
Málefni trans fólks
Show notes
Þáttaröð um geðheilbrigðismál. Í sjöunda þætti er fjallað um málefni trans fólks. Þó svo transteymin séu hýst á geðsviði Landspítalans þá er það ekki geðsjúkdómur, eða sjúkdómur yfirleitt, að vera trans eða kynsegin og allur vafi var tekinn af um það í lögum um kynrænt sjálfræði. Viðmælendur eru: Alexander Björn Gunnarsson, Björn Hjálmarsson, Marta Jóns Hjördísardóttir, Ólöf Bjarki Antons og Sigríður Eyþórsdóttir. Dagskrárgerð: Guðrún Hálfdánardóttir, Margrét Manda Jónsdóttir og Tómas Hrafn Ágústsson. Umsjón og handritsgerð: Guðrún Hálfdánardóttir. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.