Skip to content
Morðskúrinn
PodcastTrue CrimeIS

Morðskúrinn

NewKent HeitholtNovember 11, 2026 · 44 min
Episodes
344
Released
weekly
Latest episode
Nov 11, 2026

About the podcast

Spjöllum saman um morð, mannshvörf, raðmorðingja og dularfull dauðsföll sem eru bæði leyst eða óleyst mál! Nýr þáttur kemur út alla miðvikudaga. Þú finnur okkur á facebook og instagram: Morðskúrinn.
www.pardus.is/mordskurinn

Episodes 344

  1. Kent Heitholt

    44 minEpisode 349

    48 ára Kent var íþróttafréttamaður hjá Tribune og var að vinna frameftir á hrekkjavöku aðfaranótt 1. nóvember 2001. Að vinnudegi loknum komst hann þó ekki lengra en að bílnum sínum, því þar voru tveir menn sem …

    Show notes

    48 ára Kent var íþróttafréttamaður hjá Tribune og var að vinna frameftir á hrekkjavöku aðfaranótt 1. nóvember 2001. Að vinnudegi loknum komst hann þó ekki lengra en að bílnum sínum, því þar voru tveir menn sem komu til með að berja og kyrkja hann til bana. Tveir menn voru að lokum ákærðir fyrir að manndrápið, byggt eingöngu á vitnisburði en engra haldbærra sönnunargagna.

  2. Katherine Foster

    54 minEpisode 348

    Þann 21. febrúar árið 1980 ætlaði hin 18 ára gamla Katherine Foster að gera sér góðan dag með bestu vinkonum sínum og kíkja í verslunarmiðstöð. Katherine átti tíma eftir hádegi þennan dag og var planið því að …

    Show notes

    Þann 21. febrúar árið 1980 ætlaði hin 18 ára gamla Katherine Foster að gera sér góðan dag með bestu vinkonum sínum og kíkja í verslunarmiðstöð.
    Katherine átti tíma eftir hádegi þennan dag og var planið því að skjótast fyrir hádegi en hún átti aldrei eftir að komast alla leið.
    Lík hennar átti eftir að finnast tveimur dögum síðar og við tók heilmikil rannsókn sem að skilaði afar litlu í allmörg ár.

    Þátturinn er í boði
    Define the Line Sport
    Heimaskipulag

    Komdu í áskrift!

    www.pardus.is/mordskurinn

  3. Nicole Morin

    40 minEpisode 347

    Nicole var 8 ára gömul þegar hún ætlaði að fara út ein með vinkonu sinni í sundlaug íbúðarsamstæðunnar sinnar. Vinkona hennar beið eftir henni í andyrinu, en þar sem Nicole bjó á efstu hæð þá þurfti hún að taka …

    Show notes

    Nicole var 8 ára gömul þegar hún ætlaði að fara út ein með vinkonu sinni í sundlaug íbúðarsamstæðunnar sinnar. Vinkona hennar beið eftir henni í andyrinu, en þar sem Nicole bjó á efstu hæð þá þurfti hún að taka lyftuna niður. Nicole kom hinsvegar aldrei til með að koma út úr lyftunni þennan dag.

    Þátturinn er í boði Define The Line og Heimaskipulag

  4. Missy Grubaugh

    46 minEpisode 346

    Hin 19 ára gamla Missy Grubaugh var virkilega sjálfstæð, var farin að búa sjálf, vann mjög mikið til að eiga þak yfir höfðinu og fyrir skólagjöldunum sem hún var sjálf að greiða fyrir. Það var ekki mikill hasar …

    Show notes

    Hin 19 ára gamla Missy Grubaugh var virkilega sjálfstæð, var farin að búa sjálf, vann mjög mikið til að eiga þak yfir höfðinu og fyrir skólagjöldunum sem hún var sjálf að greiða fyrir. Það var ekki mikill hasar í lífi hennar og áfallið því gríðarlegt þegar Missy fannst látin inn í herberginu sínu eftir bruna inn á heimilinu hennar.

    Þátturinn er í boði

    Define the Line Sport www.definetheline.is

    Heimaskipulag www.heimaskipulag.is

    Komdu í áskrift!

    www.pardus.is/mordskurinn

  5. Suzanne Adams

    54 minEpisode 345

    Hin 83 ára Suzanne bauð syni sínum Stein-Erik að koma og búa hjá sér þegar hann var að ganga í gegnum erfiðleika í lífinu. Stein-Erik var meðal annars að glíma við andleg veikindi, og í stað þess að leita til …

    Show notes

    Hin 83 ára Suzanne bauð syni sínum Stein-Erik að koma og búa hjá sér þegar hann var að ganga í gegnum erfiðleika í lífinu. Stein-Erik var meðal annars að glíma við andleg veikindi, og í stað þess að leita til fagaðila þá fór hann að spjalla við ChatGPT. Hann og forritið, sem hann kallaði Bobby, urðu nánir vinir með tímanum og að lokum kom Stein-Erik til með að taka mjög slæma ákvörðun.

    Þátturinn er í boði Define The Line og Heimaskipulag

  6. Theresa Fusco

    47 minEpisode 344

    Árið 1984 var viðburðarrík helgi framundan hjá hinni 16 ára gömlu Theresu Fusco. Vakt á vinnustaðnum, gistipartý með vinkonu og svo dagur með pabba hennar - en hún skilaði sér aldrei til vinkonu sinnar eftir …

    Show notes

    Árið 1984 var viðburðarrík helgi framundan hjá hinni 16 ára gömlu Theresu Fusco. Vakt á vinnustaðnum, gistipartý með vinkonu og svo dagur með pabba hennar - en hún skilaði sér aldrei til vinkonu sinnar eftir vinnu.
    Við tók leit sem skilaði litlum árangri í margar vikur en að lokum fannst Theresa látin. Við tók heilmikil rannsókn sem átti eftir að fara í bókstaflega allar áttir áður en morðingi Theresu var að lokum handtekinn.

    Þátturinn er í boði
    Define the Line Sport
    Heimaskipulag

    Komdu í áskrift!

    www.pardus.is/mordskurinn

  7. Colleen Slemmer

    51 minEpisode 343

    Colleen Slemmer var aðeins 19 ára gömul þegar hún fannst myrt, en hún hafði verið í prógrammi á vegum vinnumálastofnunar þar sem henni hafði verið úthlutað búsetuúrræði í Knoxville. Það hafði ekki gengið …

    Show notes

    Colleen Slemmer var aðeins 19 ára gömul þegar hún fannst myrt, en hún hafði verið í prógrammi á vegum vinnumálastofnunar þar sem henni hafði verið úthlutað búsetuúrræði í Knoxville. Það hafði ekki gengið áfallalaust fyrir sig, þar sem hún varð fyrir miklu einelti af hálfu annarra nemenda sem stunduðu prógrammið. Það tók rannsakendur ekki langan tíma að upplýsa mál hennar, þar sem ein af þeim sem réðst á hana hafði meðal annars tekið brot úr höfuðkúpunni hennar og sýnt samnemendum þeirra. Sú stelpa hét Christa Pike, en hún hefur setið inni á dauðadeild síðan 1995 og mun aftaka hennar fara fram í dag, 30. september 2026 klukkan 15:00.

  8. Russel og Shirley Dermond

    1 h 2 minEpisode 342

    Russel og Shirley Dermond voru komin vel á níræðisaldur og búin að koma sér vel fyrir í úthverfi við Lake Oconee. Lífið snerist fyrst og fremst um að njóta, þau eyddu tíma sínum með börnum, að sinna …

    Show notes

    Russel og Shirley Dermond voru komin vel á níræðisaldur og búin að koma sér vel fyrir í úthverfi við Lake Oconee.
    Lífið snerist fyrst og fremst um að njóta, þau eyddu tíma sínum með börnum, að sinna félagslífinu og voru dugleg að mæta á viðburði. Það kom því virkilega á óvart þegar þau mættu ekki á einn slíkan þann 3 maí árið 2014.
    Þremur dögum síðar fannst Russel látinn inn á heimili þeirra en Shirley var hvergi að finna.

    Þátturinn er í boði

    Heimaskipulag - kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inn á www.heimaskipulag.is

    Define the Line - kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inn á www.definetheline.is

    Komdu í áskrift!
    www.pardus.is/mordskurinn

  9. Robert Brashers

    57 minEpisode 341

    Einn dag var Robert tekinn við að reyna að brjótast inn á heimili viðskiptavinar síns, hann var á leiðinni í fangelsi en ákvað að fara á flótta. Hann fór hinsvegar ekkert langt og eyddi oft á tíðum tíma með …

    Show notes

    Einn dag var Robert tekinn við að reyna að brjótast inn á heimili viðskiptavinar síns, hann var á leiðinni í fangelsi en ákvað að fara á flótta. Hann fór hinsvegar ekkert langt og eyddi oft á tíðum tíma með eiginkonu sinni og börnum á meðan hann átti að vera í felum. Einn daginn bankaði lögreglan svo upp á hjá þeim, sem varð til þess að Robert sá ekki aðra leið en að taka sitt eigið líf. Það sem átti eftir að koma í ljós var að hann var viðriðinn miklu meira heldur en grunur var um í fyrstu.

  10. Stacey Colbert

    38 minEpisode 340

    Stacy Colbert var 23 ára gömul, nýútskrifuð úr markaðsfræði og nýbyrjuð í starfi sem markaðsgreinandi í Columbus, Ohio. Hún hafði komið sér vel fyrir í íbúð í fjölbýlishúsi en það var einmitt þaðan sem hún …

    Show notes

    Stacy Colbert var 23 ára gömul, nýútskrifuð úr markaðsfræði og nýbyrjuð í starfi sem markaðsgreinandi í Columbus, Ohio.
    Hún hafði komið sér vel fyrir í íbúð í fjölbýlishúsi en það var einmitt þaðan sem hún hvarf eitt kvöld árið 1998 og það algjörlega sporlaust.

    Þátturinn er í boði

    Define the Line Sport

    Heimaskipulag

    Komdu í áskrift!

    www.pardus.is/mordskurinn

  11. Dustin Wehde

    45 minEpisode 339

    Dustin hafði kynnst nágrönnum sínum Tracey og Michael nokkuð vel, og var hann duglegur að hjálpa þeim með allskyns verkefni sem stóð honum til boða. Hinsvegar mætti hann einn daginn óboðinn inn á heimili Tracey …

    Show notes

    Dustin hafði kynnst nágrönnum sínum Tracey og Michael nokkuð vel, og var hann duglegur að hjálpa þeim með allskyns verkefni sem stóð honum til boða. Hinsvegar mætti hann einn daginn óboðinn inn á heimili Tracey með vini sínum og ætlaði að ráðast á börnin hennar, svo Tracey tók til sinna ráða að verja fjölskylduna sína. Enginn skildi hvers vegna, en rannsókn átti eftir að leiða það í ljós.

    Þátturinn er í boði Define The Line og Heimaskipulag

  12. LaNelle Barsock

    38 minEpisode 338

    LaNelle Barsock var ótrúlega dugleg kona, búin að mennta sig, kaupa sér hús og hlakkaði til að koma sér þar betur fyrir. Hún var vel liðin af öllum enda ótrúlega ljúf og góð við allt og alla. Það var því …

    Show notes

    LaNelle Barsock var ótrúlega dugleg kona, búin að mennta sig, kaupa sér hús og hlakkaði til að koma sér þar betur fyrir.
    Hún var vel liðin af öllum enda ótrúlega ljúf og góð við allt og alla. Það var því gríðarlegt áfall þegar LaNelle var myrt inn á heimili sínu.

    Þátturinn er í boði

    Define the Line

    Heimaskipulag

    Komdu í áskrift!

    www.pardus.is/mordskurinn

  13. Staudte fjölskyldan

    35 minEpisode 337

    Staudte fjölskyldan samanstóð af Mark, Diane og börnum þeirra fjórum, þeim Shaun, Sarah, Rachel og Brianna. Á fimm mánaða tímabili árið 2012 gerðust dularfullir hlutir innan fjölskyldunnar, þegar …

    Show notes

    Staudte fjölskyldan samanstóð af Mark, Diane og börnum þeirra fjórum, þeim Shaun, Sarah, Rachel og Brianna. Á fimm mánaða tímabili árið 2012 gerðust dularfullir hlutir innan fjölskyldunnar, þegar fjölskyldumeðlimur byrjuðu að veikjast og að lokum deyja. Rannsókn átti eftir að leiða í ljós hvað raunverulega var að gerast fyrir fjölskyldumeðlimina.

    Þátturinn er í boði Define The Line og Heimaskipulag

  14. Taylor Behl

    51 minEpisode 336

    Hin 17 ára gamla Taylor Behl var skynsöm og ábyrg stelpa og nýbyrjuð í háskóla þegar hún hvarf að virtist sporlaust. Hún hafði ætlað að skreppa frá til að gefa herbergisfélaga sínum smá næði en hún átti aldrei …

    Show notes

    Hin 17 ára gamla Taylor Behl var skynsöm og ábyrg stelpa og nýbyrjuð í háskóla þegar hún hvarf að virtist sporlaust.
    Hún hafði ætlað að skreppa frá til að gefa herbergisfélaga sínum smá næði en hún átti aldrei eftir að skila sér heima aftur.
    Það var ekki fyrr en 10 dögum eftir hvarf hennar sem að málið rataði í hendur lögreglu - fram að því hafði háskólalögreglan haldið því fram að hún hafi bara látið sig hverfa sjálf.


    Þátturinn er í boði
    Define the Line Sport
    Heimaskipulag

    Komdu í áskrift!
    www.pardus.is/mordskurinn

  15. Dan Markel

    37 minEpisode 335

    Dan og fyrrverandi eiginkona hans Wendy voru með sameiginlegt forræði, sem gerði það að verkum að hún gat ekki flutt aftur til foreldra sinna. Það kom henni þó í opna skjöldu þegar Dan var myrtur á heimili sínu …

    Show notes

    Dan og fyrrverandi eiginkona hans Wendy voru með sameiginlegt forræði, sem gerði það að verkum að hún gat ekki flutt aftur til foreldra sinna. Það kom henni þó í opna skjöldu þegar Dan var myrtur á heimili sínu einn daginn, og tókst rannsóknarlögreglumönnum að rekja ferðir þeirra sem höfðu orðið honum að bana.

    Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt hjá Define The Line

    Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt hjá Heimaskipulag

  16. Sherri Jo Elliot

    34 minEpisode 334

    Hin 16 ára gamla Sherri Jo hélt af stað í skólann þann 16 nóvember árið 1983 en í skólann átti hún aldrei eftir að skila sér. Lögreglan tók ofboðslega létt á hvarfi Sherri og taldi að hún væri unglingur í …

    Show notes

    Hin 16 ára gamla Sherri Jo hélt af stað í skólann þann 16 nóvember árið 1983 en í skólann átti hún aldrei eftir að skila sér.
    Lögreglan tók ofboðslega létt á hvarfi Sherri og taldi að hún væri unglingur í uppreisn. Svo var aldeilis ekki því lík hennar átti eftir að finnast fjórum dögum síðar og við tók ansi löng lögreglurannsókn.

    Þátturinn er í boði
    Define the Line
    Heimaskipulag

    Komdu í áskrift!

    www.pardus.is/mordskurinn

  17. Sade Robinson

    46 minEpisode 333

    Sade var aðeins 19 ára gömul þegar hún hvarf en hún hafði aldrei skilað sér heim eftir vinnu og kom bíllinn hennar til með að finnast brenndur til kaldra kola. Þátturinn er í boði - Define the Line - Heimaskipulag

  18. Tiffany Campbell og Melissa Chilton

    42 minEpisode 332

    Árið 1996 höfðu vinkonurnar Tiffany og Melissa báðar starfað á ljósabekkjastofu sem var sérstaklega fyrir karlmenn - en þar gátu þeir sótt sér auka þjónustu sem ekki bauðst á hefðbundnum ljósabekkjastofum. En …

    Show notes

    Árið 1996 höfðu vinkonurnar Tiffany og Melissa báðar starfað á ljósabekkjastofu sem var sérstaklega fyrir karlmenn - en þar gátu þeir sótt sér auka þjónustu sem ekki bauðst á hefðbundnum ljósabekkjastofum.
    En það var þar sem að lík þeirra beggja áttu eftir að finnast einn góðan veður dag en þær höfðu báðar verið stungnar til bana.
    Við tók rannsókn sem að leiddi lögreglu í margar áttir og enn er mörgum spurningar ósvarað.

    Þátturinn er í boði
    Define the Line Sport
    Heimaskipulag

    Komdu í áskrift!

    www.pardus.is/mordskurinn

  19. Orrin og Orson West

    36 minEpisode 331

    Orrin og Orson voru tvær bræður sem höfðu fljótlega eftir fæðingu verið færðir í fósturkerfið sökum vanrækslu heima fyrir. Þeim var komið fyrir í fóstri hjá Jacqueline og Trezell West og þar átti lífið aldeilis …

    Show notes

    Orrin og Orson voru tvær bræður sem höfðu fljótlega eftir fæðingu verið færðir í fósturkerfið sökum vanrækslu heima fyrir. Þeim var komið fyrir í fóstri hjá Jacqueline og Trezell West og þar átti lífið aldeilis að byrja. Fjölskyldan flutti frá Bakersfield til California City, en ekki löngu eftir það voru strákarnir tilkynntir týndir. Að sögn Trezell höfðu þeir verið úti í garði að leika sér þegar þeir hurfu, líklegast í gegnum hliðið í garðinum. Rannsókn lögreglu leiddi til tímalínu dularfullra atburða sem átti eftir að láta þá vilja breyta stefnu rannsóknarinnar.

    Þátturinn er í boði Define The Line en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum.

    Þátturinn er í boði Heimaskipulag en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt á heimasíðu og í verslun.

  20. Sherita Williams

    38 minEpisode 330

    Þegar hin 16 ára gamla Sherita Williams skilaði sér ekki heim úr snyrtitíma þá vöknuðu upp spurningar hjá foreldrum hennar. Sherita var öllu jafna mjög samviskusöm stelpa en átti það þó til að biðja foreldra …

    Show notes

    Þegar hin 16 ára gamla Sherita Williams skilaði sér ekki heim úr snyrtitíma þá vöknuðu upp spurningar hjá foreldrum hennar. Sherita var öllu jafna mjög samviskusöm stelpa en átti það þó til að biðja foreldra sína um örlítið meira frelsi svo þau héldu ró sinni. En daginn eftir stóð þeim ekki á sama og úr varð leit.

    Þátturinn er í boði
    Heimaskipulag
    Define the Line Sport

    Komdu í áskrift!

    www.pardus.is/mordskurinn

  21. Krim börnin

    32 minEpisode 329

    Krim hjónin ákváðu að ráða inn barnfóstru þar sem fjórða barn þeirra var á leiðinni og það var nóg að gera hjá þeim, en sú ákvörðun átti eftir að reynast þeim ansi dýrkeypt. Þátturinn er í boði - Define The …

    Show notes

    Krim hjónin ákváðu að ráða inn barnfóstru þar sem fjórða barn þeirra var á leiðinni og það var nóg að gera hjá þeim, en sú ákvörðun átti eftir að reynast þeim ansi dýrkeypt.

    Þátturinn er í boði

    - Define The Line

    - Heimaskipulag

  22. Helen McCourt

    46 minEpisode 328

    Þann 9. febrúar árið 1988 var hin 22 ára gamla Helen McCourt að drífa sig heim að borða kvöldmat því hún átti planað stefnumót með kærastanum sínum. Þennan dag hafði hún sérstaklega beðið móður sína um að hafa …

    Show notes

    Þann 9. febrúar árið 1988 var hin 22 ára gamla Helen McCourt að drífa sig heim að borða kvöldmat því hún átti planað stefnumót með kærastanum sínum.
    Þennan dag hafði hún sérstaklega beðið móður sína um að hafa matinn tilbúinn þegar hún kæmi heim og var því afar óvenjulegt þegar Helen seinkaði. Fljótt var þó ljóst að Helen var ekki sein, hún var horfin.

    Þátturinn er í boði
    Define the Line
    Heimaskipulag

    Komdu í áskrift!

    www.pardus.is/mordskurinn

  23. Rey Rivera

    50 minEpisode 327

    Árið 2006 hafði Allison, eiginkona Rey, ferðast út úr bænum í vinnuferð. Þegar hún ætlaði að heyra í eiginmanni sínum til að láta hann vita að hún væri komin á leiðarenda þá fékk hún engin svör. Morguninn eftir …

    Show notes

    Árið 2006 hafði Allison, eiginkona Rey, ferðast út úr bænum í vinnuferð. Þegar hún ætlaði að heyra í eiginmanni sínum til að láta hann vita að hún væri komin á leiðarenda þá fékk hún engin svör. Morguninn eftir stóð henni ekki lengur á sama og ákvað að aka heim og þar með tilkynna hvarf hans. Sex dögum síðar fannst bíllinn hans lagður nálægt Belvedere hótelinu í Baltimore og ekki leið á löngu þar til lík hans kom til með að finnast innan þess svæðis.

    HEIMASKIPULAG: Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inni á www.heimaskipulag.is

    DEFINE THE LINE: Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inni á www.definetheline.is

  24. Keeshae Jacobs

    50 minEpisode 326

    Keeshae Jacobs var 21 árs gömul þegar hún kvaddi mömmu sína kvöld eitt og sagðist ætla út að hitta vin. Keeshae hafði þennan dag rifist við kærastann sinn og var mamma hennar ekkert hissa á að hún vildi finna …

    Show notes

    Keeshae Jacobs var 21 árs gömul þegar hún kvaddi mömmu sína kvöld eitt og sagðist ætla út að hitta vin.
    Keeshae hafði þennan dag rifist við kærastann sinn og var mamma hennar ekkert hissa á að hún vildi finna sér eitthvað skemmtilegt að gera.
    Það lág fyrir að hún ætlaði að gista en þegar næsti dagur rann upp og ekkert bólaði á Keeshae þá fóru áhyggjur að vakna.
    Við tók langt og flókið ferli sem skilaði fáum svörum.

    Þátturinn er í boði

    Define the Line Sport

    Heimaskipulag

  25. Elyse Pahler

    30 minEpisode 325

    Elyse var 15 ára þegar hún var aðeins farin að óhlýðnast reglum foreldra sinna. Eitt kvöld, eins og svo mörg önnur, setti hún kodda undir sængina og læddist út en kvöldið 22. júlí 1995 var frábrugðið öðrum …

    Show notes

    Elyse var 15 ára þegar hún var aðeins farin að óhlýðnast reglum foreldra sinna. Eitt kvöld, eins og svo mörg önnur, setti hún kodda undir sængina og læddist út en kvöldið 22. júlí 1995 var frábrugðið öðrum kvöldum þar sem hún kom ekki til með að skila sér heim.

    Áskriftarleiðin okkar kostar 1.390kr.- á mánuði og inniheldur yfir 200 aðgengilega þætti -> www.pardus.is/mordskurinn

    Þátturinn er í boði:

    - Define The Line en kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inni á www.definetheline.is

    - Heimaskipulag en kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inni á www.heimaskipulag.is

  26. Gillian "Jill" Meagher

    50 minEpisode 324

    Jill Meagher hafði ákveðið að skella sér út á lífið með vinnufélögum í tilefni afmælis eins þeirra. Barinn sem hún kom til með að eyða kvöldinu á var í minna en km fjarlægð frá heimili hennar sem hentaði vel …

    Show notes

    Jill Meagher hafði ákveðið að skella sér út á lífið með vinnufélögum í tilefni afmælis eins þeirra. Barinn sem hún kom til með að eyða kvöldinu á var í minna en km fjarlægð frá heimili hennar sem hentaði vel, endaði gat hún bara gengið heim. Jill átti þó aldrei eftir að skila sér heim.

    Þátturinn er í boði

    Define the Line Sport

    Heimaskipulag

    Komdu í áskrift!

    www.pardus.is/mordskurinn

  27. Joleen Cummings

    36 minEpisode 323

    Joleen Cummings var farsæl hárgreiðslukona í Fernandina Beach, Flórída, allt til maí 2018 þegar hún hvarf sporlaust. Bíllinn hennar kom til með að finnast yfirgefinn ekki langt frá stofunni og beindist rannsókn …

    Show notes

    Joleen Cummings var farsæl hárgreiðslukona í Fernandina Beach, Flórída, allt til maí 2018 þegar hún hvarf sporlaust. Bíllinn hennar kom til með að finnast yfirgefinn ekki langt frá stofunni og beindist rannsókn fljótt að aðila sem var ekki sá sem hann sagðist vera.

    - Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt á www.definetheline.is

    - Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt á www.heimaskipulag.is

  28. Lawrence "Larry" Scully

    45 minEpisode 322

    Larry Scully var fullorðinn maður í litlum bæ í Minnesota og það má með sönnu segja að hann hafi verið með umdeildari mönnum. Larry átti sögu og fortíð sem olli því að fæstir voru hrifnir afþví að umgangast …

    Show notes

    Larry Scully var fullorðinn maður í litlum bæ í Minnesota og það má með sönnu segja að hann hafi verið með umdeildari mönnum.
    Larry átti sögu og fortíð sem olli því að fæstir voru hrifnir afþví að umgangast hann mikið - en Levi nokkur var þó með algjöra óbeit á Larry.

    Þátturinn er í boði

    Define the Line Sport
    Heimaskipulag
    Prepp-barinn

    Komdu í áskrift!

    www.pardus.is/mordskurinn

  29. Kadie Major

    34 minEpisode 321

    Kadie Major var 26 ára þegar hún fannst látin ásamt 10 mánaða gömlu dóttur sinni árið 2008. Kadie var barnshafandi á þessum tíma, en þær mægður urðu fyrir lest á Moncks Corner svæðinu í Suður-Karólínu. River …

    Show notes

    Kadie Major var 26 ára þegar hún fannst látin ásamt 10 mánaða gömlu dóttur sinni árið 2008. Kadie var barnshafandi á þessum tíma, en þær mægður urðu fyrir lest á Moncks Corner svæðinu í Suður-Karólínu. River dóttir hennar hafði þá kastast áfram og drukknað í læk við lestarteinana, og innan nokkurra daga var dánarorsök þeirra úrskurðað sem sjálfsvíg.

    Þátturinn er í boði:

    Define the Line en með kóðanum morðskúrinn farið þið 15% afslátt inni á www.definetheline.is

    Heimaskipulag en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt inni á www.heimaskipulag.is

  30. Clare Bernal

    39 minEpisode 320

    Clare Bernal hafði gert allt hvað hún gat til að láta drauma sína um að starfa sem snyrtifræðingur rætast. Markmiði hennar var náð þegar hún var 21 árs gömul og mátti hún vera stolt af því hvert hún var komin í …

    Show notes

    Clare Bernal hafði gert allt hvað hún gat til að láta drauma sína um að starfa sem snyrtifræðingur rætast.
    Markmiði hennar var náð þegar hún var 21 árs gömul og mátti hún vera stolt af því hvert hún var komin í lífinu þrátt fyrir ungan aldur.
    Lífið svoleiðis lék við hana, alveg þar til að hún mætti til vinnu eitt september kvöld árið 2005.

    Þátturinn er í boði

    Define the Line Sport

    Heimaskipulag

    Komdu í áskrift!

    www.pardus.is/mordskurinn

These are the latest 40 of 344 episodes. You’ll find older episodes in the podcast’s feed.

Is this your podcast?

Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.