Skip to content

Bedroom Community 20 ára, Elías Rúni um Fyrsta skiptið, Míkadó/rýni, 27/rýni

November 5, 2026 · 55 min

Show notes

Breiðholtið er kannski ekki fyrsti staðurinn sem fólki dettur í hug þegar hugað er að suðupotti íslenskrar tónlistar, en í Seljahverfi hefur um árabil verið rekið hljóðver, Gróðurhúsið, þar sem margir af fremstu tónlistarmönnum heims hafa komið og unnið að sinni tónlist, þar á meðal Björk, Sigur Rós, Damon Albarn, Brian Eno og Kanye West. Valgeir Sigurðsson, tónlistarmaður og upptökustjóri kom hljóðverinu á laggirnar í upphafi 21. aldar og út frá starfseminni spratt tónlistarútgáfan Bedroom Community. Útgáfan fagnar 20 ára starfsafmæli og Valgeir reifar sögu hennar í þætti dagsins. Elías Rúni hefur um árabil starfað sem teiknari og myndlýsir og hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir. Í sinni nýjustu bók, sjálfsævisögulegu myndasögunni Fyrsta skiptið, er hann á mun persónulegri nótum en áður. Þar segir Elías söguna af því að koma út sem trans og lýsir sorginni og gleðinni sem sú umbreyting felur í sér. Elías er gestur Víðsjár undir lok þáttar. Trausti Ólafsson rýnir í óperuna 27 og Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í skáldsögu Gerðar Kristnýjar, Míkadó.

All episodes of Víðsjá

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.