Skip to content

48. „Þá er sálin alveg farin“ – Háski um gervigreind í tónlist

September 10, 2026 · 35 min

Show notes

Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is og akademias.is

Hvað verður um tónlistarmenn þegar gervigreind getur samið, sungið og pródúserað lag á nokkrum sekúndum?

Í þessum þætti Gervigreindarklúbbsins sest Darri Tryggvason, betur þekktur sem Háski, niður með Stefáni Atla og ræðir tónlistina, sköpunina, íslenska tónlistarbransann og áhrif gervigreindar á framtíð tónlistar.

Háski segir frá því hvernig verkefnið byrjaði nánast sem djók, hvernig hann var lengi „undercover“ og hvernig lög eins og Hvert ertu að fara? breyttu ferlinum hans. Hann ræðir líka tímabilið þar sem hann reyndi að leggja Háska-nafnið til hliðar og gefa út persónulegri tónlist undir eigin nafni — áður en hann fann sig aftur í Háska.

Við ræðum meðal annars:

  • hvort gervigreind muni minnka sköpunargáfu eða einfaldlega verða nýtt verkfæri tónlistarmanna,

  • hvernig Háski hefur prófað Suno og notar AI í hugmyndavinnu,

  • hvar mörkin liggja á milli AI sem verkfæris og AI sem býr til alla listina,

  • hvers vegna persónuleiki og „heimurinn í kringum listamanninn“ skipta sífellt meira máli þegar offramboð verður á tónlist,

  • hvers vegna Spotify-streymi eru ekki endilega það mikilvægasta fyrir tónlistarmann,

  • og hvað þarf raunverulega til að skara fram úr í íslenska tónlistarbransanum.

Háski segir meðal annars að þegar gervigreind sé farin að búa til allt lagið, þá sé að hans mati „sálin alveg farin“ — en hann telur jafnframt að tæknin sé komin til að vera og mikilvægt sé að læra að nýta hana rétt.

🎧 Hlustaðu á þáttinn og fylgdu Gervigreindarklúbbnum á Spotify og Apple Podcasts.

All episodes of Gervigreindarklúbburinn

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.