Skip to content

106 Gestur: Guðni Gunnarsson. Guðníska / Vald orðanna / Að taka ábyrgð á eigin lífi

August 21, 2026 · 1 h 35 min

Show notes

Guðni Gunnarsson er gestur þáttarins og að þessu sinni förum við djúpt í mátt orðanna, ábyrgð, vitund og það að taka aftur valdið í eigin lífi.

Hvað er „guðníska“? Erum við heppin eða gæfurík? Hvað þýðir það raunverulega að vilja eitthvað – og hversu mikil áhrif hafa orðin sem við notum á veruleikann okkar?

Við skoðum líka stjörnukort Guðna og veltum fyrir okkur hvernig sterk Sporðdrekaorka, Merkúr og Mars endurspegla manninn, hugsunina og lífsstarfið.

Þáttur um sjálfsþekkingu, heimild, viðnám, gagnrýni og muninn á því að þekkja viskuna – og að lifa hana. Hér eru nokkrir punktar um efni þáttarins.

1. „Þú ert ekki heppinn – þú ert gæfuríkur.“
Hvað ef „heppni“ er ekki til? Guðni setur fram áhugaverða sýn á muninn á því að vera heppinn, lánsöm manneskja og gæfurík – og hvernig við sjálf tökum þátt í að skapa aðstæður lífs okkar.

2. „Ef þú ert bara að reyna – ætlarðu þá í raun að gera það?“
Það er gríðarlegur munur á mig langar, ég ætla, ég reyni og ég vil. Í þættinum er farið djúpt í orðið „vilji“ og þá hugmynd að raunverulegur vilji birtist fyrst þegar við framkvæmum.

3. Hversu mikið vald ertu búinn að gefa öðrum yfir líðan þinni?
Símtal sem þú „verður“ að svara. Skilaboð sem þú „átt“ að bregðast við. Ásakanir eða skoðanir annarra sem þú hleypir inn. Hvar liggja mörkin milli samskipta og þess að afhenda öðrum valdið yfir eigin lífi?

4. „Gagnrýni“ þýðir ekki það sem við höldum.
Að rýna eitthvað til gagns er eitt. Að ráðast á, ásaka eða rífa niður er allt annað. En hvers vegna tökum við skoðanir annarra svona auðveldlega inn á okkur – og þurfum við yfirhöfuð að gera það?

5. Stjörnukort Guðna útskýrir ótrúlega margt.
Sól og Satúrnus í Sporðdreka, Venus í Sporðdreka, Mars í Vatnsbera og sterkur Merkúr. Kortið sýnir mann sem vill fara alla leið niður á kjarnann, umbreyta veikleikum í styrk og hefur lítinn áhuga á yfirborðinu.

All episodes of Stjörnuspeki – Orkugreining

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.