra og fyrrverandi ráðherra, og Sigurð Þ. Ragnarsson jarð- og veðurfræðing í fyrsta hluta, meðal annars um Ölgerðina, illviðri í vikunni og úrslitaleik um að komast á HM í Brasilíu. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, ræðir Seðlabankann, verkalýðshreyfinguna og kjaramál í öðrum hluta. Að lokum verður rætt við Grím Grímsson, þingmann Viðreisnar, og Ingibjörgu Isaksen, þingmann Framsóknar, um stöðuna í stjórnmálunum og úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar.
  5. Kjarasamningar, leigubremsa og forsetaslagur ASÍ

    57 minEpisódio 48

    Kjarasamningar, staðan á vinnumarkaði, leigubremsa, forsetakjör ASÍ, heimsókn Marco Rubio og fleira verða til umræðu í Vikulokunum í dag. I. hluti: Kjarasamningar, vinnumarkaður og leigubremsa Aldís Guðný …

    Notas do episódio
    Kjarasamningar, staðan á vinnumarkaði, leigubremsa, forsetakjör ASÍ, heimsókn Marco Rubio og fleira verða til umræðu í Vikulokunum í dag. I. hluti: Kjarasamningar, vinnumarkaður og leigubremsa Aldís Guðný Sigurðardóttir, sérfræðingur í samningatækni Már Wolfgang Mixa, prófessor í viðskiptafræði Sigurður Pétursson, sagnfræðingur og kennari við Menntaskólann að Laugarvatni II. hluti: ASÍ Georg Páll Skúlason, formaður GRAFÍU og frambjóðandi til embættis forseta ASÍ Arnaldur Grétarsson, sérfræðingur í stafrænni miðlun og frambjóðandi til embættis forseta ASÍ III. hluti: Vikan á þingi Sandra Sigurðardóttir, þingmaður Viðreisnar Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins
  6. Kjaramálin, Landsvirkjun, gervigreind og friður

    57 minEpisódio 47

    Kjaramál og atvinnuleysi, Landsvirkjun og samtal forseta Íslands og ungs fólks eru til umræðu í Vikulokunum í dag. Þátturinn er í þremur hlutum. I. hluti: Kjaramál og atvinnuleysi Arna Lára Jónsdóttir, formaður …

    Notas do episódio
    Kjaramál og atvinnuleysi, Landsvirkjun og samtal forseta Íslands og ungs fólks eru til umræðu í Vikulokunum í dag. Þátturinn er í þremur hlutum. I. hluti: Kjaramál og atvinnuleysi Arna Lára Jónsdóttir, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Björgin Víkingsson, framkvæmdastjóri Bónus Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ II. hluti: Landsvirkjun og Hörður Arnarson Andrés Jónsson, almannatengill og stjórnendaráðgjafi Guðmundur Hálfdánarson, sagnfræðingur III. hluti: Rætt um samtal, gervigreind og frið Halla Tómasdóttir, forseti Íslands Lísa Margrét Gunnarsdóttir, forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta
  7. Atvinnuvegaráðherra, pólitík í íþróttum, skilaboðin og skítapotturinn

    57 minEpisódio 46

    Í fyrsta hluta Vikuloka dagsins verður rætt um stöðuna í stjórnmálunum, skítapottinn og skilaboðin. Viðmælendur eru Kolbeinn Marteinsson, framkvæmdastjóri Athygli og fyrrverandi aðstoðarmaður Katrínar …

    Notas do episódio
    Í fyrsta hluta Vikuloka dagsins verður rætt um stöðuna í stjórnmálunum, skítapottinn og skilaboðin. Viðmælendur eru Kolbeinn Marteinsson, framkvæmdastjóri Athygli og fyrrverandi aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur, Áslaug Hulda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Sjúkratryggingum Íslands og fyrrverandi aðstoðarmaður Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttir og Viktor Orri Valgarðsson, stjórnmálafræðingur. Í öðrum hluta er rætt við Willum Þór Þórsson, forseta Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, meðal annars um Heimi Hallgrímsson, Ísrael, forvarnir og landsleik. Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra er gestur þriðja hluta, þar verður meðal annars rætt um boðað náttúru- og innviðagjald, hvalveiðar og nýja stofnun atvinnuveganna.
  8. Kosningalög, bankaskattur og verkfall flugvirkja

    57 minEpisódio 45

    Í fyrsta hluta var rætt við Vilhjálm Árnason bæjarstjóra Reykjanesbæjar og Karólínu Helgu Símonardóttur bæjarfulltrúa í Hafnarfirði um húsnæðismál Tækniskólans sem hafa verið mikið til umræðu undanfarna daga …

    Notas do episódio
    Í fyrsta hluta var rætt við Vilhjálm Árnason bæjarstjóra Reykjanesbæjar og Karólínu Helgu Símonardóttur bæjarfulltrúa í Hafnarfirði um húsnæðismál Tækniskólans sem hafa verið mikið til umræðu undanfarna daga. Þau ræddu einnig fyrirhugaða brottvísunarstöð, breytingar á kosningalögum og verkfall flugvirkja. Bankaskattur sem boðaður var í nýju fjárlagafrumvarpi var í brennidepli í öðrum hluta þar sem rætt var við Ásthildi Lóu Þórsdóttur, þingmann Flokks fólksins, Jón Guðna Ómarsson, bankastjóra Íslandsbanka, og Gylfa Magnússon hagfræðiprófessor. Að lokum var rætt við Óskar Einarsson, formann Flugvirkjafélags Íslands, um kjaradeilu við Icelandair og fyrirhugað verkfall.
  9. Kosningalög, bankaskattur og verkfall flugvirkja

    57 minEpisódio 46

    Í fyrsta hluta var rætt við Vilhjálm Árnason bæjarstjóra Reykjanesbæjar og Karólínu Helgu Símonardóttur bæjarfulltrúa í Hafnarfirði um húsnæðismál Tækniskólans sem hafa verið mikið til umræðu undanfarna daga …

    Notas do episódio
    Í fyrsta hluta var rætt við Vilhjálm Árnason bæjarstjóra Reykjanesbæjar og Karólínu Helgu Símonardóttur bæjarfulltrúa í Hafnarfirði um húsnæðismál Tækniskólans sem hafa verið mikið til umræðu undanfarna daga. Þau ræddu einnig fyrirhugaða brottvísunarstöð, breytingar á kosningalögum og verkfall flugvirkja. Bankaskattur sem boðaður var í nýju fjárlagafrumvarpi var í brennidepli í öðrum hluta þar sem rætt var við Ásthildi Lóu Þórsdóttur, þingmann Flokks fólksins, Jón Guðna Ómarsson, bankastjóra Íslandsbanka, og Gylfa Magnússon hagfræðiprófessor. Að lokum var rætt við Óskar Einarsson, formann Flugvirkjafélags Íslands, um kjaradeilu við Icelandair og fyrirhugað verkfall.
  10. PISA, þingveturinn og samband Íslands við Bandaríkin

    57 minEpisódio 44

    I. hluti: PISA - Sigrún Jóna Grettisdóttir, kennari í Árbæjarskóla - Halla Stella Sveinbjörnsdóttir, nemi - Ómar Örn Magnússon, aðstoðarskólastjóri Hagaskóla II. hluti: Þingsetning og fjárlög - Árni Helgason …

    Notas do episódio
    I. hluti: PISA - Sigrún Jóna Grettisdóttir, kennari í Árbæjarskóla - Halla Stella Sveinbjörnsdóttir, nemi - Ómar Örn Magnússon, aðstoðarskólastjóri Hagaskóla II. hluti: Þingsetning og fjárlög - Árni Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins - Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar - Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins III. hluti: Samskipti Bandaríkjanna og Íslands - Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands - Friðjón R. Friðjónsson, varaborgarfulltrúi og áhugamaður um bandarísk stjórnmál
  11. Fjárlög, fjölmiðlar og málefni barna

    57 minEpisódio 43

    Í Vikulokunum í dag var rætt um fjárlög og kjaramál, fjölmiðlalandslagið og þær fréttir sem hafa snúist um börn og ungmenni í vikunni, aukna áfengisdrykkju, útivistartíma og annað. Fyrsti hluti: - Daði Már …

    Notas do episódio
    Í Vikulokunum í dag var rætt um fjárlög og kjaramál, fjölmiðlalandslagið og þær fréttir sem hafa snúist um börn og ungmenni í vikunni, aukna áfengisdrykkju, útivistartíma og annað. Fyrsti hluti: - Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra Annar hluti: - Birkir Karl Sigurðsson, stjórnandi hlaðvarpsins Chess after dark - Eyrún Magnúsdóttir, ritstjóri Gímaldsins - Oddur Ævar Gunnarsson, fréttamaður á Sýn Þriðji hluti: - Erlingur Sigvaldason, frístundaráðgjafi og kennaranemi - Árni Guðmundsson, sérfræðingur í æskulýðsmálum - Þóranna Rósa Ólafsdóttir, skólastjóri Rimaskóla
  12. Kjördagur, uppsagnir og kjaramál

    1 h 18 minEpisódio 42

    Í Vikulokunum í dag var rætt um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið, uppsagnir hjá Reykjavíkurborg, kjarasamninga og verðbólgu. Ingvar Þór Björnsson hefur þáttinn á að ræða …

    Notas do episódio
    Í Vikulokunum í dag var rætt um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið, uppsagnir hjá Reykjavíkurborg, kjarasamninga og verðbólgu. Ingvar Þór Björnsson hefur þáttinn á að ræða þjóðaratkvæðagreiðsluna við Ólaf Þ. Harðarson, stjórnmálafræðing, Guðmund Heiðar Helgason, almannatengil og Ragnheiði Kristjánsdóttur, sagnfræðing. Í öðrum hluta voru uppsagnir Reykjavíkurborgar í vikunni ræddar. Þar voru Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs og Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar gestir þáttarins. Í þriðja hluta voru kjaramál í brennidepli þegar Ingvar tók á móti Arnaldi Sölvi Kristjánssyni, formanni fjármálaráðs, Birgittu Ragnarsdóttur, stjórnarmanni í VR, og Kristínu Hebu Gísladóttur, framkvæmdastjóra Vörðu.
  13. Kjaramál, hernaður og þjóðaratkvæðagreiðsla

    57 minEpisódio 41

    Í Vikulokunum 22. ágúst var rætt um kjaramál, hernað og þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Í fyrsta hluta mættu Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Finnbjörn A. Hermannsson, forseti …

    Notas do episódio
    Í Vikulokunum 22. ágúst var rætt um kjaramál, hernað og þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Í fyrsta hluta mættu Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra. Í öðrun hluta voru viðmælendur Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs, Stefán Pálsson, hernaðarandstæðingur, og Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur. Í þriðja hluta þáttarins mættu Birta Karen Tryggvadóttir, hagfræðingur, og Gréta María Grétarsdóttir, verkfræðingur.
  14. Hanna Katrín Friðriksson, Orri Hauksson og Þorsteinn Guðmundsson

    58 minEpisódio 40

    Í Vikulokunum var farið yfir fréttir vikunnar, almyrkvann og aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar o.fl. Við greinum stöðuna í samfélaginu og ræðum sálarlíf klofinnar þjóðar. Gestir voru Hanna Katrín …

    Notas do episódio
    Í Vikulokunum var farið yfir fréttir vikunnar, almyrkvann og aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar o.fl. Við greinum stöðuna í samfélaginu og ræðum sálarlíf klofinnar þjóðar. Gestir voru Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, Orri Hauksson, verkfræðingur og fjárfestir og Þorsteinn Guðmundsson, leikari og sálfræðingur. Umsjón: María Sigrún Hilmarsdóttir Tæknimaður: Jón Þór Helgason.
  15. Hermann Guðmundsson, Kolbrún Bergþórsdóttir og Jónas Hagan

    58 minEpisódio 38

    Gestir Vikulokanna eru Hermann Guðmundsson framkvæmdastjóri Kemi og fyrrverandi forstjóri N1, Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður, bókmenntagagnrýnandi og pistlahöfundur og Jónas Hagan Guðmundsson fjárfestir …

    Notas do episódio
    Gestir Vikulokanna eru Hermann Guðmundsson framkvæmdastjóri Kemi og fyrrverandi forstjóri N1, Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður, bókmenntagagnrýnandi og pistlahöfundur og Jónas Hagan Guðmundsson fjárfestir, frumkvöðull og stjórnarmaður í hreyfingunni Já til að sjá. Þau ræddu meðal annars komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildaviðræður Íslands við ESB, minnkafár í Mosfellsbæ og viðtal forsætisráðherra við breska hlaðvarpið Rest is Politics. Umsjón: Urður Örlygsdóttir Tæknimaður: Þráinn Steinsson
  16. Aðalsteinn Baldursson, Arnheiður Jóhannsdóttir og Karl Frímannsson

    58 minEpisódio 37

    Gestir Vikulokanna eru Aðalsteinn Baldursson, formaður Framsýnar, stéttarfélags Þingeyinga, Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands og Karl Frímannsson skólameistari Mennatskólans á …

    Notas do episódio
    Gestir Vikulokanna eru Aðalsteinn Baldursson, formaður Framsýnar, stéttarfélags Þingeyinga, Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands og Karl Frímannsson skólameistari Mennatskólans á Akureyri. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir Tæknimaður: Þráinn Steinsson
  17. Guðmundur Hálfdánarson, Birna Þórarinsdóttir og Sigrún Davíðsdóttir

    58 minEpisódio 36

    Gestir Vikulokanna eru Guðmundur Hálfdánarson prófessor, Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi og Sigrún Davíðsdóttir fjölmiðlakona. Þau ræddu meðal annars sviptingar í breskum stjórnmálum …

    Notas do episódio
    Gestir Vikulokanna eru Guðmundur Hálfdánarson prófessor, Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi og Sigrún Davíðsdóttir fjölmiðlakona. Þau ræddu meðal annars sviptingar í breskum stjórnmálum, átökin við Persaflóa og loftslagsmál. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Þráinn Steinsson
  18. Snærós Sindradóttir og Halldór Benjamín Þorbergsson

    58 minEpisódio 35

    Gestir Vikulokanna eru Snærós Sindradóttir framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar og Halldór Benjamín Þorbergsson einn stofnanda Áfram-Ísland. Þau ræddu komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við ESB …

    Notas do episódio
    Gestir Vikulokanna eru Snærós Sindradóttir framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar og Halldór Benjamín Þorbergsson einn stofnanda Áfram-Ísland. Þau ræddu komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við ESB. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Þráinn Steinsson
  19. Gunnar Sigurðarson, Kolbrún Halldórsdóttir og Björn Berg Gunnarsson

    58 minEpisódio 34

    Gestir Vikulokanna 4. júlí voru Gunnar Sigurðarson, stjórnmálafræðingur og sérfræðingur hjá Samtökum iðnaðarins, Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafi og Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM. Umsjón: Ingvar …

    Notas do episódio
    Gestir Vikulokanna 4. júlí voru Gunnar Sigurðarson, stjórnmálafræðingur og sérfræðingur hjá Samtökum iðnaðarins, Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafi og Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
  20. Gunnar Sigurðarson, Kolbrún Halldórsdóttir og Björn Berg Gunnarsson

    58 minEpisódio 35

    Gestir Vikulokanna 4. júlí voru Gunnar Sigurðarson, stjórnmálafræðingur og sérfræðingur hjá Samtökum iðnaðarins, Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafi og Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM. Umsjón: Ingvar …

    Notas do episódio
    Gestir Vikulokanna 4. júlí voru Gunnar Sigurðarson, stjórnmálafræðingur og sérfræðingur hjá Samtökum iðnaðarins, Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafi og Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
  21. Magnea Gná Jóhannsdóttir, Róbert Ragnarsson og Stefán Pálsson

    58 minEpisódio 33

    Gestir Vikulokanna 27. júní voru Magnea Gná Jóhannsdóttir, varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins, Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar og Stefán Pálsson, varaborgarfulltrúi Vinstrisins.

  22. María Rut Kristinsdóttir, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og Bryndís Haraldsdóttir

    57 minEpisódio 32

    Gestir Vikulokanna eru María Rut Kristinsdóttir þingmaður Viðreisnar, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir þingmaður Flokks fólksins og Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks. Umsjón: Höskuldur Kári Schram …

    Notas do episódio
    Gestir Vikulokanna eru María Rut Kristinsdóttir þingmaður Viðreisnar, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir þingmaður Flokks fólksins og Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Jón Þór Helgason
  23. Ingveldur Anna Sigurðardóttir, Kristján Þórður Snæbjarnarson og Stefán Vagn Stefánsson

    58 minEpisódio 31

    Rætt var um þinglok og stóru málin á þingi í Vikulokunum 13. júní. Ingveldur Anna Sigurðardóttir, nýr þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Kristján Þórður Snæbjarnarson, þingmaður Samfylkingarinnar, og Stefán Vagn …

    Notas do episódio
    Rætt var um þinglok og stóru málin á þingi í Vikulokunum 13. júní. Ingveldur Anna Sigurðardóttir, nýr þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Kristján Þórður Snæbjarnarson, þingmaður Samfylkingarinnar, og Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknar, voru viðmælendur. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
  24. Pétur Marteinsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir

    58 minEpisódio 30

    Gestir Vikulokanna voru Pétur Marteinsson, borgarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður velferðarráðs, og Sanna …

    Notas do episódio
    Gestir Vikulokanna voru Pétur Marteinsson, borgarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður velferðarráðs, og Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi og oddviti Vinstrisins. Meðal annars voru til umræðu húsnæðismál, samgöngumál og fánareglur borgarinnar. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Þráinn Steinsson
  25. Pétur Marteinsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir

    58 minEpisódio 31

    Gestir Vikulokanna voru Pétur Marteinsson, borgarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður velferðarráðs, og Sanna …

    Notas do episódio
    Gestir Vikulokanna voru Pétur Marteinsson, borgarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður velferðarráðs, og Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi og oddviti Vinstrisins. Meðal annars voru til umræðu húsnæðismál, samgöngumál og fánareglur borgarinnar. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Þráinn Steinsson
  26. Heimir Hannesson, Ólafur Stephensen og Rósa Björk Brynjólfsdóttir

    56 minEpisódio 29

    Heimir Hannesson, Ólafur Stephensen og Rósa Björk Brynjólfsdóttir voru gestir Vikulokanna að þessu sinni. Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið og myndun nýs meirihluta í …

    Notas do episódio
    Heimir Hannesson, Ólafur Stephensen og Rósa Björk Brynjólfsdóttir voru gestir Vikulokanna að þessu sinni. Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið og myndun nýs meirihluta í Reykjavík voru til umræðu. Umsjón: Magnús Geir Eyjólfsson
  27. Heimir Hannesson, Ólafur Stephensen og Rósa Björk Brynjólfsdóttir

    56 minEpisódio 30

    Heimir Hannesson, Ólafur Stephensen og Rósa Björk Brynjólfsdóttir voru gestir Vikulokanna að þessu sinni. Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið og myndun nýs meirihluta í …

    Notas do episódio
    Heimir Hannesson, Ólafur Stephensen og Rósa Björk Brynjólfsdóttir voru gestir Vikulokanna að þessu sinni. Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið og myndun nýs meirihluta í Reykjavík voru til umræðu. Umsjón: Magnús Geir Eyjólfsson
  28. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Diljá Mist Einarsdóttir

    58 minEpisódio 28

    Gestir Vikulokanna eru Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingmaður Miðflokksins, Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður Samfylkingarinnar og Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks. Þau ræddu meðal annars …

    Notas do episódio
    Gestir Vikulokanna eru Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingmaður Miðflokksins, Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður Samfylkingarinnar og Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks. Þau ræddu meðal annars bæjar- og sveitarstjórnarkosningar, meirihlutaviðræður í Reykjavík, efnahagsmál og boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildaviðræður við Evrópusambandið. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Úlfhildur Eysteinsdóttir
  29. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, Oddur Ævar Gunnarsson og Hafdís Helga Helgadóttir

    58 minEpisódio 27

    Gestir í Vikulokunum 16. maí voru: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu Oddur Ævar Gunnarsson, fréttamaður á Sýn Hafdís Helga Helgadóttir, upplýsingafulltrúi og fyrrverandi fréttamaður

Este podcast é seu?

Confirme com uma entrada no seu feed: você recebe um código aqui, adiciona como podcast:txt no canal do seu feed e nós verificamos. Depois disso, seu podcast aparece como “verificado” no SoundNode.

Configurações

Exibição

Idioma

Define quais estações você vê primeiro na página inicial.

Histórico

As rádios e episódios ouvidos recentemente e suas últimas buscas ficam só neste navegador.

Avisos

Um aviso rápido quando um podcast que você segue tem um episódio novo. Desative podcasts individuais pelo sino na página deles.

Conta

Salve favoritos – no app e no site.

Atalhos de teclado

/
Abrir busca
Espaço
Reproduzir ou pausar
← →
No player: voltar 15 s, avançar 30 s (episódios) · na fileira: próximo bloco
↑ ↓
Na fileira: alvo dentro do bloco
Home / End
Na fileira: primeiro ou último bloco
Esc
Fechar janela ou menu
?
Esta visão geral
Tocando agora

Ir para a estação

A seguir

    Adicione episódios com “A seguir” – eles tocam depois do episódio atual.