Skip to content

067: MESHUGGAH (Gísli Sigmundsson, Stefán Magnússon, Smári Tarfur)

November 21, 2026 · 2 h 21 min

Show notes

Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir

Mikið hefur verið skrifað um Umeå (Svíðþjóð) sveitina MESHUGGAH... Sennilega hefur verið skrifað meira um þá - á skemmri tíma (síðan Metallica) -  en nokkra aðra hljómsveit (miðað við höfðatölu!) og var áhrifa Svíana knáu farið að gæta svo víða (og gerir enn) að annað eins hafði ekki heyrst síðan tja, aftur, Metallica. 
Í eina röndina er MESHUGGAH hljómsveit tónlistafólksins. Þeir geta líka verið dálæti grúskara og gagnrýnenda. Og þrátt fyrir að hljóma stundum eins og skilaboð úr vítis-víddinni í Event Horizon og í ljósi þess að akademískar greiningar og klók tónfræði og handanheima taktpælingar hljómsveitarinnar hafi verið tekin fyrir í ritrýndum rannsóknum á háskólastigi þá hefur tónlistin átt greiða leið að hjarta hvaða þungarokkara sem er og er "bolurinn" þar ekki undanskilin. Þá erum við vitaskuld að tala um smekkvísa boli. Alltént!

Þungarokksþátturinn Stokkið í eldinn naut fulltingis Gísla Sigmunds (Sátan, Sororicide, Bastarður o.fl.), Stebba hressa (Eistnaflug, sundkennsla) og Smára McTurfs (Patronian, Son Of The Wind, Dr. Brainwash o.fl.) er gasprað var af ákefð um fyrirbærið MESHUGGAH; áhrif og afrek þess.

Tónlist í þættinum
FJALLSBUR - Eternal Freeze (2026). Einyrkjaverkefni Sigurboða Grétarssonar.

Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! 
Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar.

Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Sjáumst á Sátunni 2027!
Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar.

Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.

Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.

All episodes of Þungarokksþátturinn – Stokkið í eldinn

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.