Skip to content

55. Bergur Ebbi – Erum við að ímynda okkur ranga framtíð?

October 27, 2026 · 1 h 23 min

Show notes

Hvernig mun gervigreind breyta því hvernig við hugsum, sköpum og ímyndum okkur framtíðina? Og hvað ef framtíðin verður nákvæmlega eins og við sjáum hana fyrir okkur?

Í þessum þætti Gervigreindarklúbbsins fær Stefán Atli til sín Berg Ebba, rithöfund, frumkvöðul og einn af stofnendum hlaðvarpsins Fílalags.

Tilefnið er meðal annars nýjasta bók Bergs, Öld ímyndunaraflsins, þar sem hann veltir fyrir sér sambandi mannsins við tæknina og því hvernig ímyndunaraflið getur mótað framtíð samfélagsins.

Við ræðum hvort gervigreind sé raunveruleg ógn við mannkynið, hvort tæknifyrirtæki hafi hag af því að skapa ótta og spennu í kringum tæknina og hvort við séum að upplifa nýja tæknibólu. Bergur útskýrir einnig hvers vegna hann telur að við séum enn á frumstigi í skilningi okkar á ímyndunaraflinu og hvernig framtíðarrannsóknir á mannshuganum gætu breytt öllu.

Við förum yfir bækurnar Stofuhita, Skjáskot og Öld ímyndunaraflsins, ræðum áhrif samfélagsmiðla á hugsun okkar, mikilvægi þess að varðveita mannlega eiginleika og hvers vegna lífið verður ekki endilega betra þótt tæknin fjarlægi allar hindranir.

Bergur segir jafnframt frá frumkvöðlaverkefninu Spesíu, nýrri fjárfestingarþjónustu fyrir almenning, og afhjúpar hugmynd að næstu bók sinni, Kadensa, þar sem hann vill rannsaka hvernig hrynjandi, tónlist og tjáning hjálpa okkur að skilja samtímann.

Þáttur fyrir alla sem hafa áhuga á gervigreind, framtíðinni, heimspeki, bókmenntum og því hvað það þýðir að vera manneskja á tímum örra tæknibreytinga.

Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is og Eignaskanni.is.

All episodes of Gervigreindarklúbburinn

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.