Skip to content

110 Gestur: Fjóla frænka. Erfiðir transitar – áföll eða tækifæri?

November 8, 2026 · 57 min

Show notes

Þáttarlýsing

Getum við lært að skilja okkur sjálf betur með því að skoða bæði fortíðina og stjörnukortið okkar?

Í þessum þætti fá Ásgeir og Hera til sín góðan gest, Fjólu frænku, sem er uppeldisráðgjafi, kennari og höfundur bókarinnar Þegar hugurinn fer að blómstra.

Fjóla segir frá því hvernig hún lifði árum saman með áfallastreitu án þess að átta sig á því og hvernig hún tókst á við fortíðina. Við ræðum hvernig stjörnuspekin hefur hjálpað henni að skilja sjálfa sig og aðra, sérstaklega börn og ólíkar þarfir þeirra.

Einnig skoðum við áhrif Úranusar, afturvirkar plánetur, ólíkar orkur í daglegu lífi og hvernig stjörnukortið getur gefið okkur nýja sýn á þau tímabil sem við göngum í gegnum.

5 punktar úr þættinum

  1. Er hægt að lifa með áfallastreitu án þess að vita af því? Fjóla segir frá eigin reynslu, hvernig fortíðin mótaði líf hennar og hvað gerðist þegar hún fór loksins að horfast í augu við það sem hún hafði upplifað.

  2. Er barnið þitt erfitt – eða einfaldlega öðruvísi? Hvernig getur stjörnuspekin hjálpað foreldrum að sjá styrkleika barna sinna í stað þess að reyna að breyta þeim?

  3. Úranus – þegar lífið tekur óvænta stefnu. Hvers vegna upplifa sumir breytingar og óstöðugleika mun sterkar en aðrir? Og getur það sem virðist vera erfið orka reynst okkur nauðsynlegt?

  4. Af hverju eru svona margar plánetur afturvirkar? Við skoðum hvað afturvirkni þýðir í stjörnuspeki og hvers vegna slík tímabil eru oft tengd endurskoðun, uppgjöri og því að horfa til baka áður en haldið er áfram.

  5. Getur stjörnukortið hjálpað okkur í gegnum erfið tímabil? Fjóla segir frá því hvernig stjörnuspekin gaf henni nýjan skilning og sameiginlegt tungumál til að ræða það sem hún var að ganga í gegnum.

All episodes of Stjörnuspeki – Orkugreining

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.