Skip to content
Jón Ólafs á spjallinu
PodcastLeisureIS

Jón Ólafs á spjallinu

New48.þáttur: Elísa ViðarsdóttirNovember 4, 2026 · 2 h 6 min
Episodes
48
Released
every two weeks
Latest episode
Nov 4, 2026

About the podcast

Jón Ólafs á spjallinu er hlaðvarpsþáttur þar sem Jón ræðir við skemmtilegt og áhugavert fólk um lífið og tilveruna. Hann hefur um árabil verið með annan fótinn í fjölmiðlum meðfram tónlistinni og komið víða við. Fjölmiðlaferilinn hóf hann sem blaðamaður á Tímanum og þegar Rás 2 var stofnuð var Jón einn fjórmenninganna sem stýrðu fyrsta þættinum á stöðinni. Ekki leið á löngu þar til hann fór í sjónvarp og margir kannast við þættina Af fingrum fram sem svo breyttust í spjalltónleika í Salnum sem sér ekki fyrir endann á. Það er von Jóns að hlustendur verði margs vísari að lokinni hlustun.

Episodes 48

  1. 48.þáttur: Elísa Viðarsdóttir

    2 h 6 min

    Þessi frábæra knattspyrnukona lagði skóna á hilluna á dögunum og ferlinum lauk hún sem Íslandsmeistari með Breiðabliki eftir að hafa lengstum spilað með Val. Þar var hún hluti af frábæru og oft ósigrandi liði …

    Show notes

    Þessi frábæra knattspyrnukona lagði skóna á hilluna á dögunum og ferlinum lauk hún sem Íslandsmeistari með Breiðabliki eftir að hafa lengstum spilað með Val. Þar var hún hluti af frábæru og oft ósigrandi liði en viðskilnaðurinn við klúbbinn var ekki á þeim nótum sem hún hefði óskað sér. Elísa ólst upp í Vestmannaeyjum og hennar helsta fyrirmynd var systir hennar, Margrét Lára Viðarsdóttir, ein dáðasta knattspyrnukona okkar Íslendinga. Elísa starfar sem næringar- og matvælafræðingur auk þess hún hefur menntað sig í íþróttasálfræði. Hún er með margt skemmtilegt á prjónunum, m.a. að rannsaka skólamáltíðir í grunnskólum Garðabæjar.

  2. 47.þáttur: Vilhjálmur Guðjónsson

    1 h 53 min

    Það er óhætt að segja að Vilhjálmi Guðjónssyni sé margt til lista lagt. Hann teflir 3-4 skákir á hverjum degi og þeysir þess á milli á mótorhjólinu út um allar koppagrundir. Vilhjálmur nýtur mikillar virðingar …

    Show notes

    Það er óhætt að segja að Vilhjálmi Guðjónssyni sé margt til lista lagt. Hann teflir 3-4 skákir á hverjum degi og þeysir þess á milli á mótorhjólinu út um allar koppagrundir. Vilhjálmur nýtur mikillar virðingar í íslenskum tónlistarheimi enda einn fjölhæfasti tónlistarmaður sem Ísland hefur alið. Nánast öll hljóðfæri leika í höndunum á honum þó saxófónninn og gítarinn séu þar fremst í flokki. Hann hefur stjórnað fjölda hljómsveita, allt frá rokktríóum til stórsveita; samið fyrir leikhús og kvikmyndir auk þess sem hann átti um árabil 80-90% allra auglýsingastefja sem við heyrðum á öldum ljósvakanna. Vilhjálmur er einn af frumherjum Tónlistarskóla FÍH og þeir eru ófáir tónlistarmennirnir sem hann hefur kennt á löngum ferli.

  3. 46.þáttur: Sr. Davíð Þór Jónsson

    2 h 30 min

    Davíð Þór Jónsson varð fyrir einelti þegar hann flutti, ungur drengur, í Hafnarfjörðinn og því linnti ekki fyrr en hann skipti um lið og gerðist gerandi sjálfur. Hann fann hamingjuna í Flensborgarskóla þar sem …

    Show notes

    Davíð Þór Jónsson varð fyrir einelti þegar hann flutti, ungur drengur, í Hafnarfjörðinn og því linnti ekki fyrr en hann skipti um lið og gerðist gerandi sjálfur. Hann fann hamingjuna í Flensborgarskóla þar sem hann kynntist sínum bestu framtíðarvinum við félagsmálastörf. 18 ára gamall eignaðist Davíð sitt fyrsta barn og var í litlu sambandi við dóttur sína lengi framan af ævi hennar en í dag eru þau góðir vinir. Þrisvar sinnum sótti hann um inngöngu í Leiklistarskóla Íslands en var hafnað í öll skiptin. Þeir Steinn Ármann fóru svo í útvarpið og þátturinn þeirra hlaut nafnið Radíus og til urðu þá Radíusbræður sem skemmtu landsmönnum í mörg ár með húmor sem í dag þætti með öllu óviðeigandi. Nú starfar Davíð Þór Jónsson sem prestur í Laugarneskirkju og en sinnir jafnframt kveðskapnum sem hann hefur stundað í áratugi. Svo fer hann stundum í Taekwondo.

  4. 45.þáttur: Karen Kjartansdóttir

    1 h 26 min

    Kjarnorkukonan, Karen Kjartansdóttir, vakti líklega fyrst athygli sem fréttamaður og í því starfi undi hún sér æði vel í áratug áður en hún spreytti sig í almannatengslum og fleiru. Hún var óhrædd að liðsinna …

    Show notes

    Kjarnorkukonan, Karen Kjartansdóttir, vakti líklega fyrst athygli sem fréttamaður og í því starfi undi hún sér æði vel í áratug áður en hún spreytti sig í almannatengslum og fleiru. Hún var óhrædd að liðsinna umdeildum fyrirtækjum og samtökum og er með tandurhreina samvisku. Í dag starfar hún hjá Veðurstofu Íslands og unir sér vel. Skrif hennar á fésbók um ólíklegustu málefni eru eftirtektarverð enda á hún til að greina hlutina í þaula áður en hún lætur eitthvað frá sér. Karen gekk fyrir skemmstu yfir Grænlandsjökul og gerir ekki lítið úr þeirri þrekraun.

  5. 44.þáttur: Eyþór Gunnarsson

    2 h 2 min

    Eyþór Gunnarsson hefur í áratugi verið einn fremsti hljómborðsleikari þjóðarinnar. Hann vakti ungur athygli fyrir hæfileika sína og 16 ára gamall var hann farinn að leika á böllum með hljómsveitinni Tívolí. Þar …

    Show notes

    Eyþór Gunnarsson hefur í áratugi verið einn fremsti hljómborðsleikari þjóðarinnar. Hann vakti ungur athygli fyrir hæfileika sína og 16 ára gamall var hann farinn að leika á böllum með hljómsveitinni Tívolí. Þar kynntist hann Ellen Kristjánsdóttir sem síðar varð eiginkona hans. Saman hafa þau hjón gengið í gegnum súrt og sætt og kvöddu Bakkus fyrir margt löngu sem var þeirra besta ákvörðun. Á næsta ári verða liðin 50 ár frá því að þeir Eyþór, Friðrik Karlsson, Gunnlaugur Briem og Jóhann Ásmundsson stofnuðu hljómsveitina Mezzoforte og stendur ýmislegt til.

  6. 43.þáttur: Lalli töframaður

    1 h 45 min

    Lalli töframaður er besti vinur barnanna og nýtir eigin lífsreynslu óspart þegar hann skemmtir þeim. Töfri töfri kallast sýning sem hann var að frumsýna í Tjarnarbíói og fjallar um ofurkraftana hans sem hann …

    Show notes

    Lalli töframaður er besti vinur barnanna og nýtir eigin lífsreynslu óspart þegar hann skemmtir þeim. Töfri töfri kallast sýning sem hann var að frumsýna í Tjarnarbíói og fjallar um ofurkraftana hans sem hann tengir við greiningar sínar, adhd, lesblindu og tourette. Hann er menntaður smiður en undanfarin ár hefur hann nær eingöngu starfað sem skemmtikraftur á eins marga vegu og sá starfstitill rúmar. Lalli hefur gefið út plötu, skrifað bók og er ávallt reiðubúinn í sínum grunnbúning að skemmta fólki - stundum með nær engum fyrirvara!

  7. 42.þáttur: Rán Flygenring

    1 h 51 min

    Rán Flygenring ólst upp á heimili arkitekta og fyrir vikið var hún síteiknandi sem barn og sér ekki fyrir endann á þessu. Hún ákvað að ferðast um heiminn og sjá hvort hún gæti framfleytt sér á meðan sem …

    Show notes

    Rán Flygenring ólst upp á heimili arkitekta og fyrir vikið var hún síteiknandi sem barn og sér ekki fyrir endann á þessu. Hún ákvað að ferðast um heiminn og sjá hvort hún gæti framfleytt sér á meðan sem teiknari og höfundur. Þetta gekk aldeilis upp en eftir tæpan áratug flutti hún aftur heim til Íslands, reynslunni ríkari. Rán hefur sent frá sér fjölda bóka og myndskreytt fyrir sjálfa sig og aðra. Hún er að læra á píanó auk þess sem hún spilar á selló. Rán er mikill hvalavinur og hefur beitt sér gegn hvalveiðum á Íslandi. Sundfíkn hefur litað líf hennar en hún ber höfuðið hátt.

  8. 41.þáttur: Margrét Valdimarsdóttir

    1 h 40 min

    Við höfum öll sögu að segja og Dr. Margrét Valdimarsdóttir, afbrotafræðingur er ekki þar undanskilin. Æskuárin í Breiðholti voru erfið og hún varð vitni að ýmsu sem hún gat svo sannarlega nýtt sér síðar meir í …

    Show notes

    Við höfum öll sögu að segja og Dr. Margrét Valdimarsdóttir, afbrotafræðingur er ekki þar undanskilin. Æskuárin í Breiðholti voru erfið og hún varð vitni að ýmsu sem hún gat svo sannarlega nýtt sér síðar meir í afbrotafræðunum. Hún vann í nokkur ár sem barþjónn áður en hún sótti um starf á útvarpsstöðinni FM 957 án þess að hafa nokkurn tímann hlustað á útvarpsstöðina. Við tóku nokkur ár á ljósvakamiðlum en um þrítugt skellti hún sér í háskólanám. Margrét hefur fjallað um viðkvæm málefni afbrotafræðinnar og er eftirsóttur álitsgjafi á sínu sviði.

  9. 40.þáttur: Jónatan Garðarsson

    1 h 52 min

    Jónatan Garðarsson hefur setið allt um kring hið íslenska tónlistarborð og slær hvergi slöku við. Hann hefur alla tíð alið manninn í Hafnarfirði og byrjaði ungur að safna hljómplötum og á þúsundir vinylplatna …

    Show notes

    Jónatan Garðarsson hefur setið allt um kring hið íslenska tónlistarborð og slær hvergi slöku við. Hann hefur alla tíð alið manninn í Hafnarfirði og byrjaði ungur að safna hljómplötum og á þúsundir vinylplatna og geisladiska. Jónatan lærði á hljóðfæri og söng með unglingahljómsveitum en fannst óspennandi að spila á böllum fyrir drukkið fólk og fann sér því aðra leið í faðm tónlistargyðjunnar. Í áratugi hefur hann frætt okkur um tónlist á margvíslegan hátt í ljósvakamiðlum RUV, í dagblöðum og ritstýrt menningarþáttum. Jónatan fellur seint verk úr hendi og hann hefur setið í hinum ýmsu nefndum og ráðum og koma þar trúmál, tónlist og náttúruvernd helst við sögu.

  10. 39.þáttur: Óskar Hrafn Þorvaldsson

    2 h 26 min

    Óskar Hrafn er umtalaðasti þjálfari íslenskrar knattspyrnu þökk sé leiftrandi sóknarknattspyrnu sem meistaraflokkur KR í knattspyrnu býður upp á í hverjum leik. Sjálfur raðaði hann inn mörkunum í yngri …

    Show notes

    Óskar Hrafn er umtalaðasti þjálfari íslenskrar knattspyrnu þökk sé leiftrandi sóknarknattspyrnu sem meistaraflokkur KR í knattspyrnu býður upp á í hverjum leik. Sjálfur raðaði hann inn mörkunum í yngri flokkunum en var svo færður í vörnina í 2.flokki. Eftir nokkur ár í meistaraflokki KR hélt hann til Noregs í atvinnumennsku en þurfti að leggja skóna á hilluna aðeins 25 ára gamall. Þá hóf hann að skrifa um knattspyrnu í dagblöð og sinnti með tíð og tíma ýmsum yfirmannsstörfum í fréttamennsku og var hvað lengst hjá 365 miðlum auk þess sem hann skrifaði skáldsögu árið 2010. Óskar Hrafn var ekkert á leiðinni í þjálfun þegar hann fékk afdrifaríkt símtal úr vesturbænum og síðan hefur þjálfunin átt hug hans allan.

  11. 38.þáttur: Vigdís Hafliðadóttir

    2 h 5 min

    Sviðsljósið skín skærar og skærar á Vigdísi Hafliðadóttur sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir margvíslega hæfileika. Eftir að hafa klárað MH þreytti hún inntökupróf í leiklist en komst ekki inn og vill …

    Show notes

    Sviðsljósið skín skærar og skærar á Vigdísi Hafliðadóttur sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir margvíslega hæfileika.

    Eftir að hafa klárað MH þreytti hún inntökupróf í leiklist en komst ekki inn og vill meina að hún hafi nú bara haft gott af þeirri höfnun. Hún ákvað að nema heimspeki við Háskóla Íslands auk þess að hleypa heimdraganum til Svíþjóðar og læra þar vísnatónlist af innfæddum. Vigdís syngur og semur lög og texta með kvennahljómsveit sinni Flott og kemur fram sem uppistandari. Frammistaða hennar í sjónvarpsþáttunum 20 og eitthvað og kvikmyndinni Ljósvíkingar er eftirminnileg og Vigdís er svo sannarlega fjölhæf og hæfileikarík.

  12. 37.þáttur: Gói

    1 h 55 min

    Guðjón Davíð Karlsson (Gói) var aðeins 5 ára gamall þegar hann ákvað að verða leikari og í annarri tilraun komst hann inn í Leiklistarskólann. Hann eyddi æsku- og unglingsárum í Þingholtunum og spilaði fótbolta …

    Show notes

    Guðjón Davíð Karlsson (Gói) var aðeins 5 ára gamall þegar hann ákvað að verða leikari og í annarri tilraun komst hann inn í Leiklistarskólann. Hann eyddi æsku- og unglingsárum í Þingholtunum og spilaði fótbolta með Megasi. Gói var lagður í einelti sem barn einfaldlega af því að hann var prestssonur. Hann segist hafa sloppið vel frá þessu af því hann átti svo góða vini. Hann er þakklátur fyrir hlutskipti sitt og elskar að starfa í leikhúsinu.

  13. 36.þáttur: Pétur Pétursson

    2 h 11 min

    Pétur Pétursson er einn besti knattspyrnumaður Íslandssögunnar og var með eindæmum fundvís á netmöskva andstæðinganna. Hann lék sem atvinnumaður í Hollandi, Belgíu og á Spáni og lék og æfði með mörgum frábærum …

    Show notes

    Pétur Pétursson er einn besti knattspyrnumaður Íslandssögunnar og var með eindæmum fundvís á netmöskva andstæðinganna. Hann lék sem atvinnumaður í Hollandi, Belgíu og á Spáni og lék og æfði með mörgum frábærum leikmönnum eins og Mario Kempes og Ruud Gullit svo dæmi séu nefnd. Hann setti markamet með uppeldisfélagi sínu ÍA á Akranesi og átti frábæran tíma með KR. Pétur starfaði um árabil sem ljósmyndari og rak eigin ljósmyndastofu. Hann þjálfaði kvennalið Vals árin 2017-2024 sem hampaði ófáum titlunum undir hans stjórn. Þrátt fyrir þennan afbragðs árangur fékk hann að lokum reisupassann. Pétur er mikill áhugamaður um tónlist og hefur látið sig dreyma um að læra hljóðupptökur, bassa- og gítarleik þó ekkert hafi enn orðið af því.

  14. 35.þáttur: Gunnar Árnason

    1 h 53 min

    Gunnar hefur verið í fremstu röð íslenskra hljóðmanna í áratugi og hefur byggt sér glæsilegt hljóðver í Vatnsendahverfi Kópavogs. Hann hljóðsetur m.a. kvikmyndir, sjónvarpsþætti og auglýsingar og er …

    Show notes

    Gunnar hefur verið í fremstu röð íslenskra hljóðmanna í áratugi og hefur byggt sér glæsilegt hljóðver í Vatnsendahverfi Kópavogs. Hann hljóðsetur m.a. kvikmyndir, sjónvarpsþætti og auglýsingar og er margverðlaunaður. Gunnar hefur prófað nánast allt á Íslandi tengt hljóðhönnun og ein eftirminnilegasta ráðningin er þegar hann hljóðblandaði sjálfan Páfann. Hann segir Magnús Kjartansson vera sinn helsta örlagavald í bransanum og fyrir nokkrum árum gaf hann besta vini sínum nýra.

  15. 34.þáttur: Brynhildur Björnsdóttir

    1 h 50 min

    Brynhildur Björnsdóttir er leikkona, söngkona, mannfræðingur, bókmenntafræðingur, dagskrárgerðarkona, feministi og kattahaldari svo fáein dæmi séu nefnd. Hún hefur svo sannarlega frá mörgu að segja enda reynt …

    Show notes

    Brynhildur Björnsdóttir er leikkona, söngkona, mannfræðingur, bókmenntafræðingur, dagskrárgerðarkona, feministi og kattahaldari svo fáein dæmi séu nefnd. Hún hefur svo sannarlega frá mörgu að segja enda reynt ýmislegt um ævina. Þættir hennar, Hold, sem hún gerði fyrir Rás 1 hafa vakið mikla athygli.

  16. 33.þáttur: Björn Stefánsson

    1 h 30 min

    Björn vakti fyrst athygli sem trommuleikari hljómsveitarinnar Mínus. Hann kom öllum á óvart þegar hann ákvað að skella sér í leiklistarnám í Danmörku árið 2009. Námið var hreint ekki auðvelt fyrir mann með …

    Show notes

    Björn vakti fyrst athygli sem trommuleikari hljómsveitarinnar Mínus. Hann kom öllum á óvart þegar hann ákvað að skella sér í leiklistarnám í Danmörku árið 2009. Námið var hreint ekki auðvelt fyrir mann með óskilgreindan athyglisbrest auk þess sem það var á dönsku. Eftirminnileg leikhlutverkin eru mörg en hann heldur mest upp á samleik þeirra Hjartar Jóhannssonar í Fjallabaki. Alkóhólískt heimilishald hafði mikil áhrif á æsku- og unglingsár Björns sem er með bók í smíðum.

  17. 32.þáttur: Helga Möller

    1 h 35 min

    Helga Möller hefur oft verið nefnd Diskódrottning Íslands. Samt voru þau Jóhann Helgason ekkert sérstakt áhugafólk um diskótónlist þegar þau sungu inn á fyrstu plötuna sem Þú & ég. Hún kemur til dyranna eins og …

    Show notes

    Helga Möller hefur oft verið nefnd Diskódrottning Íslands. Samt voru þau Jóhann Helgason ekkert sérstakt áhugafólk um diskótónlist þegar þau sungu inn á fyrstu plötuna sem Þú & ég. Hún kemur til dyranna eins og hún er klædd og hefur talað opinskátt í fjölmiðlum um mjög persónuleg málefni enda upplifað erfiða hluti eins og dótturmissi. Helga á enn eftir að gera plötuna sem hana hefur alltaf langað til að gera.

  18. 31.þáttur: Guðmundur Pétursson

    1 h 45 min

    Guðmundur varð landsfrægur í einu vetfangi þegar hann birtist landsmönnum í kosningasjónvarpinu aðeins 14 ára gamall. Honum líkaði ekkert sérstaklega við að vera kallaður undrabarn eða snillingur en víst er að …

    Show notes

    Guðmundur varð landsfrægur í einu vetfangi þegar hann birtist landsmönnum í kosningasjónvarpinu aðeins 14 ára gamall. Honum líkaði ekkert sérstaklega við að vera kallaður undrabarn eða snillingur en víst er að hæfileikar tónlistarmannsins eru einstakir. Ungur missti hann móður sína og lærði að standa á eigin fótum og taka engu sem gefnu.

  19. 30.þáttur: Guðrún Gunnarsdóttir

    1 h 48 min

    Guðrún hóf söngferil sinn sem meðlimur í MK-kvartettinum og í framhaldi tók svo vísnatónlistin við. Hún leitaði á vit ævintýranna í Noregi áður en hún sneri aftur heim. Við tóku ýmis söngverkefni og hún komst …

    Show notes

    Guðrún hóf söngferil sinn sem meðlimur í MK-kvartettinum og í framhaldi tók svo vísnatónlistin við. Hún leitaði á vit ævintýranna í Noregi áður en hún sneri aftur heim. Við tóku ýmis söngverkefni og hún komst fljótt í röð okkar fremstu söngkvenna með sinni áheyrilegu rödd. Það lá fyrir henni að starfa í fjölmiðlum og hefur hún stýrt ýmsum þáttum á ljósvakamiðlum landsins. Í dag er það "Mannlegi þátturinn" sem hún stýrir ásamt Gunnari Hanssyni á Rás 1.

  20. 29.þáttur: Andrea Jónsdóttir

    1 h 45 min

    Andrea hefur fjallað um tónlist á einn eða annan hátt í áratugi og oft nefnd Rokkamma Íslands. Þegar hún heyrði Be Bop A Lula í fyrsta sinn varð hún heltekin af rokktónlist. Hún ólst upp við Elvis, Bítlana og …

    Show notes

    Andrea hefur fjallað um tónlist á einn eða annan hátt í áratugi og oft nefnd Rokkamma Íslands. Þegar hún heyrði Be Bop A Lula í fyrsta sinn varð hún heltekin af rokktónlist. Hún ólst upp við Elvis, Bítlana og Hljóma og elti þá síðastnefndu á röndum landshorna á milli. Hún starfaði lengi sem prófarkalesari á Þjóðviljanum og kunni vel við sig innan um kommana enda alin upp af félagshyggjufólki. Andrea hefur starfað sem plötusnúður á Dillon í 26 ár og er hvergi nærri hætt, 77 ára gömul.

  21. 28.þáttur: Rúnar Freyr Gíslason

    1 h 42 min

    Um miðjan aldur var Rúnar Freyr búinn að brenna allar brýr að baki sér þrátt fyrir glæstan feril sem leikari og söngvari. Við tók bataferli sem mun standa yfir út lífið að hans sögn. Hann hefur heldur betur …

    Show notes

    Um miðjan aldur var Rúnar Freyr búinn að brenna allar brýr að baki sér þrátt fyrir glæstan feril sem leikari og söngvari. Við tók bataferli sem mun standa yfir út lífið að hans sögn. Hann hefur heldur betur snúið við blaðinu, bætt ráð sitt og gert sig gildandi á ýmsum sviðum m.a. hjá SÁA, RUV og sem fjölmiðlamaður. Rúnar á mörg börn og eina dóttur sína hitti hann fyrst þegar hún var orðin 10 ára gömul. Þessa dagana heimsækir hann fólk og vinnustaði enda í framboði til borgarstjórnar í Reykjavík.

  22. 27.þáttur: Jóhann Hjörleifsson

    1 h 39 min

    Þið hafið heyrt oftar í Jóhanni Hjörleifssyni en ykkur grunar. Hann hefur trommað marga af helstu smellum undanfarinna ára m.a. með Sálinni hans Jóns míns. Hann var hálfgert undrabarn á sitt hljóðfæri og var …

    Show notes

    Þið hafið heyrt oftar í Jóhanni Hjörleifssyni en ykkur grunar. Hann hefur trommað marga af helstu smellum undanfarinna ára m.a. með Sálinni hans Jóns míns. Hann var hálfgert undrabarn á sitt hljóðfæri og var farinn að spila með Sinfóníuhljómsveit Íslands 15 ára gamall. Jóhann byrjaði í MH en ætlaði að fresta náminu um einn vetur því það var svo mikið að gera í spileríinu. Stúdentsprófið bíður enn og listinn yfir tónlistarfólkið og hljómsveitirnar sem hann hefur unnið með er ógnarlangur og glæsilegur.

  23. 26.þáttur: Jóhanna Vigdís Arnardóttir (Hansa)

    1 h 29 min

    Jóhanna Vigdís Arnardóttir fékk leiklistarbakteríuna tiltölulega seint og kom sjálfri sér á óvart með því að fljúga inn í Leiklistarskólann í fyrstu tilraun. Að loknu námi fékk hún samning í Borgarleikhúsinu og …

    Show notes

    Jóhanna Vigdís Arnardóttir fékk leiklistarbakteríuna tiltölulega seint og kom sjálfri sér á óvart með því að fljúga inn í Leiklistarskólann í fyrstu tilraun. Að loknu námi fékk hún samning í Borgarleikhúsinu og brilleraði næstu árin í hverju hlutverkinu á fætur öðru. Frammistaða hennar í söngleikjum eins og Mary Poppins, Kysstu mig Kata og Mamma Mia er eftirminnileg þeim sem sáu . Hansa er með burtfararpróf bæði í klassíkum píanóleik og söng og telur tónlistina æðsta allra lista. Svo vippaði hún sér í MBA nám líka - svo sannarlega sterkur námsmaður. Hún greindist með MS sjúkdóminn fyrir tæpum þremur árum en kvartar ekki og lætur hvergi deigan síga.

  24. 25.þáttur: Róbert Marshall

    1 h 51 min

    Flestir tengja Róbert Marshall við fréttir og stjórnmál og réttilega. Vestmannaeyingurinn víðlesni á þér þó fleiri hliðar og útivist hefur átt hug hans allan síðustu árin og varla er til sá fjallstoppur sem …

    Show notes

    Flestir tengja Róbert Marshall við fréttir og stjórnmál og réttilega. Vestmannaeyingurinn víðlesni á þér þó fleiri hliðar og útivist hefur átt hug hans allan síðustu árin og varla er til sá fjallstoppur sem hann hefur ekki rölt upp á. Einnig sinnir Róbert tónlistarsköpun þegar tími vinnst til og er m.a. forsöngvari og helsti lagahöfundur hljómsveit sem kallast Hvítá. Einu sinni talaði Leonard Cohen beint til hans á tónleikum og í kjölfarið tók Róbert sína bestu ákvörðun.

  25. 24.þáttur: Sveinn Rúnar Sigurðsson

    1 h 23 min

    Enginn Íslendingur hefur átt jafn mörg lög í úrslitum Söngvakeppninnar og músíkalski læknirinn, Sveinn Rúnar Sigurðsson. Hann byrjaði að forrita aðeins 10 ára gamall og munaði minnstu að hann fengi ekki að …

    Show notes

    Enginn Íslendingur hefur átt jafn mörg lög í úrslitum Söngvakeppninnar og músíkalski læknirinn, Sveinn Rúnar Sigurðsson. Hann byrjaði að forrita aðeins 10 ára gamall og munaði minnstu að hann fengi ekki að útskrifast úr Versló vegna splattermyndar sem sýnd var í skólanum. Sveinn er kvæntur úkraínskri konu og hefur farið yfir 120 sinnum til heimalands hennar; hinnar stríðshrjáðu Úkraínu sem honum þykir svo vænt um.

  26. 23.þáttur: Kristín Þóra Haraldsdóttir

    1 h 14 min

    Kristín Þóra er ein eftirsóttasta og besta leikkona landsins. Hún segist hafa tekið miklum framförum sem ökumaður á síðustu árum þó hún kunni ekki að bakka í stæði. Örmögnun í starfi og leik varð uppistaða í …

    Show notes

    Kristín Þóra er ein eftirsóttasta og besta leikkona landsins. Hún segist hafa tekið miklum framförum sem ökumaður á síðustu árum þó hún kunni ekki að bakka í stæði. Örmögnun í starfi og leik varð uppistaða í leiksýningunni Á rauðu ljósi sem hún ákvað að skrifa og setja upp því hún átti ekki fyrir jólagjöfum. Þetta vatt upp á sig og sýningarnar eru orðnar á annað hundrað. Þessa dagana stúderar Kristín sálfræði þegar hún er ekki að brillera á sviði eða fyrir framan myndavélarnar.

  27. 22.þáttur: Mist Rúnarsdóttir

    1 h 21 min

    Mist er goðsögn í heimi íslenskrar kvennaknattspyrnu og hefur verið óþreytandi við að leggja henni lið hvort heldur sem þjálfari eða íþróttafréttakona. Ferðalög eru hennar líf og yndi og fljótlega eftir …

    Show notes

    Mist er goðsögn í heimi íslenskrar kvennaknattspyrnu og hefur verið óþreytandi við að leggja henni lið hvort heldur sem þjálfari eða íþróttafréttakona. Ferðalög eru hennar líf og yndi og fljótlega eftir stúdentspróf heimsótti hún bæði Kúbu og Kína. Einnig hefur hún nokkrum sinnum komið til Namibíu og Palestínu sem dæmi. Mist er mannfræðingur að mennt og hefur dálæti á köttum.

  28. 21.þáttur: Björgvin Páll Gústavsson

    1 h 47 min

    Björgvin Páll hefur verið besti handboltamarkvörður landsins um árabil og slær hvergi slöku við, 40 ára gamall. Æskan var erfið og áföllin mörg en hann vil meina að íþróttirnar hafi bjargað sér. Björgvin hefur …

    Show notes

    Björgvin Páll hefur verið besti handboltamarkvörður landsins um árabil og slær hvergi slöku við, 40 ára gamall. Æskan var erfið og áföllin mörg en hann vil meina að íþróttirnar hafi bjargað sér. Björgvin hefur látið til sín taka á ýmsum sviðum og m.a. gefið út tvær bækur sem vöktu mikla athygli. Hann er óþreytandi við að hjálpa öðrum og notar eigin lífsreynslu í því skyni.

  29. 20.þáttur: Máni Svavarsson

    1 h 13 min

    Hróður Mána hefur borist víða enda hefur tónlist hans í þáttunum um Latabæ heyrst í velflestum löndum þar sem rafmagn er að finna. Foreldrar hans, þau Svavar Gests og Elly Vilhjálms, löttu hann frekar en hvöttu …

    Show notes

    Hróður Mána hefur borist víða enda hefur tónlist hans í þáttunum um Latabæ heyrst í velflestum löndum þar sem rafmagn er að finna. Foreldrar hans, þau Svavar Gests og Elly Vilhjálms, löttu hann frekar en hvöttu þegar kom að tónlistinni en á endanum lét Máni hjartað ráða. Tengsl hans við AHA og meðlimi hennar koma við sögu rétt eins og aflitað hár og frekar löng skóladvöl í Versló.

  30. 19.þáttur: Ellen Kristjánsdóttir

    2 h 1 min

    Ellen fæddist í Bandaríkjunum og talaði ekki stakt orð í íslensku þegar hún fluttist til Íslands. Hún hefur þurft að glíma við ansi mörg áföll á lífsleiðinni og meðal annars varð eitt slíkt uppsprettan að lagi …

    Show notes

    Ellen fæddist í Bandaríkjunum og talaði ekki stakt orð í íslensku þegar hún fluttist til Íslands. Hún hefur þurft að glíma við ansi mörg áföll á lífsleiðinni og meðal annars varð eitt slíkt uppsprettan að lagi sem hún syngur reglulega til að hughreysta annað fólk. Ellen er ein ástsælasta söngkona landsins og vakti fyrst athygli með Ljósunum í bænum og síðan Mannakornum. Hún brennur fyrir réttlæti og velferð þeirra sem minna mega sín og hefur aldrei látið sitt eftir liggja í þeim efnum.

These are the latest 40 of 48 episodes. You’ll find older episodes in the podcast’s feed.

Is this your podcast?

Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.