
73. Erna Sigurðardóttir, barnabóka höfundur. Óskar elskar lestir-bróðir minn er einhverfur.
Show notes
Erna Sigurðardóttir og maðurinn hennar voru nýlega búin að eiga strákinn sinn, hann var aðeins 7 vikna gamall þegar stelpan þeirra þá aðeins 6 ára gömul lenti í slysi og hlaut alvarlega áverka og þar á meðal áunninn heilaskaða sem hefur haft áhrif á og litað hennar líf. Hún segir okkur frá bæði slysinu, heilaskaðanum, einhverfu greiningu sonar þeirra, systkina sambandi þeirra og lífi þeirra í Noregi. Erna deilir einlægt frá og hefur ástríðu til að miðla sinni þekkingu og reynslu áfram til þeirra sem það gæti nýst.
Um bókina: Kom út 2024
Hvernig er að eiga systkini með einhverfu? Einhverfa er allskonar. Hér skrifar höfundurinn, Erna Sigurðardóttir, hvernig einhverfa hefur haft áhrif á fjölskyldulíf þeirra. Bókin er skrifuð fyrir systkini og aðstandendur einhverfra barna. Hún hvetur til samræðna um fjölbreytileika einhverfunnar.
Óskar elskar lestir - Fæst t.d í Pennanum og Forlaginu.
Hægt að finna Ernu á Instagram undir nafninu Óskar elskar lestir.