Skip to content

Lífsreynslusögur Vikunnar

July 2, 2021 · 40 min

Show notes

Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:


- Meiðandi orð:

„Þegar dóttir mín veiktist af sjúkdómi sem síðar dró hana til dauða sagði ókunnugur maður eina setningu við mig sem hefur lifað með mér síðan. Enn skil ég ekki tilgang mannsins og mun eflaust aldrei gera það.“ 


- Neyð konunnar gekk mér að hjarta:

„Fyrir nokkru var ég á leið heim frá sólarströnd í íslenskri flugvél. Skyndilega heyrðist rödd flugfreyjunnar í kallkerfinu og hún spurði hvort læknir væri um borð. Hjón gáfu sig fram og fljótlega var okkur öllum ljóst að í vélinni var kona haldin ofsahræðslu í alvarlegu kvíðakasti. Hún er greind með alzheimer á byrjunarstigi og var þarna ein á ferð og missti skyndilega allt veruleikaskyn og vissi ekki hvar hún var stödd.“ 


- Systir í samkeppni:

„Ég er næstelst í systkinahópnum, á tvo bræður og eina systur, nokkrum árum yngri. Við systkinin vorum ágætlega samrýnd en á unglingsárunum fann ég að systir mín virtist vera komin í einhvers konar samkeppni við mig.“


- Faðir hans eyðilagði sjálfsmynd hans:

„Þegar ég skildi við manninn minn og stóð uppi ein með drengina mína kom fljótlega í ljós að sambúð mín við föður þeirra hafði skilið eftir ör á sál þess eldri. Hann varð fljótlega fyrir miklu aðkasti í skólanum, enda var vanlíðan hans öllum augljós og börn geta verið grimm. Fagfólk kom inn í málið og ég varð að taka á öllu mínu til að ég og barnið mitt yrðum ekki kaffærð í sérfræðikjaftæði sem hafði ekkert með líf okkar að gera.“


- Konan á móti:

„Fyrir nokkrum árum bjó ég í sama fjölbýlishúsi og kona nokkur sem hafði átt sérstakt og erfitt líf sem hafði sett mark sitt á hana. Í fyrstu var hún indæl en það breyttist þegar hún fann að ég vildi ekki jafnmikið samband hafa og hún.“

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

All episodes of Lífsreynslusögur Vikunnar

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.