
Þáttur #3 - Hervör Alma Árnadóttir
Show notes
Í þessum þætti ætlum við að ræða félagsráðgjafanám við Háskóla Íslands, þróun þess og framtíð.
Hvernig eru félagsráðgjafar menntaðir fyrir sífellt flóknari verkefni í samfélaginu? Hvers vegna eru starfsréttindi nú bundin við meistaragráðu?
Hvaða hæfni þarf félagsráðgjafi framtíðarinnar að búa yfir og hvernig tryggjum við að námið haldist í takt við þarfir samfélagsins?
Gestur minn er Hervör Alma Árnadóttir, deildarforseti Félagsráðgjafardeildar Háskóla Íslands.