Skip to content

Ísland verður eins og Svíþjóð! | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E66

November 9, 2026 · 20 min

Show notes

Ástralski áhrifavaldurinn Leon Hill hefur vakið gríðarlega athygli á samfélagsmiðlum fyrir harða og umdeilda gagnrýni sína á innflytjendastefnu Evrópuríkja, íslam og vaxandi áhrif íslamskrar hugmyndafræði á vestræn samfélög.Í þessu viðtali við Frosta Logason í Spjallinu fer Hill yfir þá þróun sem hann telur ógna framtíð Evrópu. Hann ræðir afbrotatíðni innflytjenda, kynferðisbrot, velferðarkerfi Norðurlandanna og rannsóknir sem hann segir sýna vaxandi róttækni meðal ungra múslima í Evrópu.Hill segist fá líflátshótanir nánast daglega vegna málflutnings síns og greinir frá því að sumar þeirra séu svo alvarlegar að hann geti ekki rætt þær opinberlega. Hann gagnrýnir jafnframt harðlega takmarkanir á tjáningarfrelsi í Bretlandi og Ástralíu.Ein umdeildasta yfirlýsing hans í viðtalinu er að banna eigi íslam alfarið á Vesturlöndum. Hill viðurkennir að slíkt fæli í sér skerðingu á trúfrelsi en telur það nauðsynlegt til að vernda framtíð evrópskra samfélaga og réttindi kvenna.Hann beinir einnig skýrri viðvörun til Íslendinga og segir að Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð og önnur Evrópuríki ef ekki verði gripið til róttækra breytinga á innflytjendastefnu.„Ísland verður eins og Svíþjóð mjög fljótlega,“ segir Hill, sem hefur búið hér á landi um árabil og segist hafa orðið vitni að miklum breytingum á íslensku samfélagi.Hill telur að Evrópa hafi aðeins örfá ár til að snúa þróuninni við og hvetur almenning til að láta ekki þagga niður í sér.Ítarlegt og hispurslaust samtal um innflytjendamál, trúfrelsi, tjáningarfrelsi, þjóðmenningu og framtíð Evrópu.Viðtalið fer fram á ensku.

All episodes of Brotkast – Brot úr þáttum og opnir þættir

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.