Skip to content

#25 - Er ómögulegt að birta opinber gögn með aðgengilegum hætti?

March 18, 2026 · 20 min

Show notes

Samtök skattgreiðenda hafa sent Fjársýslunni og Fjármálaráðuneytinu erindi þar sem samtökin bjóðast til þess að taka að sér að birta öll opinber gögn um allar greiðslur hins opinbera, skattgreiðendum að kostnaðarlausu. Þetta gerist um leið og annað mælaborð Samtaka skattgreiðenda hefur verið birt, en að þessu sinni er um að ræða betrumbætt viðmót á opna reikninga ríkisins (opnirreikningar.is). Komið hefur í ljós að þrátt fyrir fögur fyrirheit er hinu opinbera ómögulegt að birta opinber gögn með aðgengilegum hætti – alltaf þarf að fela eitthvað fyrir skattgreiðendum. Í Skattaspjalli við þá Arnar Arinbjarnarson og Róbert Bragason, sérfræðinga Samtaka skattgreiðenda, er farið yfir þessa sögu.

Samtök skattgreiðenda fá mikinn fjölda ábendinga um hvernig megi fara betur með opinbert fé og einnig berast upplýsingar um umdeilanlega gjörninga. Þannig var upplýst að ein og sama manneskjan hefur fengið styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála þrjú ár í röð um leið og viðkomandi hafi tilkynnt um framboð sitt í komandi borgarstjórnarkosningum. Það undarlega er að þessi verkefni lúta að því að auka kosningaþátttöku innflytjenda sem setur frambjóðandann í óheppilega stöðu.

Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠styrkja samtökin hérna⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠[email protected]

All episodes of Skattaspjallið

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.