Pular para o conteúdo
Vísir
PodcastNotíciasInglês

Vísir

NovoSætið - Forstjóri Bláa lónsins um hlutafjárútboð félagsins12 de novembro de 2026 · 43 min
Episódios
37
Publicação
várias vezes por semana
Último episódio
12 nov 2026

Sobre o podcast

Fréttamenn Vísis setjast niður með áhugaverðu fólki, kafa í málefni líðandi stundar og ræða það sem vekur athygli hverju sinni. Hlaðvarpið sameinar fréttir, mannlegar sögur og menningu í víðum skilningi. Frá stjórnmálum til poppkúltúrs – og öllu þar á milli.

Episódios 37

  1. Sætið - Forstjóri Bláa lónsins um hlutafjárútboð félagsins

    43 minEpisódio 39

    Bláa lónið stendur á tímamótum. Nýlega keypti félagið annað stöndugt ferðaþjónustufyrirtæki. Fyrirhuguð er skráning félagsins á markað og stendur nú yfir hlutafjárútboð sem lýkur á morgun. Sigríður Margrét …

    Notas do episódio

    Bláa lónið stendur á tímamótum. Nýlega keypti félagið annað stöndugt ferðaþjónustufyrirtæki. Fyrirhuguð er skráning félagsins á markað og stendur nú yfir hlutafjárútboð sem lýkur á morgun. Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, er næsti gestur í Sætinu.

  2. Innherji - Hvers virði er Bláa lónið og hvenær lækka vextir?

    1 h 5 minEpisódio 38

    Í þætti dagsins ræðum við fjárfestaráðstefnuna Arctic Investments 2026 sem var haldin í London í síðustu viku. Hörður Ægisson ritstjóri Innherja hlýddi þar á ræðu Kristrúnar Frostadóttur sem hvatti til erlendra …

    Notas do episódio

    Í þætti dagsins ræðum við fjárfestaráðstefnuna Arctic Investments 2026 sem var haldin í London í síðustu viku. Hörður Ægisson ritstjóri Innherja hlýddi þar á ræðu Kristrúnar Frostadóttur sem hvatti til erlendra fjárfestinga í orku og innviðum á Íslandi. Kristrún vakti mikla lukku á meðal erlendra fjárfesta á meðan þeir innlendu veltu fyrir sér hvort orð hennar væru samhljóma aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Þá er einnig farið yfir útboð Bláa lónsins sem fer fram í vikunni og hvað þarf að ganga upp til að 95 krónur á hlut teljist gott verð.

    Í seinni hluta þáttarins fáum við til okkar Eggert Þröst Þórarinsson hjá Acro en um árabil vann hann að fjármálastöðugleika í Seðlabankanum. Eggert er beðinn um að útskýra hvers vegna hann telur að hagkerfið kunni að vera að kólna hraðar en Seðlabankinn gerir ráð fyrir og síðast en ekki síst, hverju hann býst við þegar ákvörðun um vexti verður kynnt 18. nóvember.

  3. Í bóli Bjarnars - Ólafía Hrönn

    1 h 1 minEpisódio 36

    Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikkona er með skemmtilegra fólki, með munninn fyrir neðan nefið og hún kom spyrlinum ítrekað í vandræði með beinskeyttum og óvæntum gagnspurningum. Ólafía fer yfir litríkan ferilinn en …

    Notas do episódio

    Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikkona er með skemmtilegra fólki, með munninn fyrir neðan nefið og hún kom spyrlinum ítrekað í vandræði með beinskeyttum og óvæntum gagnspurningum. Ólafía fer yfir litríkan ferilinn en hún hefur ótrúlega breidd sem leikari og ræður jöfnum höndum við kómík og dramatík.

  4. Þingkosningarnar í Bandaríkjunum á mannamáli

    21 minEpisódio 35

    Draumar Demókrataflokksins um sigur í báðum deildum bandarískra þingsins rættist. En hvaða kosningar voru þetta? Hvað þýðir sigur hinna bláu? Hvers er von hjá Donald Trump það sem eftir er kjörtímabilsins …

    Notas do episódio

    Draumar Demókrataflokksins um sigur í báðum deildum bandarískra þingsins rættist. En hvaða kosningar voru þetta? Hvað þýðir sigur hinna bláu? Hvers er von hjá Donald Trump það sem eftir er kjörtímabilsins. Kolbeinn Tumi Daðason ritstjóri fréttastofu Sýnar fékk Samúel Karl Ólason, fréttamann Vísis og sérfræðing í bandarískum stjórnmálum, til að útskýra kosningarnar á mannamáli.

  5. Í bóli Bjarnars - Ásgrímur Sverrisson

    53 minEpisódio 33

    Fáir ef nokkrir vita eins mikið um bíóbransann og Ásgrímur Sverrisson. Hann ræðir stöðu íslenskrar kvikmyndagerðar og þróun á þeim vettvangi; hvort þar ríki bölmóðurinn einn eða að menn geti farið að horfa fram …

    Notas do episódio

    Fáir ef nokkrir vita eins mikið um bíóbransann og Ásgrímur Sverrisson. Hann ræðir stöðu íslenskrar kvikmyndagerðar og þróun á þeim vettvangi; hvort þar ríki bölmóðurinn einn eða að menn geti farið að horfa fram á bjartari tíð með blóm í haga.

  6. Sætið - Mikilvægt að vanda sig í viðkvæmum málum

    50 minEpisódio 34

    Formaður Miðflokksins segir umræðuna um regnbogafánana hafa komið sér á óvart. Hópar telji fánann þvingandi og útilokandi og segir formaðurinn hættu á að hann ýti börnum út í „eitthvað trend“. Menntakerfið megi …

    Notas do episódio

    Formaður Miðflokksins segir umræðuna um regnbogafánana hafa komið sér á óvart. Hópar telji fánann þvingandi og útilokandi og segir formaðurinn hættu á að hann ýti börnum út í „eitthvað trend“. Menntakerfið megi ekki beina þeim í „einhverjar áttir“. Formaðurinn hefur ekki greitt atkvæði á þessu þingi en hyggst brátt tala manna mest og boðar nýjar tillögur í útlendingamálum.

  7. Innherji - Brotthvarf Harðar frá Landsvirkjun

    1 h 4 minEpisódio 32

    Skyndilegt brotthvarf forstjóra Landsvirkjunar og ládeyða á hlutabréfamarkaði er í brennidepli í fyrsta hlaðvarpsþætti Innherja þar sem farið er um víðan völl. Birgir Olgeirsson fréttamaður og Hörður Ægisson …

    Notas do episódio

    Skyndilegt brotthvarf forstjóra Landsvirkjunar og ládeyða á hlutabréfamarkaði er í brennidepli í fyrsta hlaðvarpsþætti Innherja þar sem farið er um víðan völl. Birgir Olgeirsson fréttamaður og Hörður Ægisson ritstjóri Innherja fá Ólaf Sigurðsson framkvæmdastjóra Birtu lífeyrissjóðs í heimsókn.

  8. Í bóli Bjarnars - Tolli

    55 minEpisódio 29

    Myndlistarmaðurinn Tolli Morthens skefur ekki af því frekar en fyrri daginn. Hann skautar yfir ferilinn, segir af Íkarusi og samstarfinu við Megas, því að hann hafi ekki haft taugar í að feta glæpabrautina og …

    Notas do episódio

    Myndlistarmaðurinn Tolli Morthens skefur ekki af því frekar en fyrri daginn. Hann skautar yfir ferilinn, segir af Íkarusi og samstarfinu við Megas, því að hann hafi ekki haft taugar í að feta glæpabrautina og segist hafa orðið skelfingu lostinn þegar hann greindist með krabbamein.

  9. Menningarvaktin - Djöflar og Teitur Magnússon

    55 minEpisódio 31

    Í þriðja þætti Menningarvaktarinnar í vetur ræða þeir Símon Birgisson og Magnús Jochum Pálsson um leiksýninguna Djöfla sem nú er sýnd í Borgarleikhúsinu og hefur fengið misjafna dóma. Þær ræða einnig hina …

    Notas do episódio
    Í þriðja þætti Menningarvaktarinnar í vetur ræða þeir Símon Birgisson og Magnús Jochum Pálsson um leiksýninguna Djöfla sem nú er sýnd í Borgarleikhúsinu og hefur fengið misjafna dóma. Þær ræða einnig hina umdeildu kvikmynd Digger með Tom Cruise. Ómar Úlfur rýnir í nýjustu plötur þeirra Teits Magnússonar og bandaríska tónlistarmannsins Beck.
  10. Sætið - Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður

    37 minEpisódio 30

    Logi Einarsson ætlar að flýta gerð nýs þjónustusamnings við Ríkisútvarpið þar sem miðlinum verða settar frekari skorður á samkeppnismarkaði. Nýr samningur átti að líta dagsins ljós í lok næsta árs en verður …

    Notas do episódio

    Logi Einarsson ætlar að flýta gerð nýs þjónustusamnings við Ríkisútvarpið þar sem miðlinum verða settar frekari skorður á samkeppnismarkaði. Nýr samningur átti að líta dagsins ljós í lok næsta árs en verður gerður á fyrri hluta ársins. Á svipuðum tíma boðar hann fyrstu háskólastefnu Íslands. Logi segir að það sem þar verður kynnt verði örugglega umdeilt en í stefnunni verði ekki að finna skipanir um sameiningu skóla.

  11. Í bóli Bjarnars - Guðrún Vilmundardóttir

    56 minEpisódio 28

    Guðrún Vilmundardóttir útgefandi á tuttugu ára starfsamæli í útgáfubransanum um þessar mundir. Hún stýrir útgáfufélaginu Benedikt og er með afar tilþrifamikinn lista höfunda á mála hjá sér. Guðrún er stórættuð …

    Notas do episódio

    Guðrún Vilmundardóttir útgefandi á tuttugu ára starfsamæli í útgáfubransanum um þessar mundir. Hún stýrir útgáfufélaginu Benedikt og er með afar tilþrifamikinn lista höfunda á mála hjá sér. Guðrún er stórættuð kona, afar hennar eru Gylfi Þ. Gíslason fyrrverandi menntamálaráðherra og Bjarni Benediktsson eldri – forsætisráðherra. Hún fer yfir ýmsa forvitnilega fleti á útgáfubransanum, segir af mjólkurkúm og lukkudýrum.

  12. „Hvað eru margir af þessum 15 sem geta unnið þetta?“

    1 h 20 minEpisódio 27

    Garpur I Elísabetarson fékk þau Kristján Karl Björnsson, Egil Trausta Ómarsson og Tinnu Miljevic til sín þar sem landsliðakeppnin í Bakgarðshlaupi var til umræðu. Keppnin fer fram næstu helgi þar sem 15 bestu …

    Notas do episódio

    Garpur I Elísabetarson fékk þau Kristján Karl Björnsson, Egil Trausta Ómarsson og Tinnu Miljevic til sín þar sem landsliðakeppnin í Bakgarðshlaupi var til umræðu. Keppnin fer fram næstu helgi þar sem 15 bestu hlauparar Íslands keppa við aðra hlaupara út um allan heim. Keppnin verður í beinni útsendingu á Vísi.

  13. Sætið - Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott

    42 minEpisódio 26

    Seðlabankastjóri segir innlendar hækkanir á þjónustu og launum hafa mest áhrif á verðbólguna núna. Stýrivextir séu biturt meðal og ekki með glöðu geði sem þeim er beitt. Það sé rétt hjá verkalýðshreyfingunni að …

    Notas do episódio

    Seðlabankastjóri segir innlendar hækkanir á þjónustu og launum hafa mest áhrif á verðbólguna núna. Stýrivextir séu biturt meðal og ekki með glöðu geði sem þeim er beitt. Það sé rétt hjá verkalýðshreyfingunni að stýrivextir leggist misjafnlega á ólíka hópa en staðan sé að einhverju leyti afleiðing af þeirra eigin gjörðum. Rangar ákvarðanir hafi mögulega verið teknar í Seðlabankanum sem í raun reyni að reka velferðarstefnu. Umsjón: Elísabet Inga Sigurðardóttir.

  14. Í bóli Bjarnars - Friðrik Ómar

    51 minEpisódio 25

    Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar Hjörleifsson saknar föður síns þótt samband þeirra hafi verið flókið á margan hátt. Viðbrögðin þegar einkasonurinn kom út úr skápnum 26 ára voru meinfyndin en aðdáun föðurins á …

    Notas do episódio

    Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar Hjörleifsson saknar föður síns þótt samband þeirra hafi verið flókið á margan hátt. Viðbrögðin þegar einkasonurinn kom út úr skápnum 26 ára voru meinfyndin en aðdáun föðurins á Trump og Pútín flæktust reglulega fyrir. Útförin í sumar var mikil tónlistarveisla.

  15. Í bóli Bjarnars - Sigríður Dögg Auðunsdóttir

    53 minEpisódio 24

    Sigríður Dögg Auðunsdóttir er formaður Blaðamannafélags Íslands. Hún mæðist í mörgu sem slík og ræðir meðal annars skilgreiningarvanda blaðamennskunnar, fjölmiðlalæsi, skilningsleysi á faginu sem teygir sig …

    Notas do episódio

    Sigríður Dögg Auðunsdóttir er formaður Blaðamannafélags Íslands. Hún mæðist í mörgu sem slík og ræðir meðal annars skilgreiningarvanda blaðamennskunnar, fjölmiðlalæsi, skilningsleysi á faginu sem teygir sig alla leið upp í dómstóla og segir frá erfiðasta atviki sem hún hefur þurft að takast á við sem formaður.

  16. Sætið - Ís­lensk heimili eigi að geta þolað sárs­aukann

    40 minEpisódio 23

    Það er sársaukafullt að ná aga í ríkisfjármálum og ef eitthvað ríki geti þolað sársaukann sé það Ísland enda standi heimilin mjög vel. Hann segir ekki rétt að launþegar hafi það verr nú en fyrir tveimur árum og …

    Notas do episódio

    Það er sársaukafullt að ná aga í ríkisfjármálum og ef eitthvað ríki geti þolað sársaukann sé það Ísland enda standi heimilin mjög vel. Hann segir ekki rétt að launþegar hafi það verr nú en fyrir tveimur árum og fullyrðir að ummæli sem formaður efnahagsnefndar Alþingis lét falla um helgina séu ekki rétt. Þetta er á meðal þess sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir í ítarlegu viðtali við fréttastofu. Umsjón: Elísabet Inga Sigurðardóttir.

  17. Í bóli Bjarnars - Halldór Guðmundsson

    43 minEpisódio 22

    Halldór Guðmundsson bókmenntafræðingur, sem sumir myndu segja að sé helsti mafíósi í íslenska bókabransanum, hefur vaðið í það þarfa verk að rita bókmenntasögu Íslendinga frá öndverðu og til vorra daga, hvorki …

    Notas do episódio

    Halldór Guðmundsson bókmenntafræðingur, sem sumir myndu segja að sé helsti mafíósi í íslenska bókabransanum, hefur vaðið í það þarfa verk að rita bókmenntasögu Íslendinga frá öndverðu og til vorra daga, hvorki meira né minna. Hann er gestur Í bóli Bjarnars þessa vikuna.

  18. Í bóli Bjarnars - Benedikta Guðrún Svavarsdóttir

    50 minEpisódio 21

    Benedikta Guðrún Svavarsdóttir er hláturmildur framkvæmdastjóri á Seyðisfirði, hún gerir góðan mat og hefur gaman að því að bjóða fólki í gusur. En hún er einnig grjótharður nagli, formaður Vár – félag um …

    Notas do episódio

    Benedikta Guðrún Svavarsdóttir er hláturmildur framkvæmdastjóri á Seyðisfirði, hún gerir góðan mat og hefur gaman að því að bjóða fólki í gusur. En hún er einnig grjótharður nagli, formaður Vár – félag um verndun fjarðar og berst nú með oddi og egg gegn ráðabruggi um að koma niður sjókvíum í Seyðisfjörð. Þar hefur dregið til tíðinda á undanförnum dögum

  19. Hitað upp fyrir Bakgarðshlaupið

    44 minEpisódio 20

    Garpur I. Elísabetarson og Tinna Miljevic, sem munu lýsa Bakgarðshlaupinu um helgina, fengu Egil Trausta Ómarsson í spjall þar sem þau ræddu meðal annars um líklegan sigurvegara ofl.

  20. Í bóli Bjarnars - Gísli Marteinn

    1 h 3 minEpisódio 19

    Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður og vert þarfnast engrar kynningar. Hann er „stórasta“ sjónvarpsstjarna landsins og nú að fara af stað með Vikuna, sem hefur verið flaggskip Ríkissjónvarpsins um árabil …

    Notas do episódio

    Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður og vert þarfnast engrar kynningar. Hann er „stórasta“ sjónvarpsstjarna landsins og nú að fara af stað með Vikuna, sem hefur verið flaggskip Ríkissjónvarpsins um árabil. Engan bilbug er að finna á Gísla Marteini, hvorki hvað varðar Vikuna né Café Vest. Gísli hætti sér í ból Bjarnars.

  21. Í bóli Bjarnars - Guðni Th. Jóhannesson

    54 minEpisódio 18

    Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti lýðveldisins og prófessor í sagnfræði, hefur tekist á hendur mikið verk sem er að skrásetja hvað gekk á í þorskastríðunum. Að efni til kallast bókin óbeint á við …

    Notas do episódio

    Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti lýðveldisins og prófessor í sagnfræði, hefur tekist á hendur mikið verk sem er að skrásetja hvað gekk á í þorskastríðunum. Að efni til kallast bókin óbeint á við nýafstaðna þjóðaratkvæðagreiðslu. Guðna finnst þægilegt að fela sig í fortíðinni öfugt við annan fyrrverandi forseta sem heitir Ólafur Ragnar Grímsson. Honum finnst hann enn fulltrúi afla sem hann er ósammála og geti því ekki tjáð sig fyrirvaralaust. Jakob Bjarnar og forsetinn fyrrverandi settust niður á dögunum í bóli Bjarnars.

  22. Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“

    1 h 27 minEpisódio 17

    Þótt að Kjartan Sveinn Guðmundsson úr Ungum vinstri grænum og Ármann Leifsson úr Ungu jafnaðarfólki staðsetji sig báðir vinstra megin í lífinu eru þeir ósammála um það hvort Ísland eigi að hefja aðildarviðræður …

    Notas do episódio

    Þótt að Kjartan Sveinn Guðmundsson úr Ungum vinstri grænum og Ármann Leifsson úr Ungu jafnaðarfólki staðsetji sig báðir vinstra megin í lífinu eru þeir ósammála um það hvort Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju. Kjartan hefur áhyggjur af réttindum verkafólks innan sambandsins og utanríkisstefnu Íslands hvað varðar meðal annars málefni Palestínu. Ármann sér tækifæri í efnahagsmálum, svo sem með upptöku evru, og telur meinlaust að fara í samningaviðræður við ESB.

  23. Ungt hægri fólk tekst á: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“

    1 h 10 minEpisódio 16

    Í Vísi að viðræðum tekst ungt fólk sem staðsetur sig hægra megin í stjórnmálum á um það hvort hefja eigi aðildarviðræður að nýju við Evrópusambandið. Ungur viðreisnarmaður segir stöðugleika felast í upptöku …

    Notas do episódio

    Í Vísi að viðræðum tekst ungt fólk sem staðsetur sig hægra megin í stjórnmálum á um það hvort hefja eigi aðildarviðræður að nýju við Evrópusambandið. Ungur viðreisnarmaður segir stöðugleika felast í upptöku evru en ungur sjálfstæðismaður segir það á dýru verði keypt „að missa stjórn á okkar peningamálum“. Nei-sinninn segir að hátt í 99 prósent af því sem felist í aðild að Evrópusambandinu liggi fyrir en já-sinninn telur ljóst að það sé „fullt sem hægt er um að semja“.

  24. Snorre Rein - EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“

    39 minEpisódio 15

    Frændur okkar í Noregi fylgjast grannt með atkvæðagreiðslunni á Íslandi 29. ágúst um aðildarviðræður við Evrópusambandið, sérstaklega útvegsmenn í Noregi. Snorre Rein, norskur stjórnmálaáhrifavaldur úr röðum …

    Notas do episódio

    Frændur okkar í Noregi fylgjast grannt með atkvæðagreiðslunni á Íslandi 29. ágúst um aðildarviðræður við Evrópusambandið, sérstaklega útvegsmenn í Noregi. Snorre Rein, norskur stjórnmálaáhrifavaldur úr röðum sósíaldemókrata, er viðmælandi dagsins í Vísi að viðræðum. Hann segir að viðsnúningur gæti orðið í afstöðu norskra sjávarútvegsmanna til Evrópusambandsins skyldi Ísland ná einhvers konar undanþágum í hugsanlegum aðildarviðræðum.

  25. Margrét Ágústa - Eins og að biðja um að hafa fimmtán menn inni á vellinum

    1 h 11 minEpisódio 14

    Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, er gestur dagsins í Vísi að viðræðum. Hún telur að eina leiðin sem íslenskur landbúnaður gæti virkað innan Evrópuregluverks væri með undanþágu …

    Notas do episódio

    Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, er gestur dagsins í Vísi að viðræðum. Hún telur að eina leiðin sem íslenskur landbúnaður gæti virkað innan Evrópuregluverks væri með undanþágu frá landbúnaðarstefnu sambandsins eins og hún leggur sig. Það sé ólíklegt að fá það samþykkt, og í raun eins og að biðja um að fá að keppa í fótbolta með fimmtán liðsmenn inni á vellinum, frekar en ellefu.

  26. Þorsteinn Gunnarsson - Íslendingar voru alræmdir í Brussel og lítið traust á milli

    1 h 20 minEpisódio 13

    Gestur dagsins er Þorsteinn Gunnarsson, fræðimaður, fyrrverandi rektor HA og síðast en alls ekki síst: varaformaður samninganefndar Íslands á árunum 2009 til 2013. Í ítarlegu samtali fórum við yfir það sem …

    Notas do episódio

    Gestur dagsins er Þorsteinn Gunnarsson, fræðimaður, fyrrverandi rektor HA og síðast en alls ekki síst: varaformaður samninganefndar Íslands á árunum 2009 til 2013. Í ítarlegu samtali fórum við yfir það sem raunverulega fór fram á meðan viðræðunum stóð, hvernig afstöður voru mótaðar, hvernig samskiptum var háttað við ráðherra og framkvæmdastjórnina. Hvernig tók Brussel í kröfur Íslands um þessar margumtöluðu varanlegu undanþágur?

  27. Katrín Júlíusdóttir - Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“

    1 h 7 minEpisódio 11

    Katrín Júlíusdóttir var iðnaðarráðherra og fjármálaráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur þegar Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu 2009. Hún telur það raunsætt að hafið við Ísland geti orðið …

    Notas do episódio

    Katrín Júlíusdóttir var iðnaðarráðherra og fjármálaráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur þegar Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu 2009. Hún telur það raunsætt að hafið við Ísland geti orðið „sérstakt stjórnsýslusvæði“ innan ESB, en segja má að Katrín hafi skrifað samningsmarkmið Samfylkingarinnar í sjávarútvegsmálum árið 2001 þegar flokkurinn gerði sérstaka Evrópuúttekt. Hún ræðir við Agnar Má Másson fréttamann um ESB, sjávarútveginn, „gömlu“ Samfylkinguna og fleira í nýjasta þætti af Vísi að viðræðum.

  28. Vilborg Ása Guðjónsdóttir - Undanþága á borði en ekki í orði

    1 h 29 minEpisódio 10

    „Ég tel að það sé útilokað að fá varanlega undanþágu frá stefnunni í heild sinni. Hins vegar er spurning um hvort hægt sé að hanna hlutina innan, þannig að við erum de facto með full yfirráð,“ segir Vilborg Ása …

    Notas do episódio

    „Ég tel að það sé útilokað að fá varanlega undanþágu frá stefnunni í heild sinni. Hins vegar er spurning um hvort hægt sé að hanna hlutina innan, þannig að við erum de facto með full yfirráð,“ segir Vilborg Ása Guðjónsdóttir stjórnmálafræðingur og fyrrverandi ritstjóri Evrópuvefsins.

    Vilborg Ása er gestur dagsins í Vísi að viðræðum, þar sem Evrópumálin og komandi atkvæðagreiðsla um aðildarviðræður eru krufin til mergjar. Vilborg var ráðgjafi í alþjóðadeild Alþingis á árunum 2012-2018 og var starfsnemi hjá Evrópuþinginu 2010-2011.

  29. Sonja Ýr Þorbergsdóttir - „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“

    36 minEpisódio 9

    Verkalýðsforystan er klofin í afstöðu sinni til þess hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið í lok ágústs. Það breytist nánast ekkert í íslenskri vinnumarkaðslöggjöf með inngöngu í Evrópusambandið …

    Notas do episódio

    Verkalýðsforystan er klofin í afstöðu sinni til þess hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið í lok ágústs. Það breytist nánast ekkert í íslenskri vinnumarkaðslöggjöf með inngöngu í Evrópusambandið, að mati Sonju Ýrar Þorbergsdóttur formanns BSRB, enda löggjöfin að miklu leyti innleidd í gegnum EES. Sonja á erfitt með að skilja hvers vegna fólk haldi að staða og réttindi verkafólks myndu versna til muna með inngöngu, en vill samt ekki fullyrða hvort hún muni batna.

  30. Guðmundur Hálfdánarson - Jón Sigurðsson talaði aldrei um sjálfstæði

    1 h 9 minEpisódio 8

    Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur er gestur dagsins en hann hefur helgað stóran part starfsævinnar því að rannsaka þjóðernisvitund Íslendinga og sögu hennar. Hvernig sú merking sem landar leggja í hugtök á …

    Notas do episódio

    Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur er gestur dagsins en hann hefur helgað stóran part starfsævinnar því að rannsaka þjóðernisvitund Íslendinga og sögu hennar. Hvernig sú merking sem landar leggja í hugtök á borð við fullveldi og framsal á því, hvað Evrópa er í augum okkar og hvort við teljum okkur hluta af henni eður ei. Já, og svo hvað það þýðir eiginlega þegar til kastanna kemur.

Este podcast é seu?

Confirme com uma entrada no seu feed: você recebe um código aqui, adiciona como podcast:txt no canal do seu feed e nós verificamos. Depois disso, seu podcast aparece como “verificado” no SoundNode.

Configurações

Exibição

Idioma

Define quais estações você vê primeiro na página inicial.

Histórico

As rádios e episódios ouvidos recentemente e suas últimas buscas ficam só neste navegador.

Avisos

Um aviso rápido quando um podcast que você segue tem um episódio novo. Desative podcasts individuais pelo sino na página deles.

Conta

Salve favoritos – no app e no site.

Atalhos de teclado

/
Abrir busca
Espaço
Reproduzir ou pausar
← →
No player: voltar 15 s, avançar 30 s (episódios) · na fileira: próximo bloco
↑ ↓
Na fileira: alvo dentro do bloco
Home / End
Na fileira: primeiro ou último bloco
Esc
Fechar janela ou menu
?
Esta visão geral
Tocando agora

Ir para a estação

A seguir

    Adicione episódios com “A seguir” – eles tocam depois do episódio atual.