Skip to content

Lífsreynslusögur Vikunnar

July 9, 2021 · 40 min

Show notes

Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:


- Með grátstafinn í kverkunum í tvö ár:

„Ég var 23 ára og hafði nýlokið háskólaprófi með góðum árangri. Ég taldi mig færa í flestan sjó og eiga bjarta framtíð fyrir mér. Okkur hjónin langaði að eignast barn og það varð úr að við ákváðum að þessi tímamót hentuðu vel til að stofna fjölskyldu. Allan meðgöngutímann var ég fílhraust og blómstraði. Allar konurnar í minni fjölskyldu höfðu átt auðvelt með að eignast börn og ég sá ekki nokkuð því til fyrirstöðu að eins yrði um mig.“


- Tók ekki mark á viðvörunum:

„Saga mín er lík sögu margra annarra kvenna, ég féll fyrir manni, trúði á hið góða í honum en endaði með að flýja frá honum kalin á hjarta. Mikið gekk á og ég fékk að lokum nálgunarbann á hann. Undanfarið hefur hann látið mig í friði en ég er hrædd um að það sé vegna þess að hann sé kominn með nýtt fórnarlamb að níðast á.“


- Örlagaríkt símtal:

„Fyrir tæpum tuttugu árum komst ég að því að maðurinn minn héldi fram hjá mér en það voru þó ekki einu svikin sem ég uppgötvaði í kjölfar símtals þar sem viðmælandinn breytti rödd sinni og sagði ekki til nafns.“


- Draumurinn sem breytti lífi mínu:

„Mig dreymdi fyrsta minnisstæða drauminn á barnsaldri þótt ég hafi ekki skilið hann fyrr en ég varð fullorðin. Draumarnir urðu fleiri en í nokkrum tilvikum vildi ég ekki horfast í augu við merkingu þeirra. Einn afar skýr og erfiður draumur varð síðan til þess að ég gjörbreytti lífi mínu.“


- Undir yfirborðinu:

„Fyrir rétt rúmum áratug varð ég yfir mig ástfangin af dásamlegum manni. Við vorum bæði í námi þegar við tókum saman og oft mikið að gera. Þess vegna var ekki alltaf allt fullkomið en við vorum hamingjusöm. Það eina sem skyggði á var að mín gallalausa svilkona lét ekkert tækifæri ónotað til að gera lítið úr mér. Nýlega kom hins vegar í ljós að ýmislegt var í gangi undir yfirborðinu á hennar heimili.“

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

All episodes of Lífsreynslusögur Vikunnar

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.