Skip to content
Sólin – Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu
PodcastArtsBooksIS

Sólin – Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu

NewLjóðastund til heiðurs Hannesi PéturssyniOctober 30, 2026 · 1 h 11 min
Episodes
27
Released
weekly
Latest episode
Oct 30, 2026

About the podcast

Í Sólinni er rætt um bækur sem koma út hjá Benedikt bókaútgáfu. Höfundar lesa úr og segja frá verkum sínum og góðir gestir spjalla um þýddar bækur.

Episodes 27

  1. Ljóðastund til heiðurs Hannesi Péturssyni

    1 h 11 min

    Upptaka af ljóðastund til heiðurs Hannesi Péturssyni sem fram fór í Eddu 23. október. Tilefnið var að Hannes Pétursson (f. 1931) sendi nýlega frá sér sína tólftu ljóðabók, Hjá Leyningsvötnum. Fimm rithöfundar …

    Show notes

    Upptaka af ljóðastund til heiðurs Hannesi Péturssyni sem fram fór í Eddu 23. október. Tilefnið var að Hannes Pétursson (f. 1931) sendi nýlega frá sér sína tólftu ljóðabók, Hjá Leyningsvötnum. Fimm rithöfundar komu saman og heiðruðu stórskáldið með upplestri ljóða frá löngum ferli Hannesar og gerðu grein fyrir vali sínu 📖

    Fram koma:

    Guðmundur Andri Thorsson

    Jón Kalman Stefánsson

    Karólína Rós Ólafsdóttir

    Valdimar Tómasson

    Þórdís Gísladóttir

    Við biðjumst velvirðingar á að hljóðið er ekki eins og best verður á kostið.

  2. Höfundaspjall: Brynja Hjálms og María Elísabet

    43 min

    Brynja Hjálmsdóttir og María Elísabet Bragadóttir bera saman bækur sínar: Undir fögru skinni og Þúsund barna móðir!

  3. Einfætta ballerínan: Inga Bjarnason ræðir við Hlín Agnarsdóttur

    45 min

    Nýr þáttur af Sólinni: Inga Bjarnason ræðir við Hlín Agnarsdóttur um endurminningabók sína, Einfætta ballerínan, og um lífið og listina. Bókin kemur út í byrjun nóvember .Endurminningar Ingu Bjarnason eru …

    Show notes

    Nýr þáttur af Sólinni: Inga Bjarnason ræðir við Hlín Agnarsdóttur um endurminningabók sína, Einfætta ballerínan, og um lífið og listina. Bókin kemur út í byrjun nóvember .
    Endurminningar Ingu Bjarnason eru dásamlegur aldarspegill, í senn tragískur, fjörugur og fyndinn. Inga heillaðist snemma af leiklist og kom víða við í heimi leikhússins. Af fullri einlægni lýsir hún baráttu sinni við eigin takmörk, segir frá ástum og sorgum, sigrum og ósigrum – og leitar loks sátta við liðna tíð. Þar er fátt dregið undan.

  4. Höfundaspjall: Kari Ósk og Karólína Rós

    57 min

    Höfundaspjall: Kari Ósk Grétudóttir og Karólína Rós Ólafsdóttir ræða um ljóðabækurnar þeirra, Undir þér jörðin og Lífskán.

  5. Fríða Þorkelsdóttir ræðir Kæri fáviti eftir Virginie Despantes

    41 min

    Upptaka frá Sólarkvöldi í Skáldu 18. júní 2026. Einar Kári Jóhannsson ræðir við Fríðu Þorkelsdóttur um skáldsöguna Kæri fáviti eftir Virginie Despentes, í íslenskri þýðingu Kristínar Jónsdóttur.Um bókina:Þrjár …

    Show notes

    Upptaka frá Sólarkvöldi í Skáldu 18. júní 2026. Einar Kári Jóhannsson ræðir við Fríðu Þorkelsdóttur um skáldsöguna Kæri fáviti eftir Virginie Despentes, í íslenskri þýðingu Kristínar Jónsdóttur.

    Um bókina:

    Þrjár ólíkar raddir segja frá – útskúfaður rithöfundur, þekkt leikkona og róttækur femínisti. Í gegnum tölvupóstsamskipti þeirra fáum við innlit í heim gegnsýrðum af kynbundinni valdbeitingu, afleiðingum #MeToo, fíkn, vináttu og leit að merkingu í heimi sem virðist oft vera að hrynja. Snjöll samtímasaga frá einum áhrifamesta höfundi Frakklands.


  6. Fríða Ísberg ræðir við Jón Kalman um Þyngsta frumefnið

    46 min

    Fríða Ísberg ræðir við Jón Kalman Stefánsson um fimmtu ljóðabók hans; Þyngsta frumefnið. Upptakan var gerð fyrir framan fullan sal af fólki í Skáldu bókabúð 5. nóvember 2025.

  7. Sigríður Hagalín ræðir Vegur allrar veraldar

    42 min

    Einar Kári Jóhannsson ræðir við Sigríði Hagalín Björnsdóttur um skáldsöguna Vegur allrar veraldar - Skálkasaga, sem er sjálfstætt framhald af Hamingja þessa heims - Riddarasaga. Þau ræða söguna, sagnaritun …

    Show notes

    Einar Kári Jóhannsson ræðir við Sigríði Hagalín Björnsdóttur um skáldsöguna Vegur allrar veraldar - Skálkasaga, sem er sjálfstætt framhald af Hamingja þessa heims - Riddarasaga. Þau ræða söguna, sagnaritun, heimildir og söguleganskáldskap.

  8. Dagur Hjartarson ræðir Frumbyrjur

    30 min

    Einar Kári Jóhannsson ræðir við Dag Hjartarson um skáldsöguna Frumbyrjur. Um bókina: Það er aðfangadagur og hjónin á Kölduhömrum búa sig undir jólahaldið. Handan áramóta eiga þau von á sínu fyrsta barni og …

    Show notes

    Einar Kári Jóhannsson ræðir við Dag Hjartarson um skáldsöguna Frumbyrjur. Um bókina: Það er aðfangadagur og hjónin á Kölduhömrum búa sig undir jólahaldið. Handan áramóta eiga þau von á sínu fyrsta barni og spennan í kviðnum smitar andrúmsloftið. Snjórinn hleðst upp og vegurinn út úr firðinum hefur ekki enn verið ruddur. Þegar kýrin á bænum tekur sótt hrökkva dyr upp á gátt sem ekki verður lokað.

  9. Kristín Svava Tómasdóttir ræðir Fröken Dúllu: Ævisögu Jóhönnu Knudsen

    41 min

    Einar Kári Jóhannsson ræðir við sagnfræðinginn og skáldið Kristínu Svövu Tómasdóttur um bókina Fröken Dúlla: Ævisaga Jóhönnu Knudsen sem nýlega kom út á vegum Benedikts bókaútgáfu. Jóhanna Knudsen, kölluð Dúlla …

    Show notes

    Einar Kári Jóhannsson ræðir við sagnfræðinginn og skáldið Kristínu Svövu Tómasdóttur um bókina Fröken Dúlla: Ævisaga Jóhönnu Knudsen sem nýlega kom út á vegum Benedikts bókaútgáfu. Jóhanna Knudsen, kölluð Dúlla af ástvinum sínum, er alræmd vegna rannsókn hennar á siðferðisástandinu í Reykjavík á árum seinni heimsstyrjaldar. Nærgöngular yfirheyrslur hennar yfir stúlkum sem grunaðar voru um samneyti við erlenda hermenn hafa verið kallaðar umfangsmestu persónunjósnir Íslandssögunnar. En hver var Dúlla Knudsen?

  10. Sif Sigmarsdóttir ræðir Allt sem við hefðum getað orðið

    37 min

    Sif Sigmarsdóttir ræðir við Helgu Ferdinands um skáldsöguna Allt sem við hefðum getað orðið. Bókin fjallar um þrjár konur og leyndarmál sem leiðir þær saman. Blaðamaðurinn Lilja fær veður af því að hún sé …

    Show notes

    Sif Sigmarsdóttir ræðir við Helgu Ferdinands um skáldsöguna Allt sem við hefðum getað orðið. Bókin fjallar um þrjár konur og leyndarmál sem leiðir þær saman. Blaðamaðurinn Lilja fær veður af því að hún sé líklegt fórnarlamb niðurskurðar. Þegar henni er falið að fjalla um nýútkomna bók um Annie Leifs, eiginkonu tónskáldsins Jóns Leifs, vakna hjá henni grunsemdir. Getur verið að mislyndi skjalavörðurinn á Landsbókasafninu sé að spila með hana?

  11. Fríða Ísberg um Huldukonuna

    41 min

    Fríða Ísberg ræðir við Einar Kári Jóhannsson um skáldsöguna Huldukonan. Þau ræða hvernig er að fylgja eftir fyrstu skáldsögu með bók númer tvö, fortíðarþrá, nútímavæðingu, rómans og margt fleira.

  12. Natasha S. spjallar um Mara kemur í heimsókn

    35 min

    Einar Kári Jóhannsson ræðir við Natöshu S. um nýjustu ljóðabók hennar, Mara kemur í heimsókn. Bókin fjallar um heimkomu til Rússlands eftir langa fjarveru, en er um leið uppgjör við pólitískt og menningarlegt …

    Show notes

    Einar Kári Jóhannsson ræðir við Natöshu S. um nýjustu ljóðabók hennar, Mara kemur í heimsókn. Bókin fjallar um heimkomu til Rússlands eftir langa fjarveru, en er um leið uppgjör við pólitískt og menningarlegt ástand í gamla heimalandi ljóðmælanda.

  13. Fríða Ísberg spjallar um Stargate eftir Ingvild Rishøi

    55 min

    Fríða Ísberg spjallar við Einar Kára Jóhannsson um skáldsöguna Stargate eftir Ingvild Rishøi. Stargate er jólaævintýri frá Noregi sem hefur farið sigurför víða um heim og endaði meðal annars á lista Oprah …

    Show notes

    Fríða Ísberg spjallar við Einar Kára Jóhannsson um skáldsöguna Stargate eftir Ingvild Rishøi. Stargate er jólaævintýri frá Noregi sem hefur farið sigurför víða um heim og endaði meðal annars á lista Oprah Winfrey yfir bækur ársins 2024. Fríða ræðir líka um útkomu Merkingar á ensku í sumar, kunningsskap þeirra Ingvild Rishøi og áhuga sinn á bókmenntum frá Norðurlöndum.

  14. Eva Rún Snorradóttir spjallar um Eldri konur

    42 min

    Eva Rún Snorradóttir spjallar við Einar Kára Jóhannsson um sína fyrstu skáldsögu, Eldri konur. Þau ræða þráhyggju höfundar fyrir eldri konum, bókmenntahátíðina Queer Situations og að kerlingabylting sé leiðin …

    Show notes

    Eva Rún Snorradóttir spjallar við Einar Kára Jóhannsson um sína fyrstu skáldsögu, Eldri konur. Þau ræða þráhyggju höfundar fyrir eldri konum, bókmenntahátíðina Queer Situations og að kerlingabylting sé leiðin til að breyta heiminum til betri vegar.

  15. Eva Rún Snorradóttir les úr Eldri konur

    5 min

    Eva Rún Snorradóttir les úr sinni fyrstu skáldsögu, Eldri konur.

  16. Þórdís Gísladóttir spjallar um Aðlögun og þýðingar

    43 min

    Þórdís Gísladóttir ræðir við Einar Kára Jóhannsson um ljóðabókina Aðlögun. Þau ræða líka feril Þórdísar og þýðingar hennar á tveimur nýjum bókum, Þessir djöfulsins karlar eftir Andrev Walden og Æsku eftir Tove Ditlevsen.

  17. Þórdís Gísladóttir les úr Aðlögun

    10 min

    Þórdís Gísladóttir les ur sinni sjöttu ljóðabók, Aðlögun.

  18. Halla Þórðardóttir spjallar um Sólin er hringur

    22 min

    Halla Þórðardóttir spjallar við Einar Kára Jóhannsson um sína fyrstu ljóðabókina sína Sólin er hringur. Þau ræða um feril Höllu hjá Íslenska dansflokknum og hvernig dansinn smitast yfir í ljóðlistina.

  19. Halla Þórðardóttir les úr Sólin er hringur

    3 min

    Halla Þórðardóttir les úr sinni fyrstu ljóðabók, Sólin er hringur.

  20. Jón Kalman Stefánsson les úr Himintungl yfir heimsins ystu brún

    4 min

    Jón Kalman Stefánsson les upphafið á sinni fimmtándu skáldsögu; Heimintungl yfir heimsins ystu brún

  21. Jón Kalman Stefánsson spjallar um Himintungl yfir heimsins ystu brún

    32 min

    Jón Kalman Stefánsson spjallar við Einar Kára Jóhannsson um sína fimmtándu skáldsögu; Himintungl yfir heimsins ystu brún. Þeir ræð Spánverjavígin, vinnubrögð rithöfunda, fræð úti í heimi og rapptónlist.

  22. Tómas Ævar Ólafsson les úr Breiðþotum

    6 min

    Tómas Ævar Ólafsson les valin kafla úr skáldsögunni Breiðþotur.

  23. Tómas Ævar Ólafsson spjallar um Breiðþotur

    44 min

    Tómas Ævar Ólafsson spjallar við Einar Kára Jóhannsson um sína fyrstu skáldsögu, Breiðþotur. Þeir ræða uppgang öfgahugmynda, uppvöxt á Akranesi, gagnaleka og ást á pizzum!

  24. Brynja Hjálmsdóttir les úr Friðsemd

    13 min

    Brynja Hjálmsdóttir les upphafið á skáldsögunni Friðsemd.

  25. Brynja Hjálmsdóttir spjallar um Friðsemd

    42 min

    Brynja Hjálmsdóttir spjallar við Einar Kára Jóhannsson um sína fyrstu skáldsögu, Friðsemd. Einnig ræða þau um áhrif B-mynda, hrylling, uppáhaldshöfunda og nýja Nóbelsskáldið.

  26. Dagur Hjartarson les úr Sporðdrekum

    10 min

    Dagur Hjartarson les valin kafla úr skáldsögunni Sporðdrekar.

  27. Dagur Hjartarson spjallar um Sporðdreka

    33 min

    Dagur Hjartarson ræðir við Einar Kára Jóhannsson um nýjustu skáldsöguna sína; Sporðdrekar, bókmenntir, barnabækur, Nóbelsskáld og líf rithöfunda.

Similar podcasts

More Arts podcasts
Is this your podcast?

Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.