Skip to content

Dauðadæmd, Natasha S., Varkár/rýni

November 3, 2026 · 55 min

Show notes

„Mig langaði til að sýna fram á þá seiglu sem konur bjuggu yfir. Að elta draumana og tilfinningarnar. Láta ekki berja sig niður, þrátt fyrir allt,“ segir Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur sem gaf nýverið út bókina Dauðadæmd. Í bókinni rekur Guðný sögu Oddnýjar Jónsdóttur, vinnukonu úr Skagafirði sem var 1775 dæmd fyrir dulsmál. Refsingin var að hún skyldi hálshöggvast og höfuðið sett á stjaka. „Þegar ég opnaði dómabækurnar og dró upp allan þennan vitnisburð og mynd af sveitinni, þá varð þetta bara svo mögnuð saga, og þetta var svo magnað óréttlæti.“ Guðný verður gestur okkar í Víðsjá dagsins. Og við heyrum fleiri kvennasögur því Natasha S. fjallar um þungbæra reynslu sína af heilbrigðiskerfinu hér á landi. Það var ekki fyrr en hún ferðaðist aftur til landsins sem hún flúði, Rússlands, sem á hana var hlustað og áralangir verkir hurfu. Og að lokum fjallar Gréta Sigríður Einarsdóttir um fyrstu skáldsögu Margrétar Bjarnadóttur, Varkár, sem byggir á reynslu höfundar af sárri þrá eftir barni.

All episodes of Víðsjá

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.