Skip to content

Sjö sakamál frá fyrri öldum - kynning á nýrri seríu um gömul íslensk sakamál

September 12, 2026 · 6 min

Show notes

Sjö sakamál frá fyrri öldum er ný sería frá True Crime Ísland þar sem sjö íslensk sakamál frá 16., 17., 18. og 19. öld eru lesin upp í tólf þáttum. Þetta er opni kynningarþátturinn og hann er öllum aðgengilegur. Serían byggir á samnefndri bók Guðbrands Jónssonar, Sjö dauðasyndir, sögur af íslenzkum sakamálum frá ýmsum öldum, sem kom út hjá Bókfellsútgáfunni í Reykjavík árið 1951. Sögurnar sjö eru þessar. Apollonia Schwartzkopf, glæpasaga frá 18. öld um dauða dansks kvenmanns á Bessastöðum. Þórdísarmálið, sakamál frá 17. öld sem hófst árið 1608. Sunnefumálið, glæpasaga frá 18. öld sem dróst árum saman fyrir dómstólum. Morðið í Eyjum, glæpasaga frá 17. öld úr Vestmannaeyjum. Sjöundármorðin, glæpasaga frá 19. öld af Rauðasandi. Hamra-Setta, sakamál frá 16. öld, frá því fyrir siðaskipti. Dauði Natans Ketilssonar, sakamál frá 19. öld. Í sögunum sést hvernig réttarkerfið á Íslandi virkaði á þessum tíma. Dæmt var eftir Stóradómi og Norsku lögum Kristjáns fimmta, mál gengu frá sýslumanni til amtmanns og Lögréttu og síðar til Landsyfirréttar og Hæstaréttar í Kaupmannahöfn og konungur gat náðað. Sönnunarfærslan var önnur en við þekkjum, meðal annars með tylftareiði þar sem maður sór sig hreinan ásamt ellefu öðrum. Refsingarnar sjást í dómsorðunum sjálfum. Serían er sjálfstæð og seld sér, utan venjulegrar áskriftar að True Crime Ísland. Greitt er einu sinni og þá fylgja allir tólf þættirnir. Nánari upplýsingar og kaup á kratos.is/hladvarp Spurningar og svör Hvað er Sjö dauðasyndir? Aukasería frá hlaðvarpinu True Crime Ísland þar sem sjö íslensk sakamál frá fyrri öldum eru lesin upp í tólf þáttum, byggð á bók Guðbrands Jónssonar frá 1951. Hver les upp? Anna Einarsdóttir og Kolka Hjaltadóttir, þáttastjórnendur True Crime Ísland. Er þetta hljóðbók eða hlaðvarp? Hvort tveggja í raun. Þetta er upplestur á heilli bók sem gefinn er út sem sería í tólf þáttum í hlaðvarpsveitunni. Þarf ég að vera áskrifandi að True Crime Ísland? Nei. Serían er sjálfstæð og keypt sér. Hvað er True Crime Ísland? Íslenskt true crime hlaðvarp þar sem farið er yfir íslensk sakamál og dóma. Nýr þáttur kemur út á hverjum mánudegi. Þáttastjórnendur eru eigendur lögmannsstofunnar Kratos þær Anna Einarsdóttir og Kolka B. Hjaltadóttir.

All episodes of True crime Ísland

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.