
Biblían á mannamáli
- Episodes
- 73
- Released
- several times a week
- Latest episode
- Nov 13, 2026
About the podcast
Saga - Menning - Samhengi - Trú
Biblían á mannamáli er hlaðvarp, þar sem við lesum saman í Nýja testamentinu og ræðum textann á einföldu, skýru og lifandi máli. Við tengjum Gamla og Nýja testamentið; rýnum í Biblíuna með kærleikann að leiðarljósi; eigum viðtal við alls konar fólk og hressum upp á sálartetrið með góðum gullmola. Markmiðið er að gera þennan forna texta, sem hefur mótað menningu okkar og sögu, aðgengilegan fyrir alla.
Tónlist: Enginn elskar eins og þú - höf. Hjalti Gunnlaugsson
Episodes 73
Dagur 73 - Flokkadrættir
Velkomin í Biblían á mannamáli. Í þessum þætti er fjallað um Apollós, hinn mælskumikla lærisvein frá Alexandríu sem kom til Efesus og síðar Korintu. Prískila og Akvílas fræddu hann nánar, og var honum loks …
Show notes
Velkomin í Biblían á mannamáli. Í þessum þætti er fjallað um Apollós, hinn mælskumikla lærisvein frá Alexandríu sem kom til Efesus og síðar Korintu. Prískila og Akvílas fræddu hann nánar, og var honum loks boðið til Korintu að þjóna - það átti hins vegar eftir að leiða til flokkadrátta.
Sjónum er einnig beint að Páli sem kemur til Efesus, þjálfar sex samstarfsmenn og undirbýr áframhaldandi útbreiðslu fagnaðarerindisins — með sterka áminningu um mikilvægi einingar og að forðast sundrung innan safnaðarins.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson
Heimildir: Frank Viola, The Untold Story of the New Testament Church
Chapters (11)
Dagur 72 - Óvenjuleg kraftaverk
Velkomin í Biblían á mannamáli: Við fylgjum Páli á þriðju trúboðsferðinni (um 53–57 e.Kr.), þegar hann stofnar og styrkir kirkjur víða í Asíu og tekur mikilvægar ákvarðanir fyrir framtíð boðunarinnar. Þátturinn …
Show notes
Velkomin í Biblían á mannamáli: Við fylgjum Páli á þriðju trúboðsferðinni (um 53–57 e.Kr.), þegar hann stofnar og styrkir kirkjur víða í Asíu og tekur mikilvægar ákvarðanir fyrir framtíð boðunarinnar.
Þátturinn fjallar um þrjár lykilákvarðanir Páls — fjáröflun fyrir fátæka í Jerúsalem, þjálfun nýrra starfsmanna og áform um að fara til Rómar og áfram til Spánar. Auk þess skoðum við aðeins starfið í Efesus; óvenjuleg kraftaverk og síð'ast en ekki síst, átök við andasæringar(sjö synir Skeva).
Sagan sýnir hvernig kraftaverk, trúaruppbygging og sameining kirkjunnar breyttu samfélaginu og undirstrikar mikilvægi bænar, einingar og þjónustu innan kirkjunnar.
Chapters (12)
Dagur 71 - Sjálfshyggjan þvælist fyrir
Velkomin í Biblían á mannamáli. Þessi þáttur fjallar um Pál postula og för hans frá Korintu; samstarf við Prískilu, Akvílas, Tímóteus og Sílas; vinnu þeirra og þrautir við að stofna söfnuði Guðs ríkis. Við …
Show notes
Velkomin í Biblían á mannamáli. Þessi þáttur fjallar um Pál postula og för hans frá Korintu; samstarf við Prískilu, Akvílas, Tímóteus og Sílas; vinnu þeirra og þrautir við að stofna söfnuði Guðs ríkis. Við sjáum hvernig gyðingar ásaka Pál fyrir að brjóta lögmál þeirra en landstjórinn Gallíon neitar að taka málið og stöðvar réttarhöldin.
Söfnuðurinn í Korintu er ungur og óþroskaður. Páll gagnrýnir sundrungu þeirra og sjálfshyggju, sem gerir það að verkum að þau skilja ekki dýpri hluti fagnaðarerindisins. Þættinum lýkur með för fjórmenninga til Efesus og lokum annarrar trúboðsferðar Páls.
Chapters
Loading chapters …
Dagur 70 - Af hverju lét ekki blessað fólkið segjast?
Velkomin í Biblían á mannamáli: við ræðum Síðara Þessaloníkubréf Páls, skrifað um árið 51 e.Kr., og skoðum helstu efnisþætti bréfsins. Kaflarnir fjalla um misskilning varðandi endurkomu Jesú Krists; ofsóknir og …
Show notes
Velkomin í Biblían á mannamáli: við ræðum Síðara Þessaloníkubréf Páls, skrifað um árið 51 e.Kr., og skoðum helstu efnisþætti bréfsins.
Kaflarnir fjalla um misskilning varðandi endurkomu Jesú Krists; ofsóknir og hópa sem villa fyrir söfnuðinum; auk gagnrýni á þá sem vilja ekki vinna. Páll hvetur til þrautseigju og ábyrgðar í söfnuðinum. Hvernig í ósköpunum stóðts fólkið allar þessar þrengingar?
Chapters
Loading chapters …
Dagur 69 - Páll safnar hári
Í þessum þætti förum við í gegnum atburði Postulasögunnar kafla 18 og fylgjum Páli í þjónustu hans í Korintu: prédikanir, mótstaða og kraftaverk, ásamt því hvernig kirkjan vex í kærleika og samfélagi við son …
Show notes
Í þessum þætti förum við í gegnum atburði Postulasögunnar kafla 18 og fylgjum Páli í þjónustu hans í Korintu: prédikanir, mótstaða og kraftaverk, ásamt því hvernig kirkjan vex í kærleika og samfélagi við son Guðs.
Við skoðum einnig þemu eins og persónulegt samband við Guð, ákvörðun Páls um nasíreaheit, og misskilning um endurkomu Drottins, sem leiðir til bréfsins sem við lesum næst.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson
Heimildir: Frank Viola, The Untold Story of the New Testament Church
Chapters
Loading chapters …
Dagur 68 - Óravíddir lífsins
Þessi þáttur ræðir hvernig Páll bregst við ofsóknum og hvetur söfnuðinn til kærleika og trausts. Hann fjallar einnig um hina kristnu von, um upprisu hinna sofnuðu og gönguna á vegi Jesú Krists. Við erum lifandi …
Show notes
Þessi þáttur ræðir hvernig Páll bregst við ofsóknum og hvetur söfnuðinn til kærleika og trausts. Hann fjallar einnig um hina kristnu von, um upprisu hinna sofnuðu og gönguna á vegi Jesú Krists. Við erum lifandi sem börn ljóss og kærleika.
Hlaðvarpið tengir Ritninguna við nútímann; fjallar örstutt um nær-dauða reynslu; daglegt líf trúarinnar og boðar kraft kærleika og ljóss til að yfirstíga ótta og dauða.
Chapters
Loading chapters …
Dagur 67 - Lifandi Orð sem ber ávöxt
Velkomin í „Biblían á mannamáli“. Í þessum þætti förum við yfir 2.kafla Fyrra Þessaloníkubréfs: bakgrunn Páls, ofsóknir sem hann mætti og hvers vegna eining og fjölskylduhugsun í kirkjunni skiptir svo miklu …
Show notes
Velkomin í „Biblían á mannamáli“. Í þessum þætti förum við yfir 2.kafla Fyrra Þessaloníkubréfs: bakgrunn Páls, ofsóknir sem hann mætti og hvers vegna eining og fjölskylduhugsun í kirkjunni skiptir svo miklu máli.
Rætt er um boðskap Páls — að hann predikaði ekki til að þóknast mönnum heldur Guði — og hvernig hið lifandi orð Guðs (sjá Jóhannes 15) vinnur í hjörtum fólks; hvernig Guð sniðlar til, svo við berum meiri ávöxt kærleikans.
Þátturinn tekur aðeins á fölskum kenningum og andstöðu, og endar með gleði Páls yfir vexti og kærleika í Þessaloníku: kjarninn er að elska Drottin og náungann.
Chapters
Loading chapters …
Dagur 66 - Persónulegur Guð
Þessi þáttur fjallar um fyrra bréf Páls til Þessaloníkumanna (um 51 e.Kr.). Páll hvetur söfnuðinn til að halda fast við trúnna þrátt fyrir ofsóknir, sýnir eigin heiðarleika og útskýrir kraft heilags anda sem …
Show notes
Þessi þáttur fjallar um fyrra bréf Páls til Þessaloníkumanna (um 51 e.Kr.). Páll hvetur söfnuðinn til að halda fast við trúnna þrátt fyrir ofsóknir, sýnir eigin heiðarleika og útskýrir kraft heilags anda sem snertir hjörtu fólks.
Þátturinn greinir myndina af Guði sem föður ("abba") og kirkjuna sem fjölskyldu — bræður og systur — og leggur áherslu á kærleika í verki og vonina um endurkomu Krists.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson
Chapters
Loading chapters …
Dagur 65 - Erfiðar spurningar en góðar
Í þessum þætti ræðum við um aðdraganda fyrra bréfs Páls til Þessaloníkumanna, fréttirnar sem hann fékk frá Sílasi og Tímóteusi og hvernig þær lýsa stöðu safnaðanna: vaxandi trú, ofsóknir og innri erfiðleikar …
Show notes
Í þessum þætti ræðum við um aðdraganda fyrra bréfs Páls til Þessaloníkumanna, fréttirnar sem hann fékk frá Sílasi og Tímóteusi og hvernig þær lýsa stöðu safnaðanna: vaxandi trú, ofsóknir og innri erfiðleikar.
Þátturinn snýr einnig að ásökunum gegn Páli um græðgi og illt hugarfar; og spurningum um þjáningu, dauða og von í ljósi eilífrar áætlunar Guðs.
Chapters
Loading chapters …
Dagur 64 - Ótti og angist Páls
Þessi þáttur fjallar um komu Páls til Korintu; andlega þreytu hans eftir baráttu og fangelsi og hvernig hann hóf að boða í borg sem var rík af verslun, þrælahaldi, trúarbrögðum og lauslæti. Umfjöllunin kynnir …
Show notes
Þessi þáttur fjallar um komu Páls til Korintu; andlega þreytu hans eftir baráttu og fangelsi og hvernig hann hóf að boða í borg sem var rík af verslun, þrælahaldi, trúarbrögðum og lauslæti.
Umfjöllunin kynnir borgarandann, íþróttahöldin, félagslegu átökin og hlutverk Akvílasar og Priskillu, sem samstarfsmanna Páls — og boðskapinn um að Guð sýnir styrk sinn í okkar veikleika.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson
Heimildir: Frank Viola, The Untold Story of the New Testament Church
Chapters
Loading chapters …
Dagur 63 - Ókunni Guðinn
Páll og Sílas flæmdir úr Þessaloníku færa sig til Beroju, þar sem kristni nær fótfestu hjá gyðingum og konum úr efri stéttum. Páll fer síðan til Aþenu þar sem hann ræðir meðal annars við heimspekinga og heldur …
Show notes
Páll og Sílas flæmdir úr Þessaloníku færa sig til Beroju, þar sem kristni nær fótfestu hjá gyðingum og konum úr efri stéttum. Páll fer síðan til Aþenu þar sem hann ræðir meðal annars við heimspekinga og heldur fræga ræðu um altari hins ókunna guðs - við skoðum söguna á bak við það altari.
Þátturinn tengir saman ferðalög, trúboð og heimspekilegar umræður - og sýnir hvernig Páll aðlagar boðskap sinn að menningu og leit að sannleika meðal ólíkra áheyrenda, án þess þó að breyta fagnaðarerindinu.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson
Heimildir: Frank Viola, The Untold Story of the New Testament Church.
Chapters
Loading chapters …
Dagur 62 - Ásakanir og óeirðir
Í þættinum er farið yfir ferðir Páls postula og fylgdarlið hans í Þessalóníku á annarri trúboðsferðinni: hvernig þeir boðuðu Krist sem Messías, urðu til breytinga meðal fólks og urðu fyrir mótstöðu vegna …
Show notes
Í þættinum er farið yfir ferðir Páls postula og fylgdarlið hans í Þessalóníku á annarri trúboðsferðinni: hvernig þeir boðuðu Krist sem Messías, urðu til breytinga meðal fólks og urðu fyrir mótstöðu vegna keisaradýrkunar og borgaræsings.
Sagan lýsir heimsóknum í samkunduhús, hittingi hjá Jason, uppreisn almennings, ákærum fyrir að raska friði. Við sjáum hvernig Páll, Sílas og Tímóteus brugðust við áskorunum og byggðu upp lifandi samfélag trúaðra.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson
Heimildir: Frank Viola, The Untold Story of the New Testament Church
Chapters
Loading chapters …
Dagur 61 - Blóð, sviti og söngur
Velkomin í „Biblían á mannamáli“. Í þessum þætti förum við yfir Postulasöguna, kafla 16 - 17, þar sem Páll og Sílas eru í fangelsi í Filippí og syngja hástöfum. Jarðskjálfti losar fjötra þeirra. Fangavörðurinn …
Show notes
Velkomin í „Biblían á mannamáli“. Í þessum þætti förum við yfir Postulasöguna, kafla 16 - 17, þar sem Páll og Sílas eru í fangelsi í Filippí og syngja hástöfum. Jarðskjálfti losar fjötra þeirra. Fangavörðurinn og fjölskylda hans taka boðskapinn og snúa til trúar á Krist.
Þátturinn skoðar einnig hvernig fyrstu söfnuðirnir mynduðust, hlutverk kvenna eins og Lýdíu, menningu stórborga eins og Þessaloníku og hvernig trúin breytir lífi fólks þrátt fyrir ofsóknir og erfiðleika.
Chapters
Loading chapters …
Dagur 60 - Var Lýdía sú fyrsta?
Páll postuli, Sílas, Tímóteus og Lúkas koma til Filippi eftir siglingu frá Tróas til Neapólis og göngu eftir Via Egnatia. Filippi er rómversk nýlenda með sterka keisaradýrkun og fámennan hóp gyðinga, þannig …
Show notes
Páll postuli, Sílas, Tímóteus og Lúkas koma til Filippi eftir siglingu frá Tróas til Neapólis og göngu eftir Via Egnatia. Filippi er rómversk nýlenda með sterka keisaradýrkun og fámennan hóp gyðinga, þannig hittast trúaðar konur niður við ána, en ekki í samkunduhúsi.
Við ána prédikar Páll fyrir hópnum og Lýdía, efnuð kaupkona frá Þýatíruborg, tekur við boðskapnum, skírast og opnar heimilið sitt fyrir postulunum.
Ambátt með spásagnaranda fylgir hópnum og Páll rekur andann út í nafni Jesú. Eigendur ambáttarinnar reiðast og kalla saman mannfjölda; Páll og Sílas eru, barðir og hnepptir í fangelsi þrátt fyrir réttindi sem rómverskir ríkisborgarar.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson
Chapters
Loading chapters …
Dagur 59 - Maðurinn frá Makedóníu
Í þessum þætti ræðum við um Postulasöguna 15:36–41: Páll og Barnabas halda aftur til safnaðanna í Galatíu, en deila um að taka Markús með sér. Barnabas fer til Kýpur með Markúsi, en Páll tekur Sílas og síðar …
Show notes
Í þessum þætti ræðum við um Postulasöguna 15:36–41: Páll og Barnabas halda aftur til safnaðanna í Galatíu, en deila um að taka Markús með sér. Barnabas fer til Kýpur með Markúsi, en Páll tekur Sílas og síðar Tímóteus með sér í nýja trúboðsferð.
Við skoðum hvernig frásagan tengir allt saman og leiðir til bréfaskrifa postulanna. Innra líf safnaðanna hélt þeim sterkum þrátt fyrir átök og ofsóknir. Maður frá Makedóníu kemur og talar við Pál.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson
Ýmsar heimildir: Frank Viola - The Untold Story
Chapters
Loading chapters …
Dagur 58 - Saltvatnsbrunnur
Velkomin í Biblían á mannamáli. Í þættinum ljúkum við yfirferð á Jakobsbréfinu: skoðum ástandið innan safnaðanna, mismunun á milli ríkra og fátækra og boðskapinn um að trúin beri góðan ávöxt. Við ræðum hvernig …
Show notes
Velkomin í Biblían á mannamáli. Í þættinum ljúkum við yfirferð á Jakobsbréfinu: skoðum ástandið innan safnaðanna, mismunun á milli ríkra og fátækra og boðskapinn um að trúin beri góðan ávöxt.
Við ræðum hvernig orð okkar og dagleg hegðun afhjúpa hjartað, notum myndlíkingar um beisli og stýri varðandi stjórn tungunnar og skoðum áherslur um kærleika og réttlæti.
Chapters
Loading chapters …
Dagur 57 - Fullkomið lögmál frelsisins
Í þættinum fáum við innsýn í Jakobsbréf 1:19–27. Við ræðum um að vera fljót til að hlusta og heyra, sein til að tala og sein til reiði; um mikilvægi þess að taka við orðinu og vera gerendur þess frekar en …
Show notes
Í þættinum fáum við innsýn í Jakobsbréf 1:19–27. Við ræðum um að vera fljót til að hlusta og heyra, sein til að tala og sein til reiði; um mikilvægi þess að taka við orðinu og vera gerendur þess frekar en aðeins heyrendur. Við tengjum þetta við Jesú sem er lifandi orð og frelsandi lögmál.
Þátturinn vekur athygli á valdi tungunnar, umhyggju fyrir fátækum og því hvernig sönn trú birtist í kærleiksríkum verkum. Við byrjum og endum með bæn um að sjá Guðs nærveru í daglegu lífi.
Chapters
Loading chapters …
Dagur 56 - Engir flöktandi skuggar
Jakobsbréfið, kafli 1: um að finna gleði í þrautum, þroska trúarinnar og hvernig þol og verk sýna sanna trú. Jakob talar til gyðingakristinna í dreifingunni um átök, misrétti og ábyrgð gagnvart fátækum …
Show notes
Jakobsbréfið, kafli 1: um að finna gleði í þrautum, þroska trúarinnar og hvernig þol og verk sýna sanna trú. Jakob talar til gyðingakristinna í dreifingunni um átök, misrétti og ábyrgð gagnvart fátækum.
Þátturinn fjallar einnig um að biðja Guð um visku, að forðast tvílyndi, að trú án verka sé dauð, og að Guð sé Faðir ljósanna - stöðugur, góður og fullur af náð.
Chapters
Loading chapters …
Dagur 55 - Hálfbróðir Jesú
Í þættinum er Galatabréfinu lokið og við færum okkur yfir í Jakobsbréfið. Við skoðum sögulegt samhengi bréfsins: ráðstefnan í Jerúsalem, ágreiningur um lögmál Móse og boðskap Páls. Það var hálfgert kreppuástand …
Show notes
Í þættinum er Galatabréfinu lokið og við færum okkur yfir í Jakobsbréfið. Við skoðum sögulegt samhengi bréfsins: ráðstefnan í Jerúsalem, ágreiningur um lögmál Móse og boðskap Páls.
Það var hálfgert kreppuástand í mörgum hinna kristnu safnaða og Jakob ávarpar stöðuna. Áherslan er á að trúin verði sýnileg í verki, að kristin kærleikssamfélög komi til hjálpar fátækum — allt er þetta sett í raunverulegt samfélagslegt samhengi frumkirkjunnar.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson
Tilvísun: The Untold Story / Frank Viola
Chapters
Loading chapters …
Dagur 54 - Innan frá og út
Velkomin í Biblían á mannamáli. Í þessum þætti skoðum við hvernig Páll ber saman frelsið í Kristi og kröfur lögmálsins, og varar við að leita aftur til þvingun utan frá og inn. Hann kallar okkur til að lifa í …
Show notes
Velkomin í Biblían á mannamáli. Í þessum þætti skoðum við hvernig Páll ber saman frelsið í Kristi og kröfur lögmálsins, og varar við að leita aftur til þvingun utan frá og inn.
Hann kallar okkur til að lifa í anda: ekki nota frelsið til að svala eigingirninni, heldur láta ávöxt andans birtast í kærleika, gleði, friði, þolgæði og góðvild - að lifa innan frá og út.
Chapters
Loading chapters …
Dagur 53 - Guð er bara góður
Páll varpar ljósi á frelsið í Kristi og hvernig sönn trú birtist í kærleika og innra lífi. Við tengjum textann við nútímann, ræðum innra jafnvægi, lækningu sára og hvernig náð Guðs umbreytir lífi okkar innan …
Show notes
Páll varpar ljósi á frelsið í Kristi og hvernig sönn trú birtist í kærleika og innra lífi.
Við tengjum textann við nútímann, ræðum innra jafnvægi, lækningu sára og hvernig náð Guðs umbreytir lífi okkar innan frá og út.
Í lokin ræðum við aðeins um þá þætti sem við þurfum að "aflæra", að mati þáttastjórnanda. - Rjúfum manngerða mynd hefndar-guðsins.
Chapters
Loading chapters …
Dagur 52 - Tvær konur
Velkomin í Biblíuna mannamáli. Í þessum þætti er enn farið yfir Galatabréfið, þar sem Páll ræðir andspænis umskurnarsinnum og leggur fram kjarnann: í Kristi er engin sundrung milli þjóðfélagshópa — við erum öll …
Show notes
Velkomin í Biblíuna mannamáli. Í þessum þætti er enn farið yfir Galatabréfið, þar sem Páll ræðir andspænis umskurnarsinnum og leggur fram kjarnann: í Kristi er engin sundrung milli þjóðfélagshópa — við erum öll eitt.
Þátturinn notar myndlíf Abrahams, Söru og Hagars til að skýra muninn á lögmáli og náð. Páll sýnir að réttlæting kemur vegna Krists, en ekki vegna ánauðar lögmálsins.
Loks hvetur þátturinn til að treysta Guði og láta Krist smám saman myndast í lífi okkar.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson
Chapters
Loading chapters …
Dagur 51 - Námsefnið í skóla lífsins
Velkomin í Biblían á mannamáli. Þátturinn heldur áfram að skoða Galatabréfið þar sem Páll rökræðir gegn málflutningi umskurnarsinna og útskýrir muninn á fyrirheiti Guðs til Abrahams og lögmáli Móse. Rædd eru …
Show notes
Velkomin í Biblían á mannamáli. Þátturinn heldur áfram að skoða Galatabréfið þar sem Páll rökræðir gegn málflutningi umskurnarsinna og útskýrir muninn á fyrirheiti Guðs til Abrahams og lögmáli Móse.
Rædd eru megintök trúarinnar sem réttlætingu, að trú Abrahams kom á undan lögmálinu, og hvernig sönn, lifandi trú birtist í kærleika og góðum verkum – ávöxtum frelsisins. Lífið er skóli og námsefnið er kærleikur.
Chapters
Loading chapters …
Dagur 50 - Biblíuleg trú, Abraham, Páll og kærleikurinn
Þá er það 50. þátturinn og hann er í lengra lagi. Í þættinum rýnum við í Galatabréfið betur, lögmálið, trúna og góðverkin; skoðum Abraham sem föður trúarinnar og hvernig lögmálið leiddi menn til Krists. Við …
Show notes
Þá er það 50. þátturinn og hann er í lengra lagi. Í þættinum rýnum við í Galatabréfið betur, lögmálið, trúna og góðverkin; skoðum Abraham sem föður trúarinnar og hvernig lögmálið leiddi menn til Krists.
Við útskýrum hvernig Kristur uppfyllir lögmálið, hvernig Heilagur Andi breytir hjörtum og hvernig sönn trú birtist í kærleika og verkum sem sameinar fólk í Kristi.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson
Chapters
Loading chapters …
Dagur 49 - Kærleikurinn gnæfir
Velkomin í Biblían á mannamáli, þar sem við byrjum á þriðja kafla Galatabréfsins: bæn um að rótfestast í kærleika og skoðum rökfærslu Páls gagnvart umskurnarsinnunum. Þátturinn dregur fram muninn á réttlætingu …
Show notes
Velkomin í Biblían á mannamáli, þar sem við byrjum á þriðja kafla Galatabréfsins: bæn um að rótfestast í kærleika og skoðum rökfærslu Páls gagnvart umskurnarsinnunum.
Þátturinn dregur fram muninn á réttlætingu fyrir trú og lögmálsverkum; minnist Abrahams sem fyrirmynd trúar og undirstrikar að heilagur andi skapar innri breytingu sem ber sannan ávöxt.
Chapters
Loading chapters …
Dagur 48 - Miklu meira en orðaskak
Í þessum þætti er farið í 2.kafla Galatabréfsins. Páll lýsir för sinni til Jerúsalem með Barnabasi og Títusi; viðurkenningu postulanna á boðun hans og átökum varðandi umskurn og lögmál. Hann leggur áherslu á að …
Show notes
Í þessum þætti er farið í 2.kafla Galatabréfsins. Páll lýsir för sinni til Jerúsalem með Barnabasi og Títusi; viðurkenningu postulanna á boðun hans og átökum varðandi umskurn og lögmál.
Hann leggur áherslu á að fagnaðarerindið sé frá Kristi, réttlæting sé fyrir trú en ekki af verkum lögmálsins, og að frelsi í Kristi leiði til kærleiks og breyttrar lífsstefnu.
Átökin voru miklu meira en orðaskak; þetta snerist ekki bara um orðanotkun.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson
Chapters
Loading chapters …
Dagur 47 - Denni og aðlaðandi velvild
Velkomin í Biblían á mannamáli. Við erum að fara af stað í Galatabréfið. Í þættinum er gerð grein fyrir uppruna og ástæðu bréfsins, höfuðatriðum Páls: umdeildri túlkun umskurnar og lögmáls Móse innan …
Show notes
Velkomin í Biblían á mannamáli. Við erum að fara af stað í Galatabréfið.
Í þættinum er gerð grein fyrir uppruna og ástæðu bréfsins, höfuðatriðum Páls: umdeildri túlkun umskurnar og lögmáls Móse innan kirkjunnar, réttlætingu fyrir trú og frelsi í Kristi. Páll ver boðskapinn og leggur áherslu á að náð og trú skapi réttlæti; að verkin séu ávöxturinn en ekki orsökin.
Lífið í Kristi er innan frá og út, ekki utan frá og inn.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson
Chapters
Loading chapters …
Dagur 46 - Það styttist í fyrsta bréfið
Til að byrja með rifjum við örstutt upp söguþráð Postulasögunnar fram að 16. kafla.. eða svo. Nú eru umskurnarsinnar á ferðalagi um Galatíu og Páll er ekki hress. Athygli beinist að ágreiningi um umskurn og …
Show notes
Til að byrja með rifjum við örstutt upp söguþráð Postulasögunnar fram að 16. kafla.. eða svo. Nú eru umskurnarsinnar á ferðalagi um Galatíu og Páll er ekki hress.
Athygli beinist að ágreiningi um umskurn og lögmál Móse meðal ný-trúaðra og það styttist í það að Páll skrifi fyrsta bréfið sem finnst eftir hann í Nýja testamentinu. Páll skrifar bréfið til að verja fagnaðarerindið sem byggt er á Jesú Kristi einum - fagnaðarerindið sem hann boðaði.
Chapters
Loading chapters …
Dagur 45 - Að sigra vígin
Þessi þáttur byggir á Sálmi 121 og hvetur okkur til að líta upp til Guðs þegar vandamál og háir múrar lífsins virðast óyfirstíganlegir. Sjónarhorn sögunnar er Jeríkó, þar sem Jósúa og þjóðin gekk og söng til að …
Show notes
Þessi þáttur byggir á Sálmi 121 og hvetur okkur til að líta upp til Guðs þegar vandamál og háir múrar lífsins virðast óyfirstíganlegir. Sjónarhorn sögunnar er Jeríkó, þar sem Jósúa og þjóðin gekk og söng til að sjá kraft Guðs virka - en eitt er það sem margir missa af!
Síðan er það lokahnykkurinn um fleininn í holdi Páls — mótstöðu innan kirkjunnar og ásakanir gegn boðun hans — og minnir á að náð Guðs nægir.
Þátturinn sameinar sögulegar frásagnir og persónulega uppörvun: leita hjálpar hjá Guði, treysta náðinni og halda áfram í trú.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson
Chapters
Loading chapters …
Dagur 44 - Fleinn í holdið, en Náðin nægir
Velkomin í þáttinn „Biblían og mannamáli“ þar sem við ræðum um náðina, muninn á lögmáli og náð, og afleiðingar þess að meðtaka náð Krists í hjörtun. Við skoðum nokkur bréf Páls, til að finna þar ákveðið …
Show notes
Velkomin í þáttinn „Biblían og mannamáli“ þar sem við ræðum um náðina, muninn á lögmáli og náð, og afleiðingar þess að meðtaka náð Krists í hjörtun.
Við skoðum nokkur bréf Páls, til að finna þar ákveðið samhengi frásögunnar. Ekki síst skoðum við ágreininginn um umskurnina og „fleininn“ sem Páll barðist við og þá hvernig máttur Krists birtist í veikleika, þjáningum og umbótum.
Kjarni þáttarins: náðin er ekki réttlæting til að lifa syndugu lífi, heldur kraftur sem frelsar, læknar og breytir lífi fólks.
Chapters
Loading chapters …
These are the latest 40 of 73 episodes. You’ll find older episodes in the podcast’s feed.
Similar podcasts
More Religion & Spirituality podcastsIs this your podcast?
Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.



