Skip to content

Íslenskar nunnur I.

April 20, 2026 · 60 min

Show notes

Frá siðaskiptum hafa fjórar íslenskar konur gerst kaþólskar nunnur. „Fleiri íslenskar stúlkur íhuguðu klausturlífið en höfðu ekki þá trúarlegu hugsjón eða köllun sem klausturvistin krefst,“ segir í endurminningum Sigurveigar Guðmundsdóttur sem hugsaði um að gerast nunna en hætti við vegna heilsubrests. Í þættinum er sagt frá Steinunni Björnsdóttur (Systur Mary Hildu), Halldóru Marteinsdóttur (Systur Jóhönnu af Krossi), Guðrúnu Unu Sigurveigu Gísladóttur (Systur Stanislaus) og Svanlaugu Guðmundsdóttur (Systur Clementiu yngri). 


Ættfræðigrúsk, Guðrún Ósvífursdóttir, Hildur nunna á Hólum í Hjaltadal á 12. öld, ískyggilegar minningargreinar, eftirminnilegt Volkswagen rúgbrauð, rúlluskautar,  grallarahegðun og ýmislegt fleira kemur við sögu í fyrri þættinum af tveimur um líf þeirra íslensku kvenna sem hafa gengið í klaustur frá því að kaþólskt trúboð hófst á ný hérlendis.


Rætt er við skyldmenni systur Clementiu yngri. Sigríður (Sirrý) Sigurðardóttir og Zíta Benediktsdóttir eru bræðradætur hennar, rætt er við þær í þætti dagsins ásamt Hilmari Hjartarsyni eiginmanni Sirrýjar. Guðfinna Ragnarsdóttir ættfræðingur segir einnig frá.



Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

All episodes of Meining

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.