Skip to content

#0112 Tveir úr Tungunum: Töfraveröld ímyndunaraflsins

May 26, 2026 · 59 min

Show notes

Þátturinn er í boði Malbygg

Ókei ókei ókei. Eftir harðorð bréf og andstyggilegar athugasemdir höfum við ákveðið að breyta titli þessa innslags yfir í "Tveir úr Tungunum". Þar setjast tvær tungur niður og ræða málin í þaula, almennilegt nörda trúnó.

Að þessu sinni eru það Snæbjörn og Hjörtur sem eru mættir. Til stendur að spila hið æsispennandi spunaspil Draw Steel frá MCDM Productions. Bibbi fer yfir helstu þætti spilsins og þeir pæla í hvernig gera megi langdregna bardaga skemmtilegri, sem er nauðsynlegt þegar þú ert með spilahóp fullan af snarofvirkum athyglissjúkum spunadrottningum með athyglisbrest.

Þeir fara yfir óheft ímyndunarafl barnsheilans og hvað við gerum til að reyna að endurheimta þá tilfinningu. Hvenær hætti maður að vera heillaður yfir smáatriðum á einhverju korti? Hvers vegna flækjum við hlutina með sögufléttum og flókinni heimssköpun þegar hægt er að spinna hvað sem er á staðnum og það er alveg jafn gaman? Hvernig nær maður að plata sig í að halda að eitthvað sem gerist á spilakvöldi sé gríðarlega mikilvægt þegar allir vita að þetta er auðvitað alltsaman tilbúningur frá rótum?

Og hvað er í þessu andskotans bréfi sem Bjössi lét okkur fá í spili um daginn? Megum við opna það? Eigum við að opna það? Eða mun það bara þýða að spilið er búið og allir verða sendir heim...

Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

www.facebook.com/groups/svortutungurnar

Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit:

Insta: www.instagram.com/svortutungurnar

Vefsíða: www.svortutungurnar.is/

– Mættir eru: Hjörtur og Snæbjörn

– Tónlist: Flight

– Flytjandi: Scorching Ray Taylor

All episodes of Svörtu tungurnar

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.